Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 30
[Hlutabréf]
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Birt með fyrirvara um texta- og myndabrengl.
Daxara 107, ver› áður 43.900 kr.
á Dax
ara-k
errum
Nú 32.900 kr.
Daxara 147, ver› áður 79.900 kr.
Nú 59.900 kr.
Daxara 127, ver› áður 59.900 kr.
Nú 44.900 kr.
Daxara 158, ver› áður 98.900 kr.
Nú 73.900 kr.
Daxara 198, ver› áður 159.900 kr.
Nú 119.900 kr.
Daxara 218, ver› áður 197.900 kr.
Nú 147.900 kr.
Risaú
Stærstu bankar Norðurlanda eru
of hátt verðmetnir um þessar
mundir að mati Morgan Stanley
og hefur hækkun þeirra verið
keyrð áfram af auknum umsvif-
um í fjármálalífinu og getgátum
um frekari samþjöppun í geiran-
um.
Sérfræðingar Morgan Stanley
telja að þótt rými sé fyrir frekari
hækkun á gengi bankanna, ef
væntanleg uppgjör þeirra reyn-
ast umfram væntingar, styðja
afkomuspár á næstu misserum
ekki við núverandi verðmæti
bankanna.
Bandaríski fjárfestingarbank-
inn, sem nýlega gat út jákvæða
greiningu á Kaupþingi þar sem
kom fram að bankinn muni taka
þátt í samrunaferlinu, segir að
vel horfi til fyrir afkomu Kaup-
þings á fjórða ársfjórðungi þó að
kostnaður hafi aukist. Er Kaup-
þingi spáð 13.825 milljóna króna
hagnaði á síðasta ársfjórðungi.
Þóknunartekjur hafi vaxið hratt
með aukinni markaðshlutdeild,
einkum í Danmörku, og þá hafi
stórir eignarhlutir bankans í
Sampo og Storebrand hækkað
hressilega á fjórðungnum: Sampo
um fjórðung en Storebrand um
fimmtán prósent.
Stjórnendur Kaupþings hafa
ekki greint frá því opinberlega að
bankinn eigi bréf í finnska fjár-
málafyrirtækinu Sampo.
Norrænir bankar
metnir í hærra lagi
Kaupþing græðir á talsverðum hlut í Sampo.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór
niður fyrir 55 Bandaríkjadali á
tunnu á helstu fjármálamörkuðum
í gær eftir um 5 prósenta hækkun
á þriðjudag. Ástæðan var vænt-
ingar um að olíubirgðir hefðu auk-
ist á milli vikna í Bandaríkjunum
vegna minni eftirspurnar.
Ástæðan fyrir hækkuninni á
þriðjudag var tilkynning banda-
ríska orkumálaráðuneytisins þess
efnis að stjórnvöld vestanhafs ætl-
uðu að auka olíubirgðir landsins
um 100.000 olíutunnur á dag í vor.
Hráolíuverðið lækkaði um 55
sent á markaði í Bandaríkjunum
og fór í 54,67 dali á tunnu á meðan
verð á Norðursjávarolíu fór niður
um 43 sent og endaði í 54,67 dölum
á tunnu á markaði í Lundúnum í
Bretlandi.
Olían lækkarPeningaskápurinn...
Líklegt má telja að tillaga um að
færa allt hlutafé Straums-
Burðaráss Fjárfestingarbanka úr
krónum yfir í evrur verði lögð
fyrir hluthafa á aðalfundi bankans
sem haldinn verður í febrúarlok
eða byrjun mars.
Á morgunverðarfundi Félags
viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga um gjaldmiðilsmál á Nordica
hóteli í gær kom fram í máli Frið-
riks Jóhannssonar, forstjóra
Straums-Burðaráss, að evruskrán-
ing hlutabréfa kynni að vera eðli-
legt skref í framhaldi af því að
bankinn hefur fært eigið fé sitt
yfir í evrur og hætt að gera upp í
krónum. Breyting í þessa veru
segir Friðrik að myndi styrkja
bankann á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum, enda séu lánveitendur
þar vanir evrum en ekki krónum
og telur að þeir kunni að horfa á
krónuna sem áhættuþátt. „Það er
ljóst að þetta eykur mjög líkurnar
á því að við getum laðað að erlenda
fjárfesta auk þess sem það eykur
möguleika á sameiningum við
erlend fyrirtæki að vera í evrum.“
Vísar hann meðal annars til þess
möguleika að greiða fyrir smærri
fyrirtæki með hlutabréfum í
Straumi-Burðarási. „Með því
tengjum við svo vel hagsmuni
okkar og hagsmuni þeirra sem við
erum að fá til liðs við okkur.“
Friðrik áréttar hins vegar að
ákvörðunin um að fara þá leið að
færa hlutabréf bankans í evrur sé
í höndum hluthafa bankans og
verði ekki tekin nema á fundi
þeirra. „Og ég reikna með því að
þetta verði borið upp á aðal-
fundi.“
Friðrik segist telja að í breyt-
ingunni felist einnig ávinningur
fyrir smærri hluthafa, jafnvel
þótt viðskiptakostnaður geti fylgt
því að skipta í evrur, enda muni
breytingin efla bankann, auk þess
sem hluthafar geti fjármagnað
bréf sín í evrum og losnað þar með
við gjaldeyrisáhættu vegna
skammtímasveiflna.
Evruhlutabréf eru rökrétt skref