Fréttablaðið - 25.01.2007, Page 46
{ húsbyggjandinn } 2
Sífellt er að aukast að fólk hiti upp
hús sín með gólfhita í stað hins
hefðbundna ofnakerfis. Gólfhitun
hefur ýmsa kosti fram yfir ofna-
kerfið.
„Þú færð miklu betri hitanýt-
ingu úr gólfhitanum með þessu
móti. Þá minnkarðu orkukostnað-
inn í gólfhitanum miðað við heita
vatnið sem fer á ofnana um einhver
sextíu prósent. Það sem gólfhitinn
hefur aðallega fram yfir ofninn er
að ofnarnir eru venjulega staðsettir
við glugga. Svo myndast hringrás í
herberginu, loftið er þá mun heit-
ara í efsta hluta rýmis en hitastig-
ið verður minna eftir því sem nær
dregur gólfinu,“ segir Heimir Freyr
Heimisson sem starfar hjá Vatni og
hita sem er í eigu Vatnsvirkjans.
„Manni er oft kalt á tánum í
heimahúsum sem aðeins eru með
ofnakerfi. Þegar maður hefur gólf-
hita þá byrjar hitinn hins vegar
augljóslega á gólfinu sem gerir það
að verkum að varmagjöfin í hverju
rými fyrir sig er alltaf jöfn og stöð-
ug í öllum hlutum þess,“ sagði
Heimir. Það er þó alls ekkert nýtt að
verið sé að hita heimilin í gegnum
gólfin.
„Við komum með þetta fyrst á
markaðinn fyrir átta árum eða svo
og síðan hefur verið 60-80 prósenta
aukning í þessum geira á hverju ári.
Til að byrja með var gólfhiti tek-
inn með ofnalagningu, en núna er
gólfhitinn bara orðinn alls ráðandi.
Kostnaðurinn við að fá hitakerfi í
gólf er hlutfallslega meiri þegar
maður er að byrja og er að koma
þessu öllu í gang,“
„Þó að kostnaðurinn sé kannski
40 prósenta meiri þá skilar þetta
sér á næstu árum þegar kemur að
varmaleiðni. Svo fer þetta náttúru-
lega eftir því hvernig þú verðleggur
hlutina sjálfur. Án alls vafa þá má
segja að þetta sé það sem er móð-
ins í dag eins og unga fólkið orðar
það,“ sagði Heimir sem segir að
gólhitinn sé þegar almennt tekinn
við af gamla ofnakerfinu.
Gólfhitakerfi hafa komið hvað
best út úr rannsóknum um þægindi
hitakerfa en minna ryk er í loftinu
á þeim heimilum sem hafa þannig
kerfi. Iljarnar á fótunum eru mjög
næmar og því finnur fólk oft fyrir
miklum mun þegar skipt er yfir í
gólfhita. Þá hefur sýnt sig að þetta
kerfi er mjög endingargott.
- egm
Ofnarnir eru að hverfa af
heimilum landsmanna
Það hefur færst gríðarlega mikið í aukana síðustu ár að fólk láti leggja gólfhitakerfi í
íbúð sína í stað ofnakerfis. Heimir Freyr Heimisson segir aukningu mikla milli ára.
Í örfá ár þegar einfaldleikinn réði
ríkjum og litagleði sjöunda og átt-
unda áratugarins var víðs fjarri
þótti veggfóður lítið smart. Annað
er uppi á teningnum í dag. Vegg-
fóður er aftur í tísku og úrvalið
hefur sjaldan verið jafn mikið.
Hvort sem einfalt munstur eða
gróft er á óskalistanum þá er hægt
að finna flott fóður á vegginn.
Að ýmsu er þó að huga þegar
veggfóður er valið, til dæmis
hvernig það passar við húsgögn
og aðra hluti á heimilinu. Flott
getur verið að veggfóðra einung-
is einn til tvo veggi í herbergi og
mála hina. Afar smart er að velja
gardínuefni í stíl við veggfóðrið.
Fóðraðir veggir
MARKAÐURINN
Hafliði Helgason
í hádegisfréttu
Stöðvar 2
alla virka daga