Tíminn - 01.06.1979, Qupperneq 8
8
. Föstudagur 1. júni 1979
Lausar stöður
lækna
Eftirfarandi stöður lækna við heilsugæslu-
stöðvar eru iausar frá og með nefndum
dögum:
1. Ólafsvik H2, önnur staða læknis frá 1.
ágúst 1979
2. Búðardalur H2, báðar stöður lækna
önnur frá 1. sept. og hirífrá 1. október 1979.
3. Patreksfjörður H2, önnur staða læknis
frá 1. ágúst 1979
4. Þingeyri Hl, staða læknis frá 1.
september 1979.
5. Flateyri Hl, staða læknis frá 1. júli
1979.
6. Bolungarvik Hl, Staða læknis frá 1.
sept. 1979
7. Sauðárkrókur H2, þriðja staða læknis
frá 1. sept 1979
8. Ólafsfjörður Hl, staða læknis frá 1.
nóvember 1979
9. Raufarhöfn Hl, staða læknis frá 1. júli
1979
10. Seyðisfjörður Hl, staða læknis frá 1.
október 1979
11. Fáskrúðsfjörður Hl, staða læknis frá 1.
október 1979
12. Djúpivogur Hl, staða læknis frá 1.
september 1979.
13. Höfn Hornafirði H2, báðar stöður
lækna, önnur frá 1. júli og hin frá 15. júli
1979.
14. Kirkjubæjarklaustur Hl, staða læknis
frá 1. júli 1979.
15. Hella Hl, staða læknis frá 1. júli 1979.
16. Hveragerði H2, önnur staða læknis frá
1. nóbember 1979.
17. Vestmannaeyjar H2, tvær stöður lækna
frá 1. júli 1979
Umsóknir ásamt upplýsingum um frekari
menntun og störf sendist ráðuneytinu
fyrir 26. júni n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
29. mai 1979.
Starfsmaður óskast
Kópavogskaupstaður óskar eftir starfs-
manni til þess að stjórna malbikunarvél
og útlögn malbiks og oliumalar i Kópa-
vogi.
Reynsla við slik störf æskileg.
Umsóknir sendist til Bæjarverkfræðings
Kópavogs fyrir 15. júni n.k.
Bæjarverkfræðingur.
&Ml
Sáluhjálp i viólögum
Ný þjonusta — Símaþjónusta frá kl. 17-23 alla
daga vikunnar. SIMI 81515 Þjáist þú af áfengis-
vandamáli? Er áfengisvandamál einhvers náins
aö eyðaleggja þitt lif? Hringdu - og ræddu málið
éJí' SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS
CAUrLU UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ
Jónas Guðmundsson:
6óð sýning
urgötu 7
Edda Jónsdóttur opnaði um
seinustu helgi myndlistar-
sýningu i Gallery Suðurgötu 7.
en þetta eldforna hús hefur
undanfarin ár verið notað undir
myndlistarsýningar, af oft
óvenjulegri gerð.
Ég veit ekki hvort þetta er
heppilegt hús fyrir myndlistar-
sýningar, annað en smámuni.
Til þess vantar flatarmál og
rúmmetra, en hins vegar er
Myndlista og handiöaskólanum,
Myndlistaskóla Reykjavikur
og við kunstakdemiu i Amster-
dam.
Hún hefur þess utan lokið
teiknikennaraprófi og lært
grafik alveg sérstaklega viö
Myndlista og handiðaskólann,
en þar er aöstaða f-yrir svoleiðis
gullgerðarmenn, núoröiö.
A sýningunni eru 18 mýndir I
myndaflokkum. A minni leið
fólk í listum
aldanna kliður, hin dimma eða
bjarta saga aldanna i þessu
húsi og styöur svo sannarlega
við bakiö á allri list.
Þetta er ein besta sýning, sem
komið hefur i þetta hús og ég
hefi séö, og er það allnokkuð.
Edda Jónsdóttir.
Edda Jónsdóttir er ung kona
með vandað nám að baki i
myndlistum. Stundaði nám i
Linur og gips og svo nokkrar
myndir aðrar.
Teikningar Eddu eru einkar vel
gerðar, vandaöar, nákvæmar
innan sins ramma, og væri ekki
hentugt fyrir mikla neftóbaks-
menn að liggja yfir svona
myndum, þvi engu er hægt að
bjarga, ef úrskeiöis fer. Við
teikningar sinar tengir Edda
siðan oft myndaröð af tit-
myndum (polarodljósmyndum)
Milfi þessara mynda, hinna
teiknuöu og þeirra sem
teiknaðar eru á vél. er siðan
einhvers konar samgangur,
sem þó er ekki alveg ljós.
Myndirnar vinna saman án
augljósra tengsla, svona svipað
eins og þegar maður heyrir tal
tveggja útlendinga og skilur
ekki málið, en maður heyrir
hvað þeim er niðri fyrir.
Ég hygg að augljósara tal
myndi ekkert hjálpa þessum
verkum. Gátan gefur þeim nýtt
lif, nýja umhugsun, sem ekki
fylgir augljósum hlutum.
Hitt er svo annað mál hvort
svona myndir ættu ekki frekar
heima innan grafiklistarinnar,
þá fjölfaldaðar, en það er að
sjálfsögðu ekki mitt mál, heldur
listamannsins.
Sýningu Eddu mun ljúka 1. júni.
Jónas Guömundsson.
Skagfirðingar
reyna gæðinga
G.ó.-Sauðárkróki — Hesta-
mannafélögin Léttfeti og Stig-
andi i Skagafiröi efndu s.l.
laugardag til úrtökukeppni fyrir
f jóröungsmótiö á Vindheima-
melum 26.-27. júli I sumar. Hjá
Léttfeta sem einnig var meö
góöhestakeppni ásamt úrtöku-
móti mættu 24 hross til keppni.9
i A fl. (alhliöa góöhestár) og 15 i
B fl. (klárhestar meö tölti)
í A. fl. varð efst Hrafnkatla
Sveins Guðmundssonar'Sauðár-
króki, önnur Lyfting Ingimars
Ingimarssonar Sauðárkróki og
þriðja sæti Mjölnir Jóhanns
Þorsteinssonar Sauðárkróki.
IB. fl. varðefstur Háfeti Ingi-
mars Jónssonar Sauðarkróki i
öðru sæti Glotti Jónasar Sigur-
jónssonar Sauðárkrólki en þriðji
Flótti Finns Björnssonar Sauð-
árkróki. Voru þeir jafnir að
stigum hestarnir i ööru og
þriðja sæti.
Dómarar hjá Léttfeta voru:
Guömundur Hermannsson, Jón
Garðarsson og Magnús
Jóhannsson.
I úrtökukeppnina hjá Stig-
anda sem fór fram á Vind-
heimamelum mættu 22 hestar
tilleiks.lOiA fl.og 12iB fl.
I A fl. hjá Stiganda varð i
efsta sæti Sorba Guömundar
Hermannssonar Varmahlið,
annar Svaki Björns Sveinsson-
ar, Varmalæk, þriöji Kolskegg-
ur Siguröar Ingimarssonar
Flugumýri og fjóröi Ringó
Vatnsleysubúinu.
IB. fl. var JarlAsdisar Sigur-
jónsdóttur efstur annar Þokki
Sveins Jóhannssonar Varma-
læk, þriðji öðlingur Stefáns
Hrólfssonar Keldulandi og
fjórði Glanni Gisla Geirssonar.
Dómarar hjá Stiganda voru:
Friðrik Guðmundsson, Jón
Garðarsson og Magnús
Jóhannsson.
„Eðlilegt að verka-
lýðshreyfingin endur
meti stöðuna í
kjaramálum”
— segir í ályktun stjórnar
Trésmiðafélags Akureyrar
ESE — Blaðinu hefur
borist eftirfarandi álykt-
un frá Trésmiðafélagi
Akureyrar:
Síðastliðinn vetur sam-
þykktu allflest verka-
lýðsfélög að framlengja
gildandi kjarasamninga.
Með þvi að draga til baka
áður samþykkta uppsögn samn-
inga varð Trésmiðafélagið aðili
að þeirri launamálastefnu sem
Alþýðusambandið hafði markað
og byggð var á samkomulagi
við rikisstjórnina um að ef ekki
yrðu grunnkaupshækkanir á
árinu héldist kaupmáttur launa
óskertur. Jafnframt þvi var
'falliö frá visitölu-hækkunum i
desember sl. I stað þeirra
skyldu sett ýmis lög um réttar-
bætur til handa launafólki.
Nokkur þessara laga hafa
verið samþykkt þegar og önnur
munu i lokaafgreiðslu i þinginu.
Nú hefur það hins vegar gerst,
að á sama tima sem samkomu-
lagið um óskertan kaupmátt
launa hefur veriö brotiö með ný-
legri lagasetningu, þá eiga sér
stað átök á vinnumarkaðnum
sem snúast um miklar launa-
hækkanir. Jafnframt hafa opin-
berir starfsmenn fellt sam-
komulag um aukinn verkfalls-
rétt i stað 3% launahækkunar.
Munu þeir þvi fá launahækkun
frá 1. april sl. Þá hefur þakinu á
verðlagsbótum veriö lyft, þann-
ig að hærra launaöir hópar hafa
fengið kauphækkanir, sem i
‘sumum tilvikum eru meiri en
dagvinnukaup ýmissa aðila inn-
an ASI.
Við þessi skilyrði er þvi ekki
nema eðlilegt að verkalýðs-
hreyfingin endurmeti stöðuna i
kjaramálum og knýi á um
breytingar á kjarasamningum
nú þegar.