Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 38
STERKAR
NEGLUR
Sterkar neglur, stöðugar
neglur og neglur sem eru í
jafnvægi glíma við eitt van-
damál - þær geta orðið of
harðar.
NailSpa Manicure býður upp
á öfluga meðferð fyrir allar
gerðir af nöglum og einnig
vernd við að halda náttúrule-
gri fegurð naglanna.
Ennfremur býður
NailSpa Manicure upp á
fullkominn grunn fyrir
sterkar og stöðugar neglur
sem skortir oft raka.
BROTHÆTTAR
NEGLUR
Brothætt nögl er bitlaus og
hefur oft glærar rákir lang-
sum og táknrænan
lóðréttan klofning sem
aðskilur ólík lög naglarinnar.
Náttúrulegt vax úr mangó og
karite, rósavatn og nýr
keratín rakagjafi úr sjónum
dekra við neglurnar með ein-
stakri samsetningu virkra
innihaldsefna í nagla-
snyrtivörum.
Smooth Cuticle Remover Gel
Gel sem fjarlægir naglabönd
Ilmmeðferð með lótusblómi + aloe vera. Aloe
vera heldur þeim mjúkum og sléttum og ver
gegn ertingu og roða.
Sugar Almond Nail Peeling
Nærandi naglamaski. Ilmmeðferð með lótusblómi og
möndlum. Gagnleg naglameðferð og fullkomin
hreinsun samtímis: Fínustu kristallar möndlusykurs
hreinsa neglur og naglabönd,hrein möndluolía veitir
húð og nöglum vítamín og nærandi fitusýrur og skilur
eftir frábæra marspanlykt. Er undanfari þeirrar
meðferðar sem á eftir kemur.
Naglalakkahreinsir
Án acetone
Nail Grow Cream
Ilmmeðferð með rós + shea butter + ceramium +
mangósmjöri + rósavatni. Virkt rakagefandi krem með
feitu shea butter fyrir neglur undir álagi, brothættar
neglur og þær sem klofna. Eykur teygjanleika naglanna
og stuðlar að auknum vexti.
Elskaðu neglurnar þínar
Hátískusýningarnar hófust með látum á mánudag
þegar tískuhús Christians Dior sýndi hönnun Johns
Galliano sem nú fagnar tíu ára starfsafmæli sínu hjá
Dior. Um leið er tískuhúsið sextíu ára. Stundum er
talað um tískusýningar sem ferð eða tilraun til að
láta áhorfendur dreyma og víst er að tískusýning
Dior olli ekki vonbrigðum. Sýningin öll var japansk-
ur draumur, ferð til horfins tíma.
Ferill Gallianos er engu líkur. Þrátt fyrir það
hefur hann ekki alltaf haft heiminn við fætur sér.
Þessi 46 ára sonur ensks pípulagningamanns og
spænskrar konu vann fyrir sér við að strauja leik-
búninga í National Theatre meðan hann var við nám
í Saint Martin´s School of Arts í Lundúnum. Útskrift-
arhönnun hans seldist strax en hann var ekki ánægð-
ur í Lundúnum og flutti til borgar hátískunnar 1993.
Hann byrjað með tveimur aðstoðarmönnnum að
hanna og sauma. Fyrstu tískusýningarnar einkennd-
ust af vanefnum en tískupressan tók hann strax upp
á arma sína. Árið 1995 kom eigandi LVMH (Louis
Vuitton Moet Hennessy), Bernard Arnault, auga á
þennan efnilega unga mann og fól honum fyrst list-
ræna stjórnun Givenchy og síðan tók hann við tísku-
húsi Dior 1996. Bernard Arnault er frægur fyrir að
hafa viðskiptanef og hann hafði vissulega rétt fyrir
sér þar sem Galliano var annars vegar. Velta Dior
hefur fjórfaldast síðan John Galliano tók við hinum
listrænu stjórnartaumum. Tískusýningar hans hafa
verið stórfenglegar, hver annarri áhrifameiri og
trúar leikhúsuppruna hönnuðarins. Hann hefur jafn-
vel hneykslað, til dæmis með sýningunni árið 2000
sem byggði á rusli og klæðnaði heimilislausra.
Hátískusýning Dior fyrir sumarið 2007 stóð undir
nafni. Hún fór fram í stóru tjaldi í Boulogne-skógi
fyrir utan París þar sem umgjörðin var eftirlíking af
sölum tískuhúss Dior þar sem Christian Dior sjálfur
sýndi við opnun hússins 1947. Boðsgestir voru ein-
ungis 300 en oft hafa þeir verið nær þúsund. Hönn-
unin var undir japönskum áhrifum með tónlist úr
Madame Butterfly eftir Puccini og fyrirsæturnar
með hvíta andlitsmálningu og hárauðar varir að
hætti geisja. Skórnir eru fyrir vikið þykkbotna og
hælarnir breiðir. Kjólarnir og jakkarnir eru með jap-
önsku órigamí-fléttingum. Litirnir mjúkir, hvítt,
ólífugrænt, lillablátt og fölbleikt. Dragt handsaumuð
úr heilum krókódíl var nánast það eina sem ekki var
úr silki. Hátíska sem aðeins er að finna hjá örfáum
frönskum tískuhúsum þar sem tíska er list.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Græna kistan er ný vefverslun
með fatnað á alla fjölskylduna
sem framleiddur er með tilliti
til umhverfisins og manneskj-
unnar.
Allar flíkurnar sem seldar eru á
vef Grænu kistunnar eru búnar
til úr lífrænni bómull sem þýðir
að engin eiturefni eru notuð við
framleiðslu hennar auk þess sem
hún er handtínd. Lífræn bómull
er talin mýkri, fallegri og anda
meira en venjuleg bómull og
hentar því til dæmis mjög vel í
barnafatnað. Flíkurnar koma
allar frá fyrirtækjum sem eru
með starfsemi sína á svokölluð-
um „fair trade“ svæðum sem
þýðir að vinnuaflinu eru boðin
sanngjörn kjör fyrir vinnu sína.
Á heimasíðu Grænu kistunnar,
www.graenakistan.is má skoða
myndir af fatnaðinum sem er til
sölu auk þess sem hægt er að
panta tíma í heimakynningar og
fyrirtækjakynningar.
Barnvæn bómull