Fréttablaðið - 03.12.2006, Blaðsíða 10
10 3. desember 2006 SUNNUDAGUR
MótMæla MisMunun Tugir
ungmenna komu saman í Jakarta,
höfuðborg Indónesíu, til að mótmæla
mismunun og fordómum gegn fólki
sem er með alnæmi eða HIV-smit. Í
gær var alþjóðlegi alnæmisdagurinn.
fréTTablaðIð/ap
kiRkjA Tilraunaverkefni um gjafir
handa börnum fanga verður kynnt
á aðventukvöldi í Grensáskirkju í
kvöld. Lítið jólatré, svonefnt Engla-
tré, verður sett upp í kirkjunni og á
það hengd lítil spjöld í engilsmynd
með nöfnum barna fanga í Kvenna-
fangelsinu í Kópavogi. Safnaðar-
fólk er síðan hvatt til að taka eitt
spjald og finna gjöf handa viðkom-
andi barni og leggja við tréð.
Alþjóðasamtök kristinna fanga-
vina á Íslandi standa fyrir verkefn-
inu en fulltrúar þeirra, Jóhann F.
Guðmundsson og Lára Vigfúsdóttir,
hafa heimsótt fangelsin um aldar-
fjórðungsskeið. Í stjórn samtak-
anna auk þeirra eru Sigurlaug Þor-
kelsdóttir og Hreinn S. Hákonarson,
fangaprestur þjóðkirkjunnar.
Hreinn segir verkefninu ætlað
að vekja athygli á stöðu aðstand-
enda fanga sem og að veita börn-
um þeirra stuðning á þeim erfiða
tíma sem jólin geta verið þeim.
„Margir fangar eiga börn og
það getur verið erfiður tími í lífi
barnanna þegar jól ganga í garð
og þau vita af pabba eða mömmu í
fangelsi. Sum börn búa við erfiðar
aðstæður og eru kannski ein með
leyndarmálið sitt um að foreldri
þess sé í fangelsi. Það er þeim
styrkur að vita til þess að til þeirra
sé hugsað með hlýju og kærleika.“
- sdg
Tilraunaverkefnið Englatré kynnt í Grensáskirkju í kvöld:
Gjafir handa börnum fanga
hreinn hákonarson fangaprestur
Hreinn stendur hér við Englatréð sem er
með nöfnum barna fanga á englamið-
unum. fréTTablaðIð/sTEfán
SAmGöNGUR Færsla biðstöðvar
fyrir leið 28 við Salaskóla í Kópa-
vogi hefur skapað stórhættu fyrir
þau börn sem nýta sér þjónustu
strætisvagnsins á leið sinni til
skóla eða tómstunda á svæðinu.
Biðstöðin hefur verið færð yfir
Fífuhvammsveg og þurfa börnin
nú að fara yfir hann til að komast
að skólalóðinni, en vagninn stopp-
aði áður inni á henni.
Jóhann Björgvinsson, foreldri
nemanda við skólann, segist ekki
skilja hvernig mönnum detti svona
lagað í hug. „Það er léleg lýsing
þarna, engin gangbraut eða neitt.
Það er ekki nein lausn að setja bið-
stöð við hraðbraut.“ Hann segir að
best væri ef biðstöðin yrði færð
aftur fyrir framan skólann. „En
þetta er náttúrlega klúður frá upp-
hafi þetta skipulagssvæði.“
Að sögn Péturs Fenger, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Strætós bs.,
hafa vagnar fyrirtækisins átt í
vandræðum með að komast í gegn-
um hringtorg við gömlu biðstöðina
síðan skólastarf hófst á ný í haust
vegna þess að bílum sé iðulega lagt
við það. „Þetta er orðið þannig að
við getum ekkert athafnað okkur
vegna þrengsla á torginu. Það
hefur nokkrum sinnum orðið tjón á
vagninum vegna þessa. Lögreglan
telur sig ekki hafa lögsögu þarna
inni á svæðinu þar sem það er skil-
greint sem einkalóð. Við fáum því
hvorki aðstoð við að fjarlægja bíl-
ana né þegar við lendum í tjóni.“
Hann segir að fyrirtækið hafi
óskað eftir því við bæjaryfirvöld
að einhvers konar ráðstafanir
verði gerðar á svæðinu til að ráða
bót á vandamálinu en ekki fengið
nein viðbrögð enn sem komið er.
„Okkur finnst ekki æskilegt að
stoppa þar sem við stoppum núna.
Okkur fannst betra að fara með
krakkana inn á svæðið vegna þess
að Fífuhvammsvegurinn er eins
og hann er. Til þess að leggja ekki
niður þjónustuna þá er hins vegar
skásti kosturinn að vera þarna úti
við veginn því við komumst ekki
inn í hringtorgið lengur.“
Steingrímur Hauksson, deild-
arstjóri hönnunardeildar Kópa-
vogsbæjar, segir málið nýkomið
inn á borð til sín og því stutt á veg
komið. Hann segir nauðsynlegt að
gera einhverjar ráðstafanir en að
bærinn sé ekki búinn að setja
málið í neinn farveg. „Ég geri ráð
fyrir því að við reynum að banna
bílum að leggja inni á torginu. Við
ætlum að reyna að láta biðstöðina
vera áfram þar sem hún var.“
thordur@frettabladid.is
Segir börn í
stórhættu
Strætó bs. hefur fært biðstöð sína við Salaskóla yfir
Fífuhvammsveg og börn þurfa nú að ganga yfir veg-
inn til þess að komast í skólann. Hvorki gangbraut
né gönguljós eru á þessu svæði.
Biðstöðin börn á leið til skóla og annarra tómstunda við salaskóla þurfa að fara yfir
fífuhvammsveg eftir færslu biðstöðvarinnar. Þar eru hvorki gangbraut né gönguljós.
fréTTablaðIð/VallI
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
11
/0
6
Greenland
dúnúlpa frá
The North Face
Jólatilboð
22.990 kr.
verð áður 26.990 kr.
LöGReGLUmáL Drukkinn karlmað-
ur á fertugsaldri var handjárnað-
ur og færður í fangageymslu af
lögreglunni í Keflavík eftir
ofsaakstur í fyrrinótt. Maðurinn
mældist fyrst á 132 kílómetra
hraða á Reykjanesbraut þar sem
hámarkshraði er 90 kílómetrar á
klukkustund. Hann sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu og
ók áfram í vesturátt.
Við Grindavíkurveg mældist
bíllinn á yfir 140 kílómetra hraða.
Fjórir lögreglubílar náðu loks að
króa hann af á Aðalgötu í Keflavík
þar sem þurfti að handjárna hann
vegna óláta og flytja í fanga-
geymslur. - sh
Ölvaður ökuníðingur:
Handtekinn
eftir ofsaakstur
NeyteNDUR Talsmaður neytenda,
Gísli Tryggvason, hefur farið fram
á við banka, sparisjóði og korta-
fyrirtæki að fá til skoðunar
ábyrgðarákvæði í skilmálum
þeirra gagnvart neytendum í þeim
tilgangi að gæta þess að jafnvægi
sé á milli ábyrgðar neytenda og
fyrirtækis á misnotkun af hálfu
óviðkomandi aðila.
„Í kjölfar frétta undanfarið
um innbrot í heimabanka kann-
aði ég hvort neytendur hefðu
borið tjón í umræddum tilvikum
hjá hlutaðeigandi bönkum og
sparisjóðum. Stefnt er að því að
réttarstaða neytenda samkvæmt
skilmálum sé í samræmi við
almennar reglur skaðabóta- og
neytendaréttar.“ - sdg
Misnotkun kortaupplýsinga:
Skoðar ábyrgð fyrirtækja