Fréttablaðið - 29.10.2006, Síða 82
34 29. október 2006 SUNNUDAGUR
HANDBOLTI Ísland og Ungverjaland
mættust í annað sinn ytra í gær og
rétt eins og í fyrri leiknum á föstu-
dag fóru heimamenn með sigur af
hólmi, 32-28. Leikur íslenska liðs-
ins var betri í gær en á föstudag
þegar vörnin var hriplek og mark-
varslan engin.
„Við spiluðum 6/0 vörn allan
tímann núna og hún gekk betur en
5/1 vörnin í fyrri leiknum. Við
gerðum marga tekníska feila í dag
og það felldi okkur,“ sagði Alfreð
Gíslason landsliðsþjálfari. „Það
vantaði náttúrulega marga sterka
varnamenn hjá okkur en það var
samt margt jákvætt og nýir hlutir
sem við reyndum voru að ganga
vel.“
Það vantaði marga sterka leik-
menn í íslenska liðið að þessu sinni
og því fengu aðrir menn að láta
ljós sitt skína. Sumir þeirra nýttu
tækifærið mjög vel.
„Logi var að koma mjög vel út í
skyttunni. Raggi [Óskarsson] fékk
að spila mikið og ég var mjög sátt-
ur við hans framlag. Vignir [Svav-
arsson] kom líka vel út í báðum
leikjunum. Þetta var mikil til-
raunastarfsemi og ágætt að fá
svona leiki líka,“ sagði Alfreð
Gíslason. - hbg
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik, þokkalega sáttur þrátt fyrir tvö töp gegn Ungverjum:
Mikil tilraunastarfsemi í gangi í þessum leikjum
LOGI GEIRSSON
Var markahæstur í íslenska liðinu í
báðum leikjunum gegn Ungverjum.
Vináttulandsleikur:
UNGVERJALAND-ÍSLAND 32-28 (17-12)
Mörk Íslands: Logi Geirsson 8, Guðjón Valur
Sigurðsson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 4, Vignir
Svavarsson 3, Snorri Steinn Guðjónsson 3, Einar
Örn Jónsson 3, Sigfús Sigurðsson 1, Arnór Atlason
1, Ragnar Óskarsson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 8, Björgvin
Páll Gústavsson 2, Ólafur Gíslason 1.
DHL-deild kvenna:
GRÓTTA-HAUKAR 27-22 (11-8)
Mörk Gróttu (skot): Natasja Damljamovic 6/3
(9/3), Eva Margrét Kristinsdóttir 6 (10), Anna
Úrsula Guðmundsdóttir 4 (5), Ragna Karen Sig-
urðardóttir 4 (6), Kristín Þórðardóttir 3 (4), Arn-
dís Erlingsdóttir 2 (3), Þórunn Friðriksdóttir 1 (1),
Sandra Paegle 1 (6).
Hraðaupphlaup: 3 (Kristín, Ragna, Natasja).
Fiskuð víti: 3 (Ragna, Þórunn, Anna).
Utan vallar: 6 mín.
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 16/2.
Mörk Hauka (skot): Hanna Guðrún Stefánsdóttir
7/2 (10/3), Sandra Stokovic 7/1 (17/2), Ramune
Pekarskyte 4 (9), Sigrún Brynjólfsdóttir 3 (4), Erna
Þráinsdóttir 1 (3), Harpa Melsteð 1 (3).
Hraðaupphlaup: 6 (Sigrún 2, Sandra 2, Ramune,
Hanna Guðrún).
Fiskuð víti: 5 (Sigrún 3, Ramune 2).
Utan vallar: 4 mín.
Varin skot: Helga Torfadóttir 8.
STJARNAN-FRAM 39-18
Mörk Stjörnunnar (skot): Rakel Dögg Braga-
dóttir 7/3 (8/3), Sólveig Lára Kjærnested 7(8),
Anna Bryndís Blöndal 5(6), Alina Patrace 4(6),
Jóna Margrét Ragnarsdóttir 3/1 (4/1), Elísabet
Gunnarsdóttir 3 (4), Kristín J. Clausen 3(4),Kristín
Guðmundsdóttir 3/1 (5/1), Harpa Eyjólfsdóttir 2
(2), Hildur Harðardóttir 2 (2)
Varin skot: Florentina Grecu 8/1, Helga Vala
Jónsdóttir 4/1
Hraðaupphlaup: 11
Fiskuð víti: 5
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Fram (skot): Þórey Stefánsdóttir 5 (9), Eva
H Harðardóttir 3 (5), Ásta B. Gunnarsdóttir 2/1
(4/3), Hildur Knútsdóttir 2 (4), Karen Knútsdóttir
2 (5), Arna E. Einarsdóttir 1 (4), Martha Sædal 1
(4), Sara Sigurðardóttir 1 (4), Hildur B. Sigurðar-
dóttir 1 (4)
Varin skot: Kristina Matuzevicke 3, Karen Einars-
dóttir 1
Hraðaupphlaup: 2
Fiskuð víti: 3
Utan vallar: 10 mínútur
HK-FH 27-24
Mörk HK: Aukse Vysniauskaite 9, Auður Waag-
fjörð Jónsdóttir 6, Elísa Ósk Viðarsdóttir 6, Tinna
Rögnvaldsdóttir 2, Rut Arnfjörð Jónsdóttir 2, Tatj-
ana Zukovska 2.
Mörk FH: Ásta Björk Agnarsdóttir 6, Þóra B.
Helgadóttir 5, Linn Kristine Mangset Gullhauge
5, Harpa Dögg Vífilsdóttir 3, Hafdís Inga Hinriks-
dóttir 3, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 1, Hildur
Þorgeirsdóttir 1.
STAÐAN:
STJARNAN 6 5 0 1 202:120 10
GRÓTTA 7 5 0 2 189:174 10
VALUR 6 4 1 1 162:148 9
HAUKAR 7 4 0 3 204:172 8
ÍBV 7 3 1 3 185:174 7
FRAM 7 2 3 2 161:176 7
HK 7 3 0 4 175:211 6
FH 7 1 1 5 153:189 3
AKUREYRI 6 0 0 6 114:181 0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Grótta tók í gær á móti
Haukastúlkum á heimavelli sínum
á Seltjarnarnesi. Fyrir leikinn
voru liðin tvö jöfn að stigum og
ljóst að um hörkuleik væri að
ræða. Svo fór að Grótta sigraði
Hauka með fimm mörkum, 27-22,
og þegar upp var staðið var sigur
Gróttu nokkuð öruggur.
Heimastúlkur tóku yfirhöndina
strax í byrjun og náðu fljótlega
þriggja marka forystu, 5-2. Hauka-
stúlkur voru þó aldrei langt undan
og náðu tvisvar að jafna leikinn, 6-
6 og 8-8, en þá tóku Gróttustúlkur
kipp og höfðu þriggja marka for-
skot í hálfleik, 11-8. Sú forysta var
ekki síst að þakka markverði
Gróttu, Írisi Björk Símonardóttur,
sem varði hvorki fleiri né færri en
12 skot í fyrri hálfleiknum og oft
úr dauðafærum.
Haukar byrjuðu síðari hálfleik-
inn nokkuð vel og náðu að minnka
muninn í eitt mark en lengra kom-
ust þær ekki. Við tók ótrúlegur
kafli hjá Gróttu og um miðjan síð-
ari hálfleik leiddu heimastúlkur
með átta mörkum og allt virtist
stefna í stórsigur Gróttu.
Haukar neituðu þó að játa sig
sigraða, vörnin fór að vinna betur
saman og í kjölfarið fengu þær
hraðaupphlaup sem nýttust vel.
Haukar skoruðu fimm mörk í röð
en það virtist hins vegar hafa
tekið mikla orku úr Haukastelp-
unum. Grótta róaðist í sínum
sóknarleik og kláraði leikinn af
öryggi.
Öruggur sigur Gróttu var því
staðreynd og liðið er með tíu stig
eftir sex leiki, en Haukar eru enn
með átta stig.
„Ég er mjög ánægður með
þennan leik. Við náðum að þétta
vörnina og fengum góða mark-
vörslu í kjölfarið. Íris var að verja
mjög vel úr öllum stöðum,“ sagði
ánægður þjálfari Gróttu, Alfreð
Örn Finnsson. „Það er ótrúlegt
hvað þetta Haukalið getur skorað
mörg mörk á stuttum tíma. Við
vorum tveimur eða þremur mörk-
um yfir í fyrri hálfleik og þær
jöfnuðu á rúmlega 30 sekúndum
og þessi kafli kom aftur í síðari
hálfleik og þær náðu að minnka
muninn niður í þrjú mörk. En ég
átti leikhlé eftir og það var mjög
dýrmætt.“
Einar Jónsson, þjálfari Hauka,
var að vonum ekki eins sáttur og
Alfreð. „Það kom þarna 12 mín-
útna kafli í síðari hálfleik þar sem
við erum hreinlega ekki með í
leiknum og þær klára í rauninni
leikinn þá. Það var engin árásar-
girni og við vorum ekki að komast
í skotfæri. Íris varði stórkostlega
í fyrri hálfleik og það gerði gæfu-
muninn,“ sagði Einar eftir leik-
inn. dagur@frettabladid.is
Íris Björk afgreiddi Hauka
Grótta vann öruggan sigur á Haukum í toppslag DHL-deildar kvenna í gær.
Grótta hafði yfirhöndina allan leikinn en lokatölur urðu 27-22.
ÖRUGGUR SIGUR Þórunn Friðriksdóttir er hér komin í gott færi en Erna Þráinsdóttir
brýtur á henni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Það er óhætt að segja
að Stjörnustúlkur verði ekki auð-
sigraðar í vetur miðað við þá
kennslustund sem þær tóku lið
Fram í í Ásgarði. Þær bókstaflega
slógu eign sinni á leikinn allt frá
fyrstu mínútu og unnu verðskuld-
aðan sigur, 39-18.
Það var mikill getumunur á lið-
unum tveimur sem mættust í
Ásgarði í gær. Stjörnustúlkur tóku
frumkvæðið strax í upphafi leiks.
Leikur þeirra var beinskeyttur og
vörnin virkaði afar traust og
hleypti fáum skotum í gegn auk
þess sem sprækur markvörður
þeirra, Florentina Grecu, átti góðan
leik í fyrri hálfleik. Á móti ein-
kenndi ráðaleysi leik Framstúlkna.
Þær voru hikandi í leik sínum og
misstu boltann alltof oft í sókn sem
leiddi til hraðaupphlaupa Stjörnu-
stúlkna. Staðan í hálfleik 16-7.
Seinni hálfleikur var endurtekn-
ing af þeim fyrri. Stjarnan nýtti
breiddina í hópnum vel og bætti
stöðugt við afgerandi forystu sína
og það var erfitt annað en að vor-
kenna Framstúlkum sem reyndu af
veikum mætti að svara andstæð-
ingum sínum en án árangurs. Loka-
tölur urðu sem fyrr segir 39-18.
Bestar í liði Stjörnunnar voru
þær Rakel Dögg Bragadóttir sem
átti stórleik bæði í vörn og sókn og
Sólveig Lára Kjærnested sem var
skeinuhætt í sóknarleik Stjörnunn-
ar. Í liði Fram var einna helst Þórey
Rósa Stefánsdóttir sem eitthvað
kvað að.
„Við unnum þennan leik aðal-
lega á sterkri vörn og hraðaupp-
hlaupum,“ sagði Rakel Dögg
Bragadóttir hjá Stjörnunni. „Við
erum líkamlegra sterkari núna en
í fyrra og það er bara að vona að
við getum haldið þessu formi út
leiktíðina,“ sagði Rakel Dögg
Bragadóttir
- sk
Spútniklið Fram sá aldrei til sólar gegn hinu öfluga Stjörnuliði í Garðabæ:
Stjörnustúlkur í feiknaformi
KOMA SVO Stjörnustúlkan Jóna Margrét Ragnarsdóttir brýst hér í gegnum vörn Fram í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM