Fréttablaðið - 29.10.2006, Page 83
SUNNUDAGUR 29. október 2006 35
ÍSHOKKÍ Þessa dagana fer fram
alþjóðlegt íshokkímót í Egilshöll-
inni þar sem sex lið etja kappi, tvö
íslensk og fjögur erlend. Það er
Skautafélagið Björninn sem stend-
ur fyrir þessu móti sem ber heitið
Icelandair Cup.
Liðin sem mætt eru til leiks eru
Copenhagen Woman frá Dan-
mörku, bandaríska liðið Bethlehem
Wicked, Kingston Diamond og
Bison Ladies bæði frá Bretlandi
auk íslensku liðanna Skautafélags
Akureyrar og Skautafélagsins
Bjarnarins.
Mótið hófst á fimmtudaginn og í
gær voru þrjár umferðir búnar af
fimm. Björninn byrjaði mótið á að
spila við Kingston Diamonds, sem
er besta lið mótsins, og tapaði 2-9
fyrir þeim. Björninn hefur unnið
báða leiki sína eftir það, fyrst lagði
félagið Copenhagen Women 4-1 og
í gær vann Björninn góðan sigur á
Bethlehem Wicked, 5-2.
Skautafélag Akureyrar hóf
mótið með sigri á Bison Ladies, 4-1,
tapaði svo fyrir Kingston Dia-
monds, 0-3, og gerði loks jafntefli
við Copenhagen Women, 1-1.
Mótið er með deildarfyrirkomu-
lagi þar sem tvö stig eru veitt fyrir
sigur og eitt fyrir jafntefli. Ef tvö
lið eru jöfn í lokin er það markatal-
an sem gildir. Mótinu lýkur í dag
- dsd
Skautafélagið Björninn stendur fyrir móti í Egilshöll:
Alþjóðlegt íshokkímót
SKOT AÐ MARKI Þessi mynd er úr viðureign SA og Copenhagen Women sem fram
fór í gær. Liðin skildu jöfn í leiknum, 1-1. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United, hefur nú gagnrýnt þá
pressu sem framkvæmdastjórar
eru undir. Ferguson hefur verið
við stjórnvölinn hjá Manchester
United í 20 ár og óttast að
kollegar hans fái sífellt minni
tíma til að ná árangri.
„Fótboltinn líður fyrir þessa
þróun. Mörg félög eru rekin af
góðum viðskiptamönnum, en það
eru allt aðrar aðferðir í fótboltan-
um en í viðskiptaheiminum af því
að fótboltinn er ástríðufullur
leikur. Í fyrsta lagi þá er ekki
hægt að vinna hvern einasta leik.
Þrátt fyrir það eru framkvæmda-
stjórar reknir þegar sex leikir
eru búnir af tímabilinu. Það getur
ekki verið gott fyrir leikinn,“
sagði Ferguson, sem vann engan
titil á fjórum fyrstu árum sínum
sem framkvæmdastjóri
Manchester United. - dsd
Sir Alex Ferguson:
Sýnið stjórum
þolinmæði
SIR ALEX Finnst yfirmenn félagsliða ekki
sýna framkvæmdastjórum sínum nógu
mikinn skilning. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Martin Jol, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, sparar
ekki stóru orðin þegar kemur að
Tom Huddlestone, leikmanni
Tottenham. Jol gengur jafnvel
svo langt að líkja honum við ekki
ómerkari mann en Franz Becken-
bauer, sem gengur oft undir
nafninu Keisarinn.
„Sem varnarmaður er hann
líkur Franz Beckenbauer. Ef hann
væri að spila sem djúpur
miðvörður, sópari, væri hann
besti leikmaður í heimi, en það
spilar enginn með djúpan
miðvörð í dag. Ég get nánast
fullyrt að ég hef aldrei séð neinn
leikmann í líkingu við hann,“
sagði Jol. - dsd
Martin Jol um Huddlestone:
Líkir honum
við Keisarann
FÓTBOLTI Fabio Capello, þjálfari
Real Madrid, er ekki að svitna
mikið þótt David Beckham hafi
ekki framlengt samningi sínum
við félagið og sé sterklega
orðaður við lið í Bandaríkjunum.
„Samningurinn er vandamál
félagsins en ekki mitt. Ég er
búinn að segja mína skoðun. Ég
lít á Beckham sem hægri
kantmann en ég er með aðra
leikmenn í þá stöðu,“ sagði
Capello, sem kallar ekki allt
ömmu sína.
- hbg
Fabio Capello:
Engar áhyggjur
af Beckham
DAVID BECKHAM Orðaður við Los Angel-
es Galaxy.