Tíminn - 27.03.1979, Page 17
Þriöjudagur 27. mars 1979
17
Oskabyrjun HK
varð FH að falli
— þrátt fyrir 10 mörk Geirs, tapaði FH 20:22
HK svo gott sem tryggði 1.
deildarsæti skt á laugardaginn er
þeir unnu FH 22:20 i iþróttahús-
inu að Varmá i skemmtilegum
leik. t hálfieik var staöan 11:8 HK
i vil
Það var góð stemmning í hús-
inu strax i leiksbyrjun 3 voru
þar áhangendur HK í miklum
meirihluta eins og svo'óft áður.
Þeir höfðu þó ekki erindi sem
erfiði með hrópum sinum i upp-
hafi, þvi FH komst i 2:1 eftir
skamma stund. Dyggilega hvattir
af sinum stuðningsmönnum tóku
HK nú góðan kipp og skoruðu
hvert markið á fætur öðru án þess
að FH tækist að svara fyrir sig —
og áður en varði var stðan orðin
7:2 HK i vil. Rétt áður en HK
skoraði sitt 7. mark hafði Einar
Þorvarðarson markvörður HK
varið viti Geirs Hallsteinssonar.
FH-ingar vissu vart hvaðan á
þá stóð veðrið, en þeim tókst þó
að halda ró sinni og ná betri tök-
um á leiknum. Þeir skoruðu
næstu þrjú mörk og minnkuðu
muninn i 7:5, en HK hleypti þeim
ekki nær sér. Stefán Halldórsson
var nokkuð bráðlátur með skot á
þessum tima og var fyrir vikið
kippt út af til kælingar. Annars
stjórnaði Stefán vel og leikur HK
varð mun vandræðalegri eftir að
hann fór út af. Staöan i hálfleik
var eins og fyrr sagði 11:8.
Strax 1 upphafi seinni hálfleiks
brugðu FH-ingar á það ráö að
taka Stefán úr umferð og gerðu
menn þá ráö fyrir þvi að HK
myndi missa forskot sitt niður,
eins og svo ótal oft áður. Ekki
varð raunin þó sú, en óneitanlega
var FH nokkrum sinnum nærri
þvíað ná að jafna. Þeir minnkuöu
muninn i eitt mark — 13:14 og svo
aftur 14:15 og hafði Geir þá gert
öll mörk FH i seinni hálfleik —
sex að tölu. HK tók þá það til
bragðs að taka Geir úr umferð og
það herbragð heppnaðist full-
komlega, þvi að allt spil FH varð
afar vandræðalegt. 1 framhaldi af
þessu náði HK fjögurra marka
forystu áný 19:15ogaðeins8 min.
voru þá til leiksloka.
A lokaminútum var mikill
darraðardans stiginn á gólfi
iþróttahússins að Varmá. Hrað-
inn jóksttil mikilla munaog hafði
þó verið ærinn fram að þvi. FH
tók bæði Hilmar og Stefán úr um-
ferð og við það lamaðist allt spil.
Var þá Kalli Jó. settur inn til að
halda spilinu gangandi. Stefán
varrekinn útaf fyrir að mótmæla
dómi og þegar 2 og hálf min. voru
eftir var munurinn aðeins eitt
mark — 21:20. A lokaminútunni
skoraöi Karl lúmskt mark með
lausu skoti og sigurinn var i höfn.
HK getur vel við unað þessa
siðustu daga, þvi að þeir hafa
unnið tvo siðustu leiki sina
nokkuð örugglega og þeir hljóta
að tryggja sér 6. sæti deildarinn-
ar. Hjá HK var Stefán hættulegur
isókninni, en varnarleikurinn var
i molum hjá honum. Hilmar var
einnig góður en hnoðar stundum
að óþörfu. Þá átti Einar i mark-
inu góðan leik svo og Kristinn.
Hjá FH var Geir langbestur, en
Guðmundur Árni átti einnig sinn
besta leik i vetur og var mjög
hættulegur I horninu. Guömundur
Magg. stóð fyrir sinu og var mjög
vakandi á linunni. Yngri menn-
irnir náöu sér ekki á strik I leikn-
um.
Dómarar voru þeir Arni
Tómasson og Jón Friðsteinsson
og fórst þeim hlutverk sitt
óhönduglega.
Mörk HK: Stefán 9/2, Hilmar 5,
Jón 2, Ragnar 2/1, Gunnar 1,
Kristinn 1, Friðjón 1, Karl 1.
Mörk FH: Geir 10/5, Guöm.A.
6, Guðm.M. 2 og Kristján 2/1.
Maður leiksins: Guðmundur
Arni Stefánsson, FH.
• Július Pálssoner ekki árennilegur á þessari mynd i leik gegn FH fyrir skömmu. Július átti sinn besta
ieik með Haukum i vetur og skoraði 8 mörk.
Steinar skoraði átta
— þegar Víkingur lagði Hauka 28:22
Það sannaðist áþreifaniega á
sunnudagskvöldið hversu mikið
hyldýpi er á milli Vikings og Vals
annars vegar oghinna 1. deildar-
liðanna hins vegar, þegar Viking-
ur og Haukar léku siðari leik sinn
i mótinu. Eftir nokkuð jafna byrj-
un sigu Vikingarnir örugglega
framúr —höfðu yfir 12:9 i hálfleik
og unnu leikinn 28:22.
Það var aðeins i 15 mlnútur sem
Haukarnir stóðu i Vikingum.
Staðan var 5:4 eftir að fyrri hálf-
leikur var rúmlega hálfnaður en
þá breikkuðu Vikingar bilið i þrjú
mörk og eftir það var aldrei litið
til baka.
Steinar Birgisson, sem annars
átti rólegan dag í fyrri hálfleikn-
um, fór hamförum i þeim siðari
og skoraði alls átta mörk — öll
meðföstum skotum. Bilið i seinni
hálfleiknum jókst hægt, og .t.d.
var staöan 15:11 eftir 5 min. af
seinni hálfleik.
Þá tóku Vikingar Hörð Harðar-
son, sem hafði verið þeim erfiður,
úr umferð og á skömmum tima
breyttist staðan Ur 15:111 20:12 og
leikurinn var gjörunninn. Hauk-
arnir náðu aðeins aö rétta úr
kútnum, en það var mest fyrir
það að Vikingarnir slökuðu á i
lokin.
Sigurður Gunnarsson lék nú
meö Vikingi að nýju eftir meiðsli
og það var ekki að sjá að hann
fyndi nokkuð fyrir þeim, þvi að
hann var friskur og röskur þann
stutta tima, sem hann var inná.
Þessi átta marka munur hélst
lengi vel, og t.d. var staðan 28:20,
enHaukarnir áttu lokaorðið og
skoruðu tvö siðustu mörkin.
Hjá Vikingi var Steinar mjög
góður, og þessi leikmaöur hefur
tekið stökkbreytingu undir hand-
leiðslu Bodan þjálfara Viking-
anna. Þá var Páll mjög góður —
hans besti leikur i langan tima.
Kristján varði vel I markinu og
Ólafur Jónsson og Erlendur voru
hættulegir i hornunum að venju.
Hjá Haukunum stóðu ekki
margir uppúr meöalmennskunni.
Hörður byrjaöi mjög vel en dalaði
er á leiðog var loks tekinn úr um-
ferð. Þá átti Július sinn besta leik
með Haukunum i vetur. Leik-
menn eins og t.d. Jón Hauksson
ogÞórir náðu sér aldrei á strik og
sömu sögu er að segja um flesta i
liði Haukanna.
Mörk Vikings: Steinar 8, Viggó
7, Páll 6/2, Erlendur 4, Ólafur
Jónsson 2 og Skarphéðinn 1.
Mörk Hauka : Július 8/5, Hörð-
ur 7/2, Andrés 4, Arni Sv., Þórir
og Sigurður eitt mark hver.
Maður leiksins: Steinar Birgis-
son, Vikingi.
Stefán Halldórsson skoraði 9 mörk gegn FH
Hanna Rúna var
óstöðvandi
Hanna Rúna Jóhannsdóttir
reyndist stúlkunum úr FH
óþægur ljár i þúfu i leik liö-
anna i 1. deild kvenna i
Skemmunni á Akureyri á
laugardag. Hanna skoraði 7
mörk og var henni helst að
þakka 18:15 sigur Þórs á FH. í
hálfleik var staðan jöfn 9:9.
I rauninni virtust liðin mjög
áþekk, þrátt fyrir að FH er i
toppbaráttunni en Þór á botn-
inum. Þórsstúlkurnar tóku
forystu strax i upphafi og
höfðu betur framan af leikn-
um, og það var ekki fyrr en á
17. min., að FH náði að jafna
6:6 og siðan að komast yfir.
Þór tókst þó að jafna aftur og
þegar flautað var til hlés var
staðan jöfn, 9:9.
FH ógnaði sigri Þórs aðeins
einusinnii seinni hálfleiknum.
Þá náðu FH-stúlkurnar að
jafna 14:14, en Þór var mun
sterkari á loksprettinum og
sigraði 18:15.
Mörk Þórs: Hanna Rúna
7/4, Magnea 3, Anna Greta 3,
Guðný 2, Harpa 2 Aðalbjörg 1.
Mörk FH: Katrín 7,
Kristjána 4, Svanhvit, Anna,
Björg og Brynja eitt mark
hver.
Kona leiksins: Hanna Rúna
Jóhannsdóttir, Þór.
Naumur sigur
Haukastúlkurnar unnu nauman
sigur á Vikingi i I. deild kvenna á
sunnudagskvöldið i Höllinni.
Lokatölur urðu 14:13 Haukum i
hag, en i hálfleik var staðan 9:7
fyrir Hauka.
Haukarnir byrjuðu mun betur
og komust i 3:0, og það var fyrst
og fremstþessi upphafskafli, sem
varð þeim til bjargar. Vikingslið-
ið barðist mjög vel og á 15.
minútu jafnaði Iris metin 4:4.
Siðan var jafnt upp i 7:7, en
Margrét Theódórsdóttir, skoraði
sitt 49. og 50. 1. deildarmark i vet-
ur i kom Haukum yfir 9:7 i hálf-
leik.
Hukar komastsiðan i 10:7 i upp-
hafi seinni hálfleiks en Vikings-
stúlkurnar voru ekki á þeim bux-
unum að gefast upp og þær jöfn-
uöu 10:10.Siðan var jafnt 11:11 og
12:12. Halldóra Mathiesen átti
lokaorðið er hún skoraði úr vita-
kasti fýrir Haukana. A loka-
minútunni varði Sóley i Hauka-
markinu tvivegis mjög vel þegar
Vikingsstúlkurnar sóttu hvað
ákafast.
Hjá Haukum voru þær Hall-
dóra, Margrét og Guðrún Gunn-
arsdóttir bestar, en einnig áttu
Sesselja og Sóley i markinu ágæt-
an leik. Guðrún Aðalsteinsdóttir
var I rólegra lagi, sem og fleiri.
Af Vikingstúlkunum voru þær
tris og Ingunn atkvæöamestar og
skoruðu bróðurpartinn af mörk-
unum. Sigrún gerði falleg mörk
úr hornunum.enSólveig lét litið á
sér kræla. Þá var Asa i markinu
ágæt.
Mörk Hauka: Halldóra 4/1,
Margrét 4, Guðrún G. 3 og
Sesselja 2.
Mörk Vlkings: Ingunn 4, íris 4,
Sigrún 2, Guðrún og Heba 1 hvor.
Kona leiksins: Ingunn
Bermódusdóttir, Vikingi.
Öruggur
sigur KR
KR stúlkurnar áttu ekki i mikl-
um erfiðleikum með Breiðabiiks-
liðið i 1. deild kvenna I Asgarði á
sunnudaginn. KR vann leikinn
auðveldlega 17:8 eftir að hafa
leitt 8: 5 i háifleik.
KR komst fljótlega i 3:1 og sið-
an 8:4, en Breiöablik átti lokaorð-
ið i fyrri hálfleiknum. I seinni
hálfleiknum breikkaði bilið stöð-
ugt og auðveldur KR-sigur var i
höfn.
Mörk KR: Arna 6, Hansina 5/2,
Olga 3, Margrét 2 og Ólöf 1.
Mörk UBK: Sigurborg 3/1,
Hrefna 2, Asa 1, Asta 1 og Þórunn
1.
Þvílíkur handbolti!
Þeir gerast ekki öllu óburðugri
handboltaleikirnir en leikur 1R og
Þórs frá Akurevri i bikarkeppn-
inni á laugardaginn. ÍR vann
þennan hrútleiðinlega leik 23:22
eftir að Þór hafði leitt 13:12 i leik-
hléi.
Það var bókstaflega ekkert við
þennan leik að s já enda áhorfend-
ur sárafáir. Bæði liðin léku þung-
lamalegan handbolta og eftir að
hafa séð báöa leiki Þórs um helg-
ina vekur það undrun aö þeir
skuli vera í toppbaráttu 2. deild-
ar. Þór byrjaði vel og komst i 4:1
og siðan 9:5. Þór leiddi siðan
áfram 14:13, en þá hrundi allt og
1R komst f 19:16 á skömmum
tima.Undirlokin dró saman meö
liðunum en 1R tókst að halda sin-
um hlut en i raun átti hvorugt
liöiö skiliö að vinna leikinn.
Mörk 1R: Guðjón 8/1, Brynjólf-
ur 5, Sig. Svavars. 5/3, Guðmund-
ur 2, Bjarni Bessa 1 og Bjarni H.
1.
Mörk Þórs: Siguröur 6/4,
Gunnar 3, Sigtryggur 3, Guð-
mundur 3, Arnar 2, ólafur 2, Val-
ur 2, Jón Sig. 1.
^msj^Jn^Sigurður^