Fréttablaðið - 29.10.2006, Qupperneq 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
���������������������
����������
Fjórtán
áfangastaðir í Evrópu
Sex nýir áfangastaðir!
París þarf vart að kynna, fögur og rómantísk heimsborg,
iðandi af litríku mannlífi og menningu.
Ósló, hjarta Noregs og miðstöð menningarlífs, stjórnsýslu
og viðskipta frændþjóðar okkar.
Bergen, skemmtileg strandborg, vel geymt leyndarmál
– en ekki mikið lengur!
Basel í Sviss er á bökkum Rínar, miðpunktur Mið-Evrópu:
Frakkland, Þýskaland og Ítalía innan seilingar.
Billund í Danmörku er vinalegur og fjölskylduvænn bær
sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla
fjölskylduna! Sala hefst síðar.
Eindhoven í Hollandi er vel í sveit sett, aðeins um
klukkustundar ferð til Brussel, Rotterdam, Amsterdam
og Düsseldorf.
7.995kr.
Nýjar línur fyrir
næsta sumar!
www.icelandexpress.is
Lo
n
d
o
n
Fran
kfu
rt H
ah
n
A
licante
B
asel
París
Berlín
Fried
rich
sh
afen
Eindhoven
Re
yk
ja
ví
k
Ak
ur
ey
ri
N
ýr áfangastaður
N
ýr áfangastaður
N
ýr áfangastaður
Kaupmannahöfn
Gautaborg
Bergen
Ósló
Stokkhólmur
Nýr áfangastaður
Nýr áfangastaður
Billund Nýr áfangastaður
Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 www.icelandexpress.is
Aðra leið með sköttum.
VERÐ FRÁ:
7.995kr. 50%
BÖRN:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum,
fá helmingsafslátt af verði fyrir skatta og gjöld.
Það er augljóst að ferðaglaðir Íslendingar eru vel með á
nótunum því sala á flugáætlun Iceland Express fyrir næsta
sumar hefur farið glimrandi vel af stað.
Sérstaklega erum við í sjöunda himni yfir frábærum
viðtökum nýju áfangastaðanna okkar en eins og flestir
vita hefur Iceland Express bætt við sex nýjum
áfangastöðum í Evrópu næsta sumar.
Það er þó engin ástæða til að örvænta því enn er til nóg
af lægstu fargjöldunum og þú veist hvernig þetta virkar:
Þeir fyrstu sem bóka fá lægsta verðið.
Því eru lítil takmörk sett hvað mér drepleiðast rökræður
núorðið, eins og ég hafði gaman af
þeim þegar ég var yngri. Ég vil
jafnvel taka svo djúpt í árinni að
fullyrða að fátt sé einmitt betur til
þess fallið að eyðileggja samræður
en rök. Rök eru þurr og leiðinleg,
fyrirsjáanleg og þarafleiðandi full-
komlega húmorslaus. Rökvillur
eru fyndnar.
RÖK eru legókubbar sálarinnar.
Þroskaleikföng. Æfing í að hugsa
skýrt fyrir stráka í Morfísleik sem
halda að þau leysi lífsgátuna. Með
þeim kryfja þeir heiminn eins og
þeir skynja hann til að skilja hann
betur. En maður vex upp úr þeim.
Það býr enginn í húsi úr legókubb-
um.
SMÁM saman áttar maður sig á
því að það sem skiptir raunveru-
legu máli, verðmætin sem mölur
og ryð fá ekki grandað, byggir ekki
á rökum. Ást og fegurð, hamingja
og kærleikur – ekkert af þessu er
niðurstaða gildrar rökleiðslu. Þetta
eru tilfinningar sem eiga það til að
þyrma yfir mann, algerlega upp úr
þurru, án þess að hægt sé að henda
nokkrar reiður á því hvaðan þær
koma eða hvers vegna. Stundum
eru þær hreinlega ópraktískar, en
eru samt þess eðlis að ekki er hægt
að leiða þær hjá sér.
ÞAÐ er ekkert rökrétt við að eyða
stórfé og tíma í að slá kúlur ofan í
holur í jörðina eða að standa úti í á
og veiða fisk sem maður sleppir og
koma svo við í fiskbúð á leiðinni
heim. Það er ekkert rökrétt við að
hafa sérviskulegan smekk og
úthella blóði, svita og tárum til að
geta haft hlutina nákvæmlega eftir
manns eigin höfði. Það er ekkert
rökrétt við að fyllast hugarró við
að lúta höfði og viðurkenna að sumt
geti maður einfaldlega ekki vitað
og ákveða í staðinn að treysta í
blindni. Samt hafa meintar skyn-
semisverur staðið sig að þessu öllu
og mörgu enn órökréttara og ekki
bara sloppið klakklaust frá því
heldur beinlínis fundist það auka
lífsgæði þerra. Dýrmætustu svið
tilverunnar eru einfaldlega handan
raka.
RÖK eru gróf einföldun á til-
verunni. Tilveran er ekki gerð úr
hornréttum einingum sem smella
saman á skipulegan hátt. Stundum
ræður það eitt hvernig maður kýs
að líta á hlutina, því hvort og hvern-
ig þeir yfirhöfuð smella saman.
Það er auðvitað þvert á öll rök.
MESTA rökvillan er þó auðvitað
sú að ætla að færa rök fyrir því af
hverju rök mega sín lítils.
Legókubbar
sálarinnar