Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 18
„Tónlist á að koma af stað báli
í hjörtum karla og kalla fram
tár í augum kvenna.“
Dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi
Rafeindavirkinn Guðbjörn Magnússon
gaf á dögunum blóð í 150. skiptið á
ævinni, sem er oftar en nokkur annar
Íslendingur hefur gert.
Guðbjörn, sem er 62 ára, segist
fyrst hafa gefið blóð þegar hann stund-
aði nám í Loftskeytaskólanum árið
1967. „Þá var verið að biðja þá sem
voru í Stýrimanna- og Vélskólanum að
gefa blóð og þá fylgdum við með,“
segir Guðbjörn. „Ég fór síðan öðru
hvoru og af einhverjum ástæðum hélt
ég þessu áfram. Þær fóru að hringja í
mig stelpurnar í Blóðbankanum vegna
þess að ég var í þessum O mínus flokki
og var með efni í blóðinu sem lítið er
af. Það var notað til að gefa kornabörn-
um sem enginn vissi í hvaða flokki
lenda,“ segir hann en tekur fram að
búið sé að finna lausn á þessu vanda-
máli. Þær mæður sem eru í röngum
flokki fá nú meðöl við því en áður fyrr
þurfti að skipta um blóð í börnunum til
að koma þeim yfir fyrsta hjallann.
Bætir Guðbjörn því við að eitt sinn
hafi kona nokkur hringt í sig eftir að
hann var kjörin Hvunndagshetjan í
Fréttablaðinu og þakkað honum fyrir.
„Hún sagði að ég hefði trúlega hjálpað
hennar barni í gegnum þessa erfið-
leika,“ segir hann.
Upphaflega vandi Guðbjörn komu
sína í Blóðbankann á föstudögum til að
ferskt blóð væri til fyrir helgina. Síðan
hefur hann haldið áfram að koma þang-
að án þess að spáð eitthvað mikið í það.
„Þetta er ósköp notalegt umhverfi og
þægilegt. Ef þær væru einhverjir fýlu-
púkar myndi ég ekkert koma,“ segir
hann um konurnar í Blóðbankanum
sem hann hefur miklar mætur á. „Þetta
er eiginlega mín jólagjöf. Það er
skemmtilegt að þetta skuli hitta svona
á rétt fyrir jólin að ég sé búinn að fara
í þessi 150 skipti. Það er notaleg til-
finning að hafa náð þessum áfanga.
Þetta er ekki vara sem þú kaupir úti í
búð eða getur búið til. Þess vegna er
það svo mikið atriði að geta náð í nýjan
og nýjan flokk.“
Guðbjörn mælir með því við fólk
sem vill gefa blóð að tengja blóðgjöf-
ina við mánuðinn sem það á afmæli og
í framhaldinu geti það farið á hálfs árs
fresti. Það skipti strax sköpum fyrir
Blóðbankann sem hefur auglýst mikið
eftir blóði undanfarið. Segir hann blóð-
gjöfina sjálfa vera ekkert mál, það sé
eins og að vera klipinn og maður finni
ekkert fyrir því.
Guðbjörn segist ætla að halda áfram
að gefa blóð á meðan hann má. „Það
verður kannski ekki eins þétt ef maður
skyldi ferðast um svæði þar sem
maður þarf að passa sig eins og í Suður-
Ameríku eða Afríku. Ég er kominn á
þann aldur að mig langar að ferðast og
það getur komið að því að maður geri
meira af því.“
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, ömmu og langömmu,
Magðalenu Ólafsdóttur
Austurgerði 8, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni.
Hannes Vigfússon
Ómar Hannesson Anna Karlsdóttir
Elín Hannesdóttir
Baldur Hannesson Særós Guðnadóttir
Haukur Hannesson
Bryndís Hannesdóttir Halldór Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnd-
uð okkur samhug og hlýhug vegna útfarar
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar Kristins
Jónssonar
Skriðustekk 22, Reykjavík.
Þökkum einnig fyrir öll fallegu blómin, kransana,
minningarkortin, hlýju kveðjurnar og bænirnar
ykkar. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks líknardeild-
ar Landakotsspítala fyrir kærleiksríka og líknandi
umönnun við elskulegan eiginmann minn og föður
okkar. Einnig þökkum við kærlega fyrir hlýhug ykkar
við okkur aðstandendur hans.
Sesselja Guðmunda Sigurðardóttir
Helgi Sigurður Guðmundsson Sigrún Sjöfn Helgadóttir
Stefanía Guðríður Guðmundsdóttir
Kristín Helga Guðmundsdóttir Vilhjálmur Geir Siggeirsson
Sigríður Guðmundsdóttir
barnabörn, langafabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Axelma Jónsdóttir
Hrafnistu Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
18. desember kl. 15.00.
Fanney Júlíusdóttir Erlendur Magnússon
Júlíus Örn Júlíusson Anna María Hjartardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Krakkarnir eru bara svo
rosalega hrein, bein og
skemmtileg að mér dettur
ekki í hug að hætta þessu,”
segir Matthías Sigvaldason.
Hann er einn margra knatt-
spyrnumanna sem hafa
starfað sem skólaliðar við
Ísaksskóla á liðnum árum.
Matthías er búinn að vera í
þessu starfi frá 1995 en með
smá hléum þó inn á milli.
„Þetta er mjög gefandi
starf og við leggjum okkur
fram um að nýta fótboltann
til þess kenna krökkunum
að vinna saman og þroskast
félagslega. Ég hef svo verið
að starfa við þjálfun sam-
hliða þessu á liðnum árum.
Var þjálfari meistaraflokks
kvenna hjá Fjölni en er
hættur því í bili þar sem ég
er búsettur á Selfossi. Það
segir eflaust sitt um hversu
skemmtilegt starfið er. En
það er mikilvægt að taka
fram að það eru fleiri fót-
boltakallar hér en ég og svo
eru líka frábærar stelpur að
vinna hérna með góðan bak-
grunn úr íþróttum.”
Matthías spilaði með
Leiftri Ólafsfirði í efstu
deild á sínum tíma einn
fárra heimamanna og það
hafa fleiri kunnir kappar
komið að þessu starfi hjá
Ísaksskóla í gegnum tíðina.
Má þar nefna Bjarna Ólaf
Eiríksson, Benedikt Bóas
Hinriksson og fleiri.
Fótboltaæfing í frímó