Tíminn - 27.03.1979, Qupperneq 3
Þriðjudagur 27. mars 1979
3
Aukin tengsl
AM — Einn þeirra
bænda, sem nú sækja í
fyrsta sinn aðalfund
Samstarfsnefndar Bú-
vörudeildar og afurða-
sölufélaga innan Sam-
bandsins, er Jón
Bjarnason bóndi i
Bjarnarhöfn, en hann er
jafnframt stjórnarfor-
maður kaupfélagsins i
Stykkishólmi. Við
spurðum Jón álits á
þessari nýbreytni.
Jón Bjarnason
„Ég fagna þessari nýju tilhög-
un, sem gerð er til þess að skapa
meiri skilning og tengsl milli
framleiðenda og afurðasölufé-
laga og Búvörudeildarinnar”,
sagði Jón. „Með þessu gefst
Rætt við Jón
Bjarnason
í Bjarnarhöfn
framleiðendum tækifæri til þess
að sjá hvernig þessi starfsemi
gengur fyrir sig og hvernig
gengur frá einum tima til annars,
og þeim gefst færi á að gera sínar
athugasemdir og ábendingar
milliliðalaust. Ég vona að þessi
stefna og þetta aukna samstarf
megi eflast i framtiðinni sem
mest.
Störfum fundarins hefur mér
þótt forvitnilegt að kynnast, en
það mikilvægasta og jafnframt
erfiðasta verður svo að halda
áfram beinum og virkum tengsl-
um við þetta.
Hér eru rædd ýmis aðkallandi
mál, svo sem sá vandi sem þær
birgðir skapa, sem liggja verður
með án þess að vita hvaða verð
muni fást, og hin lágu og ófull-
nægjandi rekstrarlán, sem ekki
halda i við verðbólguástandið, og
enn málefni sauðf járbænda,
þegar kemur að þvi að greitt sé
fyrir ull og gærur samkvæmt
gæðum. Ég vil einnig koma að
sláturhúsunum og rekstri þeirra,
en mikið skortir á að það fé fáist
til þeirra endurbóta og nýbygg-
inga, sem auknar kröfur og reglu-
gerðir skapa.
Ég vona að þessi fundur verði
til þess að bændur og félagasam-
tök þeirra geri sér betri grein
fyrir þvi eftir en áður hver eru hin
sameiginlegu hagsmunamál
þeirra, sem þeir þurfa að einbeita
sér að i baráttunni fyrir bættum
hag”.
Uggurrikiandi
á árinu 1979
Rætt við Ólaf
Sverrisson
AM — 1 gær var aðalfundur Sam-
starfsnefndar Búvörudeildar og
afurðasölufélaga innan vébanda
Sambandsins haldinn að Hótei
Sögu og hófst hann kl. 10 árdegis.
Að ioknum kosningum fluttu þeir
ólafur Sverrisson, og formaður
Samstarfsnefndar, og Agnar
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Búvörudeiidar skýrslur sinar og
stóðu yfir umræður um þærþegar
við komum á fundinn i gær. Við
náðum tali af Ólafi Sverrissyni og
báðum hann að segja okkur I
stuttu máli frá helstu viðfangs-
efnum fundarins nú.
Ólafur sagði að fundurinn væri
með nýju sniði að þessu sinni, þar
sem nú væru I samræmi við sam-
þykktir Sambandsins boðaðir
tveir fulltrúar frá hverju afurða-
sölufélagi og ætlast til að annar
fulltrúinn sé starfandi bóndi. Hér
kvað Ólafur verið að opna starf-
semina frá þvi sem verið heföi og
mundi i lok fundarins verða kosin
ný fimm manna samstarfsnefnd
og skyldu tveir fulltrúa hennar
vera bændur. Aður var sam-
starfsnefndin skipuð þrem
kaupfélagsst jórum.
Að leggja rækt við inn-
lenda markaðinn
Ólafur sagði að það væru fyrst
og fremst markaösmálin sem
rædd væru á fundinum og hinir
margumtöluðu erlendu markað-
ir, en þá lögð áhersla á að ekki
mætti vanrækja innlenda
markaðinn, sem væri bestur og
mikilvægastur. Mikiö yrði að
leggja upp úr þvi að neyslan á
islenskum búvörum minnkaði
ekki og væri þörf á að auka
auglýsingar, áróður og vörukynn-
ingu með það markmið i huga.
Hér kvað Ólafur dilkakjötið vega
hvað þyngst sem mesta hags-
munamál framleiðenda og yrði
að auka, svo sem tök væru á,
vöruval i unnum kjötvörum.
Hefðu samvinnumenn að visu
sýnt að þetta er þeim ljóst og
mikið átak verið gert i þessum
málum.
Of lág rekstrarlán
Að markaðsmálunum sleppt-
um, sagöi Ólafur það vera fjár-
málin, sem krefðust úrlausnar,
en rekstrarlán, sem fyrri hluti
skal greiðast af i þessum mánuði,
væru orðin allt of lág, til þess að
þau næðu að brúa að bil sem
myndast frá áburðarkaupum
fram til hausts. Þótt menn væru
Ólafur Sverrisson
bjartsýnir og fögnuðu góðri af-
komu á árinu 1978, væri uggur
rikjandi um árið 1979, vegna mik-
illar framleiðslu og fyrirsjáan-
legrar vöntunar upp á búvöru-
verð, nema eitthvað nýtt og
ófyrirsjáanlegt kæmi til. Sagði
Ólafur að ef svo færi,aö vanta
mundi 200 kr. á hvert kg dilka-
kjöts og 16-17 kr. á hvern litra
mjólkur, mundi það nema 5
milljöröum, sem næmi um eða
yfir 20% af tekjum bóndans. Væri
augljóst hver áhrif slikt heföi á
fárhagsstöðu bænda og þar með
kaupfélaga"na.
ALLAR FÓSTRUR B0RGAR1NNAR...
Allar fóstrur borgarinnar mættu hinar galvöskustu til leiks, þegar gengiö var til heiðurs dagvistarheim-
ilum fyrir öll börn á vegum Samstarfshóps um dagvistarmál s.l. sunnudag. Um þúsund manns, for-
eldrar, áhugamenn og börn, gengu f hóp frá Hlemmi og niöur á Lækjartorg, þar sem útiskemmtun var
haldin og ávörp flutt. Tfmamynd: GE.
Alþjóðlegi leikhúsdag
urinn er i dag
FI — Atjándi alþjóða leikhúsdag-
urinn er I dag, en til hans var
stofnaö af Alþjdöaleiklistar-
málastofnuninni (ITI) áriö 1962
til að vekja athygli á list leikhúss-
ins. Á þessum degi eru jafnan
flutt ávörp í leikhúsum um allan
heimog ýmislegt gert til aö auka
hróöur ieiklistar.
Oddur Björnsson leikritahöf-
undur segir m.a. i ávarpi sinu,
sem hann hefur samið áð þessu
sinni fyrir hönd islensks leikhús-
fólks, að fimm ára hafi vaknað
hjá honum sá ástarhugur til leik-
listarinnar, sem varð að hreinni
ástriðu. Það var eftir sýningu á
óperettunni Nitouche á Blöndu-
ósi.
„Siðan hef ég alltaf vitað að I
leiklist felast verðmæti, sem
hvorki fjölmiðlar né nein stofnun
önnur geta ýtt til hliðar, hvað þá
komið i staðinn fyrir. Vegna þess
að þetta var hugljómun augna-
bliksins sem jafnvel kvikmynd-
inni er fyrirmunað að keppa við. í
leikhúsinu sjálfu er með öðrum
orðum um að ræða samspil
tveggja aðila, eins nákomið, lif-
andi og mikilvægt og þegar tvær
manneskjur tjá hvor annarri ást
sina”.
„Það er stórt ánægjuefni að fá
tækifæri til að auðsýna leikhúsinu
þakklæti sitt, ekki sist á barnaári.
Ég býst við, að við séum öll
sammála um, meðan við trúum
þvi, að kærleikurinn falli aldrei úr
Oddur Björnsson
gildi, að ungviðinu sé hollt að
kynnast við listgrein sem vekur
til umhugsunar og glima þegar i
„Striðsvettvangur,
þar sem manngildi
eru i heiðri höfð”,
segir Oddur
Björnsson
leikritahöfundur
um leikhúsið
I ávarpi sinu
æsku við spurninguna „að vera
eða vera ekki”.
Ég trúi þvi lika að börn eigi
erindi i leikhús fullorðinna og
fullorðnir i leikhús barnanna.
Þess vegna leyfi ég mér aö nota
Skugga-Svein sem samnefnara og
hans hjartahlýja höfund Matthias
Jochumsson, sem þýddi Shake-
speare og Byron með yfirburðum.
Ég trúi þvi m.ö.o. að leikhús sé
þýðingarmikið vegna þess, að það
talar ekki tæpitungu. Þess vegna
þurfum við ekki að þræta um
stefnur. Aftur á móti krefst þaö
manndóms — bæði af mér og þér.
Það er striðsvettvangur, þar sem
manngildi eru höfð i heiðri, hvort
sem fjallað er um gleði eða sorg.
Gefum börnum tækifæri að taka
þátt I ævintýrinu”.
Launadeild bíður fyrirmæla
- þrjú prósentin kosta rikissjóð á annan milljarð
FI-— Aö sögn Guömundar Karls
Jónssonar deildarstjóra launa-
deildar fjárniálaráöuneytisins
hefur ráöuneytiö ekki fengiö
nein fyrirmæli um aö greiöa 3%
umsamda kauphækkun til
BSRB og BHM 1. april n.k.
Launabreytingar eru I megin-
atriöum ákvaröaöar i kjara-
samningum. Alloft hefur þó
kjarasamningum veriö breytt
meö lögum, þó sérstaklega vlsi-
töluákvæöum kjarasamninga.
t 3. gr. laga nr 96/1978 segir:
„Frá l. desember 1978 og þar til
um annað hefur verið samið
skuiu grunnlaun og tilhögun
verðbóta á laun haldast óbreytt
eins og ákveðið er frá 1. sept.
1978 skv. almennum kjara-
samningum, sem gerðir voru á
árinu 1977 og á fyrstu fimm
mánuðum 1978 og skv. lögum
þessum”.
Guðmundur sagði, aö menn
hafi ekki verið á eitt sáttir
hvernig beri að túlka þessa
lagagrein, en þar sem kjara-
samningar aöildarfélaga ASI
runnu út 1. des. 1978 virðist til-
gangur þessarar lagagreinar
vera sá, að útiloka áfangahækk-
anir þeirra kjarasamninga, sem
lengri gildistima hafa. Þar sem
lögskýring i máli þessu er um-
deild ogákvörðun pólitisk, biður
launadeild frekari fyrirmæla,
þar sem hækkun þessi þýðir út-
gjaldaaukningu á annan
milljarð fyrir rikissjóð.
á sæluviku
Sinfónian
— Sæluvika Skagfiröinga
hófst á Sauöárkróki sl. laugar-
dag. Sinfóniuhljómsveit lslands
var svo elskuleg aö fljúga norö-
ur til okkar á fyrsta degi Sælu-
vikunnar og hélt hér tvenna
tónlcika á laugardaginn, sem
Skagfiröingar mátu aö veröleik-
um og fylitu húsiö á báöum tón-
leikunum. Stjórnandi var Jean
Pierre Jacquiliat, einsöngvari
var Guömundur Jónsson og
konsertmeistari Guöný
Guömundsdóttir.
A vandaðri og klassiskri
efnisskrá var meöal annars
Lindin eftir Eyþór Stefánsson
sem var eitt af einsöngslögum
Guðmundar Jónssonar. Þegar
flytjendur verksins og tónskáld-
ið höfðu veriö hylitir meö iang-
vinnu lófataki,kvað Guðmundur
Jónsson að þeir myndu brjóta
regluna og endurtaka lagið til
heiöurs Eyþóri Stefánssyni,
þessum „vorboða” tónlistar-
innar hér á Sauöárkróki eins og
hann orðaði það. Um kvöldiö
snæddi hljómsveitarfólkið
kvöldverð i boöi bæjarstjórnar
Sauðárkróks. Hafi bæði hljóm-
sveitin og einsöngvar bestu
þökk fyrirkomuna, og Skagfirð-
ingar vona jafnframt aö ekki
liði langur timi þar til þetta
ágæta listafólk sjái sér fært aö
koma hingað aftur i heimsókn.
—Guttormur—