Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 4
Risaeyra þýzkra stjörnu- fræðinga Nú er í byggingu risaeyra fyrir þýzka stjörnufræðinga og er það svo stórt í sniðum, að það verð- ur hærra heldur en kórbygging- in í Cologne-dómkirkjunni, eins og sjá má á myndinni hér. í dal einum hjá Effelsberg í nágrenni Bonn er verið að byggja stálgrindina, sem halda á uppi þessu risaeyra, og er hún engin smásmíði heldur, enda hefur rad Risaeyrað er stærra en Cologne-dómkirkjan (mínum turnarnir að vísu). arskermur þessarar stjörnuathug unarstöðvar 100 m þvermál. Risaeyra þessu er ætlað að veita móttöku merkjasendingum utan úr geimnum og veróur það væntanlega tekið í notkun á þessu ári. Þessi stjörnukíkir, rad- arstöð, eða hvað maður skyldi kalla hana, mun starfa í þágu. Max Planck-stofnunarinnar í Bonn. Uppsetning tækisins er óskap- leg nákvæmis vinna, því að sifakki, w-næmi broti úr milli- métra",; T unlrfátöðiinrir^g' stjðfn tækjum radarspegilsins; gæti leitt af sér nokkur hundruð kílómetra misvísun á geislanum á svo löng um fjarlægðum, sem í þessum rannsóknum getur verið um aö ræða, eins og t.d. 12 billjónir ljósára (en það eru um 113 trill- jónir kílómetra). EIEefta boðorðið Ellefta boðorðið hljóðar svo (í prestsins nafni): Ekki skaltu leggja bílnum þínum hér! Hún Mary litla Pekar (4 ára) er að vísu ekki læs sjálf, en blöskrar þó, að ökumaðurinn, sem rétt í þessu kom inn £ stæí ið við dómkirkjuna í Pittsburg, skuli ekki virða það, sem á skilt inu stendur letraö: EKKI SKALTU LEGGJA BÍLNUM ÞÍNUM HÉR 1L boðorðið Það voru sóknarpresturinn og djákninn, sem settu fram þetta 11. boðorð, en ekki getur sagan um það, hvort þeir hafi fundiö það með sama hætti og Móses fann hin tíu. Okkur grunar, að þeim hafi birzt það í draumi, eftir að hafa beðið þess að kvöldi, að þeir fengju að hafa bílastæðin sín við kirkjuna í friði. GL — nnn nr 7 r\ (g) y T 1 [i\ Si dL rL Ll \U ULJ Hljómplötuupptaka v/ð frumstæð skilyrði Við höfðum spurnir af því einn daginn i síðasta mánuði, aö Júd- as væru niöri i útvarpssal við upptöku sinnar fyrstu hljómplötu og þótti okkur það góð tíöindi, því Júdas er hljómsveit, sem ætti að geta gert mjög góða hluti á plötu — hefðu meira að segja mátt vera búin að senda frá sér eina fyrir löngu. Blm. Pop-punkta brá sér í skyndi niður í útvarp, þeirra er inda að fá nokkra punkta frá Júdas um þessa plötu þeirra. Það var áliðið dags þegar mig bar að garði, og voru Júdasar- menn að pakka saman hljóðfær- um sínum og búa sig undir að yfirgefa staðinn. Mér tókst að stela Vigni, gítarleikara hljóm- sveitarinnar út úr hópnum og fékk að leggja fyrir hann nokkr- ar spurningar. „Hvernig hefur hljóðritunin gengið?“ var fyrsta spurning mín. „Hún hefur gengið sæmilega, en ekki meira en það. Við höfum verið tvo daga 1 upptöku, en að- eins tekizt að koma undirspil- inu fyrir annaö lagið á band. Það sem aðallega hefur tafið upptök- una og valdið mestum erfiðleik- um, er það, að við megum ekki hafa hljóöfæri okkar eins hátt stillt og þörf krefur. Ef okkur verður það á að gefa frá okk- ur of há hljóð er farið að banka í okkur ofan úr þularherberg- inu og skipa okkur aö draga nið- ur í hljóðfærunum. Þegar við byrjuðum upptökuna hérna í gær dag gekk allt skínandi vel til að byrja meö, enda vorum við þá með hljóðfærin stillt jafn hátt og á dansleikjum okkar þannig að „powerið“ var það sama og þar. Með því móti gekk allt mjög vel og við vorum komnir langt með að ná því sem til þurfti svo að upptaka undirleiksins gæti far ið fram (þ.e.a.s. bassa- orgel- og trommuleikurinn). En þá var það sem fólkið í útsendingarsal hljóðvarpsins byr.jaði að þagga niður í okkur og það gaf sig ekki fyrr en viö höfðum.dregið það mik ið niður í hljóðfærunum, að allt „sound“ var rokið út í veður og vind og við sem unnum að upp tökunni komnir í megnustu fýlu. Eftir dágóða stund hafði okk ur þó tekizt að hljóðrita undir- spilið, en þegar því var lokið, var Iíka komið fram á kvöldmatar- leyti og ekki hægt að vinna meira í stúdíóinu þann daginn. I dag var unnið við að bæta inn í upptökuna saxafónum, trompet og sólógítarspilinu, og gekk það öllu betur fyrir sig en upptakan f gær, enda haföi það ekki eins mikinn hávaða í för með sér“. „Hvemig finnast þér upptöku- skilyrðin hjá sjónvarpinu?" „Það er samskonar tæki til hljóðritunar og hér í útvarpinu, en aftur á móti má maður stilla sín tæki þar, eins og maður er vanastur þeim og það er stór kostur fram yfir aðstöðuna hér. Það er bara verst, að það er bannað að taka upp hljómplötur hjá sjónvarpinu. Það stendur v£st til að banna slíkar upptökur hjá útvarpinu líka og þá er endan- leg abúið að vísa plötufyrirtækj unum út á götuna með sitt hljðm listarfólk. Það eru ekki nema fáar íslenzkar hljómsveitir, sem eiga þess kost að láta taka upp plötumar erlendis, þannig að ég veit ekki hvað þá tekur við ís- lenzkri hljómplötuútgáfu. Ég hef reyndar heyrt talað eitthvað um það, að Pétur Steingrímsson magnaravörður með fleiru, séað koma sér upp sínu eigin stúdíói fyrir plötuupptökur — en þú mátt alls ekki bera mig fyrir þeirri sögu“. a/w\aaaaaaaaaaa^w Rætt við Vigni gítnr- leiknra liídas um íslenzk stúdíó 1. HLUTI 'VWWWWAA/WVWVN^ „Að hvaða leyti standa íslenzku stúdíóin þeim erlendu aö baki?“ „Að flestu leyti held ég að mér sé óhætt að segja. Fyrir það fyrsta er það íslenzka aðeins eins „trakka“, en þau tæki sem mest em notuð í útlandinu eru sextán „trakka“. Ég hef meira að segja heyrt að hljómsveitir eins og Blood, Sweat & Tears taki sfnar plötur upp 1 32 „trakka“ stúdíói, þannig að þú sérö, aö það er engin smávegis aðstöðumunur milli islenzkra og útlenzkra hljóm listarmanna við plötuupptökur. Og svo eru menn að reyna að bera íslenzkar hljómplötur saman við framleiðslu útlenzkra — ’a, því líkt og annað eins . . dæs- ir Vignir að lokum og snýr sér að því að hjálpa hinum strákun- um við að pakka saman. Hér látum við staöar numið, en í Pop-punktum þeim sem birtast hér á síðunni n.k. fimmtudag verð ur viðtal við Magnús Kjartansson orgelleikara með Júdas um lögin á plötunni og kemur þar margr athyglisvert fram, m.a. það, að Karl Sighvr'’~'on í Trúbrot sé ,,producer“ plötunnar (þ.e.a.s. hann stjórnar upptökunni og ræð ur jafnvæginu milli hljóöfæranna annars vegar, og söngs og und!r- leiks hins vegar), en það er ó- hætt að fullyrða það, að þetta sé i fyrsta skipti, sem íslenzk pop- hljómsveit ræður sérstakan mann til þeirra starfa fyrir hljóm plötuupptöku. þjm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.