Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 78

Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 78
30 29. október 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is � ����������� � ���������� �������������������������������������������������� ���������������������������������������������������������� ��������������������������������������� ���������������� � ������������������ ���������������������������������������������� ������������� �������������������������������� ������������������������ ������������������������������������������ � �� ��������������������� �� ����������������������������������������� ���������� ����������������������� ��������������� ���������������������������������������������� � � ���������������������� ����������������� ������������������ � �������������� ��������������������� ������ FÓTBOLTI Tímabilið í þýsku úrvals- deildinni hefur ekki gengið að óskum hjá Gunnari Heiðari Þor- valdssyni. Í vor samdi hann við Hannover 96 en meiðsli hafa hald- ið honum á hliðarlínunni nánast allt tímabilið. Liðinu hefur einnig gengið skelfilega það sem af er tímabilinu og er í næstneðsta sæti með sex stig eftir átta leiki. Gunnar Heiðar varð marka- hæsti leikmaður sænsku úrvals- deildarinnar í fyrra er hann lék með Halmstad. Í kjölfarið varð hann mjög eftirsóttur og vann sér þar að auki fast sæti í íslenska landsliðinu. Hann skoraði til að mynda fyrsta mark Íslands í sigr- inum á Norður-Írum í Belfast í byrjun september. Síðan þá hefur hann lítið getað spilað fótbolta og gekkst undir aðgerð á nára fyrir þremur vikum síðan. Það var þó aðeins smávægi- leg aðgerð og býst hann við að vera orðinn klár jafnvel strax í næstu viku. Er með íþróttanára „Ég er ekki orðinn 100 prósent klár en þetta er allt í rétta átt,“ sagði Gunnar Heiðar við Fréttablaðið. „Þetta byrjaði fyrir fjórum vikum. Þá fór ég að finna fyrir eymslum í náranum og í kjölfarið reyndi ég að gera ákveðnar æfingar og hvíla vel á milli. Sjá hvort þetta myndi ekki lagast. En viku síðar var ég sendur til sérfræðings í Berlín sem skoðaði mig vel. Hann sagði að þetta væri sennilega það sem kall- að væri íþróttanári og er algeng álagsmeiðsli hjá íþróttamönnum. Það þurfti að framkvæma smá uppskurð og fékk ég að vita að ég yrði 4-6 vikur að jafna mig.“ Gunnar Heiðar segir að þetta hafi komið upp á versta tíma fyrir sig því liðið hafi verið nýbúið að skipta um þjálfara. „Það er mikil pressa á mér að ég fari í gang enda hef ég ekki sýnt neitt síðan á undirbúningstímabilinu. Þá gekk mér mjög vel, skoraði mikið og lék vel. Það hafa því verið margir að bíða spenntir eftir því að ég kæmist í gang með liðinu í deild- inni. Þetta hefur verið ótrúlega erfiður tími, þessar síðustu vikur.“ Nýi þjálfarinn, Dieter Hecking, vildi snemma sýna hver hefði vald- ið að sögn Gunnars. „Hann er ekki mikið fyrir að anda með nefinu. Strax setti hann tvær æfingar á dag og ég var þá einmitt nýkominn aftur eftir landsleikjahlé og var mjög þreyttur. Þetta reyndist bara of mikið á þessum stutta tíma fyrir mig. En við áttum ágætt spjall um daginn og hann hefur trú á mér. Það er spurning hvernig þetta verður þegar ég er orðinn leikfær á nýjan leik.“ Er í óvissu Aðspurður segir hann þó alls ekki sjá eftir því að hafa gengið til liðs við Hannover. Þegar hann valdi það lið sagði hann að hann hefði tekið sína ákvörðun þar sem hann vildi fara til liðs þar sem hann fengi að spila, sem hefur hingað til ekki reynst raunin. „Maður veit auðvitað lítið hvar maður stendur gagnvart nýja þjálfaranum. En það er rétt, það var hellingur af liðum á eftir manni sem eru miklu betri en Hannover. En ég sé ekki eftir neinu enda líður okkur kærustunni vel hér.“ Hann leynir því þó ekki að árangur liðsins í ár hefur reynst mikil vonbrigði. Þýska úrvalsdeildin, „Bundes- ligan“, er ein sú stærsta í Evrópu. Hvergi annars staðar í álfunni koma fleiri áhorfendur að meðal- tali á leik og eftir HM í sumar hefur áhuginn aldrei verið meiri. „Þegar ég kom hingað fyrst bjóst ég ekki við því að áhuginn yrði svona mikill. Það kom mér bara skemmtilega á óvart og setur meiri pressu á mig eins og alla aðra.“ Og hann er ekki í vafa um hvað næstu vikur og mánuðir muni bera í skauti sér. „Nú fer minn tími að koma. Það er vonandi að maður sé jafn heitur og maður hefur verið undanfarin ár. Það er erfitt að standa á hliðarlínunni og sjá liðinu ganga illa. Ég veit líka að ég get staðið mig vel í þessari deild. Það er kominn tími til að sýna þessum Þjóðverjum hvað maður getur.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is GUNNAR HEIÐAR Hér í sínum eina leik á tímabilinu til þessa, gegn Alemannia Aachen í lok ágúst þar sem hann kom inn á sem varamaður. NORDIC PHOTOS/BONGARTS Hefur verið ótrúlega erfiður tími Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur ekki átt sjö dagana sæla það sem af er tímabilinu í Þýskalandi. Meiðsli hafa plagað hann undanfarnar vikur auk þess sem lið hans, Hannover 96, hefur skipt um þjálfara. HANDBOLTI Stórskyttan Einar Hólmgeirsson hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skrifað undir þriggja ára samning við þýska stórliðið Flensburg sem Viggó Sigurðsson stýrir tímabund- ið. Einar verður fyrsti Íslending- urinn sem spilar með þessu þýska stórliði. Samkvæmt heimildum blaðsins var skrifað undir samninginn síð- asta sumar og átti ekki að tilkynna um undirskriftina fyrr en í desem- ber einhverra hluta vegna. Í ljósi þess að málið hefur lekið út er ekki ólíklegt að því verði flýtt og tilkynning um samninginn komi strax í næstu viku. Thorsten Storm, framkvæmda- stjóri Flensburg, hefur til að mynda staðið í ströngu við að neita þessum fréttum sem nokkrir fjöl- miðlar hafa sterkar heimildir um að séu sannar. Einar sagðist ekki geta staðfest að hann væri búinn að skrifa undir samning við Fréttablaðið í gær en staðfesti þó að hafa fengið samn- ingstilboð frá félaginu. Samningur Einars er eins og áður segir til þriggja ára og heim- ildir Fréttablaðsins herma einnig að um sé að ræða einn stærsta samning sem íslenskur handknatt- leiksmaður hefur gert í Þýska- landi. Þessi tíðindi þurfa ekki að koma mikið á óvart enda hefur Flens- burg lengi haft augastað á Einari sem hefur slegið rækilega í gegn með Grosswallstadt. Einar er ekki að spila með landsliðinu í Ungverjlandi vegna meiðsla en hann sagðist þó vænt- anlega vera klár í slaginn fyrir næsta leik sem er merkilegt nokk gegn Flensburg á útivelli. - hbg Stórskyttan Einar Hólmgeirsson á förum frá Grosswallstadt: Einar til Flensburg næsta sumar EINAR HÓLMGEIRSSON Hefur slegið í gegn í Þýskalandi og er á leið til stórliðs Flensburg. FRÉTTABLAÐIÐ/BONGARTS GLÍMA Forystumenn glímunnar eru búnir að spýta í lófana og boða til veislu í hinu nýja glímuhúsi Ármanns í Laugardal í dag. Um er að ræða fyrsta alþjóðlega glímumót sögunnar sem ber heitið Icelandair Open. Þátttakendur á mótinu koma frá Íslandi, Þýskalandi, Dan- mörku, Svíþjóð, Hollandi og Belgíu. Um er að ræða lands- keppni en ekki einstaklings- keppni. Mótið hefst klukkan 10 í dag og úrslitaglímurnar fara fram á milli klukkan 13 og 14. - hbg Glíman í sókn: Alþjóðlegt mót haldið í dag > KR safnar liði Í gær bárust tíðindi af því að markvörðurinn Stefán Logi Magnússon hefði samið við KR. Stefán Logi er 26 ára gamall og lék með KS/Leiftri síðasta sumar. Hann þótti á sínum tíma eitt mesta markvarðarefni landsins er hann lék með unglingaliði Bayern München. Hann stóð ekki undir þeim væntingum og hefur lítið farið fyrir honum síðan. Teitur Þórðarson, þjálfari KR, virðist þó hafa trú á honum. Nú er spurt að því hvað verði um hinn efnilega Atla Jónasson sem hélt um tíma að hann myndi leysa Kristján Finnbogason af hólmi næsta sumar er hann legði skóna á hilluna. Nú er Kristján búinn að framlengja og Stefán Logi kominn. Atli hlýtur að klóra sér í hausnum yfir stöðunni sem upp er komin. Sigurður Ingimundarson eða Valur Ingimundar- son? Hvorugur. Eða nei, Valur. Saknar þú George Byrd? Byrd gerði marga góða hluti fyrir okkur. Best við Borgarnes? Rólegheitin. Fjósið er... Góður heimavöllur. Besti erlendi leikmaður deildarinnar? Darryll Flake. Besti íslenski leikmaður deildarinnar? Hlynur Bær- ingsson. Besti íslenski körfuboltamaður allra tíma? Pétur Guðmundsson. Af hverju ertu alltaf í sveitinni? Ég ólst upp á Stokkseyri og mér hefur alltaf liðið vel í sveitinni. Bold eða Neighbours? Hvorugt. Hvernig tekur þú pylsuna þína? Með öllu. Garth Brooks eða Shania Twain? Johnny Cash. Erfiðasti útivöllurinn? Njarðvík. MEÐ VALI INGIMUNDARSYNI 60 SEKÚNDUR FÓTBOLTI Matthías Guðmundsson sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að flest benti til þess að hann myndi spila á Íslandi næsta sumar og að hann myndi ákveða með hvaða liði í næstu viku. Matthías sagði sem kunnugt er upp samningi sínum við Val og fór í kjölfarið utan til reynslu hjá liðum í Danmörku og Noregi. Það hefur enn ekki skilað neinu fyrir Matthías. Flest íslensku félögin hafa borið víurnar í Matthías og hann segir valið erfitt. Valur er á meðal þeirra liða sem koma til greina hjá Matthíasi en einhverjar viðræður hafa átt sér stað. - hbg Matthías Guðmundsson: Útilokar ekki að fara í Val MATTHÍAS GUÐMUNDSSON Gæti farið aftur í Val þótt hann hafi sagt upp samningi sínum við félagið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.