Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 33
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Einn áhrifamesti fata-
hönnuður þessarar og
síðustu aldar fagnar tíu
ára starfsafmæli með
Chistian Dior.
Það er óhætt að fullyrða að
spænskættaði fatahönnuð-
urinn John Galliano sé
meðal þeirra áhrifamestu í
sínu fagi í dag.
John Galliano, eða Juan
Carlos Antonio Galliano,
fæddist á Gíbraltar en
flutti ungur til London og
ólst þar mestmegnis upp. Í
London stundaði hann nám
við Wilson´s skólann í Wall-
ington áður en hann hélt í
St. Martins School of Arts
þaðan sem hann útskrifað-
ist sem hönnuður árið
1984.
Galliano var sannkallað
undrabarn. Fyrstu hönnun
sína, línu sem hann kallaði
Les Incroyables og byggði
á frönsku byltingunni,
seldi hann í heilu lagi til
Browns sem er virt versl-
un í London. Slíkt er afar
fátítt en algengast er að
ungir, nýútskrifaðir hönn-
uðir þurfi að hafa mikið
fyrir því að komast áfram.
Fljótlega fór hann af
stað með línu undir eigin
nafni og hóf feril sinn sem
fagmaður í tískuiðnaðin-
um. Tveimur árum eftir
útskriftina var hann kos-
inn hönnuður ársins í Bret-
landi og aftur árin 1994 og
1995 en árið 1997 deildi
hann heiðrinum með Alex-
ander McQueen. Það sama
ár byrjaði hann að hanna
vörur fyrir Christian Dior,
er enn starfandi við það
tískuhús og fagnar því tíu
ára starfsafmæli sínu þar
um þessar mundir, en
fyrsta sýning hans á vegum
Dior var í París, 20 janúar
1997.
Fleiri myndir af nýjustu
sköpunarverkum Gallian-
os má sjá á síðu 2.
Leikhúsið
og kvenleg
fegurð