Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 81
SUNNUDAGUR 29. október 2006 33
FÓTBOLTI Juventus, Lazio og Fior-
entina fengu öll dómana sína mild-
aða þegar lokaúrskurður í stóra
hneykslismálinu var kveðinn upp
á föstudaginn. Juventus voru
dæmdir í mínus níu stig í stað
mínus sautján eins og áður hafði
verið kveðið á um, en eins og flest-
ir vita þá missti Juventus sæti sitt
í efstu deildinni á Ítalíu einnig.
Refsing Lazio var minnkuð úr
mínus ellefu stig í mínus þrjú stig
og refsingin sem Fiorentina fékk
var minnkuð úr mínus nítján stig-
um í mínus fimmtán. AC Milan
fékk sinni refsingu ekki breytt og
hún er því sem áður mínus átta
stig.
„Þessi ákvörðun sem tekin var
er ekki svara verð af hálfu Milan,“
sagði í yfirlýsingu frá AC Milan
eftir að dómurinn var kveðinn
upp.
Þessi ákvörðun dómstóla þýðir
að Juventus er nú í tólfta sæti í
annari deildinni á Ítalíu og aðeins
þremur stigum frá fjórða sætinu,
en fjögur efstu liðin fara upp í
efstu deildina á vorinn. Lazio fara
upp að hlið AC Milan eftir dóminn
en bæði lið hafa nú sjö stig og
Fiorentina eru á botni deildarinn-
ar með ekkert stig.
Það er því alveg óhætt að segja
að Juventus séu í betri stöðu en
Fiorentina eftir þessa dómsupp-
kvaðningu þegar litið er til næsta
tímabils, Juventus á nú góða
möguleika á að komast upp úr ann-
ari deildinni en góðar líkur verða
að teljast á því að Fiorentina falli
úr efstu deildinni.
Juventus sendu frá sér yfirlýs-
ingu eftir dóminn. „Þessi ákvörðun
tekur tillit, a.m.k. að einhverju
leiti, til þeirra tilrauna og þeirra
fórna sem félagið hefur gert til að
endurbyggja innra skilulagið og
ákvörðunin hefur aukið gildi
íþróttarinnar í þágu knattspyrnunn-
ar á Ítalíu,“ sagði í yfirlýsingunni
en Juventus getur vel við unað með
þá litlu refsingu sem félagið hlýtur
miðað við alvarleika brotsins.
„Fiorentina og Juventus voru
þau lið sem fengu hörðustu refs-
ingarnar upphaflega en mér finnst
að Fiorentina hefði átt að fá minni
refsingu. Ég get ekki séð að þessi
fjögur stig muni breyta miklu fyrir
okkur,“ sagði Giancarlo Antognoni,
fyrrum leikmaður Fiorentina.
- dsd
Lokaúrskurður var kveðinn upp í stóra hneykslismálinu í knattspyrnunni á Ítalíu og viðbrögð eru misjöfn:
Juventus fékk dóminn sinn mildaðann
SLUPPU VEL Juventus slapp vel eftir
alvarleg brot sem félagið hefur framið
undanfarin ár. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Portúgalski markvörður-
inn Hilario var hetja ensku meist-
aranna í Chelsea í gær gegn Sheffi-
eld United þegar hann gerði sér
lítið fyrir og varði vítaspyrnu í
stöðunni 0-0. Chelsea átti í basli
með Sheffield United í fyrri hálf-
leik en tók öll völd á vellinum í
þeim síðari og tryggðu sér 0-2
sigur á útivelli.
Andrei Shevchenko var hvergi
sjáanlegur í liði Chelsea en hann
skoraði loksins mark um síðustu
helgi. Joe Cole hélt hins vegar
sæti sínu í liðinu eftir góðan leik í
deildarbikarnum á miðvikudaginn
þar sem hann skoraði eitt mark.
Heimamenn í Sheffield United
stóðu vel í ensku meisturunum
framan af í gær og fengu dæmda
vítaspyrnu þegar Didier Drogba,
sóknarmaður Chelsea, braut á
Claude Davis á 17. mínútu. Hilar-
io, markvörður Chelsea, varði hins
vegar vítaspyrnuna.
Frank Lampard kom Chelsea
yfir stuttu fyrir leikhlé. Skot hans
af löngu færi virtist ekki ýkja
hættulegt en Paddy Kenny náði þó
ekki að verja og Chelsea leiddi í
hálfleik.
Þjóðverjinn Michael Ballack
virðist óðum vera að finna sitt
rétta form með Chelsea og hann
kom liðinu í 0-2 í upphafi síðari
hálfleiks. Markið skoraði Ballack
með góðum skalla eftir sendingu
frá Arjen Robben. Fátt markvert
gerðist það sem eftir lifði leik og
nokkuð þægilegur sigur Chelsea
því staðreynd, 0-2.
Jose Mourinho, framkvæmda-
stjóri Chelsea, var ekki sáttur við
vítaspyrnuna sem Chelsea fékk
dæmda á sig. „Dómarinn tók ranga
ákvörðun. Þetta var stór ákvörðun
að taka á móti Chelsea í upphafi
leiksins. Ef að Hilario hefði ekki
varið þá hefðum við verið í vond-
um málum. Þetta var ekki auð-
veldur leikur en við börðumst vel
í leiknum. Við áttum sigurinn skil-
ið og hefðum getað skorað fleiri
mörk,“ sagði Mourinho. - dsd
Chelsea gerði góða ferð til Sheffield þar sem liðið lagði heimamenn í United:
Hilario fer áfram á kostum og varði vítaspyrnu
MICHAEL BALLACK Er óðum að finna sitt
gamla form. NORDIC PHOTOS/GETTY
Enska úrvalsdeildin
ARSENAL - EVERTON 1-1
0-1 Tim Cahill (11.), 1-1 Robin van Persie (70.).
BOLTON - MANCHESTER UNITED 0-4
0-1 Wayne Rooney (10.), 0-2 Wayne Rooney (16.),
0-3 Cristiano Ronaldo (82.), 0-4 Wayne Rooney
(89.).
FULHAM - WIGAN ATHLETIC 0-1
0-1 Henri Camara (83.).
LIVERPOOL - ASTON VILLA 3-1
1-0 Dirk Kuyt (31.), 2-0 Peter Crouch (38.), 3-0
Luis Garcia (44.), 3-1 Gabriel Agbonlahor (56.).
PORTSMOUTH - READING 3-1
1-0 Brynjar Gunnarsson, sjm (10.), 2-0 Nwankwo
Kanu (52.), 3-0 Pedro Mendes (66.), 3-1 Kevin
Doyle (84.).
Ívar Ingimarsson og Brynjar Gunnarsson voru
í liði Reading og spiluðu allan leikinn.
SHEFFIELD UNITED - CHELSEA 0-2
0-1 Frank Lampard (43.), 0-2 Michael Ballack
(49.)
NEWCASTLE-CHARLTON 0-0
STAÐAN:
MAN. UNITED 10 8 1 1 23-5 25
CHELSEA 10 8 1 1 17-5 25
BOLTON 10 6 2 2 10-8 20
PORTSMOUTH 10 6 1 3 16-6 19
ARSENAL 9 5 3 1 16-5 18
EVERTON 10 4 5 1 16-9 17
ASTON VILLA 10 3 6 1 12-9 15
LIVERPOOL 10 4 2 4 12-12 14
FULHAM 10 3 4 3 11-15 13
READING 10 4 1 5 10-15 13
BLACKBURN 9 3 3 3 9-11 12
TOTTENHAM 10 3 3 4 6-10 12
WIGAN 9 3 2 4 12-11 11
MIDDLESB. 9 3 2 4 9-13 11
MAN.CITY 9 2 3 4 6-13 9
NEWCASTLE 10 2 2 6 7-13 8
WATFORD 10 0 6 4 7-13 6
SHEFF. UNITED 10 1 3 6 4-14 6
WEST HAM 9 1 2 6 6-13 5
CHARLTON 10 1 2 7 6-15 5
Enska meistaradeildin
BARNSLEY - COVENTRY CITY 0-1
0-1 Wayne Andrews (84.).
BIRMINGHAM - WBA 1-0
1-0 Gary McSheffrey (19.).
CARDIFF CITY - DERBY COUNTY 2-2
1-0 Glenn Loovens (52.), 1-1 Steve Howard (66.),
2-1 Michael Chopra (74.), 2-2 Giles Barnes (90.).
CRYSTAL PALACE - PLYMOUTH ARGYLE 0-1
0-1 Nick Chadwick (39.).
HULL CITY - SUNDERLAND 0-1
0-1 Ross Wallace (90.).
LEEDS UNITED - SOUTHEND UNITED 2-0
1-0 Ian Moore (40.), 2-0 Robbie Blake (88.).
QUEENS PARK RANGERS - LEICESTER 1-1
0-1 Patrick Kisnorbo (7.), 1-1 Martin Rowlands
(68.).
STOKE CITY - NORWICH CITY 5-0
1-0 Lee Hendrie (22.), 2-0 Ricardo Fuller (38.), 3-
0 Danny Higginbotham (69.), 3-0 Danny Higgin-
botham (74.), 4-0 Luke Chadwick (79.), 5-0 Darel
Russell (92.).
WOLVES - SHEFFIELD WEDNESDAY 2-2
1-0 Leon Clarke (30.), 1-1 Wade Small (36.), 1-2
Chris Brunt (53.), 2-2 Leon Clarke (73.)
STAÐAN:
CARDIFF 14 9 3 2 27-12 30
PRESTON 14 7 5 2 22-15 26
WBA 14 7 4 3 24-13 25
BURNLEY 14 7 4 3 23-14 25
PLYMOUTH 14 6 6 2 21-15 24
BIRMINGHAM 14 7 3 4 19-15 24
WOLVES 14 7 2 5 12-15 23
LUTON 13 6 4 3 23-18 22
COVENTRY 14 7 1 6 14-12 22
COLCHESTER 14 6 2 6 20-16 20
S´HAMPTON 14 5 4 5 18-17 19
DERBY 14 5 4 5 20-20 19
SUNDERLAND 14 6 1 7 19-20 19
STOKE CITY 14 4 6 4 20-13 18
LEICESTER 14 4 6 4 13-14 18
CR.PALACE 14 5 3 6 15-17 18
NORWICH 14 5 3 6 20-26 18
IPSWICH 13 5 2 6 20-22 17
QPR 14 3 5 6 19-23 14
SHEFF.WED. 14 3 5 6 13-19 14
LEEDS 14 4 1 9 13-26 13
BARNSLEY 14 3 3 8 18-28 12
SOUTHEND 14 2 4 8 12-25 10
HULL 14 2 3 9 9-19 9
Þýska Bundesligan:
NÜRNBERG - BORUSSIA DORTMUND 1-1
1-0 Jawher Mnari (59.), 1-1 Tinga (87.).
BAYERN MÜNCHEN - FRANKFURT 2-0
1-0 Makaay (24.), 2-0 Mark van Bommel (29.).
ENERGIE COTTBUS - HERTHA BSC 2-0
1-0 Daniel Gunkel (66.), 2-0 Shao Jiayi (83.).
VFL BOCHUM - VFL WOLFSBURG 0-1
0-1 Mike Hanke (25.)
STAÐAN:
W. BREMEN 9 6 1 2 27-11 19
B. MUNCHEN 9 5 1 3 14-10 16
SCHALKE 04 8 5 1 2 11-8 16
ENERGIE 9 4 2 3 13-12 14
NURNBERG 9 2 7 0 11-7 13
HERTHA BSC 9 3 4 2 14-11 13
DORTMUND 9 3 4 2 12-11 13
A. AACHEN 8 4 0 4 14-12 12
STUTTGART 8 3 3 2 14-14 12
MÖNCHENG. 9 4 0 5 10-13 12
BIELEFELD 8 3 2 3 11-10 11
B. LEVERKUSEN 9 3 2 4 13-13 11
FRANKFURT 9 1 7 1 11-11 10
WOLFSBURG 9 2 4 3 6-9 10
HAMBURGER 9 1 6 2 10-11 9
HANNOVER 96 9 1 4 4 9-18 7
FSV MAINZ 05 9 1 4 4 8-17 7
VFL BOCHUM 9 1 2 6 7-17 5
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Enska stórstjarna Wayne
Rooney var búinn að leika tíu leiki
í röð án þess að skora þegar hann
heimsótti Reebok-leikvanginn í
Bolton með félögum sínum í
Manchester United. Þrátt fyrir
markaþurrðina hefur Rooney
fengið að spila margar mínútur og
það skilaði sér í gær þegar stíflan
brast og úr varð stórflóð. Upp-
skera dagsins hjá Rooney var þrjú
mörk og 4-0 sigur United sem
hefði hæglega getað orðið stærri.
„Rooney sýndi í dag að hann er
búinn að rífa sig upp úr lægðinni
og sannaði fyrir öllum að hann er
besti enski leikmaðurinn í dag,“
sagði Sam Allardyce, stjóri Bolt-
on, sem gat ekkert gert við stór-
leik Rooney og félaga hans í Unit-
ed. „Þrennan hans var verðskulduð
og hann tróð laglega upp í þá ein-
staklinga sem hafa verið að
afskrifa hann. Fyrir utan þriðja
markið þá var lítið sem við gátum
gert gegn honum.“
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, sagði eftir leikinn að hann
hefði rætt við Rooney um marka-
þurrðina fyrir leik en þó eingöngu
til þess að róa strákinn.
„Það var ekki spunring hvort
heldur hvenær stíflan myndi
bresta,“ sagði Ferguson. „Ég sagði
stráknum bara að slaka á og þá
myndi þetta koma. Maður sá
sjálfstraustið koma hjá honum
eftir fyrsta markið og ég vonaðist
til þess að boltinn færi til hans í
hvert einasta skipti sem við héld-
um honum.“
Liverpool gerði út um leikinn
gegn Aston Villa í fyrri hálfleikn-
um í gær en á fimmtán mínútna
kafla skoruðu þeir þrjú mörk.
Mörkin skoruðu þeir Kuyt, Crouch
og Luis Garcia. Aston Villa náðu
að klóra aðeins í bakkann í síðari
hálfleik og Agbolahor skoraði
mark þegar tíu mínútur voru liðn-
ar af hálfleiknum. Þar við sat og
kærkominn sigur hjá Liverpool.
„Fyrri hálfleikurinn var það
besta sem við höfum sýnt á þess-
ari leiktíð. Við byrjuðum leikinn
af miklum hraða og héldum honum
og leikmennirnir gáfu áhorfend-
um það sem þeir vildu. Síðari hálf-
leikurinn var erfiðari og Aston
Villa sótti að okkur. Við héldum þó
ró okkar og tryggðum okkur stig-
in. Við sýndum að við erum með
góða leikmenn ef við höldum
þessu áfram þá förum við að færa
okkur ofar á töflunni. Þessi sigur
gefur okkur aukið sjálfstraust,“
sagði Rafa Benitez, framkvæmda-
stjóri Liverpool, Kampakátur eftir
leikinn.
Arsenal náði eingöngu jafntefli
gegn Everton á heimavelli í gær.
Tim Cahill skoraði fyrsta mark
leiksins á elleftu mínútu og þannig
stóðu leikar í hálfleik. Allt virtist
stefna í sigur gestanna en nítján
mínútum fyrir leikslok náði Hol-
lendingurinn Robin Van Persie að
jafna metinn í 1-1 og þannig end-
aði sá leikur.
Arsene Wenger var ekki sáttur
við stigið. „Hver leikur sem við
vinnum ekki er vonbrigði. Þetta
var mjög gremjulegt, þeir áttu
varla skot á markið og við vorum
með boltann 70% af leiknum.
Markvörður þeirra gerði sitt til að
eyða tímanum og þeir stóðu stans-
laust fyrir boltanum í aukaspyrn-
um. Þetta er neikvætt fyrir fót-
boltann en svona er leikurinn bara
í dag. Þetta var líkt og að horfa á
sömu kvikmyndina tíu sinnum,
hún verður leiðinleg á endanum,“
sagði Wenger. - hbg / - dsd
Þrenna hjá Rooney gegn Bolton
Wayne Rooney sýndi loks sitt rétta andlit gegn Bolton í gær og skoraði þrennu í stórsigri Man. Utd. Liver-
pool vann öruggan sigur á Aston Villa en Arsenal varð að sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn Everton.
BJARGVÆTTUR Robin Van Persie fagnar
hér jöfnunarmarki sínu í gær.
HVER ER KÓNGURINN? Það leyndi sér ekki að sjálfstraustið var komið aftur hjá Wayne Rooney þegar hann fagnaði þriðja marki
sínu gegn Bolton. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP