Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 38

Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 38
Samkvæmt samningi Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands er lögbundinn hvíldartími 11 klukku- stundir. Hann má þó skerða í 8 klukkustundir við sérstakar aðstæður. Jólin eru mikill álagstími í mörgum atvinnugreinum, unnið er myrkanna á milli og hvíldartími verður auka- atriði. Auglýsingar um lög- bundinn hvíldartíma hafa vakið mikla athygli en þar á starfsmaður á kassa í mat- vörubúð erfitt með að kúpla sig úr vinnunni. Hún sést renna jólasteikinni gegnum geislann og furðar sig á því að ekkert verð komi upp en hún áttar sig svo á að hún situr við matarborðið á aðfangadagskvöldi. Hvíldartími er hinsvegar lögbundinn og í kjarasamn- ingum Samtaka atvinnulífs- ins og Starfsgreinasam- bands Íslands er hann 11 klukkustundir. Í tilvikum þar sem bjarga þarf verð- mætum má lengja vinnudag úr 13 tímum í 16 og veita þá 8 tíma í hvíld. Hvíldartím- inn má hinsvegar aldrei verða styttri en 8 samfelldir tímar. Þetta á við um fasta vinnu en ekki vaktavinnu. Ef hvíldartími skerðist á starfsmaður rétt á einum og hálfum tíma í hvíld fyrir hvern klukkutíma sem fell- ur niður. Heimild er fyrir því að að borga þennan hálf- tíma en aðeins ef starfsmað- ur óskar þess. Ef hvíldar- tími er skertur fyrir frídag skal fara með það á sama hátt og ef um vinnudag væri að ræða. Starfsmaður á enn frem- ur lögbundinn rétt á einum frídegi á viku, miðað við að vika byrji á mánudegi. Heimilt er að gera kjara- samning um frestun frí- dagsins en það er samnings- atriði milli starfsmanns og atvinnurekanda. Kjarasamninga sem inni- halda nánari upplýsingar um hvíldartíma má finna á www.sgs.is Næg hvíld í jólavertíðinni Um það 70 dýralæknar starfa hér á landi og um 30 erlendis. Dýralæknar greina dýrasjúkdóma og veita læknismeðferð. Þeir geta sérhæft sig í einstök- um sjúkdómaflokkum eða dýrategundum. Héraðs- dýralæknar starfa við opinbert eftirlit með búfjarhaldi og matvæla- framleiðslu. Dýralæknar starfa sem heilbrigðisfull- trúar við opinbert heil- brigðiseftirlit. Dýralækn- ar starfa við innra heilbrigðis- og gæðaeftir- lit í fisk-, kjöt- og mjólkur- vinnslufyrirtækjum. Nám í dýralæknisfræði er háskólanám sem tekur 5 1/2 til 7 ár eftir stúdentspróf. Í sumum dýralæknaháskól- um er krafist stúdentsprófs úr raungreinadeildum og víða er aðgangur það tak- markaður að krafist er góðs stúdentsprófs. Dýralækn- isnám er hægt að stunda í ýmsum löndum erlendis, en ekki er hægt að taka neinn hluta af náminu hér á landi. Íslenskir dýralæknar hafa lokið námi frá Dan- mörku, Noregi Þýskalandi, Svíþjóð, Skotlandi og Aust- urríki. Námið er bóklegt og verk- legt og tekur til læknis- fræðilegra greina, fóður- fræði og búfjárrræktar og greina varðandi mat- væla- og heilbrigðiseftir- lit. Til þess að fá endan- legt dýralækningaleyfi hér á landi þarf að sækja stutt námskeið á vegum Yfirdýralæknisembættis- ins þar sem tekin eru fyrir íslensk lög og reglur og sérstakar aðstæður hér á landi. Eingöngu kennt í erlendum skólum F í t o n / S Í A Vodafone leitar að kraftmiklum starfsmanni í eignaumsýslu Verksvið Við óskum eftir að ráða traustan starfsmann til að hafa umsjón með bifreiðum, húsnæði og öryggiskerfi Vodafone ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Í starfinu felst einnig undirbúningur og eftirlit með framkvæmdum, kostnaðaráætlun og tilboðsöflun. Starfið heyrir undir deildarstjóra eignaumsýslu Vodafone. Hæfniskröfur Við leitum að kraftmiklum einstaklingi með hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund, vera útsjónarsamur og sveigjanlegur. Æskilegt er að viðkomandi hafi iðnmenntun á sviði smíða eða rafmagns. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir óskast útfylltar á www.hagvangur.is fyrir 29. desember 2006. Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangi, kristin@hagvangur, sími 520 4700. Við sem störfum undir nýju merki Vodafone ætlum okkur að gera viðskiptavinum kleift að nýta tímann til hins ýtrasta, því hvert augnablik er dýrmætt. Gríptu augnablikið og lifðu núna. Matreiðslumaður Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Velferðarsvið fer með ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar þ.m.t. barnavernd og félagsþjónustu. Það ber ábyrgð á að framfylgt sé stefnumótun og áætlanagerð í velferðarmálum, eftirliti og mati á árangri, samhæfingu og samþættingu í málaflokknun. Þróun á mati á gæðum velferðarþjónustu, tengslum rannsókna og þjónustu, nýsköpun og þróun nýrra úrræða í velferð- arþjónustu. Að auki annast Velferðarsvið rekstur ýmissa úrræða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.