Fréttablaðið - 29.10.2006, Page 86
29. október 2006 SUNNUDAGUR38
HRÓSIÐ …
„Þannig var að viku eftir tökur
Mýrinnar fór ég að hitta Mugison.
Á meðan keyrir vörubíll inn í
hægri hliðina á Rammanum
mínum og rústar hana,“ segir Balt-
asar Kormákur kvikmyndaleik-
stjóri.
Fréttablaðinu bárust sögur af
afar sérkennilegum uppákomum í
lífi Baltasars á tímabili. Óhöppum
sem margir þeir sem trúa á aðra
heima, myndu án nokkurs vafa
skrifa á yfirskilvitleg fyrirbæri.
Drauga og forynjur. Eftir að gripið
var til tiltekinna aðgerða linnti
óhappahrotu sem leikstjórinn virt-
ist fastur í. Og síðan hefur allt leik-
ið í lyndi í lífi Baltasars. Mýrin nú
þegar, eftir aðeins viku, orðin
fjórða tekjuhæsta kvikmynd
Íslandssögunnar frá því að mæl-
ingar hófust. Á eftir Englum
alheimsins, Hafinu og Djöflaeyj-
unni. 30 þúsund áhorfendur hafa
þegar séð Mýrina. En áfram af
sérkennilegri og dularfullri frá-
sögn Baltasars – sem í fyrstu var
tregur til að tjá sig af virðingu
fyrir hinum látnu, en lét til leiðast.
„Við finnum reyndar út úr því
hver var þar á ferð og sá var böst-
aður. Ég fór í kjölfarið á réttinga-
verkstæði sem Ræsir rekur og læt
tjónameta bílinn. Skömmu síðar er
ég að leggja við Þjóðleikhúsið. Ein-
hverjir menn frá konunglega leik-
húsinu vildu hitta mig út af Pétri
Gaut. Þegar ég er að keyra í gegn-
um rafmagnshliðið aftan við leik-
húsið í þrjúhundruðþúsundasta
skiptið rek ég bílinn illa utan í og
risti upp hægri hlið bílsins. Mjög
illa.“
Nú var Baltasar hætt að standa
á sama. Hann fer enn upp á rétt-
ingaverkstæði og lætur meta tjón-
ið. Maðurinn þar spyr hvað sé eig-
inlega í gangi. Nú er rétt að taka
fram að Baltasar hefur aldrei lent
í tjóni með bíl sinn. Í tuttugu ár
keyrt án óhappa.
Skömmu síðar, meðan Baltasar
er að aka með börn sín, er hann
skyndilega hundeltur og króaður
inni við Snorrabraut af fjölda lög-
reglubíla. Lögreglumennirnir urðu
kindarlegir þegar í ljós kom hver
sat undir stýri, margir nýverið
lagt honum lið við tökur Mýrarinn-
ar. Þeir sögðu honum að þeir hefðu
tekið hann í misgripum fyrir konu
sem var á samskonar bíl og hafði
keyrt um allt og á hvað sem fyrir
var. Þeir töldu að hún væri komin
á kreik á nýjan leik.
Baltasar fór fyrir tilviljun að
taka til í hanskahólfi bíls síns, var
að leita að pappírum fyrir rétt-
ingaverkstæðið, þegar hann sér
plastpoka þar, innst inni út við
hægri hlið bílsins – þar sem ágjöf-
in hafði verið.
„Mér bregður við. Fékk algert
sjokk. Í pokanum var bein af
manni. Spjaldhryggur. Moldugur.
Og svo rifjast upp fyrir mér. Þegar
við vorum í Hvalneskirkjugarði
þar sem við fengum að grafa gröf
vegna eins atriðis í myndinni á stað
þar sem ekkert leiði var þá komum
við niður á mannabein. Ég bað
strákana að passa vel upp á þetta
því þarna væri um minjar að ræða.
Einhver hafði misskilið mig þannig
að ég vildi halda upp á þetta sjálf-
ur. Pokað beinið og sett í bílinn.“
Baltasar hafði samband við
leikmyndagerðarmann sinn, Atla
Geir Grétarsson. Og hann fór með
beinið aftur á sinn stað, gróf niður
og las yfir bæn.
„Og síðan hefur ekkert fyrir
mig komið nema gott eitt,” segir
Baltasar. Sem hefur það alveg á
hreinu að þetta verði ekki útskýrt
með því að líta til efnisheima
einna. Svo virtist sem hinn látni
hafi verið farþegi í bíl Baltasars
og viljað fá friðinn.
jakob@frettabladid.is
BALTASAR KORMÁKUR: MÝRIN ÞEGAR ORÐIN FJÓRÐA TEKJUHÆSTA MYNDIN
Draugur ofsækir Baltasar Kormák
og neitar að vera farþegi hans
OFSÓTTUR LEIKSTJÓRI Poki með beinum var fyrir misskilning settur í bíl Baltasars
Kormáks. Leikstjórinn lenti í ýmsum skringilegum uppákomum þar til hann komst að
rót vandans.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
...fær Nína Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri Sequences-
listahátíðarinnar sem lauk í gær,
fyrir vel unnið verk og að kynna
fjöldann fyrir myndlistinni.
Hvað er að frétta?
Fyrsti geisladiskurinn minn, með Víkingi
Heiðari Ólafssyni píanóleikara, var að
koma út.
Augnlitur:
Grágrænn.
Starf:
Klassísk söngkona.
Fjölskylduhagir:
Gift og barnlaus.
Hvaðan ertu?
Ég fæddist í Reykjavík.
Ertu hjátrúarfull?
Nei, ekki neitt.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn:
Ég horfi aldrei á sjónvarp.
Uppáhaldsmatur:
Það myndi vera sjávarréttapaella mannsins
míns.
Fallegasti staður:
Á tindi Snæfellsjökuls.
iPod eða geislaspilari:
iPod og 500 geisladiskar ...
Hvað er skemmtilegast?
Að syngja.
Hvað er leiðinlegast?
Að bíða, án bókar eða iPods.
Helsti veikleiki:
Fljótfærni.
Helsti kostur:
Einbeitni.
Helsta afrek:
Að krækja í manninn minn.
Mestu vonbrigðin:
Að fá ekki að leika í Jólaævintýri
hjá LA þegar ég var fimm ára.
Hver er draumurinn?
Að vera hamingjusöm.
Hver er fyndnastur/
fyndnust?
Það er Kristján Þórður
Hrafnsson.
Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
Eigingirni.
Hvað er mikilvægast?
Góðmennska.
HIN HLIÐIN: GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR SÖNGKONA
Fékk ekki að leika í Jólaævintýri
Blaðaútgáfa Íslendinga heldur
áfram að stækka og stækka þrátt
fyrir að nokkur af rótgrónustu
blöðum landsins hafi gengið í
gegnum miklar breytingar. Mikil
spenna hefur myndast í kringum
nýjasta blað Reynis Traustasonar,
Ísafold, þar sem sjálf Unnur Birna
tjáir sig í „í sínu síðasta viðtali,“ eins
og Reynir orðaði það í viðtali hjá
DV. Matgæðingar landsins halda
jafnframt niðri í sér andanum en
nýjasta matarblaðið, Bístró, er
væntanlegt úr prentsmiðju á næstu
dögum. Öllu hefur verið til kostað
við gerð þess og lá ritstjórnin, með
þær Nönnu Rögnvaldardóttur og
Friðrikku Geirsdóttir fremstar í
flokki, lengi yfir því hvernig pappír
ætti að vera notaður. Kunnugir
segja að blaðið
sé með glæsi-
legasta móti og
minni frekar
á matreiðslu-
bók en
tímarit.
Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir
hefur farið mikinn í hlutverki Ronju
Ræningjadóttur á fjölum Borgar-
leikhússins og hefur sýningin geng-
ið fyrir fullu húsi undanfarin tvö ár.
Börnin hafa tekið miklu ástfóstri
við Ronju og senda leikkonunni
aðdáendabréf í gríð og erg. Skipta
bréfin tugum ef ekki hundruðum
eftir því hver segir
frá. Flest þeirra
eru send beint
til leikkonunnar
sjálfrar en einhver
munu þó vera stíl-
uð á heimilisfang
Ronju í Matthíasar-
skógi. - fgg
FRÉTTTIR AF FÓLKI
22.07.77
Útvarpsmaðurinn sívinsæli Þröst-
ur Gestsson, kenndur við 3000,
snýr aftur í útvarp eftir árs hlé, en
hann hefur verið ráðinn dagskrár-
stjóri KissFM 895. „Þetta er fyrsti
dagurinn sem ég er í útsendingu
og allt að gerast,“ sagði Þröstur
kampakátur þegar Fréttablaðið
náði tali af honum á föstudag. „Ég
er ofsalega kátur, kominn aftur í
gamalkunnugt umhverfi með
mjög skemmtilegu fólki,“ sagði
Þröstur, sem var áður á FM 957,
en hann var dagskrárstjóri þeirr-
ar stöðvar í þrjú ár. Eftir að hann
hvarf úr útvarpi hefur Þröstur
verið skemmtanastjóri á Café
Victor og Sólon og mun hann sinna
þeim skyldum sínum samhliða
nýja starfinu. KissFM hefur aug-
lýst breyttar áherslur í dagskrá,
og Þröstur segist ætla að nostra
við útvarpsstöðina. „Ég mun laga
það sem upp á vantaði og breyta
aðeins til,“ sagði hann. „Dag-
skránni hefur nú þegar verið
breytt nokkuð, og dagskrárgerð er
lengur í loftinu. Hér er fullt af
góðri tónlist og góðu fólki,“ sagði
hann. „Og svo er náttúrlega fram-
kvæmdastjórinn fallegi, Kristján
Jónsson,“ bætti hann við, en sá er
einnig þekktari undir viðurnefni
sínu, Kiddi Bigfoot.
„Ég hef skrifað nafnið mitt
undir það að Reykjavík hafi aldrei
hljómað betur,“ sagði Þröstur um
framtíð KissFM. „Hér eiga eftir
að heyrast nöfn sem fólk mun reka
upp stór augu yfir, fólk á alveg
eftir að finna fyrir mér á næst-
unni,“ sagði Þröstur áður en hann
sneri sér aftur að hljóðnemanum.
- sun
Þröstur 3000 fer aftur í loftið
AFTUR Í LOFTIÐ EFTIR ÁRS HLÉ Þröstur 3000 við hljóðnemann á fyrsta degi í útsend-
ingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 40 ár .
2 Pétur H. Blöndal .
3 Egill Ólafsson .
Veistu svarið
1. 40 ár
2. Pétur H. Blöndal
3. Egill Ólafsson