Fréttablaðið - 25.01.2007, Qupperneq 96
Ólympíumeist-
arinn og heimsmethafinn í tug-
þraut, Roman Sebrle frá Tékk-
landi, var nálægt því að kveðja
þennan heim þegar hann fékk
spjót í sig á æfingu í Suður-Afr-
íku á dögunum.
Sebrle, sem er orðinn 32 ára,
fékk spjótið í öxlina og það
munaði ekki miklu að skaðinn
hefði orðið miklu meiri. „Ef
spjótið hefði hitt mig 10 senti-
metrum lengra til vinstri þá hefði
lungað farið illa en það versta
hefði verið að fá spjótið 20 senti-
metrum ofar, í hálsinn, því þá
hefði ég ekki staðið upp aftur,“
sagði Sebrle og bætti við: „Ég var
í mínum eigin heimi að hugsa um
mína æfingu. Ég var búinn að
steingleyma spjótkösturunum
sem voru að æfa á sama tíma.
Allt í einu heyrði ég mikil öskur
en áður en ég gat brugðist við
fékk ég spjótið í mig. Ég horfði á
öxlina og fékk áfall þegar ég sá
spjótið standa út úr henni,“ sagði
Sebrle sem játaði því að ef spjót-
ið hefði brotið bein, rifið vöðva
eða liðbönd hefði íþróttaferli
hans verið lokið. Sárið var tólf
sentimetra langt og er furðulegt
hvað Tékkinn slapp annars ótrú-
lega vel.
Sebrle stefnir áfram að því að
keppa á Evróumeistaramótinu
innanhúss í byrjun mars og mun
byrja æfingar í lok vikunnar.
Sentimetrum frá því að deyja
HM í handbolta
Jóhannes Pétur Héðinsson,
27 ára glímumaður úr KR,
tvífótbrotnaði á glímuæfingu í
síðustu viku og þurfti í kjölfarið
að fara í tvær skurðaðgerðir.
Þetta kemur fram á heimasíðu
KR. Þar kemur enn fremur fram
að læknar séu bjartsýnir og telji
að hann muni ná sér að fullu.
Slysið gerðist í lok glímuæf-
ingarinnar og vitni vilja meina að
um sé að kenna nýrri tegund af
glímuskóm sem Jóhannes hefur
notað í vetur. Ákveðið hefur verið
að taka skóna, Asics Warrior II,
úr umferð og endurmeta þá.
Tvífótbrotnaði
á æfingu
Rafael Nadal tapaði í gær í
fjórðungsúrslitum opna ástralska
meistaramótsins fyrir Fernando
Gonzalez frá Chile. Gonzalez
vann auðveldan sigur, 3-0. Hann
mætir næst Tommy Haas sem
vann Nikolay Davidenko í gær.
Kim Clijsters og Maria
Sharapova unnu sína leiki í gær
og mætast í undanúrslitum
einliðaleiks kvenna.
Nadal tapaði
„Það er bara allt í gúddí
og ekki hægt að kvarta yfir
neinu,“ sagði landsliðsþjálfarinn
Alfreð Gíslason kampakátur í
leikslok. „Þetta voru tveir mjög
ólíkir hálfleikir. Vörnin var hrika-
lega léleg í fyrri hálfleik og varn-
armennirnir voru eins og skóla-
strákar. Það var alveg sama hvað
ég prófaði. Lykillinn að þessari
góðu vörn í síðari hálfleik var
ekki bara breytingin á því að ég
lét taka út miðjumanninn heldur
að Ásgeir og Róbert komu frá-
bærlega inn og leystu af stöður
þar sem aðrir voru ekki að standa
sína plikt.“
Alfreð var ekki nógu sáttur við
sóknarleikinn í fyrri hálfleik sem
honum fannst of hægur en hann
sagði sóknarleikinn í síðari hálf-
leik hafa verið frábæran. Vörnin
er lykillinn að árangri liðsins segir
Alfreð.
„Ef við spilum ekki góðan
varnarleik á móti Slóveníu þá
vinnum við aldrei. Það er ekki
möguleiki. Við þurfum sárlega á
góðum varnarleik að halda og
hann fleytir okkur ávallt áfram,“
sagði Alfreð, sem var orðinn frek-
ar heitur á bekknum í fyrri hálf-
leik er hann las yfir hausamótun-
um á strákunum sínum.
„Ég var orðinn alveg brjálaður
enda vorum við heppnir að vera
bara þrem mörkum undir í hálf-
leik því Túnis hefði hæglega getað
leitt með svona átta mörkum. Ég
sagði síðan við strákana að ef við
fengjum smá vörn í gang myndum
við vinna með tíu mörkum,“ sagði
Alfreð, sem er mjög feginn að liðið
náði að fylgja eftir góðum sigur-
leik með öðrum.
„Það var gífurlega mikilvægt
upp á sjálfstraustið, sem og að ná
einhverjum takti. Það hefur loðað
við íslensk landslið í gegnum tíð-
ina að klikka eftir frábæra leiki og
það var gott að brjóta þetta munst-
ur upp og sýna að það sé engin
regla. Ef liðið er ekki með sjálfs-
traust núna þá veit ég ekki hvenær
menn eigi að fá sjálfstraust. Press-
an er engin nema frá leikmönnum
sjálfum og það er frábært að sjá
að breiddin er að aukast. Ég er
ekki að hugsa of mikið um fram-
haldið og ég legg áherslu á að
strákarnir séu ekki heldur að gera
það. Við eigum að njóta hvers leiks
og hafa gaman af mótinu og sjá
hvert það skilar okkur,“ sagði
Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason var gríðarlega ánægður með að lið hans skyldi hafa fylgt
Frakkaleiknum eftir með öðrum góðum sigri. Hann segir að leikmenn eigi
fyrst og fremst að njóta sín og ekki hugsa of mikið um framhaldið.
Alexander Petersson
hefur hreinlega farið á kostum á
HM og hann átti enn einn góðan
leik í gær. Þessi hógværi leikmað-
ur var samt ekki sáttur við eigin
frammistöðu.
„Þetta var ekki gott í dag hjá
mér ef ég á að segja eins og er.
Lappirnar voru eitthvað hægar í
vörninni og ég fékk aðeins að hvíla
mig í morgun,“ sagði Alexander,
sem er tæpur í ökkla og svo er
hann með sár á milli tánna sem
hefur verið að angra hann.
„Ég finn svo mikið til í tánni að
ég finn ekkert fyrir ökklanum,“
sagði Alex og brosti breitt. Hann
segir þetta mót vera mikið ævin-
týri.
„Það er frábært að spila í þess-
ari höll en stemningin í Magde-
burg var engu lík. Það var hrika-
lega gaman,“ sagði Alexander,
sem segist vera stoltur af því að
spila fyrir Ísland en hann er
fæddur og uppalinn í Lettlandi.
„Ég er stoltur af því að spila fyrir
Ísland og legg mig alltaf allan
fram fyrir liðið. Ég vil sýna fólki
að ég legg mig alltaf allan fram.“
Alex segir að liðið geti komist
alla leið í undanúrslit. „Við getum
það hæglega en núna einbeitum
við okkur að því að komast í átta
liða úrslit,“ sagði Alexander.
Stoltur af því að spila fyrir Íslands hönd
„Við þurfum ekkert að
ræða karakterinn í þessu liði því
hann er svo sannarlega til staðar.
Við gefumst ekki upp,“ sagði
leikstjórnandinn Snorri Steinn
Guðjónsson, sem stýrði sóknar-
leik Íslands af einstakri röggsemi.
„Sóknin var fín en vörnin slök
í fyrri hálfleik. Um leið og vörnin
kom þá náðum við yfirhöndinni.
Það er gríðarlega mikilvægt að
fylgja Frakkaleiknum eftir og
það var rætt fyrir leik hversu
mikilvægt það væri að vinna
þennan leik því hann er lykillinn
að framhaldinu. Við erum búnir
að galopna okkar möguleika núna.
Erum með gott sjálfstraust og ef
við höldum áfram að spila svona
er ég bjartsýnn.“
Við gefumst
aldrei upp
Það vakti mikla kátínu
Íslendinga sem fylgdust með
leikjum Íslands í Magdeburg að
hin klassíska íslenska perla
„Traustur vinur“ var spiluð
reglulega í Bördelandhalle.
Íslensk tónlist er einnig í
hávegum höfð í Dortmund en
tónlist Mezzoforte fékk nokkuð að
hljóma fyrir og í leik Íslands og
Túnis.
Traustur vinur
spilaður