Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 42
60 ára
Ólafur Einar
Sigurðsson
verður sextugur 2. janúar 2007.
Hann tekur á móti ætting jum og
vinum í Skátaheimilinu Hraunbyrgi
við Hjallabraut í Hafnarfirði
kl. 18.00 á afmælisdaginn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Sigmundsdóttir
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni
23. desember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mið-
vikudaginn 3. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Ásgeir J. Guðmundsson
Sigmundur Ásgeirsson Kristín Ottesen
Guðmundur Ásgeirsson Helga Ólafsdóttir
Þóra Ásgeirsdóttir Þorvaldur Gíslason
Ásgeir J. Ásgeirsson Berglind Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Kristján Haraldsson
Rauðagerði 51 n.h., áður til heimilis að
Möðruvallastræti 2, Akureyri,
sem lést 20. desember, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. janúar kl. 13.00.
Valgerður Nikólína Sveinsdóttir
Dagmar Jenný Gunnarsdóttir
Haraldur Sveinn Gunnarsson Lilja Elísabet Garðarsdóttir
Ragnar Kristinn Gunnarsson Guðbjörg Hjördís Jakobsdóttir
Hildigerður Margrét
Gunnarsdóttir Jóna Ólafsdóttir
Gunnar Björn Gunnarsson Inga Valdís Heimisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
„Konur eru sýnilega betur
gefnar en karlmenn.“
„Það væri gaman að fá bíl í afmælis-
gjöf,“ segir Jón Gnarr, en hann á fer-
tugsafmæli í dag. „Bíllinn minn er orð-
inn gamall og ónýtur, þannig að ef
einhver gæfi mér bíl væri það mjög
gaman. Ég á samt ekkert von á því.
Þegar ég var lítill voru alltaf vörutaln-
ingar 2. janúar, svo að ég fékk bara
bensínstöðvadót í afmælisgjöf.“
Jón hefur komið víða við á ferli
sínum, en hann hefur leikið í leikritum
og kvikmyndum, skrifað og leikið í
sjónvarpsþáttum, stjórnað útvarps-
þáttum og skrifað bækur, svo fátt eitt
sé nefnt. Hann telur þó ekki að toppn-
um sé náð.
„Dostojevskí skrifaði nú ekkert af
viti fyrir fertugt. Hann var orðinn
gamall þegar hann skrifaði Karmazov-
bræðurna,“ segir Jón. „En þurfti
náttúrulega að vera aðeins í Síberíu í
fangabúðum. Að hugsa sér, karlgreyið.
Bara af því að hann hafði rangar skoð-
anir.“
Fyrir jól kom út bók Jóns, Indján-
inn, skálduð ævisaga, sem hefur feng-
ið góðar undirtektir. En næst á dagskrá
hjá honum eru störf á öðrum vett-
vangi.
„Ég er að vinna að sjónvarpsþáttum
sem hvílir mikil leynd yfir og má ekk-
ert segja um,“ segir Jón. „Það verður
hringt í mig og ég skammaður ef ég
segi eitthvað um þá. Sýningar hefjast
líklega í mars.“
Útvarpsþátturinn goðsagnakenndi
Tvíhöfði fer á ný í loftið þann 7. janúar
á Rás 2, en Jón telur þættina vera eitt
það skemmtilegasta sem hann hefur
unnið að gegnum tíðina. Þættirnir, sem
eru hugarfóstur hans og Sigurjóns
Kjartanssonar, verða alla sunnudaga
og eru klukkutími að lengd.
„Tvíhöfði er bara alltaf eins og við
Sigurjón erum og við erum nýir menn,
endurnýjumst alltaf. Þetta verður í
svipuðum anda og áður, en við höfum
minni tími fyrir eitthvað röfl af því að
þátturinn er styttri,“ segir Jón.
Jón hefur brugðið sér í margra
kvikinda líki gegnum tíðina, meðal
annars í þáttunum Fóstbræðrum, sem
eru endursýndir á Stöð 2. „Mér þótti
alltaf vænt um gluggaþvottamanninn í
London í Fóstbræðrum og ég hafði
voða gaman af vitleysingunum tveim-
ur í bláu göllunum sem við Sigurjón
lékum. Þeir voru fallegir og einfaldir.
En ég hef nú haft gaman af flestu sem
ég hef gert,“ segir Jón.
Jólamáltíðin var með óhefðbundnu
sniði á heimili Jóns í ár. „Við borðuðum
heimatilbúið sushi á aðfangadag. Ég er
algjör sushi-snillingur, bjó til alls
konar rétti,“ segir Jón. „Börnin sætta
sig við þetta, annars fá þau ekkert.“
Aðspurður hversu mörg börn hann
eigi segist Jón ekki muna það. „Sjö, eða
sex, allavega svakalega mikið.“
Jón býst við að vera heima á afmæl-
isdaginn. „Ef einhver hópur fólks vill
fara blysför að húsinu mínu og ég get
fengið að koma út á svalir og veifa þá
verður það bara að koma á óvart. Ég
nenni ekki að taka þátt í skipulagningu
á svoleiðis, það væri hallærislegt. Ég
get ekki staðið í því að tala við lúðra-
sveit og svona.“
Harmleikur á Ibrox Park
Jóhanna Þorbjargardóttir var fyrsta
barn ársins 1977 og átti því þrítugs-
afmæli laust eftir miðnætti í gær.
„Ég er fædd klukkan 20 mínútur
yfir miðnætti, þannig að ég held yfir-
leitt upp á afmælið mitt með veislu á
gamlárskvöld,“ segir Jóhanna. „Ég
hélt upp á þrítugsafmælið með veislu
heima hjá mér.“
Jóhanna segir að afmælið hennar
gleymist ekki þrátt fyrir að það sé
umkringt hátíðarhöldum af öðrum
toga. „Fyrst er óskað gleðilegs árs
og svo syngja allir fyrir mig afmæl-
issönginn og gefa gjafir. Flestir eru
of þreyttir á nýársdag til að ég geti
haldið upp á þetta þá.“
Árið 1977 var meira umstang í
kringum fyrsta barn ársins, að sögn
Jóhönnu. „Þetta var allt mjög spenn-
andi á sínum tíma. Ég á fullt af blaða-
úrklippum og ég og foreldrar mínir
fengum fullt af gjöfum. Þetta þótti
miklu merkilegra á þessum tíma.“
Frægt er að foreldrar keppist við
að barnið þeirra verði fyrsta barn
ársins. Hjá Jóhönnu var þetta nokk-
uð öruggt og nokkrir klukkutímar
voru í fæðingu næsta barns.
Jóhanna rekur heildverslunina
Kleifarás ásamt móður sinni og syst-
ur og stundar hestamennsku af mikl-
um móð. „Ég held að árið 2007 verði
gott ár,“ segir Jóhanna að lokum.
Fæddist 20 mínútur yfir tólf