Fréttablaðið - 02.01.2007, Side 52
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
Frábær ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna!MEÐ ÍSLENSKU TALI
Stórkostleg ævintýramynd
byggð á magnaðri metsölubók
Þegar myrkrið skellur á...
hefst ævintýrið!
Klikkuð grínmynd þar
sem Jack Black og
Kyle Gass fara á
kostum í leit að
Örlaganöglinni.
Stútfull af frábærri
tónlist.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
KÖLD SLÓÐ kl. 3.40, 5.50, 8.20 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
ERAGON kl. 3, 6, 8.20 og 10.40 B.I. 10 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3 og 6
TENACIOUS D kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10.20 B.I. 14 ÁRA
MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 8 B.I. 12 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3
KÖLD SLÓÐ kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 1.30, 3.40 og 5.50
ERAGON kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 10 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 1 og 3.20
CASINO ROYALE kl. 8 og 10.50 B.I. 14 ÁRA
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 1.30
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 1.30, 3.40 og 5.50
BORAT kl. 10.20 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 6
TENACIOUS D kl. 8 og 10
ERAGON kl. 6 B.I. 10 ÁRA
20% afsláttur fyrir
alla viðskiptavini Kaupþings ef
greitt er með korti frá Kaupþingi
SPENNUMYND EFTIR BJÖRN B. BJÖRNSSON
ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS
- ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN...
Tónlistarmaðurinn Davíð
Þór Jónsson þykir með
skemmtilegri mönnum og
er uppátækjasamur með
eindæmum. Þessa dagana
fóstrar hann nýja persónu
innra með sér.
„Hann sefur aldrei. Borðar ein-
göngu rautt kjöt og grænt græn-
meti, drekkur dýrt kampavín og er
alltaf hress. Yfirgengilega hress.“
Þetta segir Davíð Þór Jónsson tón-
listarmaður um einkar athyglis-
verða persónu sem hann fóstrar
innra með sér um þessar mundir.
Þessi persóna, sem er enn nafn-
laus, leit fyrst dagsins ljós þegar
Davíð Þór fór ásamt fleiri íslensk-
um tónlistarmönnum til New York
til þess að spila í opnunarteiti hjá
tískuhúsi Luis Vuitton.
„Þegar ég vissi að ég væri að
fara að spila fyrir allt þetta smarta
fólk þá fór ég til Kormáks og
Skjaldar og fékk þar dragfín jakka-
föt og stíliseruð gleraugu við hæfi.
Ég nota ekki gleraugu en það gerir
hann og þau fara honum sérstak-
lega vel. Við þessa umbreytingu
birtist þessi magnaði óstöðvandi
karakter. Fötin, gleraugun og síð-
ast en ekki síst allt þetta Louis
Vuitton snobberí kölluðu hann
fram í dagsljósið. Hann er þannig
afsprengi snobbmenningarlegs
sjokks og líf hans er mótað af
því.“
Davíð Þór leggur áherslu á að
þessi persóna lifi í samræmi við
sköpunarsögu sína; sé ávallt vel
klædd, kunni sig einkar vel á
mannamótum og þá sérstaklega
innan um konur. „Hann er bara svo
skemmtilegur og sjarmerandi.
Strax við fæðingu stökk hann til og
byrjaði að búa til syrpu og það er
hans form. Hann býr til Abba-
syrpur og Queen-syrpur og hrein-
lega geysist áfram í tónlistinni en
á sama tíma skeytir hann lítið sem
ekkert um texta. Þeir einfaldlega
skipta hann ekki máli svo hann býr
bara til sína eigin án fyrirhafnar.“
En þessi ágæta persóna er þó
ekki með öllu gallalaus þar sem
Davíð segir að það sé í raun ekki
hægt að ræða við hann málin í ró
og næði, slíkt sé einfaldlega utan
hans persónu. „En hann hefur engu
að síður ákaflega skýran tilgang.
Hann hentar t.d. mjög vel í veislur
og til þess að hrista upp í leiðinleg-
um fundum. Sjáðu bara fyrir þér
tíu karla í jakkafötum á samráðs-
fundi eða í einhverjum svona leið-
inlegum peningabissness, það er
eitthvað sem hann getur gefið líf
og lyft á hærra plan.“
Nýlega var opnuð heimasíðan
www.wiihaveaproblem.com, en
hún heldur utan um öll þau slys
sem eigendur leikjatölvunnar Nin-
tendo Wii lenda í, en þau eru mörg.
Tölvan býður nefnilega upp á svo
mikla hreyfingu að leikmenn
lenda til dæmis ítrekað í því að
missa fjar-
stýringuna
sína beint í
sjónvarps-
skjáinn og
þannig eyði-
leggja hann. Þeir
sem lenda í Wii-slysi
geta tilkynnt eigendum
síðunnar það, sem bæta
slysinu í teljarann sinn,
sem heldur utan um
slysin og hvers kyns þau eru. Til
dæmis hafa 16 sjónvörp, 16 mynd-
bandstæki, tvær fartölvur og tveir
lampar eyðilagst hingað til. Svo
hafa einnig orðið ögn alvarlegri
slys, en um 13 manns og tvö gælu-
dýr hafa fengið fjarstýringuna í
höfuðið á sér með tilheyrandi
meiðslum. Þeir sem hafa því
tryggt sér eintak af Nintendo
Wii hér á landi eru
beðnir um að
fara varlega og
verða ekki of
æstir í hita leiks-
ins.
Vandmál með Wii
Breska söngkonan Kerry Katona,
fyrrverandi eiginkona Westlife-
söngvarans Brians McFadden,
hefur hótað áður bestu vinkonu
sinni Michelle Hunter lífláti.
Hunter hefur ekki verið vinsæl
hjá Katona eftir að hún sagði frá
eiturlyfjanotkun söngkonunnar. Á
dögunum sendi Katona henni því
tölvupóst þess efnis að hún ætlaði
að brenna Hunter inni í bíl hennar.
Talsmaður Katona viðurkenndi
fyrst að hún hefði haft í hótunum,
en dró sögu sína til baka rúmum
klukkutíma síðar. Lögregla rann-
sakar málið, svo frekari frétta
ætti að vera að vænta bráðlega.
Hótar vin-
konu lífláti
Jennifer Aniston fær gylliboð á
eftir gylliboði þessa dagana. Þau
berast þó ekki úr herbúðum kvik-
myndaframleiðenda, heldur frá
piparsveinum sem vilja ólmir
bjóða leikkonunni á stefnumót.
Samkvæmt Aniston hefur boðun-
um rignt yfir hana eftir að slitnaði
upp úr sambandi hennar við Vince
Vaughn. Ríkisbubbinn Steve Bing
og hjólreiðakappinn Lance Arms-
trong eru á meðal þeirra sem hafa
sýnt Aniston áhuga, en hún neitaði
Armstrong um stefnumót vegna
vináttu sinnar við Sheryl Crow,
fyrrverandi unnustu Armstrongs.
Bægir frá
sér biðlum