Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 74
Stjörnumenn drógust
aftur úr í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn í gær þegar liðið
tapaði gegn Íslandsmeisturum
Fram á heimavelli, 25-29, í fjörug-
um og hörðum leik. Stjarnan leiddi
með þremur mörkum í leikhléi en
kastaði síðan frá sér leiknum með
klaufaskap. Stjörnumenn fá tæki-
færi til hefnda í bikarúrslitaleikn-
um um næstu helgi.
Það dugðu engin vettlingatök á
milli þessara liða í gær og leik-
menn gengu æði vasklega fram í
varnarleiknum og stundum einum
of þar sem áberandi var að leik-
menn beittu olnbogum og auk þess
fóru menn oft með hendur í andlit
andstæðinga. Patrekur Jóhannes-
son varð fórnarlamb þessara átaka
en hann yfirgaf leikvöllinn í fyrri
hálfleik með skurð á auga og kom
ekki aftur við sögu.
Varnarleikur beggja liða var
góður í fyrri hálfleiknum en
markvarsla Rolands lagði grunn-
inn að þriggja marka forskoti
Stjörnunnar í leikhléi en kollegi
hans hinum megin, Björgvin, varði
aðeins fjögur skot í fyrri hálfleik
og hefði að ósekju mátt koma fyrr
af velli.
Framarar settu Magnús í mark-
ið í síðari hálfleik og hinn síunga
Belanyi í hornið og það skilaði
sínu því Fram skoraði þrjú fyrstu
mörk hálfleiksins og þar af tvö frá
Belanyi.
Stjörnumenn brotnuðu við mót-
lætið og fóru að kasta frá sér bolt-
anum á ævintýralega klaufalegan
hátt hvað eftir annað og þeim var
grimmilega refsað með mörkum
úr hraðaupphlaupum. Til að bæta
gráu ofan á svart voru leikmenn
liðsins að láta reka sig af velli
fyrir vitleysisgang.
Fram náði fljótt þriggja marka
forystu, 15-18, og leit aldrei til
baka. Stjarnan náði ekkert að ógna
meisturunum það sem eftir lifði
leiks.
„Við lékum eins og Stjarnan
vildi að við spiluðum í fyrri hálf-
leik. Við náðum síðan að keyra upp
hraðann í síðari hálfleik og þá
gekk þetta,“ sagði Jóhann Gunnar
Einarsson sem dró vagninn hjá
Fram enn eina ferðina og var með
ólíkindum að Stjarnan skyldi ekki
taka hann úr umferð fyrr en rétt í
lokin.
„Það er vonandi ekki slæmt að
vinna leikinn því það er oft sagt að
liðið sem vinnur fyrri leikinn,
þegar lið mætast tvisvar í röð,
tapar seinni leiknum. Við verðum
að afsanna það.“
Fyrir utan Jóhann átti Belanyi
frábæra innkomu í leikinn.
Kalandadze var yfirburðamaður
hjá Stjörnunni, Roland varði vel
en liðið réð einfaldlega ekki við
það að missa Patrek úr leiknum.
Það kom aðeins framlag frá
þremur mönnum í sókn, hinir voru
áhorfendur með bestu sætin í hús-
inu.
Stjörnumenn voru sjálfum sér verstir
Manchester United náði
um tíma í gær tólf stiga forskoti í
ensku úrvalsdeildinni þegar liðið
lagði Liverpool á Anfield, 0-1. Það
var varamaðurinn John O´Shea
sem skoraði eina mark leiksins í
uppbótartíma. Chelsea minnkaði
muninn síðan í níu stig með sigri
á Portsmouth í lokaleik gærdags-
ins.
Leikmenn Liverpool voru í fínu
formi á heimavelli sínum í gær og
hefðu hæglega getað skorað nokk-
ur mörk en voru klaufar upp við
markið eins og áður í vetur. Unit-
ed aftur á móti skapaði sér lítið
sem ekkert í leiknum í gær og
hinum stórhættulegu leikmönnum
liðsins var pakkað saman. Paul
Scholes fékk síðan rauða spjaldið
undir lokin fyrir tilraun til að kýla
andstæðing. Hann var heppinn að
hitta ekki, þá væri tímabilinu lokið
hjá honum.
Orðið meistaraheppni læddist
upp í hugann þegar O´Shea skor-
aði eina markið í leiknum en Unit-
ed er með mjög vænlega stöðu
eftir þennan sigur og í það minnsta
einn putti kominn á meistarabik-
arinn. Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, gerði sér vel grein fyrir
mikilvægi sigursins í gær.
„Ef menn eru að leita að meist-
araheppni þá hefur hún verið með
okkur í síðustu tveimur leikjum.
Leikmenn Liverpool eru klárlega
hundsvekktir og hafa fullan rétt á
því. Þetta voru frábær úrslit,“
sagði Ferguson himinlifandi en
hann fagnaði sem óður maður
þegar markið kom.
„Það skall oft hurð nærri
hælum og við fundum aldrei takt-
inn í okkar leik. Þetta eru risastór
úrslit fyrir okkur. Heppnin hefur
verið með okkur í síðustu tveim
leikjum en lið sem verða meistar-
ar þurfa alltaf á heppni að halda.
Baráttan er ekki búin og við erum
ekki byrjaðir að fagna titlinum.
Það er allt mögulegt í nútímafót-
bolta,“ sagði Ferguson en hann
sagði brottrekstur Scholes hafa
verið réttan.
Liverpool var ekki búið að tapa
síðustu 30 heimaleikjum áður en
United kom í heimsókn og síðasta
tap á heimavelli í deildinni kom í
október árið 2005.
„Ég hefði verið í vandræðum
með að útskýra þetta tap á
spænsku en á ensku er það ómögu-
legt fyrir mig,“ sagði hinn spænski
þjálfari Liverpool, Rafael Benitez,
niðurbrotinn eftir leikinn. „Við
réðum lögum og lofum í leiknum
og fengum fjölda færa.“
Chelsea lagði Portsmouth, 2-0,
er níu stigum á eftir United og á
einn leik til góða. „Sigur og engin
meiðsli. Þetta er ný reynsla fyrir
okkur,“ sagði Jose Mourinho,
stjóri Chelsea, en hann hafði þetta
að segja um Man. Utd. „Eru þeir
heppnir? Já. Þeir vinna á síðustu
mínútu og sleppa við meiðsli. Guð-
irnir eru með þeim.“
Fótboltinn getur verið grimmur og það fengu leikmenn Liverpool að reyna
gegn Man. Utd á Anfield í gær. Þá skoraði United eina mark leiksins undir lokin
og það manni færri í leik sem toppliðið gat lítið í. Chelsea hefur verk að vinna.
DHL-deild karla:
Enska úrvalsdeildin:
Magdeburg komst í
undanúrslit EHF-keppninnar í
gær með sigri á Arnóri Atlasyni
og félögum, 35-39, í FCK í
Kaupmannahöfn í gær.
Arnór skoraði 3 mörk fyrir
FCK. Atkvæðamestir hjá
Magdeburg voru Pólverjarnir
Karol Bielecki sem skoraði 10
mörk og Gregorz Tkaczyk 9.
Arnór og félag-
ar úr leik
Þýska félagið Flens-
burg varð í gær annað liðið sem
tryggir sér sæti í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar. Liðið tapaði
þá með fimm mörkum fyrir
Barcelona, 34-29, en það kom ekki
að sök þar sem Flensburg vann
fyrri leikinn með tíu mörkum.
Tvö þýsk lið eru þar með
komin í undanúrslit – Kiel og
Flensburg – og í dag bætast hin
tvö liðin við. Þá mætast annars
vegar Gummersbach og Valladol-
id og Ciudad Real og Portland
hins vegar.
Leikur Gummersbach og
Valladolid er í beinni á Sýn Extra
og hefst klukkan 17.
Flensburg í
undanúrslit
John Terry, fyrirliði
Chelsea, mun ekki spila seinni
leikinn gegn Porto í Meistara-
deildinni. Það staðfesti José
Mourinho, stjóri Chelsea, í gær.
„Það er ekki möguleiki að hann
spili. Maðurinn gengur fyrir
leikmanninum og JT er mikilvæg-
ari en einhver fótboltaleikur,“
sagði Mourinho.
Terry fékk slæmt höfuðhögg í
úrslitaleik deildarbikarsins gegn
Arsenal, missti meðvitund og
hefur ekki enn náð sér.
Frá gegn Porto