Tíminn - 01.09.1978, Qupperneq 2
2
Föstudagur 1. september 1978
Carter óttast kreppu
— verði tillögur hans til orkusparnaðar ekki sampykktar af þinginu
Reuter/London/Washington — Dollarinn átti rólegan
dag á gjaldeyrismörkuðum í gær þó hann félli lítilsháttar
i verði sums staðar i Evrópu. A sama tíma lýsti Carter
Bandarikjaforseti því yfir að dollarinn og bandariskt
efnahagslíf ættu kollsteypur i vændum ef þingið drægi
lengur að samþykkja orkusparnaðartillögur hans sem
hafa nú legið fyrir þinginu í 16 mánuði.
Orkusparnaöartillögur Carters
hafa mætt mikilli andstö&u i þing-
inu eins og sá timi gefur til kynna
sem þær hafa verið að þvælast
þar. Fjölmargir þingmenn telja
þær hafa meiri vandræði i för
meö sér en árangur, en aðrir hafa
lýst þvi yfir að verði tillögurnar
ekki samþykktar bráölega megi
þjóðin búa sig undir illkynjaöa
kreppu.
V-þýski efnahagsráðherrann
Otto Lambsdorff lét hafa effir sér
i Tokyo i gær, en hann er þar i op-
inberri heimsókn, að lykillinn að
lausn þess vanda sem dollarainn
á viö að glima liggi ekki i Bonn né'
Tokyo heldur Washington. Allir,
sagði hann, biöa þess að
bandarisk stjórnvöld geri eitt-
hvaö til að styrkja stöðu dollar-
ans.
Eins og áöur hefur verið greint
frá ætla þó Japanir að reyna að
auka innflutning hjá sér til að
stuðla að jafnari viðskiptum við
Bandarikin meðal annars.
Carter hefur verið i tveggja stafanir til að styrkja stöðu
vikna frii en sneri aftur til starfa i dollarans og bandarisks efna-
gærdag og hóf þegar að gera ráð- hags.
Spassky fransk-
ur ríkisborgari
Reuter/Paris— Boris Spassky fyrrverandi heimsmeist-
ari í skák hefur nú öðlast franskan ríkisborgararétt en
heldur sovésku vegabréfi og mun tefla fyrir hönd
Sovétrikjanna á alþjóðlegum skákmótum, er haft eftir
eiginkonu hans, Marínu Spassky, í gær.
Ahlmark
sneri við
frá i/arsjá
Spassky er Islendingum að
góðu kunnur eftir heims-
meistaraeinvigið i Reykjavik.
Hann tapaði þá heimsmeistara-
titlinum i hendur Bobby Fischer
og hafði aðeins haldið honum i
þrjú ár eða frá 1969 er hann vann
Petrosjan. Aftur var Spassky á
ferðinni i Reykjavik á siöasta ári
til að tefla viö Hort um áskor-
andaréttinn.
Rannsókn á bólu-
sóttartilfelli
í Birmingham
Reuter/Genf — Að gefnu til-
efni hefur Alþjóöa heilbrigð-
ismálastofnunin lýst yfir að
engin ástæða sé fyrir lönd að
breyta reglum sinum um bólu-
sóttarvarnir vegna bólusótt-
artilfella i Bretlandi. Þar séu
góð tök á öllu. Hafði borið á
þvi að nokkur lönd, m.a.
Malta, kröfðu breska feröa-
menn um vottorð fyrir bólu-
setningu gegn bólusótt.
Bresk heilbrigðisyfirvöld
hafa lýst Birmingham sýkt
svæði eftir að Janet Parker,
breskur ljósmyndari fékk
bólusótt fyrir skömmu. Þá
hafa yfirvöld gengist fyrir að
rannsókn fari fram á þvi
hvernig Janet Parker fékk
sóttina, en hún vann á lækna-
skóla þar sem geymdur er
bólusóttarvirus i rannsóknar-
skyni.
Siðustu þrjú árin hefur Al-
þjðða heilbrigðismálastofnun-
in gengið stift eftir þvi við
rannsóknarstofnanir að þær
hættu vörslu bólusóttarvirusa
eyðulegðu þá eða kæmu til
geymslu hjá stofnuninni
sjálfri. Að sögn talsmanna
stofnunarinnar eru þó enn ein-
ar 13 rannsóknarstofur i heim-
inum sem geyma hjá sér
þennan hættulega virus, þar
af þrjár i Bretlandi.
Reuter/Stokkhólmur — Per
Ahlmark fyrrum formaöur
Frjálslynda flokksins I Sviþjóð
sneri i gær skyndilega til baka
frá Varsjá þegar tveimur
mönnum i sendinefnd hans
var meinuð landganga. Þessir
tveir sænsku rikisborgarar
sem Pólverjar meinuðu að-
gang að landi sinu munu að
uppruna vera pólskir gyðing-
ar.
V-þýska þingið kallað saman:
Þingmaður grun-
aður um njósnir
Reuter/Bonn — Vestur-þýska þingið hefur verið kallað
saman til skyndifundar í dag vegna njósnamálsins nýja
þar i landi. Stjórnarandstæðingar á þinginu hafa látið
hafa eftir sér að einn þingmanna sósíaldemókratíska
flokksins sé grunaður um að vera njósnari Sovétmanna.
Nefn á vegum neðri málstofu
þingsins, sem fjalla á um frið-
helgi þingmanna, var á fundum i
gær og var álitið að hún hefði til
athugunar að svipta umræddan
þingmann öllum þeim friðhelgis-
réttindum er hindraö gætu
rannsókn málsins. Ekkert hefur
verið látið uppi um máliö og nafn
þingmannsins ekki fengist gefið
upp. Rikissaksóknari hefur að-
eins látið hafa eftir sér að hann sé
að rannsaka ýmislegt i málinu
eftir þvi sem grunur gæfi til
kynna að væri nauðsynlegt.
Forseti þingsins hefur eins og
áður segir kallað þingið saman i
dag til að hlýða á niðurstöður
friðhelgisnefndarinnar. Leyfi
nefndarinnar þarf til að hefja lög-
lega málsókn á hendur þing-
manninum og hefja leit á skrif-
stofu hans.
18. skákin á laugardag:
Kortsnoj og Karpov sáttir
— dulsálfræðingurinn færður og gleraugun tekin niður
Reuter/Baguio Filipseyjum — Kortsnoj kveðst. nú reiðubúinn til að tefla átjándu
skák sína við Karpov eftir áætlun á laugardag en skákinni hefur tvisvar verið
frestað og við borð iegið að einvigið færi út um þúfur. Hefur nú verið gert út um
ágreiningsmálin og samningur undirritaður af fulltrúum Karpovs og Kortsnojs
þess efnis.
Sovéski sálfræöingurinn sem
Kortsnoj fullyrðir aö trufli sig,
verður færður til í áhorfenda-
salnum og á móti hefur Kortsnoj
lofað að lota ekki dökku sólgler-
augun sin, en Karpov hefur
kvartað undan þvi aö þau varpi
truflandi glampa á skákborðið.
Eins og komið hefur fram i
fréttum hefur Kortsnoj hvaö
eftir annað kvartaö undan so-
véska dulsálfræðingnum og full-
yrt að hann beitti sig dáleiðslu-
áhrifum. Sovétmenn hafa tekið
þvert fyrir þetta og fullyrt að
sálfræöingurinn væri aðeins aö
fylgjast með heilsu Karpovs.
Samkvæmt samkomulaginu
milli Karpovs og Kortsnojs
verður sálfræöingurinn nú færð-
ur til og látinn sitja hjá öörum
sendimönnum Sovétrikjanna á
einviginuá Filippseyjufn. Hefur
Kortsnoj þar meö látið niöur
falla kröfu um aö milli kepp-
enda og áhorfenda yröi komið
upp spegli sem áhorfendur sæju
i gegnum en skákmennirnir
ekki.
Vafalaust anda Sovétmenn nú
léttar þegar ljóst þykir að ein-
vigið heldur áfram, en þeim
hefur aö sjálfsögðu ekki litist á
að Karpov yrði öðru sinni
heimsmeistari án þess að vinna
beinlinis til þess viö skákboröið
svo ótvirætt væri en hann varö
eins og kunnugt er heimsmeist-
ari 1975 án þess að tefla, þar
sem Bobby Fischer mætti ekki
til leiks.
Fulltrúar Kortsnoj á Filipps-
eyjum þá einkum Keene hafa
lýst yfir ánægju sinni yfir þvi að
einvígiö heldur áfram og dulsál-
fræöingsvandamáliö væri leyst.
Þá kvaðst Keene vera ánægður
með að Kortsnoj'notaði ekki
dökku gleraugun meir enda
heföi hann óttast að hann sæi
ekki taflborðið og mennina nógu
vel i gegn um svo dökk gler-
augu.