Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 6
„Þetta er eitt stærsta
verkefni sem við höfum farið í,
fyrr og síðar,“ segir Gunnar Ein-
arsson, bæjarstjóri í Garðabæ, um
samning við Klasa hf. um upp-
byggingu á nýjum miðbæ við
Garðatorg.
Klasi kaupir Hagkaupshúsið af
Karli Steingrímssyni og nálæga
bensínstöð Shell auk þess sem
Klasi fær frá bænum lóð við Hafn-
arfjarðarveg. Alls er áætlað að
fyrir þetta greiði Klasi samtals
ríflega 1.200 milljónir króna.
Alls verða
byggðir um 31
þúsund fer-
metrar í kring-
um Garðatorg
og að Hafnar-
fjarðarvegi.
Þar af verða
um 20 þúsund
fermetrar í um
200 íbúðum en
afgangurinn
verslunar- og
þjónustuhús-
næði. Heildar-
kostnaður er
áætlaður sjö
til átta milljarðar króna.
„Þarna erum við að skapa nýjan
miðbæ frá a til ö. Þarna verða
engar skyndilausnir eða bráða-
birgðalausnir,“ segir Gunnar. „Við
höfum verið að þróa þessar hug-
myndir síð-
ustu tuttugu
mánuði í sátt
og samlyndi
við íbúa og
hagsmunaað-
ila. Það er mikilvægt fyrir okkur
að skapa hér hlýlegan og notaleg-
an miðbæ.“
Að sögn Gunnars verða bensín-
stöðin og byggingin sem nú hýsir
Hagkaup og fleiri fyrirtæki rifin
til að rýma fyrir uppbyggingunni
umhverfis torgið. En áður verði
byggt nýtt hús fyrir Hagkaup út
við Hafnarfjarðarveg.
Undir torginu verður bílakjall-
ari sem bærinn mun eiga en Klasi
mun eiga verslunarhúsin og sjá
um rekstur þeirra. „Einu útgjöld
bæjarins verða um 350 milljónir
króna í bílakjallarann. Við borgum
það upp með fasteignagjöldunum
á um tíu árum,“ segir Gunnar.
Að sögn bæjarstjórans er gert
ráð fyrir því að Hagkaup verði
flutt í nýja húsið á miðju ári 2008.
Byggðin í kringum torgið verði
svo risin á fyrri hluta árs 2010.
„Klasi mun í samvinnu við þá
sem fyrir eru og nýja aðila raða
inn í verslunarrýmið á sem hag-
kvæmastan hátt til þess að versl-
un og þjónusta gangi hér upp. Það
er snilldin í þessu því Klasi kann
að setja saman það sem gengur
upp,“ segir Gunnar og vísar þar til
aðkomu Klasa að skipulagi
Kringlunnar meðal annars.
Átta milljarða miðbær
Klasi hf. byggir nýjan miðbæ umhverfis Garðatorg í Garðabæ. Þar verða bæði
íbúðir og verslanir og þjónustufyrirtæki. Áætlaður kostnaður er sjö til átta millj-
arðar króna. Hagkaupshúsið verður rifið og verslunin flutt að Hafnarfjarðarvegi.
Hefurðu dottið í hálkunni nú?
Hefur þú farið til læknis á
árinu?
Ójöfnuður í tekju-
skiptingu Íslendinga síðasta ára-
tuginn hefur aukist. Lágtekjufólk
hefur dregist aftur úr með minni
hækkun heildartekna fyrir skatta
og bætur. Skattastefna stjórnvalda
á síðasta áratug og rýrnun barna-
og vaxtabótagreiðslna varð til
þess að magna upp ójöfnuð enn
frekar og framkalla aukið bil milli
allra þrepa tekjustigans. Hátekju-
fólk naut meiri hækkunar sinna
tekna umfram aðra í samfélaginu
á sama tímabili, einkum í formi
fjármagnstekna. Þetta eru niður-
stöður Stefáns Ólafssonar, próf-
essors við félagsvísindadeild
Háskóla Íslands, í nýrri rannsókn
sem byggir á fjölþætt-
um gögnum frá Hag-
stofu Íslands, ríkis-
skattstjóra,
Þjóðhagsstofnun og
Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands, auk
erlendra samanburðar-
gagna.
Stefán segir einnig í
grein sinni að skattleys-
ismörkin séu sá þáttur
skattkerfisins sem helst
jafnar tekjuskipting-
una, þegar aðeins er eitt
þrep í álagningunni, eins og nú er
á Íslandi. Því hærri sem skattleys-
ismörkin eru því meiri eru jöfnun-
aráhrif skatta við slík-
ar aðstæður.
„Ef skattleysismörk
munu ekki fylgja
launavísitölu á næstu
árum má að öðru
óbreyttu búast við að
enn lengra verði geng-
ið í átt til aukins ójafn-
aðar á Íslandi. Nær öll
vestræn ríki sem við
berum okkur saman
við hafa aukið jöfnun-
aráhrif skatt- og vel-
ferðarkerfa sinna til
að milda þessi auknu ójafnaðará-
hrif. Stefnan á Íslandi var öndverð
þessu“, segir Stefán.
Lágtekjufólk dregst aftur úr
Íslenska fyrirtækið Nýsir hf., hefur hreppt
fimmtán milljarða króna samning um að byggja tíu
skóla og eina íþróttamiðstöð í Aberdeen í Skotlandi.
Nýsir mun einnig reka mannvirkin í 30 ár en þetta er
í fyrsta skipti sem Nýsir sigrar í samkeppni um verk-
efni erlendis.
Verkefnið felst í að byggja sjö nýja grunnskóla,
endurbyggja einn grunnskóla, byggja tvo nýja fram-
haldsskóla og endurbyggja eina íþróttamiðstöð. Áætl-
aður stofnkostnaður verkefnisins er um 15 milljarð-
ar íslenskra króna. Skólarnir verða byggðir á árunum
2007-2009 og leigðir Aberdeenborg í 30 ár.
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis, segir að
ákveðið hafi verið að leita verkefna erlendis sökum
þess að fá verkefni hafi verið framundan á Íslandi.
„Fyrirtækið hefur boðið í tvö önnur verkefni í Skot-
landi að undanförnu en nú var tilboði fyrirtækisins
loks tekið. Þetta verkefni er afar mikilvægt fyrir
rekstur Nýsis og tekjurnar verði á bilinu einn til tveir
milljarðar króna á ári eftir að uppbyggingunni lýkur.“
Rekstur bygginganna verður í höndum fasteigna-
stjórnunarfyrirtækisins Operon, sem er í meirihluta-
eigu Nysir UK Limited, dótturfyrirtækis Nýsis hf.
Skólarnir eru teiknaðir af VA Arkitektum og Á stof-
unni.
Kona á þrítugsaldri var
í gær dæmd í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fjögurra mánaða
fangelsi fyrir margvísleg brot.
Hún var meðal annars ákærð
fyrir misstóra bensínstuldi,
þjófnað úr verslunum, þar sem
hún hafði meðal annars tekið
blómvönd, matvæli og fatnað
ófrjálsri hendi. Jafnframt að hafa
farið inn í íbúðarhúsnæði og tekið
þar skartgripi og snyrtivörur að
andvirði nær milljón króna. Loks
var konunni gefið að sök að hafa
sparkað tvívegis í aðra konu svo
að hin síðarnefnda féll í gólfið og
hlaut nokkra áverka.
Auk fangelsisvistar dæmdi
héraðsdómur konuna til að greiða
bætur og skaðabætur, auk
málskostnaðar samtals að
upphæð rúmar 600 þúsund
krónur.
Dæmd fyrir
margvísleg brot
Karlmaður á
sextugsaldri var skallaður í
andlitið í Stapanum í Reykjanes-
bæ aðfaranótt laugardagsins.
Maðurinn rotaðist við árásina.
Tildrög árásarinnar eru ókunn en
lögreglan í Reykjanesbæ
rannsakar málið. Ekki er vitað
hver árásarmaðurinn er.
Auk þess gistu tveir menn um
fertugt fangageymslur lögregl-
unnar í Reykjanesbæ aðfaranótt
laugardagsins. Mennirnir létu
ófriðlega og veittust að fólki við
veitingastaðinn Hápunktinn í
Hafnargötu eftir að dyraverðir
staðarins höfðu meinað þeim
inngöngu sökum ölvunar.
Maður skallað-
ur í andlitið
Breyttur pallbíll
valt í Fáskrúðsfjarðargöngum á
föstudaginn. Tildrög óhappsins
eru þau að það sprakk á vinstra
framhjóli bílsins og missti
ökumaðurinn við það stjórn á
honum þannig að hann lenti á
hliðinni í miðjum göngunum.
Göngin voru lokuð í um tuttugu
mínútur á meðan beðið var eftir
tækjum til að fjarlægja bílinn.
Ökumanninn og hund sem var í
bílnum, sakaði ekki í veltunni.
Bíllinn er ónýtur eftir óhappið
að sögn lögreglunnar á Fáskrúðs-
firði.
Bíllinn ónýtur
eftir óhappið
Laugaveginum var lokað á
þriðja tímanum í gær vegna Jóla-
lestar fyrirtækisins Víkurverks
sem rúntaði niður götuna. Í Jóla-
lestinni voru fimm hjólhýsi sem
var pakkað inn í gjafapappír í til-
efni jólanna og inn í þeim voru
jólasveinar sem gengu um og
gáfu börnum sælgæti.
Lögreglan í Reykjavík aðstoð-
aði Víkurverk við uppátækið og
stöðvaði umferð niður Lauga-
veginn í fimm mínútur á meðan
jólaveinarnir gáfu börnunum
nammigottið fyrir utan Bónus í
Kjörgarði. Að sögn Kristínar Jóns-
dóttur sölustjóra Víkuverks sýndu
vegfarendur mikla þolinmæði og
segir hún jólastemninguna hafa
verið í algleymingi.
Laugaveginum
lokað um tíma