Fréttablaðið - 25.01.2007, Side 10
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Moshe Katsav, for-
seti Ísraels, baðst í gær lausnar
frá embætti um stundarsakir.
Sífellt fleiri krefjast þess þó að
hann segi einfaldlega af sér vegna
ásakana fjögurra kvenna um að
hann hafi áreitt þær kynferðislega
og misnotað völd sín.
Á þriðjudaginn tilkynnti Meni
Mazuz, aðalsakóknari Ísraels, for-
setanum það á þriðjudag að hann
yrði ákærður fyrir nauðganir og
fyrir að misnota völd sín. Ákæra
verður þó ekki lögð fram fyrr en
forsetinn hefur fengið tækifæri til
að svara ásökunum á hendur sér.
Hann hefur jafnan neitað sekt og
sagt kærurnar lið í pólitísku sam-
særi gegn sér.
Katsav sagðist í gær ófær um
að gegna embætti meðan mál hans
væri fyrir dómstólum og bað þing-
ið um að veita sér tímabundna
lausn úr embætti, allt upp í þrjá
mánuði. Fjórar konur sem allar
hafa starfað hjá Katsav, ýmist eftir
að hann varð forseti eða áður,
þegar hann gegndi veigalitlu ráð-
herraembætti, hafa kært hann
fyrir nauðganir og kynferðislega
áreitni.
Tzipi Livni, utanríkis- og dóms-
málaráðherra, bættist í gær í hóp
þeirra sem krefjast þess að Katsav
segi af sér. Í gær höfðu þrjátíu
þingmenn undirritað beiðni til
þingnefndar um að kanna hvort
rétt væri að kæra hann til
embættismissis, en alls þurfa 90
þingmenn að krefjast afsagnar
forseta til þess að honum verði
vikið úr embættinu.
Livni sagði að vissulega teldist
Katsav saklaus þangað til sekt
sannaðist, en bætti við að „hann
ætti ekki að berjast fyrir því að
sanna sakleysi sitt frá forseta-
skrifstofunni“.
Ákærur kvennanna urðu fyrst
heyrinkunnar síðastliðið sumar og
Katsav hefur lítið komið fram
opinberlega síðan.
Sífellt fleiri
vilja afsögn
Forseti Ísraels bauðst í gær til að víkja tímabundið
úr embætti meðan dómstólar fjalla um ákærumálin.
Karlmaður á fer-
tugsaldri var handtekinn á mánu-
dag þegar hann sótti póstsend-
ingu, stílaða á verslun í hans eigu,
sem innihélt rúmlega 13.000 stera-
töflur. Tollverðir í Reykjavík
fundu töflurnar við reglubundið
eftirlit síðastliðinn föstudag.
Verslun mannsins er á Suðurnesj-
um og því var lögregluembættinu
þar falin umsjón með málinu.
Að sögn Eyjólfs Kristjánsson-
ar, fulltrúa lögreglustjórans á
Suðurnesjum, var ákveðið að bíða
með að handtaka manninn þar til
eftir að maðurinn næði í sending-
una, en töflurnar komu með pósti
frá Taílandi.
Eyjólfur segir að talið sé nokkuð
víst að maðurinn hafi staðið einn að
innflutningnum. Hann vildi ekki
útiloka að maðurinn hefði áður flutt
inn svona efni þar sem rannsókn
málsins væri ekki lokið að fullu, en
taldi það þó ekki líklegt. „Við erum
að vinna í því að greina hvaða efni
þetta eru í töflunum og styrkleika
þeirra. En þetta er óvenjumikið
magn. Ég man ekki eftir svona
stóru steramáli í fljótu bragði. Það
eru því líkur á því að þetta hafi
verið ætlað til dreifingar.“
Til samanburðar lagði tollgæsl-
an á Keflavíkurflugvelli hald á
eina sendingu af sterum allt árið í
fyrra og var þar um 700 töflur að
ræða.
15% handbolta-
afsláttur til 5. febrúar
Fataskápar fyrir fötin þín,
tilsniðnir eftir máli án aukakostnaðar.
www.innval.is
Hamraborg 1 Kópavogi s: 554 4011
Opið laugardag
Rýmingarsala
Kolbeinn Hreinsson,
sem situr í atvinnumálanefnd
sveitarfélagsins Voga, segir
ekkert vera því til fyrirstöðu að
dæla heitu vatni út í litla vík
undir Stapanum og búa þar til
útivistarparadís sem heitið gæti
Paradísarvogur.
Hugmynd Kolbeins var sett
fram á síðasta fundi atvinnu-
málanefndarinnar. Sagði
Kolbeinn að við Stapa væri hægt
að koma upp hernaðarminja-
safni þar sem hersjúkrahúsið var áður.
Á fundinum ræddi Jón Elíasson um að fá Vegagerðina til að malbika
gamla þjóðveginnn um Vatnsleysuströnd frá Vogum yfir í Njarðvík og
að nefna veginn Útsýnisveg. Einnig vill Jón að svæðið undir Vogastapa
verði merkt á aðalskipulagi sem tjaldstæði og útivistarsvæði með
ferðatengdri starfsemi.
Heitt vatn í Paradísarvog