Tíminn - 27.03.1979, Side 7

Tíminn - 27.03.1979, Side 7
Þriðjudagur 27. mars 1979 7 99 Sameining”? Kjartan Jónasson gerir at- hugasemd við skrif min i Timanum um Fiugleiðir hf.Mér þykir leitt að Kjartan skuli hafa misskilið skrif min svo sem grein hans ber vitni. Kjartan hefur greinilega ekki hinn minnsta skilning á þessu máli. Það má glögglega sjá á athuga- semdum hans, sem hann færir engin rök fyrir og eru ekkert nema væmið góðmennskuhjal og furðulegustu útúrsnúningar frá upphafi til enda. Eða hvað kemur annars tannlæknum þessi deila við? Hvað varðar „verra” og „betra” félag.visa ég á grein hans „A Viðavangi” i Timanum, þann6.3. ’79 Aödróttanir hans i minn garð skulum við láta liggja milli hluta, enda greinin varla svara verð, þar sem hann hrekur ekki eitt einasta atriði i grein minni. Ég get þó ekki stillt mig um, að fræða hann og aðra meira um mina „rýru söguspeki”, sem Kjartan kallar svo. Söguspeki sem annars er ekkert nema staðreyndir. Ég mun halda áfram að tala um FI og LL svo lengi sem aðalforstjóri Flug- leiða kallar flugmenn Fí „sina menn”. „Að míga í brunninn sem menn drekka úr". Ég hef reyndar takmarkaöan áhuga á flugmannadeilunni sem slikri, enda fjallaði grein mln um önnur öllu alvarlegri atriöi en hin „bágbornu” launakjör flugmanna. En þó er nauösyn- legt aö leiörétta misskilning á þeirri deilu sem kemur fram hjá Kjartani. Kjartan og reyndar fleiri, hafa alveg gleymt því, að þessi deila flugmanna hófst ekki vegna launa. Hún hófst er 6 manna nefnd (3 frá FIA og 3 frá LL) skilaði niðurstöðu um sam- einingu starfsaldurslista, niður- stööu sem unnin var samkvæmt reynslu erlendis á sameiningu slikra lista. LL menn sam- þykktu sameiningu samkvæmt þessum niöurstööum. FÍA menn felldu þetta aftur á móti og gerðu þar með sina eigin 3 nefndarmenn ómerka. Þá allt I einu og skyndilega kúvenda þeir og koma með kröfu um jöfn laun, á öllum vélum félagsins. Að auki settu þeir timatakmörk, svo fáránlega stutt, aö ekki var annað hægt, en að til verkfalla kæmi. Hvað ætluðu þeir sér með þessu? Ef aö menn aðeins velta þessu fyrir sér, þá held ég að þeir sjái hvað fyrir þeim vakir. Það á að pressa svo stift á stjórnvöld að ráöherra setji gerðardóm i málinu. Þar með væri hinn margumræddi „starfsaldurslisti”, orðinn að íögum, óbreyttur, (þ.e.a.s. LL menn fá þá ekki metinn til starfsaldurs, þann tima sem þeir unnu sem leiðsögumenn I áhöfn LL véla) án þess að LL menn fái þar nokkru um ráðið. Það er annars leiðinlegt til að vita, að FIA menn virðast alls ekki gera sér grein fyrir þvi, að með þessum eilifu kröfum sln- um eru þeir raunverulega að „Miga i brunninn sem þeir drekka úr”. Eða hverjum á að sameinast þegar Flugleiöirfara á hausinn. ókunnugleiki Kjartans Kjartan kemur illa upp um ókunnugleika sinn I þessu máli þegar hann ræðir um nafna- breytinguna. Mér er næst að halda að hann hafi ekki lesið nema myndatexta _ greinar minnar. Kjartan talar æ ofan I æ um ICELANDIC AIR, sem nafn Loftleiða erlendis. Nafn LL er- lendis hefur aldrei verið ICE- LANDIC AIR, heldur LOFT- LEIÐIR ICELANDIC AIR- LINES, sem styttist hjá ai- menningi um allan heim I að- eins „ICELANDIC”. Þaö má vel vera að ICELANDAIR hljómi vel en það er aukaatriði. Aðalatriöið er að erlendis er bú- ið að auglýsa ICELANDIC- nafnið um þrjátiu ára skeið með góðum árangri. Svo dýrmætu nafni henda menn ekki frá sér aðeins vegna þess að eitthvert annað nafn „hljómar” betur. Það má bæta þvi við að það var keyrt i gegn meö miklum látum, að „tian” væri máiuð i litum nýja félagsins, sem og aðrar vélar félagsins um leið og þær færu I stærri klössun. Nú eftir áramótin komu Boeing þoturn- ar úr stór klössun frá Spáni. Hvernig er það, gleymdist allt orðagjálfrið? Ég veit ekki bet- ur, en að gamli Ft „hrosshaus- inn” tróni enn á þeim. Það eitt einasta flugrekstrar — hvaö þá lendingarleyfi. Svo að tala um að fljúga til Ameriku eða Luxemborgar á öðru nafni og eða flugnúmerum en Loftleiða (ICELANDIC) er út i hött. Það má til gamans bæta þvl við að Loftleiðir fljúga á Ameriku i dag» eitt félaga , samkvæmt gamla Loftferöa Samningnum og hafa þvl ýmis hlunnindi sem önnur félög hafa ekki. DC-8-63 Kubbastundir a arinu Vélamanuöir Nytinq or daq. klst 1976 16 102 44 12 2 1975 15 276 40 12 7 Boeing 727-100 Kubbastundlr á árinu 5 193 5 116 Vélamánuóir 24* 24 Nýting pr dag, klst. 7 2 7.1 Fokker F-27 Kubbastundir á ármu 7 525 7 321 Vélamánuðir 60 60 Nýtmg pr dag, klst. 4 2 4.1 FLUGVÉLAR Fl — virðast aðallega vera til skrauts. Allavega bjóða f lugtimar þeirra ekki upp á mikinn hagnað (Sérstaklega Fokker F-27). Taflan hér að ofan er árs- reikningar '77 — tafla: Flugleiðir. skyldi þó aldrei vera að FIA menn neiti að fljúga Flagg- skipum Ft nema i „slnum lit- um”. Flugrekstrarleyfi Annað I þessu máli er, að Flugleiðir sem sllkt, hefur ekki Sameining Kjartan segir ennfremur að kjarni málsins sé sá að búið er að sameina félögin I öllum aöal- atriðum. Ég er fyllilega sam- mála honum þar, meira er ekki hægtað sameina nema að sækja um ný flugrekstrar- og Tryggvi Þormóðsson hluthafi í Loftleiðum lendingarleyfi sem tæki svo og svo mörg ár, og óvist að fengj- ust yfirleitt. Að auki gæti það kostað að féiögin misstu þau leyfi sem þau hafa nú. Ég er einnig sammála Kjartani um að „sameiningin” hafi verið þjóð- hagslega rétt, efum sameiningu hefði verið að ræða. Það stóð aldrei til, að annað félagið gleypti hitt. En eins og málin standa i dag, þá er sagan sú aö F1 menn komu tritlandi yfir flugbrautina i Reykjavik úr sín- um niðurrigndu bröggum, með Eimskipafélag Islands og allar óreiðuskuldirnar á bakinu. Þeir komu sér makindalega fyrir i LL stólum, I LL húsnæði. Þeir höfðu hægt um sig fyrstu mánuðina ef frá er talið niöurrif á gömlum myndum af LL vélum og starfsfólki (sem sýnir að þær eru ekki sterkar i þeim taugarn- Betra væri aö hafa íslensku fánalitina á stélinu, en þetta tvístolna //skúlptúr" merki. ar) en eru nú orðnir það hressir i hlýjum skrifstofunum að þeir hafa hafist handa af fullum krafti. Nú skal gleypa allt sem hægt er að gleypa og ef menn eru með einhverjar athuga- semdir þá er það afsakaö meö þessari sigildu „þjóðarhag- kvæmnistuggu”. Og áfram heldur Kjartan og segir að FI hafi haft með hönd- um nauösynlega þjónustu við landsmenn^— sem er taprekst- ur þess á innanlandsflugi. Ég held reyndar aö auðvelt væri að reka það með hagnaði, ef áhugi væri fyrir hendi til dæmis með betri nýtingu flugvéla (flugtim- ar F-27 eru i dag um fjórir á dag). 1 þessu sambandi má heldur ekki gleyma þvi að þetta er það sem FI menn vildu. Þeir fengu úthlutað 1952 öllum innanlands- leiðum, sem einhver hagnaður var af. LL hættu þá öllu innan- landsflugi eins og kom fram I fyrri greinum minum. Stjórn- völd voru alla tiö á bandi F1 og þar af leiðandi voru F1 mönnum boðin öll leyfi á Amerlku, þegar Bandarikjastjórn bauð þau hér. En Ft menn vildu ekki sjá slikt, „Amerika væri allt of langt I burtu”.LL fengu þá þessi leyfi sem öllum ætti aö vera kunnugt. F1 menn sáu aldrei lengra fram i tlmann en tærnar á þeim náöu. „Amerikugróöi” Loftleiða er hlutur, sem Ft menn aldrei fyrirgefa. //Hlutlaus sameiningar- nefnd" Fyrir sameininguna var sett á laggirnar nefnd „hlutlausra” manna til að sjá um sameining- una. Nefnd þessi fékk I hendur lauslega áætlun sem sagði hlut- föll á hreinni eign vera um það bil 35% F1 og 65% LL. Það fylgdi að eftir sameiningu, mætti munurinn ekki verða meiri en 30%. Nefndin gætti þess svo vel aö F1 færi ekkiniður fyrir 35%, að við sameiningu 1974 voru hlutföllin allt i einu orðin, F1 46,5% og LL 53.5%. Er ekki orðið timabært að þessi „hlut- lausa” nefnd birti opinberlega úíreikninga og niðurstööur sín- ar? Þeir gætu þá til dæmis út- skýrt, hvernig þeir gátu metið allt innanstokks i hótel LL, allt frá öskubökkum til heillar prentsmiðju á lltiö sem ekkert. Þ.e.a.s. á innkaupsverði frá 1965 — nærri tiu ára gamalli tölu. A heildarmati hótelsins var stolið af LL um það bil 800 milljónum. Nei, Kjartan minn, þú ættir að kynna þér máliö betur áöur en þú talar um réttlæti, þegar þú ert að afsaka Fí menn. LL menn eru búnir aö heyra aöeins of mikiö um réttlæti og „þjóöar- hagkvæmni”, sem alltaf miðar að því að þeir gefi eftir. Þeim er nú, eftir aö nafnabreytingin kom fram orðiö ljóst að „sam- eining” var bara oröiö tómt. Yfirtaka og eignarnám réttara.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.