Tíminn - 01.09.1978, Page 20
Sýrð eik er
sígild eign
HU
n
TRÉSMIDJAN MEIDUR
W SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Föstudagur 1. september 1978 190. tölublað — 62. árgangur
Skipholti 19, R.
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Aðalfundi Stéttarsambands bænda lokið:
Rfldð taki þátt í að
tryggja bændum fullt
grundvallarverð
á meðan framleiðslumálin eru í endurskoðun
ESE — Aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda sem staöið hefur
yfir á Akureyri undanfarna þrjá
daga, lauk i gær.
Miklar og fjörugar umræður
settu svip á aðalfundinn að þessu
sinni og voru fjölmargar ályktan-
ir, sem beint var til stjórnvalda,
samþykktar samhljóða.
Einna mestar umræður á aðal-
fundinum urðu um skipulag
framleiðslumála og þvi var beðið
með mikilli eftirvæntingu eftir
nefndaráliti framleiðslunefndar -
sem skilað var i gær. I nefndar-
álitinu segir m.a.: Aðalfundurinn
telur brýnt að gripið verði nú
þegar til stjórnunaraðgerða i
framleiöslumálum landbunaöar-
ins. öllum má ljóst vera að slikar
aðgerðir hafa engin áhril á því
verölagsári sem nú er að liða og
engan veginn nægilega á þvi
næsta. Þvi krefst fundurinn þess
að ríkið taki á sig að tryggja
bændum fullt grundvallarverð
þann tima .
Til þess aö hægt sé að beita
raunhæfum stjórnunaraðgerðum
veröur að beita lögum um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins og
fellst fundurinn i höfuðatriðum á
drög þau að nefnaráliti sem nefnd
skipuð af landbúnaðarráöherra
24. april 1978 hefur lagt fyrir
fundinn.
Þó vill fundurinn benda á eftir-
farandi atriði:
1. Athugað verði I sambandi við
hugsanlegt kvótakerfi hvort ekki
sé rétt að þeir sem auka fram-
leiðslu sina greiði hækkað verð að
framleiðsluauka. A sama hátt
verði þeir látnir njóta þess sem
Gott er aö biða á hinum nýja áningarstað og hér á engum aö veröa kalt
þótt veörin gjörist hörö.
Áningarstaðurinn opnaður
HR — Aningarstaður fyrir far-
þega Strætisvagna Reykjavíkur á
Hlemmi var tekinn i notkun I gær.
Verður hann opinn almenningi
frá kl. 7-24 alla daga nema sunnu-
daga, en þá frá kl. 10 árdegis.
1 húsinu verður margvisleg
þjónusta fyrir farþega. Auk far-
miðasölu verða þarna verslanir
af ýmsu tagi og veitingasala. Er
húsið allt hið veglegasta og er
mikil áhersla lögð á að gera það
hlýlegt. 1 þvi skyni hefur veriö
komið fyrir gróðurreitum við alla
innganga, en þeir eru þrir. Þá er
snyrtiaöstaða fyrir almenning i
húsinu og fært er um þaö allt á '
hjólastól.
Einnig er I húsinu sjálfstýrð
Blómaverslun er starfrækt
á áningarstaönum.
lofthitun. A hitastig þvi að veröa
jafnt, án tillits til veðurfars. Allar
gangstéttir i kringum áningar-
staðinn eru upphitaðar meö
geislahitun.
Húsið er teiknað á teiknistofu
Gunnars Hanssonar.
Frá opnun hins nýja áningarstaöar. A myndinni eru, taliö frá vinstri:
Guörún Agústsdóttir formaöur stjórnar SVR, Sveinn Björnsson verk-
fræöingur, formaöur byggingarnefndar, Leifur Karlsson, á sæti I stjórn ,
SVR, Eirikur Ásgeirsson forstjóri SVR, og Sigurjón Pétursson forseti
borgarstjórnar Reykjavikur.
draga úr framleiðslu ab vissu
marki.
2. Tekið verði sérstakt tillit til
þeirra sem eru að hefja búskap.
3. Varðandi kjarnfóðurgjald telur
fundurinn ástæðu til að athuga
hvort ekki sé rétt að búrekstur á
lögbýlum fái ákveðið magn af
kjarnfóðri gjaldfritt miðað við
bústofnsfjölda.
4. Heimilt verði að veita innflytj-
endum gjaldfrest um tiltekinn
tima á gjaldinu.
Eins og áður segir urðu miklar
umræður um skipulags- og fram-
leiðslumálin og voru ekki allir
Framhald á bls. 19.
Tómas Árnason:
Að
tryggja
halla-
lausan
ríkisbúskap
— er höfuðmarkmiðið
HEI — „Maður hefur nú heldur
litið hugsaö um það ennþá, en
auðvitað reynir maður að gera
sitt besta i svona starfi, leggur
sig að sjálfsögðu fram um það”
sagði Tómas Arnason, er Tim-
inn spuröi hann hvernig það
legðist i hann að taka við em-
bætti fjármálaráðherra i nýrri
rikisstjórn.
Sem kunnugt er er þetta em-
bætti eitt það umdeildasta i
rikisstjórninni og hefur heyrst
að um þessi stjórnarskipti hafi
menn ekki verið ginkeyptir fyrir
þvi að taka það að sér.
— A hvað munt þú leggja
höfuðáhersluna Tómas?
— Það sem ég mun leggja
mesta áherslu á i minu nýja
starfi, er að tryggja hallalausan
rikisbúskap og jafnvægi i rikis-
rekstrinum, og verður að vona
það besta umaðþaðmegi takast.
A formannaráðstefnu BSRB:
Hefðum viljað
að fullu í gildi
AM —Þegar við höfðum rætt viö
fundarmenn hjá ASÍ i Lindarbæ,
lá leið okkar á formannafund
BSRB i húsakynnum bandalags-
ins við Grettisgötu, en þar voru
fundarmenn, meira en 70 talsins,
að tinast inn, en fundurinn hófst
kl. 17.
,,Ég hefði talið bæði eðlilegt og
sjálfsagt að samningarnir hefðu
verið teknir i gildi að fullu” sagði
Kristján Thorlacius, ,,en þar sem
fyrir liggja nú yfirlýsingar frá
öllum flokkunum um að það sé
ekki gerlegt, þótt þeir hafi haft
það á stefnuskrá fyrir kosningar,
þá held ég að skásti kosturinn hafi
nú veriö tekinn. Það er að segja
að setja visitöluna i samband að
verulegu leyti. Þá liggja fyrir
þýðingarmiklar yfirlýsingar um
að opinberir starfsmenn skuli fá
aukinn samningsrétt, en eins og
venjulega, þegar um lausn efna-
hagsvanda er að ræða, vill brenna
við að menn hafi þar sitthvað við
að athuga”
,,Mér þykir það vega þyngst að
lögin um kjaraskerðingu munu nú
verða afnumin og tel það ánægjú-
legan endi á baráttu hreyfingar-
innar að undanförnu,” sagði
Haraldur Steinþórsson. ,,AÖ öðru
leyti tel ég rétt að biöa átekta og
að þessa rikisstjórn skuli dæma
eftir verkum hennar, þegar þau
liggja fyrir”.
,,Mér list heldur vel á þetta
allt,” sagði Ragnar Sigurösson,
formaður félags bæjarstarfs-
manna á Neskaupstað.” Nú veröa
samningarnir leiddir i gildi og
það vona ég að leiði til þess að
vinnufriöur haldist á næstunni.”
Þórhallur Halldórsson,
formaður Starfsmannafélags
Kristln Helgi
Tryggvadóttir Helgason
Reykjavikurborgar, kvaðst enn
ekki hafa séð málefnasamninginn
og kvaðst mundu láta biöa aö tjá
sig um einhver atriði, uns hann
lægi fyrir.
Kristin Tryggvadóttir, fulltrúi
Sambands grunnskólakennara og
stjórnarmaður i BSRB, kvaöst
mjög óánægð með að ekki skyldi
hægt að taka samningana i gildi
að fullu, þótt ýmsar bætur hefðu
fengist fram frá þvi sem var und-
ir fyrri stjórn. Einkum kvaðst
Kristin fagna fyrirheitum um
bættan samningsrétt opinberra
starfsmanna.
Helgi Antonsson.fulltrúi bæjar-
starfsmanna á Siglufirði, kvað
réttast aö segja sem fæst aö sinni
og ekki rétt að gera ráð fyrir
miklum umsvifum afkvæmis
hinnar erfiðu fæðingar, svona
fyrst i stað.
Þórhailur
Halldórsson
Helgi
Antonsson
Ragnar
Sigurösson
Haraldur
Steinþórsson
Helgi Helgason, formaður
starfsmannafélags sjónvarpsins,
kvaðst enn ekki hafa séð stjórnar-
sáttmálann og ekki vita nógu vel
um þær tillögur sem lagöar yröu
fyrir launþega, til þess aö geta
látið álit sitt uppi. Annað væri það
að það væri skynsamlega ráöiö af
hinni nýju stjórn að leita sem
bests samstarfs við launþega-
samtökin.
20 ár
frá útfærslu landhelginn-
ar í 12 mílur
HR —1 dag, 1. september, eru
tuttugu ár liðin frá þvi er Islend-
ingar færðu landhelgi sina úr 4
milum i 12 mílur. Margar þjóöir
viðurkenndu útfærsluna þegar i
stað og allar viðukenndu hana i
verki — nema Bretar. Þeir, ein-
irþjóða, stefndu togurum sinum
inn fyrir 12 milurnar undir
vernd herskipa. Þar með hófst
þorskastriöiö — hið fyrsta sem
nefnt var þvi nafni.
Fyrsta þorskastriðið stóö frá
1. september 1958 til 11. mars
1961. Þá náöist samkomulag þar
sem Bretum var heimiluð veiði
innan 12 milnanna á afmörkuð-
um svæðum i þrjú ár.
1 næsta sunnudagsblaði Tim-
ans verður fjallað nánar um
þessa atburði og ennfremur er
rætt við Eirik Kristófersson
fyrrverandi skipherra, en hann
kom mikið við sögu I þessu
þorskastriði.