Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 5

Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 5
V‘íf"Sl:>R . Mánudagur 2. febrúar 1970. 5 Pólverþr urðu sigurvegurur — en Norðmenn urðu jafnir fjeim i hraðmóti i Varsjá # Senn líður að heimsmeistara- keppninní í Frakklandi, þar sem fslenzka landsliðið mun berj- ast í riðli gegn Dönum, Ungverj- um og Pólverjum, sem fóru með sigur af hólmi í hraðmóti í Varsjá um helgina. Pólverjar urðu þó jafn ir Norðmönnum, og Norðmenn voru með betra markahlutfall, — Pólverjar unnu Norðmenn í leik Leikur kattarins að músinni á Nesinu í gær Leiknir voru tveir leikir í fyrstu deild Islandsmótsins í körfuknatt- leik í íþróttahúsinu á Seltjarnar- nesi í gærkvöldi. Toppliðin í deild- inni áttu frekar léttan dag er þau mættu botnliðunum tveim. KR og ÍR léku mótherja sína sundur og saman, báðir leikirnir voru algjör einstefna frá byrjun og næstum martröð fyrir andstæöingana. Leik ur iR og KR um næstu helgi skýrir iínurnar eitthvað um hvort liðið hlýtur sigurinn í mótinu en önnur lið koma vart til greina að þessu sinni, þó skal aldrei sverja neitt því Ármenningar fylgja fast á eft fr, og allt getur skeð, þegar komið er í fjögurra iiða úrslit. Ef einhverjir hafa vonaö að KFR mundi halda í við ÍR, eins ’ í fyrri leik þessara liða, þá hafa > hinir sömu orðið fyrir miklum von- » brigðum, til þess voru yfirburðirn- ir allt of miklir. ÍR-ingar höfðu al- gjöra yfirburði í leiknum á öllum sviöum, staðan í hálfieik 45 stig t gegn 24 og í seinni hálfleik jókst i munurinn stöðugt, þó ÍR notaði , mikið af varamönnum sínum, og unnu leikinn með 94 stigum gegn 55. KFR getur ekki vænzt mikils ( út úr leik sfnum þegar allt snýst í um einn mann, og einhverjar ráð- j stafanir verður Iiðið aö gera, ætli það að halda sæti sínu í deildinni. ’ Allur leikur liðsins er fumkenndur, 1 sóknin algjörlega skipulagslaus og i vörnin ekki upp á marga fiska, , fráköstin sem liðið náði, mátti telja ■ á fingrum annarrar handar, þó lið- ^ið hafj langstærsta leikmanninn i ‘íslenzkum körfuknattleik I dag. 'Lið ÍR var jafnt í þessum leik, ♦ leikmennirnir allir notaðir nokkuð ‘jafnt, enda tækifæri til að leyfa ,þeim yngri að spreyta sig. Fyrirliði ,liðsins ætti að sjá sóma sinn í að allir leikmenn liðsins væru snyrti- ’legir á leikvelli, en einn af yngri 'mönnum ÍR, annars mjög góður leikmaður stakk mjög í stúf við ■ félaga sína sem allir voru í hrein- >um og snyrtilegum búningum, með iþví að vera ávallt upp úr girtur. .stigahæstir hjá ÍR voru Birgir með . 19 stig, Sigurður 15, Skúli 14 og Kristinn 10. Hjá KFR var Þórir .langhæstur með 32 stig og Kári 10. KoJþeinn skoraði fyrstu stigin í leik KR og UMFN þetta kvöld, og KR komst strax í 10:1 og strax Ijóst að þessi Jeikur yrði hrein end TAPAÐ — FUNDIÐ í gær tapaöist kvenúr í eða við ■ Borgarsjúkrahúsið eða Ljósheima 4. Finnandi vinsaml. hringi í síma 34347. urtekning á fyrri leik þessara liða um síöustu helgi. Staðan í hálfleik var 35:17 KR í vil og bilið breikk- aði stöðugt í seinni hálfleik, loka tölur urðu 76:47, 29 stiga munur, nákvæmlega sami munur og í fyrri leiknum. KR-ingar eru greinilega í framför frá því í haust, og verð ur áreiðanlega gaman að fylgjast með viðureign þeirra við ÍR á sunnudaginn kemur. Undirbúning- ur fyrir þann leik er í fullum gangi hjá báðum liðum, og meðalannars voru KR-ingar með klappkór sinn á raddæfingu í gærkveldi, og þótti sumum takast misjafnlega. Stiga hæstir KR-inga í þessum leik voru Einar með 20 stig, Kristinn 15, Bjarni og Kolbeinn 12 hvor og Hilmar 10. Fyrir UMFN skoraði Barry 13 stig, Kjartan 11 og Hilm ar 8. — þvþ— liðanna á laugardag, og það réði úrslitum. Auk Noregs og Póllands tóku þátt lið Rúmena og Tékka, og það vakti að vonum athygli að lið heimsmeistaranna skyldi Ienda í neðsta sæti keppninnar. Tékkar unnu þá Pólverja í gær dag með 18:13, en e.t.v. var það meira því að þakka eða kenna að Pólverjar settu inn 4 nýliða, sem þeir voru að reyna í keppni. Hins vegar kom þaö ekki síður á óvart að Norðmenn fóru með sigur af hólmi gegn Rúmenum 17:14 I gær og var Kai Killerud hetja dagsins í þeim leik. Pólverjar og Norðmenn unnu báöir 2 leiki, þvi Norðmenn unnu Tékka, og hlutu bæöi löndin 4 stig, Pólverjar markatöluna 44:44, en Norömenn 46:40, Rúmenar unnu aðeins leikinn gegn Tékkum og fengu 2 stig og markatöluna 56:51, en Tékkar unnu aðeins leikinn gegn Póllandi og hlutu neikvæða markatölu, 47:58. Þess má geta að leikir svo nærri heimsmeistarakeppninni eru ákaflega vafasamir, og margir tor- tryggja það að hin raunverulega geta liðanna komi þá i ljös. Enda eru þeir margir „njósnararnir“, sem setið hafa á horfendapöllum og horft á liöin Ieika. Þess vegna hafa liöin eflaust ekki reynt sig til fulls og ekki sýnt þau kerfi, sem æfö hafa verið upp. Engu að síður hlýtur árangur Norðmanna og keppinauta okkar, Pólverja, að verkja talsverða at- hygli hér heima. Hafnarfjörður Eftirtaliö starfsfólk óskast í matvöruverzlun: Afgreiðslustúlka, alla virka daga, útkeyrslumaður, af- greiðslustúlka á laugardögum og sunnudögum. Tilboð sendist augl. Vísis fyrir þriðjudagskvöld merkt „6250“. Leikfimikennari Ungur leikfimikennari (stúlka) óskast strax. Uppl. í síma 12054 og 83730 kl. 5—6.30. Allar sfærðir rafgeyma í allar tegundir bifreiða, vinnuvéla og vélbáfa. NotiS aöeins það bezta. CHLORIDE- Ujioriör BÆJARINS GLÆSILEGASTA ÚRVAL AF BORDSTOFUHÚSGÖGNUM Borðstofuskápar úr tekki og eik Lengd 160 cm. kr. 7.935.00 — 165 cm. kr. 10.900.00 — 170 cm. kr. 12.700.00 — 180 cm. kr. 11.500.00 — 190 cm. kr. 12.300.00 — 200 cm. kr. 15.200.00 — 205 cm. kr. 16.340.00 — 210 cm. kr. 16.900.00 — 215 cm. kr. 16.700.00 — 220 cm. kr. 18.900.00 — 225 cm. kr. 19.100.0' HÁIR SKÁPAR. Lengd 104 cm. Hæð 118 cm. kr. 13.200.00 Afborgunarskilmálar — 1000 krónur út og 1000 á mánuði 10 gerðir af borðstofuborðum kringlóttum, sporöskjulöguðum og aflöngum. 10 gerðir af borðstofustólum. Góðir greiðsluskilmálar. Skápar á kr. 12.300.00 lengd 180 cm. SKEIFAN KJORGARÐI SIMI. 18580-16975 SKEIFU STÍLL, SKEIFU G/EÐI, SKEIFU SKlLMALAR.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.