Tíminn - 25.03.1979, Page 11
Sunnudagur 25. mars 1979.
11
fil Aöalsteinsson, sem hefur nýlega
erð um þetta efni
Ina. þar sem Þorgeir Ljósvetningagoöi lá undir feldinupi foröum. Hitt vita
Ö „hingað mændueitt sinn allar þrár”, — að hér voru teknar hinar mikii-
ar hverjar standa óhaggaðenn þann dag í dag, m.a. sá úrskurður, að ein lög
kristnir vera.
niðurstöðum þinum. Er ekki sitt-
hvað fleira um þetta að segja?
— Meginniðurstöðurnar hef ég
vist þegar nefat. Þær eru á þá
leið, að Þorgeir hafi leitað goð-
svars undir feldinum. Þetta fæ
ég fram með samanburði á hlið-
stæðu atferh, sem heimildir eru
um á Norðurlöndum og enda vlð-
ar, eða allt frá Lapplandi til Skot-
lands og írlands. Þar virðist þetta
hafa verið stundað, að leggjast
niður, breiða einhvers konar voð
yfir sig og risa slðan upp fróðari
en menn voru fyrir. Um þetta eru
einnig heimildir héðan frá ís-
landi, en þær eru yngri, og
kannski ekki mjög áreiðanlegar,
en geyma þó vafalaust minni um
að þetta hafi verið haft um hönd
hér einhvern tima i fyrndinni.
Þetta eru sem sagt megin-
niðurstöðurnar, en I framhaldi af
þeim er reynt að skýra viðbrögð
heiðinna manna á Þingvöllum á
þann hátt, að þeir hafi látið sér
goðsvarið að kenningu verða, og
þess vegnahafiþeir samþykkt að
hlita þeim úrskurði sem Þorgeir
kvaðupp. Og einmitt þetta, að úr-
skurðurinn var svona til kominn,
— á yfirskilvitlegan hátt — tel ég
vera nokkra skýringu á því, hvers
vegna ekki varð afturhvarf til
heiðninnar hér á iandi, eins og
t.d. varð I Norgegi eftir fall ólafs
Tryggvasonar, en þar hafði
kristnin verið barin inn I menn
með illu, eins og alkunnugt er af
sögum. Rannsóknir mlnar hafa
m.a. leitt til þeirrar niðurstöðu,
að Islendingar hafi teki meira
mark á trúarskiptum sínum og
haldið hinn nýja sið betur vegna
þess að þeir hafi talið að Þorgeir
Ljósvetningagoði hafi byggt úr-
skurð sinn á goðsvari.
Einstaklingarnir á bak-
við atburðarásina
— Það fer nú vist senn að llöa að
lokum þessa spjalls okkar, en að
slðustu langar mig að spyrja,
hvort þú hafir ekki grúskað eitt-
hvaö I einstaklingunum, sem
koma við sögu og áttu þátt I að
móta framvinduna á þessum
örlagariku ti'mamótum.
— Tveir einstaklingar koma
mest við þá sögu, sem við höfum
veriðaðtalaum hér. Það eru þeir
Þorgeir Ljósvetningagoði og
Siðu-Hallur. Ég hef reynt að
kanna allt sem um þá verður vit-
að, samkvæmt bestu fáanlegum
heimildum, og reyni að nota þá
vitneskju eins og framast er unnt
til þess aö varpa ljósi á atburða-
rásina. Ég kemst t.d. að dálitið
annarri niðurstöðu um Slðu-Hall,
og er ekki sammála öllu, sem
sagt hefur verið um framkomu
hans Isambandi við kristnitökuna
á Alþingi. Þaö hefur oft verið
sagt, .að hann hafi sett fram
ákveðnar kröfur, en samkvæmt
öllu sem vitað er um Siðu-Hall
virðist hann hafa verið manna
óllklegastur til kröfgerðar — og
allra sist að setja fram óbilgjarn-
ar kröfur. Hann er þvert á móti
liklegur til þess að gefa eftir og
kjósa frið, jafnvel þótt það kosti
hann að slaka eitthvað á kröfum.
Sömuleiðis reyni ég að kanna
heimildir um Þorgeir Ljós-
vetningagoða og frændur hans
sömuleiðis. Það er dálitið at-
hyglisvert, að einn af sonum Þor-
geirs varð frægur fyrir „yfir-
náttúrlegar” gáfur, eða dulargáf-
ur. Hann var nefndur
Drauma-Finni sökum þess hve
draumspakur hann var. ömmu-
bróðir Þorgeirs Ljósvetninga-
goða er llka víðfrægur I sögum
fyrir „yfirnáttúrlegar” gáfur sin-
ar. Auðvitað sannarþetta ekki að
Þorgeir hafi llka verið gæddur
slikum gáfum, en hins vegar eru
þessar heimildir örugg vlsbend-
ing um það, i hvers konar and-
rúmslofti hann hefur lifað, —
hvert hans andlega umhverfi hef-
ur verið.
— Þetta rennir óneitanlega
stoðum undir niðurstöður þlnar?
— Já, og niðurstööur mi'nar
styðja lika eindregið það sem Ari
segir I Islendingabók. Samkvæmt
þeim athugunum sem ég hef gert
virðist Ari hafa skrifað texta sinn
af hnitmiöaðri nákvæmni. Hann
hefur vitað upp á hár hve mikiö
hann mátti segja, og hvernig
hann átti að haga orðum sinum til
þess aö segja allt sem segja
þurfti, án þess þó að segja nokk-
urn tima orði og mikið.
-VS.
Byggður á grind með 65 ha. tvígengisvél (Gamla Saab-vélin)
Gormar á öllum hjólum
og billinn því dúnmjúkur
í holum og eiginleikar
bilsins i lausamöl
eru frábærir.
Komið, skoðið og kynnist þessum eftirsóttasta
bil austantjalds.
*
Svo kemur það ótrúlega
Verðið:
Station kr. 2.150.000.-
Sedan kr. 1.950.000.-
Dragið ekki að panta bil
Til afgreiðslu strax
Hafið samband við sölumenn okkar
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Vonarlandi v/Sogaveg Símar 84510 84511