Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 10
R
V
62
20
Postulín sem gleður – Pillivuyt
Ný
sen
din
g!
Sko
ðið
úrv
alið
í ve
rslu
n
okk
ar a
ð R
étta
rhá
lsi 2
Einstök hönnun
Mikið úrval
Frábær ending
Árlegur jólahádeg-
isverður var snæddur á Múlalundi
nú í fyrradag. Á boðstólum var
dýrindis hangikjöt með tilheyr-
andi meðlæti. Starfsmenn og gest-
ir renndu kræsingunum niður með
malti og appelsíni og allir voru í
jólaskapi. Búið var að skreyta
borðsalinn og sumir mættu í skárri
fötunum í tilefni jólamáltíðarinn-
ar. Magnús Stefánsson félags-
málaráðherra heiðraði starfsmenn
Múlalundar með nærveru sinni
ásamt Ragnheiði Arnljótsdóttur
ráðuneytisstjóra.
Á Múlalundi starfar fólk sem á
við ýmiss konar fötlun að stríða og
þar starfa um 34 einstaklingar í
fimmtíu stöðugildum. Múlalundur
framleiðir meðal annars bréfa-
bindi, plastmöppur og dagbækur
og er hann einn stærsti og elsti
verndaði vinnustaður landsins.
Helgi Kristófersson, fram-
kvæmdastjóri Múlalundar, segir
peningalegan hagnað ekki vera
meginmarkmið rekstrarins held-
ur að skapa sem flestum vinnu
sem ekki gangi heilir til skógar.
„Hagnaðurinn felst í því að skila
sem flestum út á vinnumarkaðinn
og á þessu ári hefur Múlalundur
skilað fimmtán manns í vinnu eða
skóla. Þarna er um milljóna hagn-
að að ræða en það vantar bara
gjaldeyri til að meta það.“
Helgi segir nokkra bið eftir að
komast að á Múlalundi og að færri
komist að en vilja. „Mikil endur-
hæfing er fólgin í því að geta
stundað vinnu við sitt hæfi og
besta jólagjöfin sem hægt er að
gefa fötluðum er að kaupa fram-
leiðsluvörur Múlalundar.“ Nú fer
sá tími í hönd að fyrirtæki og
stofnanir fara að huga að dagbók-
um fyrir starfsfólk sitt og skiptir
miklu fyrir Múlalund að fá til sín
sem flesta viðskiptavini.
Ingibjörg Sæmundsdóttir er
starfsmaður í eldhúsi Múlalundar
og hefur hún starfað þar í rúm
tuttugu ár. „Mér líkar vel í vinn-
unni og ætla að vera hér áfram,“
segir Ingibjörg en bætir við að
það verði gott að komast í jólafrí.
Einar Matthíasson hefur starf-
að hjá Múlalundi síðan árið 1988.
„Að vinna hér hefur mikið félags-
legt gildi fyrir mig og starfið er
tengiliður við það sem hægt er að
kalla eðlilegt líf.“ Einar segir Múla-
lund góðan kost fyrir fólk sem á
erfitt með að vinna á almennum
vinnumarkaði. „Hér eru gamlir og
nýir starfsmenn í bland og mórall-
inn er góður. Einar var ánægður
með jólamatinn og sagði ákveðna
stemningu felast í þessari máltíð.
Einar er farinn að hlakka til jólanna
og segist ætla að nota hátíðarnar til
að lesa og hvíla sig.
Hagnaður í góðum mannauði