Tíminn - 27.03.1979, Qupperneq 6

Tíminn - 27.03.1979, Qupperneq 6
6 Þriöjudagur 27. mars 1979 r Útgcfandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumdla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr. 3.000.00 - á mánuöi. Blaöaprent Hver er stefna SjálfstæDisflokksins? í skemmtilegu ljóði, sem prýðilega skáldmælt þingmannskona flutti i siðustu þingveizlu, er að finna þessar ljóðlinur: Angist þeirra ekki lýkur, sem aldrei sina stefnu finna. Ótrúlegt er annað en þessar ljóðlinur hafi snert tilfinningastrengi þingmanna Sjálfstæðisflokksins, a.m.k. sumra þeirra, þegar þeir heyrðu þær fluttar iþingveizlu,þótt þeim væri að formi til beint til eins ráðherrans. Siðan Sjálfstæðisflokkurinn lenti i stjórnarandstöðu, hafa foringjar hans verið sileit- andi að stefnu og sú leit orðið næsta árangurslitil hingað til. Sé um nokkurn árangur að ræða af þessari leit forustumanna Sálfstæðisflokksins, virðist hann helzt sá, að fordæma og ómerkja flest eða allt sem þeir sögðu og gerðu fyrir ári, þegar þeir voru i stjórn. A.m.k. verður ekki annað ályktað, af stjórn- málaskrifum málgagns Geirs Hallgrimssonar, Morgunblaðsins. Fyrir rúmu ári og reyndar lengi eftir það, deildi Morgunblaðið hart og réttilega á vigorð Alþýðu- bandálagsins og Alþýðuflokksins um samningana i gildi. Morgunblaðið sýndi þá fram á það með sterk- um rökum, sem málgögn Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins gátu ekki hrakið, að ógerningur væri að láta kaupsamningana frá sumrinu 1977 vera i fullu gildi, ef veita ætti einhverja viðspyrnu gegn dýrtiðinni. Það varaði kjósendur réttilega við þeim kosningaloforðum Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins, að samningarnir myndu taka gildi, ef þessir flokkar fengu völdin. Þegar á reyndi myndu þessir flokkar ekki treysta sér til þess að standa við þetta loforð sitt. Allt er það nú komið fram, sem Morgunblaðið sagði fyrir ári. Bæði Alþýðuflokkurinn og Alþýðu- bandalagið hafa viðurkennt i verki, að samningarn- ir frá 1977 séu óframkvæmanlegir, ef veita eigi við- nám gegn verðbólgunni, og hafa þvi fallizt á ýmis frávik frá þeim. Flestir munu hafa átt von á þvi,að Morgunblaðið fagnaði þessari breytingu á afstöðu Alþýðubanda- lagsins pg Alþýðuflokksins, þar sem hún er stað- festing á þvi, sem blaðið hélt fram á siðastliðnum vetri og allt fram til þess að stjórnarskiptin urðu. Þessu er hins vegar siður ensvo að heilsa. Morgun- blaðið snýst nú sjálft alveg öndvert gegn þessari breytingu. Það fer ekki aðeins hörðum orðum um Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkinn fyrir að snúa frá villu sins vegar, heldur ræðst með fúkyrðum að þeim leiðtogum verkalýðshreyfingarinnar, sem mestan skilning hafa sýnt i þessum efnum. Til þess að kóróna allt saman, verður ekki annað séð en Morgunblaðið sé búið að taka upp hið fallna merki Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins og heimti enn ákveðnar en þeir nokkru sinni gerðu: Samning- ana i gildi. óbreyttir liðsmenn Sjálfstæðisflokksins eru lika undrun slegnir. Þeir hafa ekki hugmynd um það lengur hver sé stefna Sjálfstæðisflokksins i þessum málum. Er það stefnan,, sem málgagn Geirs Hallgrimssonar boðaði i marz 1978 eða stefnan, sem það boðar i marz 1979? Flokki, sem er svo stefnu- laus, að hann snýst eftir þvi, hvort hann er i stjórn eða stjórnarandstöðu, getur enginn treyst. Þ.Þ. Erlent yfirlit Begin og Sadat eiga stærsta málið óleyst Verða þeir aftur orðnir féndur að ári? ÞRATT fyrir allan viröuleika og hátlöahöld i sambandi viö undirritun friöarsamningsins milli tsraels og Egyptalands, sem fór fram i Washington i gær, skorti trú á, aö samningur- inn tryggöi friðinn I Austurlönd- um nær. Jafnvel margir þeirra sem glöggskyggnastir hafa verið taldir, óttast aö samningurinn geti alveg eins orðiö til aö auka striöshættuna. Fögnuöurinn i sambandi viö undirritun samningsins i gær var þvi miklu minni en þegar Sadat heimsótti Jerúsalem i nóvember 1977 og Begin Kairó I desember 1977 eöa þegar til- kynnt var eftir fund Carters, Begins og Sadats i Camp Da vid i september 1978, að fullt sam- komulag heföi náöst um helztu grund vallaratriði tveggja samninga, sem myndu tryggja sættir og friö milli Gyöinga og Araba I framtiðinni. Þaö var annar þessara tveggja samninga, sem var undirritaöur i gær. Hann fjallar um Sinai-skagann sem Israels- menn hertóku af Egyptum 1967. Með samningnum endurheimtu Egyptar allt það land, sem þeir áttu lagalegt tilkall til. Þaö þótti strax liklegt, að tiltölulega auövelt yröi fyrir Israel og Egyptaland aö semja um þetta efni eins og llka hefur komiö á daginn. OÐRU máli gegnir um hinn samninginn, sem grundvöllur var lagöur aö á fundinum i Camp David. Hann áttiaö fjalla um heimastjórn ibúa Vestur- bakkans og Gazasvæðisins sem Israelsmenn hernumdu 1967. Báöir þessir landshlutar til- heyrðu Palestinu 1948 og áttu samkvæmt tillögum Sameinuöu þjóöanna aö tilheyra nýju Arabariki sem yrði til viö tvi- skiptingu Palestinu milli Gyö- inga og Araba. 1 átökum, sem uröumilli Araba og Gyöinga um þetta leyti, uröu endalokin þau að landsvæöi þvi, sem hiö nýja Arabariki átti aö fá i sinn hlut, var þriskipt. Hiö nýja Israels- riki tók bróðurpartinn, en Jórdania tók Vesturbakkann og Egyptaland tók Gaza-svæöiö. Úr stofnun sérstaks Arabarikis varð ekki neitt, enda Arabar sjálfir mótfallnir þvi á þeim tlma.þvlaðstefnaþeirravar þá sú,aö Palestina ætti aö halda Carter og Begin áfram að vera stjórnarfarsleg heild,en ætti ekki aö skiptast i tvö riki. I styrjöldinni milli Israels og Arabarikjanna 1967 hernámu Israelar bæöi Vesturbakann og Gaza-svæöið,og hafa farið þar meö stjórn síöan. Flestar aö- geröir þeirra hafa bent til, að þeir ætluöu aö innlima þessi landsvæði endanlega, a.m.k. Vesturbakkann. A fundum öryggisráðs Sameinuöu þjóð- anna haustiö 1967, var sam- þykkt aö þeim bæri aö láta her- teknu landsvæðin af hendi og draga herlið sitt þaöan, en Israelsmenn hafa haft þær ályktanir aö engu. Arabarikin hafa fylgt þeirri stefnu, að friðarsamningar viö Israels- menn komi ekki til greina fyrr en þeir hafa látið öll herteknu landsvæðin af hendi,þar á meðal austurhluta Jerúsalems,sem til- heyrir Vesturbakkanum. ÞEGAR viðræöur héldu áfram milli Israelsmanna og Egypta eftir fundinn I Oamp David, vildu Egyptar aö sam- hliöa yröi rætt um báöa samningana og töldu sig hafa skilið samkomulagiö þannig, þótt ekkert heföi veriö formlega bókaö um þaö. Carter var sömu skoðunar. Begin hafnaöi þessu alveg o g hélt s ig við þaö,a ö e kk- ert heföi verið bókaö um þetta. Hann kraföist þess,að fyrst yröi gengiö frá friöarsamningnum milli tsraels og Egyptalands og framtiö Sinaiskagans. Eftir mikiö þref fékk hann þessu framgengt. Egyptar fengu hins vegar yfirlýsingu um, aö mánuði eftir að fyrri samningurinn væri undir- ritaöur, skuli hefjast viöræður um heimastjórn Ibúanna á Gaza-svæöinu og Vesturbakk- anum, ogskuli þeim lokið innan árs. Samkvæmt þvi á þessari samningagerð að vera lokið i aprillok 1980. Báöir aöilar hafa túlkaö þaö mjög mismunandi, hvaö átt er við þegar þeir tala um heima- stjórn. Egyptar túlka þetta þannig aö heimastjórnin eigi aðeins aö vara stuttan tíma, t.d. fimm ár og siöan eigi ibúarnir að fá fullan sjálfsákvörðunar- réttum framtiösina. Þá eigi t.d. ibúar Vesturbakkans aö geta valið milli þess aö veröa sjálf- stætt riki eða sameinast Jórdaniu, ef þeir una ekki áfram heimastjórn innan Israelsrikis. ísraelsmenn hafna þessu alveg. Þeir segjast ekki munu ganga lengra en að veita ibúunum heimastjórn. Sjálf- stætt Arabariki á Vesturbakk- anum komi ekki til greina. Samkvæmt þessu viröast nú ekki miklar horfur á, aö sam- komulag náist um þetta mál milli Israelsmanna og Egypta, nema annar hvor aöili láti und- an. Ef Egyptar láta undan, veröa þeir endanlega taldir svikarar af öllum Arabaþjóöun- um, og deilan milli Araba og Israelsmanna myndi ekki aö- eins haldastheldur að öllum lik- indum haröna. Eina lausnin sem gæti tryggt friö væri sú,aö ísraelsmenn létu undan og semdu ekki aöeins viö Egypta, heldur önnur Arabariki um af- hendingu Vesturbakkans og Gaza-svæöisins gegn þvl aö Israel yrði viöurkennt og fengi tryggö landamæri. Þaöeitt get- ur tryggt friö I Austurlöndum nær .Hægter aö hugsa sér þessa lausn þannig aö Vesturbakkinn sameinist Jórdaniu aö nýju i staö þess að veröa sjálfstætt riki. Enn sem komiö er bendir fátt til þess að ráöamenn ísraels fallist á sllka niöurstööu. Þó gæti hæfilegur þrýstingur af hálfa Bandarikjanna, haft veru- leg áhrif I þessum efnum. Þaö skapar Carter forseta ekki glæsilegar kosningahorfur, ef þetta mál verður óleyst þegar kosningabaráttan hefet fyrir al- vöru i Bandarikjunum sumariö 1980 og Israelsmenn og Egyptar veröa jafnvel orðnir and- stæöingar að nýju. Þ.Þ. Carter og Sadat

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.