Tíminn - 25.03.1979, Qupperneq 23
Sunnudagur 25. mars 1979.
23
PL ÖTUDÓMA
P o c o
Poco - Legend
AA-1099/Fálkinn
Ég er ekki frá þvl aö „Legend” sé einhver besta
plata Poco og þar sem aliir eru aö tala um nýbylgju
mundiég segja aö þessi plata sé á miöbylgju. Poco
hefur lfka oftast talist til country-rokk-hljómsveita
og svo mun enn. Um Legend má þaö og segja aö hún
er fyrst og fremst skemmtileg mjög hæg og þægileg
og jafnframt tilþrifalitil. Laglinan er oftast mjög
einföld en útsetningar bæta hana stundum upp og
þyngja hana og þó varla nógu oft. Sjálft lagiö
„Legend” sýnir aftur þá hliöina á Poco sem skyid-
ari er þunga rokkinu og þetta lag ásamt „Boomer-
ang” eru vafalaust bestu lögin á plötunni. Og svo ég
geri eitt iag enn aö umtalsefni iagiö „Love comes,
Love goes”, þá er þaö augljóslega stoliö frá Bay
City Rollers.
KEJ
Supertramp - Breakf ast in America
Eftir 18 langa mánuöi hefur hin virta hljómsveit
Supertramp sent frá sér nýja plötu, „Breakfast in
America”, og er mér þaö ljúft verk sem aödáanda
hljómsveitarinnar aö skýra frá þvi aö vandlega
athuguöu máli, aö þessi plata fellur eins og flfs viö
rass, viö fyrri meistaraverk hljómsveitarinnar.
Þaö er erfitt aö hugsa sér aö nú eru liöin fimm ár
frá þvi aö „Crime of the Century”, fyrsta og mesta
meistaraverk hljómsveitarinnar, kom út, en hún
varö einmitt til þess aö Supertramp hlutu almennar
vinsældir. Sföan hafa Supertramp gefiö út þrjár
plötur, þessi nýja meötalin, og allar hafa þær veriö
eins og viö var aö búst vægast sagt mjög góöar.
Ef til vill er þaö ofverk mitt aö ætla aö fara aö
skilgreina tónlist og stil Supertramp hér, en geta
skal þess þeim til glöggvunar sem fylgst hafa meö
aö still hljómsveitarinnar hefur litiö sem ekkert
breytstá þessum mánuöum og þaö litla sem breytst
hefur, hefur ekki oröiö til hins verra.
Sem fyrr eru þaö Rick Davies (söngur og hljóm-
borö) og Roger Hodgson (söngur, hljómborö, gitar-
ar) sem eru aöalmenn hljómsveitarinnar og semja
þeir aö venju öll lög og texta.
Þessir kappar einkenna Supertramp meir en
margan kynni aö gruna, þvi aö söngur þeirra svo og
hljómborösleikur eru aöalsmerki hijómsveitarinn-
ar og má það til sanns vegar færa aö raddirnar séu
aðalhljóöfæri þeirra félaga.
Aörir Supertramp meölimir eru: John A.
Helliwell (Woodwind Instruments), Dougie Thomas
(bassi), Bob C. Bernberg (trommur) og Russel
Pope, sem titlaöur er „concert sound engineer”.
Allir þessir menn.auk þeirra tveggja sem áöur
var getiö.mynda eina órjúfanlega heild, hljómsveit-
ina Supertramp, sem liklega hefur aldrei veriö betri
en nú. Tónlistin er aö sönnu nokkuö þyngri en á und-
anförnum plötum og ekki laust viö aö maöur sakni
léttari og auömeltanlegri laga, en hvaö sem þvi lfö-
ur er hér um aö ræöa plötu sem stendur upp úr og er
llkleg til þess aö afla Supertramp enn frekari hylli.
Ekki er hægt aö skilja hér viö Supertramp, án
þess aö minnast á umslagiö utan um plötuna en
hugmyndin aö þvi er meö þeim betri sem sést hafa
noröan Alpafjalla i seinni tiö.
—ESE
Bob Welch - Three Hearts
Capitol • EMI SO-11907 / Fálkinn
Þaö væri auöveldlega hægt aö afgreiöa þessa nýj-
ustu sólóplötu Bob Welch meö þvi aö segja einfald-
lega aö hún sé nákvæmlega eins og platan „French
Kiss”, sem út kom fyrir rúmu ári og þaö án þess aö
syndga á nokkurn hátt gegn sannleikanum. Ég gæti
sem hægast birt hljómplötudóminn um „French
Kiss”, sem birtist hér I Nútfmanum I mars I fyrra,
breytt nöfnunum á lögunum og þá væri sá dómur
fyllilega viöeigandi. Sannleikurinn er nefnilega 8á
aö Bob Welch, fyrrum gltarleikari Fleetwood Mac
og sföar stofnandi hljómsveitarinnar Paris hefur
hér ekkert nýtt fram aö færa, nema ef ske kynni aö
þaö færöist honum til tekna aö utan á plötuumslag-
inu eru tvær stúlkur I fylgd meö honum I staö einnar
áöur. — Hámark sköpunnargáfunnar ætti þvi aö
vera þrjár iögulegar hnátur utan á næsta plötuum-
slagi og meö tlö og tlma gæti þvl Welch látiö mynda
sig meö heilum stúlknakór I lokin ef hann veröur
ekki vandlátari en þetta I framtlðinni.
Svo aö vikiö sé nánar aö „Three Hearts”, en þaö
er heitið á nýju plötunni, þá nýtur Welch sem fyrr
aöstoöar fyrrverandi félaga úr Fleetwood Mac og
eins og á „French Kiss”, trommar Mike Fleetwood
iheilu lagi á plötunni. Þá er trommuleikarinn Alvin
Taylor á sinum staö, en stjórn upptöku er I höndum
Carter sem einnig stjórnaöi upptöku fyrri plötunnar
ásamt Lindsay Buckingham FM.
Ég tel ekki ástæöu til aö fjölyröa um einstök lög á
þessari plötu, I þvl sambandi gæti ég vitnaö I árs
gamlan hljómplötudóm, en þó tel ég rétt aö minnast
þess aö á plötunni er lag þeirra Lennons og
McCartneys „I saw her standing there”. Þvl lagi
eru gerö slæleg skil og útsetning ekki frábrugöin
hinni upprunalegu. Lagiö „Church” er þaö eina sem
★ ★ +
ég get fengiö mig til aö hæla, enda er þaö þaö eina
sem ekki er eins og ljósritaö af „French Kiss”.
Vera má aö gott gengi þeirrar plötu, sem selst
hefur grimmt I Bandarikjunum, hafi oröiö til þess
aö hvetja Welch til þess aö drýgja frekari dáöir, en
meö þessu slöasta framlagi hans, sem greinilega er
af vanefnum gert, er ekki llklegt aö hann vinni
mikla sigra og þvi heföi hann betur heima setiö.
—ESE
Frábær ★ ★ ★ ★ ★ • Mjög góö ★ ★ ★ ★
Viðunandi ★ ★ ★ - Sæmileg ★ ★ - Léleg ★
Tilkynning til
viðskiptamanna banka
og sparisjóða
Hinn 2. april n.k. breytist opnunartimi
innlánsstofnana á þann veg, að afgreiðslu-
staðir munu eftirleiðis opna kl. 9,15, sem
áður hafa opnað kl. 9.30.
Jafnframt verður lokunartima afgreiðslu-
staða, er lokað hafa kl. 18.30 eða 19.00
breytt á þann veg, að þeir munu loka kl.
18.00.
Landsbanki íslands
Útvegsbanki tslands
Búnaðarbanki tslands
Alþýðubankinn h.f.
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis.
Sparisjóður Kópavogs.
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Sparisjóðurinn Pundið.
Sparisjóðurinn i Keflavik
Sparisjóður Vélstjóra
Versiunarbanki tslands h.f.
Iðnaðarbanki tslands h.f.
Samvinnubanki tslands h.f.
Tilboð óskast
i eftirtaldar bifreiðar sem skemmst hafa i
umf erðaróhöppum.
Bronko árg. 1974
Scout árg. 1974
Rambler Cl. árg.1966
Vauxhall Viva árg.1971
Escort árg.1972
Escort sjálfsk. árg.1975
Datsun árg.1972
Ford Torino árg.1971
V.W. 1300 árg.1966
V.W. 1200 árg.1974
Fiat125 árg.1971
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu-
veg 26, Kópavogi mánudaginn 26/3 ’79.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
bifreiðadeild fyrir kl. 17 27/3 ’79.
Fjórðungssjúkrahúsið
ó Akureyri
óskar eftir að ráða HJÚKRUNAR-
DEILDARSTJÓRA að Geðdeild (T-deild)
sjúkrahússins.
Ennfremur óskast HJÚKRUNARFRÆÐ-
INGAR til sumarafleysinga á ýmsar
deildar sjúkrahússins.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i
sima 91-22100.
Ragnheiður Árnadóttir
hjúkrunarforstjóri.
Jarðir óskast
Höfum verið beðnir að útvega tvær jarðir
á Suður- eða Suð-vesturlandi, aðra góða
bújörð, hin er hentað gæti félagasamtök-
um. Upplýsingar veittar i sima 99-1666 og
99-1886 (á kvöldin).
Suðurgarður hf.
Selfossi.