Fréttablaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 29
ATVINNA
SUNNUDAGUR 3. desember 2006 3
Icebank er viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi gagnvart sparisjóðum, innlendum sem erlendum
fjármálafyrirtækjum og öðrum stærri aðilum. Bankinn starfar á sviði erlendra viðskipta, greiðslumiðlunar, fjárstýringar og fjármögnunar í því
skyni að veita afmörkuðum hópi innlendra og erlendra viðskiptavina framúrskarandi þjónustu. Með sérhæfingu að leiðarljósi byggir bankinn
upp samkeppnishæfa og arðsama starfsemi.
Mótuð hefur verið ný framtíðarsýn fyrir bankann til næstu fimm ára. Sú sýn felur í sér nýjar áherslur, ný gildi, metnaðarfull markmið og breytingu
á eignarhaldi. Nú er leitað að fjórum einstaklingum sem vilja taka þátt í að láta framtíðarsýnina verða að veruleika.
Viðskiptaþjónusta er annað af stoðsviðum bankans. Þar fer fram margs
konar frágangur viðskipta, einkum gjaldeyrisviðskipta og
verðbréfaviðskipta, og lánaumsýsla. Sviðið á fjölbreytt samskipti við
innlenda og erlenda aðila. Á sviðinu starfa um 35 manns. Starfið felst
einkum í almennri stjórnun sviðsins í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra
þess, þróun verkferla, hagnýtingu upplýsingatækni og hvers kyns
úrbótastarfi til að auka afköst, gæði og öryggi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskipta- eða tæknigreinum, meistarapróf er
kostur.
• Reynsla af hliðstæðum verkefnum í viðskiptabanka er skilyrði.
• Reynsla af mannaforráðum.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði talmáli og ritmáli.
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
Aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptaþjónustu
Tölvumiðstöð sparisjóðanna (TS) gegnir hlutverki upplýsingatæknisviðs
bankans. Í sameiningu leita bankinn og TS að einstaklingi til að hafa
yfirumsjón með upplýsingatæknimálum bankans. Viðkomandi verður
starfsmaður TS en mun eingöngu sinna upplýsingatæknimálum bankans
og hafa vinnuaðstöðu á báðum stöðum. Viðkomandi mun vinna náið
með æðstu stjórnendum bankans við að móta framtíðarsýn og stefnu
bankans á þessu sviði og sinna þarfagreiningu. Þá mun viðkomandi
hafa umsjón með daglegum verkefnum í bankanum á sviði
upplýsingatækni og fylgja eftir verkefnum sem unnin eru fyrir bankann
hvort heldur er hjá TS eða öðrum birgjum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í kerfisfræði, tölvunarfræði, tölvuverkfræði eða
hliðstæðum greinum; meistarapróf er kostur.
• Reynsla af hliðstæðum verkefnum er skilyrði, reynsla í
fjármálafyrirtæki er ótvíræður kostur.
• Góðir greiningarhæfileikar og hæfileikar til að setja hugsanir
fram á skýran hátt.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði talmáli og ritmáli.
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
Yfirmaður upplýsingatæknimála
Einn liður í því að hrinda breytingum í bankanum í framkvæmd er að
móta nýjan fyrirtækjabrag og mannauðsstefnu, sem fellur að hinni nýju
framtíðarsýn. Til samans munu fyrirtækjabragurinn og mannauðsstefnan
styðja meö öflugum hætti við starfsemi bankans inn á við og út á við
og hafa þannig lykiláhrif á samkeppnisstöðu hans á öllum sviðum.
Mannauðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra rekstrarsviðs og stýrir
starfsmannaþjónustu bankans. Fyrst í stað mun viðkomandi hins vegar
einbeita sér að því að festa nýjan fyrirtækjabrag í sessi í náinni samvinnu
við bankastjóra og framkvæmdastjóra bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í mannauðsstjórnun eða hliðstæðri grein.
• Reynsla af hliðstæðum verkefnum er skilyrði.
• Góðir greiningarhæfileikar og hæfileikar til að setja hugsanir
fram á skýran hátt.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði talmáli og ritmáli.
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
Mannauðsstjórnun - mótun nýs fyrirtækjabrags
Í tengslum við ofangreindar breytingar hefur verið ákveðið að setja
á laggir greiningardeild í bankanum. Hún verður staðsett innan
fjárstýringar og heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins.
Meginstarfsemin felst í greiningu á þeim þáttum sem hafa áhrif á
vexti og gengi íslensku krónunnar og helstu gjaldmiðla erlendis.
Þá mun deildin útbúa kynningarefni um íslensk efnahagsmál, um
íslenskan fjármálamarkað og um bankann og sinna samskiptum við
erlenda aðila í samvinnu við ýmsa aðila í bankanum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði.
• Góðir greiningarhæfileikar og hæfileikar til að setja hugsanir
fram á skýran hátt.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði talmáli og ritmáli.
• Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
Sérfræðingur í greiningardeild
Umsjón með störfunum hafa Ragnheiður S. Dagsdóttir ragnheidur.dagsdottir@capacent.is og Herdís Rán Magnúsdóttir
herdis.magnusdottir@capacent.is hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 11. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlega
beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is
H
2
h
ö
n
n
u
n