Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 12

Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 25. mars 1979. Þessi mynd er Ur auglýsingu frá Norsk skog sem birtist nýlega i isienzkum blööum „Hluti þessa skógar er fluttur til lslands sem framleiösluvörur,” segir m.a. í texta meö myndinni, „svo sem dagblaöabappir, auk timburs og spónaplatna.” Giskaö er á aö þessi skógur sé 80-100 ára gamali. Þaðhefur vafalaust ekki farið framhjá neinum/ sem um þjóðmál hugsar, að mikil vá stendur fyrir dyrum íslensks landbúnaðar í dag og verður ekki séð af skrifum um vanda þennan og þeim úrræðum, sem bent hefur veriö á, að hann sé auðleystur, hvorki i bráð né lengd. v Það má nú með sanni segja, að tvenna megum við islendingar muna tímana i þeim efnum. Fyrr á öldum, já allt fram á ofanverða síðustu öld, var vandi ís- lensks landbúnaðar bundinn harðindum af völdum hafíss, náttúruhamfara og grasleysis. Tiðasta dánarorsökin þá var „ófeiti" en svo nefndu menn hungur- dauðann. >em betur fer er sú dánarorsök úr sögunni, nú er það fremur „of- feitin" sem talin er valda ótímabærum dauða margra manna. ótti við þessa „offeiti" sem alið hefur verið á með áróðri lífhræddra „kyrrsetumanna" svo notuð séu orð sunnlensks bónda i blaðagrein nú fyrir skömmu, eykur á vandann sem af oframleiðslu landbúnaðarvara hlýst, með þvi að draga úr neyslu manna á landbúnaðarafurðum, einkum þó feitu kjöti og mjólk. Eins og kunnugt er leiðir þessi mikla of framleiðsla til útgjalda fyrir ríkissjóð í niðurgreiðslum, en nema á f járhagsárinu 1978/79 sem svarar 1,1 milljón króna að meðaltali á hvern bónda i landinu og þó vantar jafnháa upphæð eða jafnvel hærri, svo bændur fái umsamdar tekjur, miðað við svokallaðar viðmiðunar- stéttir. Landbúnaðarráðherra kom inn á þennan vanda í ræðu við setningu Búnaðarþings. Taldi hann, ef ekki fengist úrbætt, að tekjuskerðing hvers meðal- bús í landinu næml um 1,2-1,3 millj. khóna. úrræði efst á baugi Svo viröist sem úrræði þau, sem efst eru á baugi, beinist fyrst og fremst að þvi að draga úr framleiðslu hinna venjulegu landbúnaðarafurða, dilkakjöts og mjólkur og létta þannig á rikissjóði, án þess þó að draga verulega úr tekjum bænda, nema þá helst stórbændanna, eða aö byggðin dragist saman að ráði.Um þetta þrennt virðast flestir sammála hvar sem þeir i flokki standa. Fulltrúar framleiöenda, bændurnir, hafa þingað mörg- um sinnum um þennanvanda og þau úrræði, sem meirihluti þeirra kemurhelst auga á til úr- bóta, eru birt 1 frumvarpi þvi er landbúnaðarráðherra lagði fyr- ir Alþingi það er nú situr. Frum- varp þetta hefúr verið mjög til umræöu i blöðum og sýnst sitt hverjum, einsog gengur. Meðal annarra skrifaði Halldór Páls- son búnaðarmálastjóri um það i grein er hann birti i Timanum þ. 12. jan. sl. og nefndi „Mikill vandi blasir viö landbúnaðin- um”. Þar segir hann frá að- draganda þessa frumvarps og metur si'ðan kosti þess og galla og verður vart séð hvorir vegi meira. Ný búgrein Ein grein þessa frumvarps telur þó búnaöarmálastjóri aö muni tryggja samdrátt tramleiðslunnar ogleyfi ég mér að birta þannkafla greinarhans orðrétt, sem um þetta f jallar, en hann nefnir hann ,,Þeir eiga ekki einir aö bera krossinn”. Aðeins eitt atriöi í frumvarpinu ef að lögum veröur tryggir sam- drátt framleiðslunnar. Það er i a-lið 2. gr. og hljóðar svo: „A sama hátt er Framleiðsluráði heimilt að ákveða framleiðend- um sérstakar verðbætur ef þeir draga úr framleiðslu sinni um ákveðinn hundraöshluta”. En þetta er mergurinn máls- ins. Hefur Islenska þjóðin efni á þvl að kaupa Islenska bændur til að draga úr framleiðslu? Ef svo er þá ætti rikið að taka a.m.k. verulegan þátt I þvi starfi en ekki leggja það á bændur eina. Þeir eiga ekki ein- ir að bera krossinn á aftöku- staðinn”. (Tilv.lýkur). Landbúnaöarráöherra, Stein- grímur Hermannsson, virðist svipaðs sinnis. 1 drögum að þingsályktunar-tillögu um stefnumörkun I landbúnaði sem hann lagöifram á fundi fulltrúa bænda, neytenda og þingflokka, þ. 23. febr. sl. og eru I þremur liðum, kemst hann svo að orði I rökstuðningi við þriðju greinina sem fjallar um byggðamark- miðið: „Til aö forðast frekari röskun I byggð landsins skal stefnt aö þvi aö dreifing setinna býla um landið veröi sem mest i þvl horfi sem nú er. 1 þvi skyni veröi geröar ráöstafanir til aö styrkja búsetu I einstökum byggöum eða landsvæöum. Kostnaöur af slfkum aögeröum veröi borinn uppi af þvi fé sem þjóöin ver til aöhalda jafnvægi i byggö landsins”. Ekki verður fjölyrt um önnur þau úrræöi sem borið hefur á góma til aö draga úr vanda þeim sem við er að fást. 1 þvi sambandi hafa verið nefndar ýmsar aukabúgreinar til að bæta bændum upp þann tekju- missi, sem þeir kunna aö verða fyrir. Þau úrræði eru f lest stað- bundin og ekki líkleg til að við- halda „jafnvægi i byggð lands- ins”, svo notuð séuorð ráðherr- ans. Ef draga á úr framleiðslu kjöts og mjólkur verður jafn- væginu ekki viöhaldið nema með alþjóöarátaki eins og land- búncðarráðherra leggur til I drögum slnum ognefndin gerði, sem undirbjó landbúnaðarfrv. meö a-lið annarrar greinar og áður var minnst á. Eins og áður segir veitir þessi grein frumv., ef að lögum verður, Fram- leiðsluráði heimild til að greiða framleiðendum veröbætur fyrir bústofnsskeröinguna. Af tillögu- drögum ráöherra veröur ekki séö með hvaöa móti bændur verði styrktir til búsetu I ein- stökum byggöum og landsvæð- um nema að þaö eigi að gerast af almannafé. Æ skal gjöf til gjalda, stendur þar. IUa þekki ég islenska bændur ef þeir nenna þvl til lengdar aðsit ja hálf-iðjulausir á búum sinum sem eins konar gustukamenn þjóðarinnar, án þess að nokkurs framtaks sé krafist af þeirra hendi annars en þess að minnka við sig búin. Með það I huga hvers eðlis vandi sá er sem við er að fást sem m.a. getur valdið þvi, finn- ist ekki heppileg lausn til fram- búðar, að obbinn af afskekktari byggðum landsins leggist I auön, sætir það mikilli furðu að enginn af öllum þeim sem stungið hafa upp á aukabú- greinum til aö draga úr vandan- um, jafnvel að bændur fari að framleiða svinakjöt framleitt á erlendu fóðri I stað dilkakjöts, skuli ekki hafa dottið I hug sú aukabúgrein sem frændur okk- ar á Noröurlöndum hafa öldum saman stundað með ágætum árangri — nytjaskógrækt. Þessi staðreynd er þeim mun furöu- legri þar sem fyrir liggur örugg vitneskja aö þessi búgrein er meira en möguleg, hún gæti verið mjög arðbær. Þaðskal aö visu játað aö hún skilar ekki beinum arði í vasa þeirra sem við hana vinna fyrstu tlu-15 árin og kemst ekki, hvað skjótan gróða snertir, I samjöfnuð við ræktun refa og minka. Það kost- ar átak einnar kynslóðar, 40-50 ár, að ala upp eitt tré til fullra afurða. Hér á eftir verður þess freist- að að færarök fyrir þeirri stað- hæfingu að nytjaskógrækt er ekki aðeins möguleg á Islandi, hún er sjálfsögö. Rökin I bókinni „Skógarmál” sem kom út 1977 og tileinkuð er Há- koni Bjarnasyni fyrrv. skóg- ræktarstjóra, má fá vitneskju „Skrýðum bera sendna strönd.” Ungur leirskógur vex upp af rýrum fiagmó á bökkum Lagarfljóts i landi Hafursár i Vallahreppi. Gróður- sett 1969, 6000 tré á hektara. Myndin er tekin I sept. 1977. (Ljóm. Sig Biöndal)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.