Tíminn - 26.04.1977, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 26. april 1977
3
t á
ári
sumarsins og
hvort tveggja hefur æ siöan veriö
meginuppistaöan i starfsemi fé-
lagsins. Skálarnir, sem byggöir
hafa veriö, eru nú orönur seytján
talsins og eiga feröafélögin fyrir
noröan og austan sinn þátt I þvi.
Eins og fyrr segir eru árbækurn-
ar orönar 50 aö tölu.
Fyrsti skáli félagsins byggöi
Jakob Thorarensen skáld áriö
1930 i Hvltárnesi viö Kjalveg. Svo
sem vænta má, hefur óbliö veör-
átta á þeim slóöum sett sitt mark
á þennan gamla skála, og mun
þaö veröa eitt af aöalverkefnum i
skálabyggingum á þessu sumri
aö endurbyggja hann I sinni upp-
runalegu mynd. Þá mun veröa
settur niöur skáli i Hrafntinnu-
skeri, til aö auövelda göngu-
mönnum aö feröast milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur, en á
s.l. ári var samskonar skáli settur
niöur á Emstrum, nálægt
Syöri-Emstru. Þegar þessi skáli
hefur veriö settur á sinn staö,
sem væntanlega mun veröa siöari
hluta sumars, veröur unnt aö
ganga þessa leiö i þrem áföngum
og gista I skálunum á leiöinni.
I sumar mun Feröafélagiö eins
og undanfarin ár, gefa lands-
vegna fimmtugsafmælis félags-
ins. Nokkrir þekktir visindamenn
og rithöfundar rita þætti I árbók-
ina, þar á meöal forseti tslands,
dr. Kristján Eldjárn, Halldór
Laxness, Vilhjálmur Hjálmars-
son, Hannes Pétursson og fjöl-
margir aörir. Þá hefur Feröafé-
lagiö ákveöiö f tilefni 50 ára af-
mælisins, aö efna til nokkurra
gönguferöa á Esju I maf og júnf
n.k. Fyrsta feröin veröur 7. mai
og sú sföasta 12. júni, en alls eru
feröir þessar 10 talsins.
Frá upphafi, hefur þaö veriö
takmark Feröafélags lslands aö
hvetja landsmenn til aö leggja
land undir fót og feröast um land-
iö og njóta feguröar þess og mik-
illeiks. Til þess aö auövelda
mönnum þetta, var eitt af fyrstu
verkefnum félagsins aö byggja
sæluhús i óbyggöum og gefa út
árbækur, þar sem lýst væri hér-
uöum og landshlutum. Þetta
Fyrsti skáli félagsins var byggöur 1930 f Hvitárnesi viö Kjalveg, en nd eru skálarnir alls seytján aö tölu.
Frá blaöaniannaf undinum sem Feröafélag tslands hélt nýlega: Taliö frá vinstri: Böövar Péturs-
son, Jón E. ísdal, Páll Jónsson, Haraldur Sigurösson, Davfö ólafsson Eyþór Einarsson, Kristinn
Zóphaniasson og Tómas Einarsson. Timamynd: Róbert.
mönnum kost á mörgum, fjöl-
breytilegum feröum um landiö.
Auk sumarleyfisferöanna, sem
eru tuttugu samtals og eru allar
lengri en fjórir dagar eru á áætl-
un fjölmargar helgarferöir til
ýmissa vinsælla staöa. Veröa þær
feröir farnar undir leiösögn sér-
fróöra manna hverju sinni. Mark-
miö meö feröum sem þessum er
einkum þaö, aö gefa fólki kost á
fræöslu um afmarkaö efni, t.d.
sögustaöi, jaröfræöi, llf i fjöru,
jurtir o. fl. Feröaáætlun félagsins
kom útifebrúar s.l. og eru þessar
feröir allar auglýstar þar.
Þaö leikur tæpast á tveim tung-
um aö Esjan er þaö fjall, sem
flestir landsmenn þekkja. Meira
en helmingur þjóöarinnar getur
litiö þaö augum daglega og virt
fyrir sér hin sibreytilegu litbrigöi
fjallsins. En hversu margir hafa
gengiö á fjalliö? Og hversu
marga hefur langaö til þess en
ekki framkvæmt þaö enn?
1 tilefni 50 ára afmælisins, efnir
Feröafélagiö til 10 gönguferöa á
Esju eins og áöur er sagt. Lagt
veröur upp frá Mógilsá upp á
þverfellshorn og þaöan á Ker-
hólakamb. Til baka er fariö sömu
leiö, en áætlaöur göngutimi er 6-7
klukkustundir. Fariö veröur frá
Umferöarmiöstööinni á auglýst-
um timum i áætlunarbil.
1 upphafi göngunnar fá þátttak-
endur I hendur eyöublaö, þar sem
þeir rita nöfn sin og fleira. 1 lok
göngunnar afhenda þeir farar-
stjóra blaö þetta en fá I staöinn
skjal, sem staöfestir aö viökom-
andi hafi tekiö þátt I afmælis-
göngu F1 á Esju. Nafnseölar þátt-
takenda veröa sföan geymdir unz
gönguferöunum 10 er lokiö. Þá
veröa dregnir úr þrir seölar, og fá
eigendur þeirra i verölaun frl-
miöa I eina helgarferö Feröafé-
lagsins aö eigin vali.
Tyrsta sæ-Juhus fzrSafrJnjs Ts!sincJs.
JJrltú,
rnes.
Aðalfundur
Norræna
félagsins
í Kópavogi
Aöalfundur Norræna félags-
ins I Kópavogi veröur haldinn
fimmtudaginn 28. april kl.
20.30 I Kársnesskóla. Auk
aöalfundarstarfa veröur sýnd
kvikmynd af noröurslóöum.
Norræna félagiö I Kópavogi
efndi til ritgeröarsamkeppni
um vinabæi Kópavogs meöal
skólabarna i sambandi viö
norrænu menningarvikuna i
kaupstaönum á liönu hausti.
Tveir nemendur fengu verö-
laun, vikudvöl I einum vina-
bæjanna. Þau sem verölaunin
hlutu voru Berglind Hreins-
dóttir 11 ára. Hún skrifaöi um
Norrköping I Sviþjóö og Ragn-
heiöur M. Baltazardóttir, 12
ára og skrifaöi hún um Ang-
magsalik á Grænlandi.
Dagvistar-
samtökin
herða
róðurinn
Dagvistunarsa mtökin munu
gangast fyrir hverfafundi i
Fellahelli, fimmtudaginn 28.
april kl. 20.30 i samvinnu viö
Framfarafélagið i Breiöholti
IIi. Guöný Guöbjörnsdóttir
sálfræðingur mun flytja er-
indi, fóstra segir frá degi
barns á dagvistarheimili og
dagvistunarsamtökin veröa
kynnt. Þá verður kvikmynda-
sýning og umræöur.
Þessi fundur er til aö kynna
fólki ástandið i dagvistarmál-
um i Breiðholti og er hann
haföur um svipaö leyti og opn-
aður veröur nýr leikskóli i
Hólahverfi. Þá munu samtök-
in standa fyrir fundum i fleiri
hverfum i haust.
Nú nýlega hafa dagvistar-
samtökin sent aðildarfélögum
ASI og BSRB bréf, þar sem sú
krafa er itrekuð, aö i komandi
samningum verði rikið skyld-
að til aö byggja fleiri dagvist-
arheimili.
1. maí ætla félagar i dag-
vistarsamtökunum aö safnast
saman hjá Bernhöftstorfunni
kl. 2 og standa þar með kröfu-
spjöld, einnig veröa seld
merki dagvistarsamtakanna
og útbýtt dreifiriti til kynning-
ar.
>■ ' ■■■' ' "■ ........................................................ *
Við erum ekki að berjast til valda,
Við erum að berjast fyrir
rétti 150 milljón Araba
— segir Daoud Karoti, fulltrúi PLO á Norðurlöndum,
sem nú er staddur hér á landi
HV-ReykjavIk — Viö erum
gjarnan kallaöir hryöjuverka-
menn og glæpamenn, en ég held
aö staöreyndir málsins sýni
ótvirætt aö þetta er rangt. Viö
gætum, ef viö vildum, eyöilagt
olluhreinsistöövar, þvi mikill
hluti af starfsmönnum þeirra
eru Palestinar og félagar IPLO.
Viö gætum lika komiö sprengj-
um og byssum inn á svæöi, sem
Israelar segja vernduö, drepiö
þar almenna borgara og framið
önnur ofbeldisverk. Viö höfum
sýnt I verki aö viö komumst inn
á þessi svæöi. Viö höfum bara
ekki i hyggju aö beita aöferðum
af þessu tagi. Viö erum ekki
Zionistar eöa fasistar. Viö erum
ekki aö berjast til þess aö öölast
völd sjálfir, heldur erum viö aö
berjast fyrir rétti eitt hundraö
og fimmtlu milljón Araba til
þess aö stjórna auölindum sin-
um sjálfir, til þess aö mega þró-
ast þjóöfélagslega og efnahags-
lega, mega njóta menntunar og
áhrifa og jafnréttis. Viö erum
vopnaöir i dag, en aöeins vegna
þess aö viö neyddumst til aö
taka upp vopn, þegar allt annaö
þraut, sagöi Daoud Kaloti, full-
trúi Frelsishreyfingar Palest-
Inu, PLO á Norðurlöndum, á
blaöamannafundi I Reykjavik I
gær, en hann er nú staddur hér I
þeim tilgangi aö kynna PLO,
markmiö þess, gerö og stefnu.
— Barátta okkar er i raun og
veru ekki einvöröungu eöa jafn-
vel ekki fyrst og fremst gegn
Israelum, sagöi Kaloti
ennfremur, þvi þaö, sem viö
berjumst gegn, er I hnotskurn
erlend yfirráö og erlend stjórn-
un á Miö-Austurlöndum.
Israelsriki og Zionisminn eru
tákn og tól þeirra yfirráöa og
þeirrar kúgunar, sem heims-
valdastefnan beitir á þessu
svæöi heimsins.
Barátta okkar er alls ekki
gegn Gyöingum. Viö höfum eng-
an áhuga á þvl aö reka Gyöinga
úr Israel. Viö viljum einungis
stofna i Palestinu fullvalda lýö-
ræöislegt riki þar sem Gyöingar
og aörir Palestlnumenn geta Uf-
aö hliö viö hliö i sátt og sam-
lyndi og notiö aö fullu og öllu
sömu réttinda.
Þetta er til dæmis ekki tilfelliö
I dag. Rúmlega sextiu af hundr-
aöi ibúa herteknu svæöanna eru
austurlenzkir Gyöingar, eöa
arabiskir Gyöingar, sem engra
réttinda njóta. Þeir búa viö
sömu aöstæöur, I þessu „gyö-
ingalega” riki, og okkar fólk
veröur aö láta sér lynda I flótta-
mannabúöum. Þeir njóta ekki
stjórnmálalegra áhrifa, ekki
menntunarréttinda, ekki neins,
sem gyöingayfirstéttin, sem
komin er frá Vesturlöndum og
Sovétrikjunum, heldur aö fullu
og öllu fyrir sig.
Viö erum lika aö berjast fyrir
þetta fólk.
Þessi barátta okkar mun lika
leiöa til eigurs. Eina vafaatriöiö
er hversu langan tima þaö tek-
ur. Ég hef þá trú aö þvi miöur
brjótist innan skamms út
fimmta styrjöldin I Miö-Austur-
löndum. Þetta er ekki sam-
kvæmt okkar vilja, þvi viö vilj-
um heldur samningaleiöina, en
þeim, sem ráöa i Israel nú, finn-
ast kröfur okkar óaögengilegar,
þar sem Bandarikjamenn vilja
ekki sætta sig viö þær, og þvi
eru þeir nú aö undirbúa nýja
styrjöld. Þessi veröur bæöi
blóöugri og lengri en fyrri
styrjaldir og enn aörar munu
fylgja I kjölfariö. Þaö mun þó ó-
hjákvæmilega fara svo, aö sigur
vinnist, lýöræöi veröi ofan á —
og þá getum viö lagt niöur vopn-
in, sem viö f öfum veriö neyddir
til aö bera. —