Fréttablaðið - 17.12.2006, Side 1
56%
43%
0% Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Sunnudagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
Blaðið
30
20
10
60
50
40
0
70
80
Upplýsingar eru veittar í síma 533 6300 og með fyrirspurnum á netföngin:
maria@lidsinni.is og svava.jonsdottir@inpro.is
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR, SJÚKRAÞJÁLFARAR OG IÐJUÞJÁLFAR
VIÐ LEITUM EFTIR FLEIRI FRÁBÆRUM EINSTAKLINGUM TIL AÐ TAKAST Á
VIÐ FJÖLBREYTT OG KREFJANDI VERKEFNI Á SVIÐI
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU OG VINNUVERNDAR
Við leitum að einstaklingum sem eru faglega framúrskarandi, sjálfstæðir, sveigjanlegir og með góða
samskiptahæfileika. Á móti bjóðum við fjölbreytt verkefni og skemmtilegt samstarf.
Á vinnuverndarsviði InPro er laust til
umsóknar starf við vinnustaðaúttektir,
áhættumat starfa, auk fræðslu og þjálfunar á
sviði vinnuverndar.
Á heilbrigðissviði InPro/Liðsinnis er laust til
umsóknar starf við hjúkrunarþjónustu til
stofnana eða einstaklinga. Um er að ræða
vaktavinnu á ýmsum sérsviðum hjúkrunar.
Markmið InPro er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks með hágæða heilbrigðisþjónustu og
víðtækri þjónustu á sviði vinnuverndar.InPro - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - Sími 533 6300 - www.inpro.is
KFC
KÓ
KÓPAVOGSBÆR
7
dagar til jóla!
Opið til 22
Stútfullt blað af
atvinnuauglýsingum
Með sterkustu
konu Breta
Íslendingar sækja í
auknum mæli í sólina yfir hátíð-
irnar og að vera frekar heima á
Íslandi yfir sumartímann. Stórir
hópar ættmenna ferðast saman.
„Þetta er allt annað munstur en
áður var, fólk er að panta ferðir í
október fyrir afa og ömmu og alla
fjölskylduna. Þetta eru allt að tut-
tugu manns saman sem fara með
hangikjöt, malt og appelsín, ORA-
baunir og jafnvel laufabrauð,“
segir Laufey Jóhannesdóttir hjá
Plúsferðum, en hún telur að styttra
sumarfrí skólabarna spili þarna
inn í, og að fólk vilji nýta allt það
frí sem það hefur.
Plúsferðir eru í samvinnu við
Úrval-Útsýn og Sumarferðir. Með
þessum þremur ferðaskrifstofum
ferðast um átján hundruð manns
til útlanda um jólin og er það mikil
fjölgun milli ára.
Hjá Heimsferðum er sömu
sögu að segja. Þar hefur jólaferð-
um fjölgað talsvert og Þyri Gunn-
arsdóttir, sölustjóri Heimsferða,
minntist einnig á sömu nýju tísk-
una; ferðir stórfjölskyldna. Þyri
áætlar að tæplega þrjú þúsund
manns leggi land undir fót með
ferðaskrifstofunni. Það er álíka
mikið og hjá stóru flugfélögunum,
en í ferðir með þeim fara „á fjórða
þúsund“ hjá Flugleiðum og „milli
þrjú og fjögur þúsund“ hjá Ice-
land Express. Talsmenn beggja
félaga tóku fram að erfitt væri að
henda reiður á nákvæma tölu.
Samtals má því gróflega ætla
að milli tíu og þrettán þúsund
manns fljúgi í sólina um jólin með
þessum ferðaþjónustufyrirtækj-
um.
En ekki sækja allir í strendur
og sand. Skíðaferðir til Evrópu
eru einnig vinsælar. Í ár er sá
bransi í talsverðu uppnámi vegna
mikils hita í Evrópu. Á þessum
tíma árs mun ekki hafa verið heit-
ara þar svo öldum skiptir og við-
urkenna sölumenn að þetta sé
„dálítið erfitt“. Ekki er skíðaferða-
mönnum endurgreitt, þótt enginn
sé snjórinn, frekar en sóldýrkend-
um sem lenda í rigningu. Ekki er
spáð snjókomu næstu daga, en
sölumenn segjast þó ekki örvænta.
Um þrettán þúsund
í útlöndum um jólin
Sala jólaferða hefur aukist mikið. Allt að þrettán þúsund manns fara út í heim
yfir jólin. Stórfjölskyldan sækir í auknum mæli í að halda heilög jól með hangi-
kjöti á sólarströnd. Enginn snjór er í Evrópu fyrir skíðaferðalanga.
Þetta er allt annað
munstur en áður var,
fólk er að panta ferðir í október
fyrir afa og ömmu og alla fjöl-
skylduna.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opið almenn-
ingi í gær í fyrsta skipti í vetur. Ekki var allt svæðið
opið heldur einungis ein lyfta í Suðurgili. Lyftan,
sem kölluð er Gosinn, var opin milli eitt og fjögur og
var aðgangur ókeypis.
Um 200 manns lögðu leið sína upp í Bláfjöll en ef
með eru taldir þeir sem mættu á æfingar skíða-
deilda um morguninn voru á milli 400 og 500 manns
í brekkunum í dag. Flestir voru sammála um að þótt
lítið væri af snjó væri færið gott.
Samkvæmt Grétari Þórissyni, forstöðumanni
skíðasvæðisins í Bláfjöllum, vantar lítið upp á að
hægt verði að opna fleiri lyftur. „10 til 15 sentímetr-
ar af jafnföllnum snjó ættu að duga svo hægt verði
að opna í Kóngsgili,“ segir Grétar.
Vonir standa til að hægt verði að hafa Gosann
opinn um eftirmiðdaginn í dag en Grétar biður fólk
að hringja á undan sér eða athuga hvort opið sé á
heimasíðunni www.blafjoll.is áður en lagt er af stað.
Fimm hundruð manns á skíðum
Ólafur Ásgeirsson
þjóðskjalavörður hefur veitt
Alþýðusambandi Íslands umbeðn-
ar upplýsingar um hvort og þá
hvenær símar ASÍ hafi verið
hleraðir á tímabilinu 1949 til 1976.
Í svari þjóðskjalavarðar kemur
fram að heimild til hlerunar var
veitt einu sinni árið 1961, en þá
var Hannibal Valdimarsson
forseti sambandsins. Á vefsíðu
ASÍ kemur fram að bréf þjóð-
skjalavarðar veki fleiri spurning-
ar en það svarar. Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, vekur
athygli á að enn sé óupplýst
hversu lengi þessar hleranir stóðu
yfir en í dómsúrskurði segir að
hlerunarleyfið sé veitt „fyrst um
sinn“. Sambandið mun því
fylgjast vel með framvindu
hleranamálsins.
Þjóðskjalavörð-
ur svarar ASÍ
Mikill eldur kviknaði í þró
við fiskimjölsverksmiðju
Ísfélagsins í Vestmannaeyjum
um klukkan átta í gærkvöldi. Allt
tiltækt slökkvilið og björgunar-
sveitir börðust við eldinn sem
náðu tökum á eldinum á rúmri
klukkustund. Átta manna lið frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var sent með eiturefnabúnað með
þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Vestmannaeyja, vegna ediksýru
sem runnið hafði niður. Var um
varúðarráðstöfun að ræða.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Vestmannaeyj-
um er íkveikja líklegasta
ástæða eldsvoðans, en engar
raflagnir eru í þrónni. Tjónið er
líklega ekki mikið að sögn
lögreglu en mikil mildi þykir að
eldurinn náði ekki í sjálft
verksmiðjuhúsið.
Lögregluna
grunar íkveikju