Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 16
Nú er hafin mikil umræða um öryggis- og varnarmál, en slík umræða er Íslendingum framandi. Undanfarin 50 ár hefur engin raunveruleg umræða átt sér stað um þau mál, vegna þess að hvenær sem reynt var að ræða þau, braust út rifrildi um varnar- liðið og aðild að Atlantshafs- bandalaginu. Stjórnmálamenn hafa því leitt þessa umræðu hjá sér og standa nú uppi reynslulitl- ir á því sviði. Það var auðvelt að gera grín að fjórum þotum og með réttu mátti halda því fram að þær gætu ekki varið Ísland. Fjórar þotur gátu ekki varið Ísland, ef rúss- neski flotinn, sem lá við Langa- nes í fyrra, hefði viljað taka Þórs- höfn. Fjórar þotur geta ekki varið Höfn í Hornafirði, Kópavog, Ísa- fjörð eða hvaða stað sem er á landinu, ef einhvern óvin langar að taka hann herskildi. Hvers vegna eigum við þá að semja við Norðmenn um ein- hverjar þotur, sem komi til Íslands, hvort sem þær væru fjórar eða færri. Ástæða til þess er harla lítil, því að norskar þotur gera ekki sama gagn og banda- rískar. Þegar stjórnmálamenn hafa talað um sjáanlegar varnir hefur hnussað í mörgum. Þeir hafa kosið að skilja ekki að áhrif af fjórum þotum eru huglæg og það skiptir öllu máli hver á þær. Ho- llendingar eiga hundrað þotur, en það er ekki af því að þeir telji loftorrustur við nágranna sína vofa yfir. Þær eru huglægar varnir fyrir þá. Staða okkar Íslendinga er mikið breytt meðal þjóða, eftir að Bandaríkjamenn hafa svo rækilega hafnað okkur. Þegar við mættum á fundi í erlendum stofnunum, sáust útlínur banda- ríska risans yfir öxl- ina á okkar mönnum. Hver ætli sé skýring- in á því að Flugleiðir hafa tvöfalt fleiri lendingarleyfi í Bandaríkjunum en SAS, sem er í eigu milljónaþjóða? Risinn kinkaði kolli. Þegar við þurftum að semja um alþjóðlegar fiskveiðar í NEAFC og NAFO var skuggi ris- ans fyrir aftan okkar menn. Þegar Íslendingar mæta í Mat- vælastofnuninni í Róm eða Alþjóða heilbrigðisstofnuninni, er skuggi risans ekki lengur með. Þegar við þurfum að semja við Norðmenn og Evrópusambandið um fiskveiðar er risinn horfinn. Þegar við þurfum að verja flug- stjórnarsvæðið okkar hjá Alþjóða flugmálastofnuninni, sem skapar okkur miklar tekjur, er risinn ekki lengur á bak við okkur. Það hefur gefist okkur sérlega vel að vera fylgiþjóð Bandaríkj- anna í sextíu ár. Ef menn vilja heldur kalla það aftaníossa eða taglhnýtinga, mega þeir það mín vegna. En nú eigum við ekki kost á því. Eitt af því sem hendir smá- þjóðir er kallað „shunning“. Það er dregið af enska orðinu „shun“, sem þýðir að forðast, leiða hjá sér eða hafa að engu. Smáþjóðir, eða örþjóðir eins og við, gleym- ast oft viljandi eða óviljandi, þegar þeir stóru ræða alvarleg mál. Það kemur á óvart hversu afleiðingar hinnar nýju einangr- unar birtast fljótt og afdráttar- laust. Fyrir nokkrum dögum neituðu þriðja til fimmta stigs skrif- finnar í Hafrann- sókna- og loftslags- stofnun viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna að eiga orðastað við sjávarútvegsráð- herra Íslands. Þetta hefði ekki gerst ef stóri skugginn hefði verið við öxlina. Alison Bayles, for- stjóri SIPRI, rannsóknarstofnun- ar í alþjóðamálum í Stokkhólmi, sagði nýlega á fundi hér, að það væru minnst tólf málaflokkar, sem flokkuðust undir utanríkis- mál. Varnarmál væru aðeins einn af þeim. Við eigum eftir að læra að standa ein og átta okkur á að það eru ekki til neinar vinaþjóðir. Erlend stjórnvöld hjala stundum blíðlega, sérstaklega ef þú hefur stóran skugga á bak við þig. Sumir stjórnmálamenn trúa skálaræðum. Utanríkismál snúast um skýrt skilgreinda hagsmuni og fáum er það betur ljóst en Norðmönnum. Mikilvægur þáttur í utanríkis- stefnu Norðmanna snýst um að auka yfirráð þeirra yfir norður- höfum, með öllum tiltækum ráðum. Hæstiréttur þeirra er nýbúinn að kveða upp dóm, sem staðfestir að þeir hafi mátt stofna efnahagslögsögu umhverfis Sval- barða og ráða henni einir. Menn kunna að segja að það sé einhliða ákvörðun, en hver hefur kært til Haag? Norðmenn eigna sér efna- hagslögsögu umhverfis Jan Mayen, með þeim rétti einum, að þeir hafa þar veðurathugunar- menn. Norðmenn skilja sína hagsmuni og vinna að þeim af mikilli staðfestu. Ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Rússa, auk Evrópusambands- ins (Dana og Grænlendinga), ætla sér mikinn hlut í þeim auð- æfum, sem flestir eru sannfærð- ir um að búi á botni Íshafsins og heimskautasvæðanna. Til eru framsýnir stjórnmálamenn hér á landi, sem telja að við eigum að koma að því gnægtaborði. Ætli það verði ekki erfiðara, þegar við treystum á að Norðmenn sjái um varnir okkar? Hvernig ætli að verði að semja um síldveiðar? Það þótti sjálfsagt að NATO ríkin tækju að sér að senda eftir- litsflugvélar að landamærum Eystrasaltsríkjanna við Rússland og Hvíta-Rússland. Þau eru fátæk og í hópi hinna „nýfrjálsu ríkja“, sem okkur þykir öllum sjálfsagt að styðja. Það er líka stutt að fara frá Danmörku, Noregi, Belgíu, Hollandi og Bretlandi, sem hafa aðallega séð um þá gæslu, með fjórum flugvélum í senn. Nú segja sumir að NATO eigi líka að sjá um varnir Íslands. Þó að það séu ekki nema sextíu ár frá því að við hlutum sjálfstæði erum við ekki „nýfrjáls“. Eins og við þreytumst aldrei á að sann- færa okkur sjálfa um, erum við ein af ríkustu þjóðum heims, en því miður aðeins miðað við fólks- fjölda. Það dettur engum í hug að verja okkur ókeypis, hér úti í miðju Atlantshafi. Það gleymist að NATO er ekki stofnun, sem hefur her manna, tilbúin til að senda hann hvert á land sem er. Stofnunin er ekkert annað en vilji ríkisstjórna aðild- arríkjanna á hverjum tíma og getur ekkert gert annað en þær vilja. Við sjáum hvernig gengur að fá ríkin til að senda hermenn til Afganistan. NATO samræmir aðgerðir, en framkvæmir þær ekki. Það er heldur ekki ódýrt að verja Ísland, ef við viljum gera það með þotum. Hver F-16 þota, eins og Norðmenn eiga, kostar álíka mikið og Boeing 737 far- þegaflugvél og er samt ein sú ódýrasta. Fyrir hvern tíma sem hún flýgur þarf hún viðhald í 35 tíma samkvæmt bókum Banda- ríkjahers, en raunverulega nær sjötíu tíma. Hvað margar ferðir frá Noregi erum við tilbúnir að kosta á ári? Fjórar á dag? Fjórar í mánuði? Það er alveg sama hvað við höfum margar norskar þotur, þær gera ekki sama gagn og ein bandarísk. Það fylgir stór skuggi þeirri bandarísku. Við þurfum að ná upp sextíu ára slaka og skilgreina sjálf okkar öryggismál og hagsmuni. Við þurfum að fá til þess besta fólk, að kenna stjórnmálamönn- um og stjórnarerindrekum, hvernig á að fara með utanríkis- mál. Við viljum öll viðhalda þeim lífskjörum, sem við erum orðin vön. Reynslan hefur sýnt að smá- þjóðum vegnar oftast betur en stórum, en við þurfum að læra að skilgreina hagsmuni okkar og gæta þeirra sjálf, ein á báti. Höfundur er fyrrverandi vara- fréttastjóri erlendra frétta hjá Sjónvarpinu. Skipta utanríkismál einhverju máli? Það hefur gefist okkur sérlega vel að vera fylgiþjóð Banda- ríkjanna í sextíu ár. Ef menn vilja heldur kalla það aftaní- ossa eða taglhnýtinga, mega þeir það mín vegna. www.tm-software.com P IP A R • S ÍA • 6 08 83 Microsoft Dynamics CRM gerir sölu- og markaðsfólki kleift að beina sérsniðnum skilaboðum til núverandi og væntan- legra viðskiptavina, stytta söluferlið og auka söluna. • Styrktu tengslin við viðskiptavinina • Framkvæmdu snjallara markaðsátak • Haltu betur utan um verkefnin • Breyttu ábendingum um sölu í tækifæri • Breyttu upplýsingum í mikilvæg markaðsgögn TM Software er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki með skrifstofur í 11 löndum og um 450 starfsmenn. Fyrirtækið þjónar yfir 1.800 viðskiptavinum í rúmlega 20 löndum í fjórum heimsálfum. TM Software hefur ítrekað verið heiðrað sem eitt af framsæknustu fyrirtækjum Evrópu á „Europe´s 500” listanum. Hafið samband við söludeild í síma 545 3200 eða á netfangið sala@maritiech.is til að fá nánari upplýsingar. Framkvæmdu snjallt markaðsátak
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.