Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 78
„Er það ekki stórkostlegt að á
tækniöld skuli leikur 22 manna að
einum bolta skjóta öllu ref fyrir
rass hvað skemmtanagildi varð-
ar?“ spurði ég Marió gamla meðan
við horfðum á leik Barcelona og
Werder Bremen á krá einni í þorp-
inu Carbonero.
Það er saga að segja frá því
hvernig við Maríó gamli kynnt-
umst en við erum álitnir þjáninga-
bræður í þorpinu og þykjum því
góðir að eiga hvor annan að. Þetta
byrjaði allt þegar ég sat á troðfullri
krá að fylgjast með „El clasico“,
leik Real Madrid og Barcelona.
Þegar Eiður Smári var allt í einu í
dauðafæri gleymdi ég mér alveg í
þessu Madridar-bæli og hoppaði og
öskraði en hneig svo niður í þján-
ingu þegar hann brenndi af. Sting-
andi augnaráð mættu mér og allt í
einu var eins og ég væri með smit-
andi sjúkdóm. Einn þorparinn
dirfðist þó að nálgast mig. „Ertu
Barcelona-aðdáandi?“ spurði hann
með samúðarsvip. „Nei, ekkert
frekar en ég ber tilfinningar til
landa míns,“ svaraði ég. „Ég verð
að kynna þig fyrir frænda mínum,
hann er líka Barcelona-aðdáandi.“
Og þessi frændi er Maríó gamli og
hann er sá eini sem fæst til að fara
með mér á krána eftir þetta örlaga-
ríka kvöld.
Katalónía er nefnilega kölluð
hitt landið hér líkt og víða í Castilla.
„Þeir vilja ekki tilheyra okkur svo
við erum ekkert að púkka upp á þá,“
er oftast sagt þegar um þá er spurt.
„Knattspyrnan hefur yfir öllu
að búa sem Hollywod er að reyna
að laða fram á hvíta tjaldinu, Maríó
minn,“ hélt ég áfram. Og eins og til
að staðfesta það sem ég hafði sagt
þaut Deco fram völlinn í skyndi-
sókn, gaf boltann á Eið Smára sem
lék á fjóra leikmenn Werder Brem-
en og skaut svo í stöng. Þaðan barst
boltinn til Guily sem brenndi af
fyrir opnu marki. „Sjástu þetta;
Maríó? Þvílík spenna, þvílík
skemmtun! Meira að segja sena
með Hollywood-leikara sem er við
það að verða undir hæl risaeðlu
getur ekki hreyft við manni á þenn-
an hátt.“
„Svo eru til tvær fílósófíur í
knattspyrnunni rétt eins og í Grikk-
landi hinu forna,“ hélt ég áfram að
fræða Maríó gamla. „Þar voru
Aþeningar boðberar hugvísinda,
lista og fegurðar meðan Spartverj-
ar hentu mönnum fyrir björg sem
ekki gátu unnið líkamlega erfiða
vinnu. Capello myndi vera Spart-
verji en síðan hann byrjaði að
þjálfa Real Madrid hefur leikur
liðsins ekki verið neitt augnayndi
en hann halar inn stig og þá er hann
ánægður.
Landi hans og liðsmaður, Cana-
varo, myndi líka vera Spartverji.
Hann varð heimsmeistari með
ítalska landsliðinu og það eina sem
menn muna frá þessum heims-
meisturum er óþverrahátturinn í
varnarmanni þeirra þegar hann
reitti Zidane til reiði með klámyrð-
um um systur hans. Nú er svo
Canavaro búinn að vinna gullknött-
inn og við hvern sem gagnrýnir þá
kosningu segir hann: „Þú getur
sagt það sem þú vilt en gullknött-
urinn er heima í stofu hjá mér.“
Eiður Smári myndi vera Aþen-
ingur eins og Ronaldinho sem var
að skora um daginn með því að
taka boltann á bringuna en spyrna
honum svo með hjólhestaspyrnu
yfir markvörð Bilbao og í netið.
Spartverjarnir segja að þetta mark
sé reyndar afar glæsilegt en telji
sama og hvert annað. En þvílíkur
sirkus, Maríó! Er nema von að
tölvugúrúarnir reyni að leika sér
með þennan veruleika með tölvu-
leikjum. En það er sama hverju
þeir eyða í þetta, ekkert slær fót-
boltann út. Sjáðu bara þetta,“ sagði
ég og benti á Ronaldinho sem var
að leika listir sínar á skjánum en
staðan var 2-0 fyrir Börsunga.
„Þvílíkur leik ... Maríó! Maríó!
Ertu sofnaður?“
Er ekki fótboltinn stórkostlegur, Maríó gamli?
Birgir Leifur Hafþórsson átti
góðan dag eftir að hafa komist í
gegnum niðurskurðinn á South
African Airways Open-mótinu í
Suður-Afríku en mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni. Hann lék á
tveimur höggum undir pari vallar-
ins og er samtals á þremur högg-
um undir pari fyrir lokadaginn í
dag. Hann fékk aðeins einn skolla
í gær og þrjá fugla og sýndi þar
með mikinn og góðan stöðugleika í
sínum leik.
Hann sagði þó við Fréttablaðið
í gær að hann hefði spilað enn
betur en skorkortið hans hafi
sýnt.
„Ég hefði viljað vera á betra
skori, svona 3-4 höggum. Ég spil-
aði miklu betur en áður en lenti í
vandræðum inni á flötunum. Ég
hitti margar brautir frá teigunum
og lenti aldrei í vandræðum. Ég
hitti flatirnar vel og komst nálægt
holunni en púttin vildu einfaldlega
ekki ofan í. Það er ljóst að ég hefði
orðið mjög óhress ef ég hefði verið
á verra skori en ég var á.“
Hann segir að það sé þó gott að
sýna stöðugleika og fá aðeins einn
skolla á öllum hringnum. Fyrstu
tveir dagarnir voru heldur skraut-
legir, þá fékk hann sjö fugla, sex
skolla, einn örn og einn skramba.
„Ég er að komast í ákveðinn
takt í minni spilamennsku og vona
að það sé stutt að ég hitti á enn
betri hring. Á morgun ætla ég ekki
að breyta neinu í mínum leik. Það
skiptir miklu að halda sér inni á
brautinni og vera því ekki of kapp-
samur á teigunum.“
Í síðustu viku tók hann þátt í
öðru móti í Suður-Afríku en náði
sér ekki á strik þá. Muninn segir
hann vera fyrst og fremst að hann
sé að átta sig á aðstæðum og
„koma sér í rétta gírinn“ eins og
hann orðaði það. Hann segir að
veðurfarið henti sér betur nú.
„Það var miklu heitara í síðustu
viku og sem dæmi má nefna að í
dag var hitinn 20 stigum lægri en
fyrir viku síðan. En þar fyrir utan
hef ég einfaldlega verið að spila
eins og ég á að mér að gera.“
Suður-Afríkumennirnir Trevor
Immelman og Ernie Els eru í
tveimur efstu sætunum en sá fyrr-
nefndi fór á kostum í gær og lék á
níu höggum undir pari. Samtals er
hann á 20 höggum undir pari,
þremur höggum meira en Els.
Þriðji er Patrik Sjöland frá Sví-
þjóð og fjórði Retief Goosen frá
Suður-Afríku.
Birgir Leifur Hafþórsson lék þriðja hringinn á South African Airways Open-
mótinu í gær. Hann lék á 70 höggum, tveimur undir pari, en segir að hann hafi
leikið enn betur en skorkortið hans sýndi í gær. Immelmann fór á kostum.
Manchester United hefur
fengið atvinnuleyfi fyrir kín-
verska leikmanninn Dong
Fangzhou og þar með er þriggja
ára bið eftir að þessi 21 árs
leikmaður komi til Englands á
enda. Dong var keyptur á 3,5
milljónir punda í janúar 2004 frá
Dalian Shide. Síðan hann skrifaði
undir samning við United hefur
hann verið á lánssamningi hjá
belgíska félaginu Antwerpen og á
því tímabili spilað sjö leiki fyrir
kínverska landsliðið.
Dong hefur spilað þó nokkra
æfingaleiki fyrir United og
verður einn af sjö leikmönnum
sem snúa aftur á Old Trafford í
janúar eftir lánsdvalir. Hinir eru
Lee Martin og Phil Bardsley sem
eru úr Glasgow Rangers í
Skotlandi, hinir eru Chris Eagles
frá NEC Nijmegen, Giuseppe
Rossi frá Newcastle og þeir
Jonny Evans og Danny Simpson
sem hafa verið með Dong hjá
Antwerpen. Þá mun sænski
sóknarmaðurinn Henrik Larsson
koma til Manchester United og
vera á láni hjá félaginu í tíu
vikur.
Dong fær loks
atvinnuleyfi
Iain Dowie hefur neitað
tilboði frá Hull um að gerast
knattspyrnustjóri liðsins. Dowie
var rekinn frá Charlton 13.
nóvember eftir að hafa stýrt
liðinu í aðeins tólf leikjum í ensku
úrvalsdeildinni. Charlton er á
botni ensku úrvalsdeildarinnar og
virðist falldraugurinn hafa
hreiðrað um sig í dalnum. Hull er
í svipaðri stöðu deild neðar, situr í
23. sæti eftir tap fyrir Plymouth í
gær. Stærsta afrek sem Dowie
hefur unnið á þjálfaraferli sínum
er að koma Crystal Palace í
úrvalsdeildina fyrir tveimur
árum. Dowie segist ekki ætla að
snúa aftur í fótboltaheiminn
strax.
Ætlar ekki að
snúa aftur strax
Newcastle hefur fengið
sinn fyrsta bikar í heil 37 ár en
félagið hefur tryggt sér sigur í
Intertoto-keppninni. Það eru þrjú
lið sem komast áfram úr Inter-
toto-keppninni og í Evrópukeppni
félagsliða en Newcastle er það lið
sem hefur komist lengst af þeim
liðum í ár. „Það verður mikið
gleðiefni að fá þennan bikar. Það
er vanvirðing að líta á þessa
keppni eins og hún skipti engu
máli. Sumir knattspyrnustjórar
gera það þó,“ sagði Glenn Roeder,
knattspyrnustjóri Newcastle.
Newcastle mætir Zulte-Waregem
í 32 liða úrslitum Evrópukeppni
félagsliða í febrúar.
Sigruðu Inter-
toto keppnina