Fréttablaðið - 17.12.2006, Side 4
Framsóknarmenn fögn-
uðu níutíu ára afmæli Framsókn-
arflokksins um land allt í gær.
Flokkurinn var stofnaður í
Alþingishúsinu við Austurvöll 16.
desember 1916 og í því sama húsi
kom stjórn flokksins saman í gær
og minntist tímamótanna. Um leið
var nýtt merki flokksins kynnt.
Jón Sigurðsson formaður segir
flokkinn hafa elst vel enda hafi
hann styrkst með hverri nýrri
kynslóð. „Það hafa auðvitað skipst
á skin og skúrir en við höfum séð
dekkri ský en við sjáum núna. Það
hefur alltaf birt upp vegna þess að
flokkurinn á sér sterkar og djúpar
rætur í þjóðinni.“
Jón segir verkefni Framsókn-
arflokksins nú að vinna úr þeim
árangri sem hefur náðst á undan-
förnum árum. „Við þurfum að
skila arðinum af vextinum til allr-
ar þjóðarinnar. Til þeirra sem
minnst hafa og til allra byggða í
landinu. Það er viðfangsefnið sem
er framundan.“
Guðni Ágústsson varaformað-
ur segir Framsóknarflokkinn enn
hlaðinn æskuhugsjónum sínum.
Hann hafi verið stofnaður til
breytinga af menntamönnum og
bændum. Menntun hafi verið í for-
gangi í upphafi og sé enn. „Allt
snýst þetta um að efla Ísland og að
hjálpa fólki sem á erfiðara en
aðrir,“ segir Guðni.
Spurðir hvað standi upp úr í
langri sögu flokksins nefna þeir
báðir héraðsskólana og þátt fram-
sóknarmanna í að uppfræða þjóð-
ina. „Menntun alþýðunnar er ein-
hver áhrifamesta og stórbrotnasta
breyting sem varð á Íslandi í
fátækt þess og kom henni til bjarg-
álna,“ segir Guðni. Báðir nefna
líka baráttuna fyrir útfærslu land-
helginnar á sínum tíma.
Sæunn Stefánsdóttir ritari
segir að
þótt flokk-
urinn byggi
á gamalli
hefð og
sterkum
rótum sé
hann þó fyrst og fremst fólkið sem
í honum er. „Flokkurinn hefur
verið óhræddur við að þróast með
þjóðinni og hefur sett framsækin
og nútímaleg mál á oddinn,“ segir
hún og nefnir lög um fæðingaror-
lof og níutíu
prósenta
húsnæðis-
lán. „Við
höfum þró-
ast en byggj-
um samt á
rótum samvinnu- og ungmennafé-
lagshreyfingarinnar og það er
brýnt á þessum tímamótum að
minna á rætur okkar.“
Guðni, Jón og Sæunn blésu
saman á kerti á afmælistertu í
gær og gekk það vel. Við það tæki-
færi óskaði Guðni flokknum
styrks. „Ég held að það sé pólitík-
inni og þjóðfélaginu mikilvægt að
Framsóknarflokkurinn eflist á
þessum tímamótum. Ég hygg
nefnilega að hér gæti orðið erfitt
pólitískt ástand ef styrkur okkar
veikist,“ sagði Guðni.
Arðinum af vextinum verði
skilað til allrar þjóðarinnar
Níutíu ára afmælis Framsóknarflokksins var minnst í Alþingishúsinu í gær. Við það tækifæri sagði Jón Sigurðsson formaður að
framundan væri að útdeila arðinum af vexti síðustu ára. Guðni Ágústsson segir þjóðfélaginu mikilvægt að flokkurinn eflist.
Sjö afganskir karl-
menn sneru í gær aftur til heima-
lands síns eftir margra ára fang-
elsun í Guantanamo-fangelsinu
alræmda á Kúbu. Allir hafa þeir
haldið fram sakleysi sínu, en segj-
ast ekki hafa hlotið slæma með-
ferð í bandarísku fangabúðunum.
„Ég átti engan pening til að
borga talíbönunum, svo að ég
neyddist til að ganga til liðs við
þá,“ sagði Abdul Rahman, einn
fanganna. Rahman segir talíban-
ana hafa krafið sig um rúmar fjög-
ur hundruð þúsund íslenskar krón-
ur, annars yrði hann seldur til
Bandaríkjamannanna. Hann segir
þá svo hafa keypt sig fyrir 1,3
milljónir og sent til Guantanamo.
Þetta er áttundi hópurinn sem
hefur verið sleppt úr fangelsinu,
en alls hafa 47 Afganar fengið að
yfirgefa það, síðan sjálfstæð
stofnun var sett á fót árið 2004 til
að hafa yfirumsjón með ferlinu.
Nefndin segir sjötíu Afgana enn
vera í haldi í fangelsinu.
Alaf Mohammad, 62 ára, var
einnig í haldi í fimm ár, að hans
sögn fyrir það eitt að vera múslimi.
„Ég var bara bóndi í Helmand-
héraðinu,“ sagði hann. „Ég er sak-
laus, þið getið spurt hvern sem er
í þorpinu mínu, þeir þekkja mig.
Eini glæpurinn minn var að lesa
hið heilaga orð.“
Að sögn hans létust átján manns
þegar bandaríski herinn réðst inn
í hérað hans, þar á meðal frændi
hans.
John Edwards,
fyrrverandi öldungadeildarþing-
maður frá Iowa, mun sækjast eftir
því að verða forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins í bandarísku
forsetakosningunum árið 2008.
Þetta mun hann tilkynna seinna í
mánuðinum, samkvæmt heimild-
armönnum í Demókrataflokknum.
Edwards var varaforsetaefni
demókrata í kosningunum árið
2004, þegar John Kerry tapaði
fyrir sitjandi forseta, George W.
Bush. Aðrir sem hafa verið
orðaðir við framboð eru öldunga-
deildarþingmennirnir Hillary
Clinton frá New York og Barack
Obama frá Illinois.
John Edwards
fer í framboð
Fimmta hver dönsk kona
eldri en sautján ára íhugar
fegrunaraðgerð, kemur fram í
nýrri danskri könnun sem fjallað er
um á fréttavef Berlingske Tidende.
Í könnuninni, sem Gallup gerði
fyrir dagblaðið, kom fram að um
320.000 danskar konur eldri en
sautján ára hafa farið í brjósta-
stækkun eða farið í aðra útlits-
breytingu sem ætlað er að fegra
þær, eða átta prósent af öllum
fullorðnum Dönum. Þrír af
hverjum fjórum Dönum sjá lítið
sem ekkert athugavert við
fegrunaraðgerðir, og á það við um
karlmenn jafnt sem konur.
Danskar borga
fyrir fegurðina