Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 1

Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 1
Þorsteinn hélt loftbrúnni uppi '0. árg. — Mánudagur 2..febrúar. 1970. — 27. íb' — segir Ómar Tómasson, flugstjóri, sem kom frá Sao Tomé um helgina ásamt flugmönnum Flughjálpar □ Hlutverk Þorsteins Jóns- sonar í hjálparfluginu hef ur verið mjög stórt og það má blátt áfram bakka hon- um það, að það tókst að halda loftbrúnni opinni eftir að Rauði krossinn hætti að fljúga til Biafra i iúní s.L, Deshúsiö er úr gulli og líkt og fiskur að lögun. Stappað og grafið og sett saman úr mörg- um pörtum, sem Ieika á hjörum, þannig að „fiskurinn“ liöast til, ef hann er snertur. Deshús úr gulli og / fisklíki — gefið Þjóðminja- safninu „Þetta er forkunnarfagur gripur“ segir Þór Magnússon, er við biðjum hann að lýsa fyrir okkur deshúsi, er börn frú Ólaf íu Lárusdóttur (systur Ólafs Lár ussonar, prófessors) frá Selárdal gáfu Þjóðminjasafninu fyrir nokkru. „Deshús er ilmhylki, sem hægt er aö opna og er þá baðm ull sett í hylkið og ilmvatni hellt í baðmullina. Konur báru þetta síðan að vitum sér. Einnig var þessu stillt upp á heimilum til að gera góða lykt. Hér í Þjóðminjasafninu eru til nokkur deshús úr silfri, en þetta deshús er að því leyti sér stakt að það er úr gulli. við átt um ekkert slíkt áður. Einnig er það sérkennilegt að Iögun, líkt og fiskur. Fiskurinn er stappað- ur og grafinn, og settur sam an úr mörgum smáum einingum sem leika á hjörum, þannig að fiskurinn liðast allur til ef mað ur snertir hanp,“ segir Þór I ennfremur. „Er vitað um aldur deshúss- ins?“ ,,Nei ekki er það nú vitað með vissu, þetta er erlend smfð, sem verið hefur ættargripur i ætt frú Óláfíu mjög lengi." Steyptust niður í 12 metru djúpt gil ú blæjubíl engin veruleg meiðsl — einn af jbrem mónn- um í bilnum varð jbó fastur undir honum ÞRÍR ungir menn voru hætt komnir I gærmorgun, þegar bifreið þeirra steyptist fram af snarbröttum gljúfurbakka 12 m niður í gljúfur hjá Fnjóskárbrú í Fnjóskárdals- mynni, rétt utan við Laufás. Endastakkst bíllinn ofan í gljúfrið og hafnaði á hvolfi, en yfirbyggingin var úr blæjum og lagðist bíllinn næstum saman, svo að fólki, sem kom að staön um á öðrum bíl rétt á eftir, þótti aðkoman ófögur. Einn mannanna þriggja festist undir bílflakinu og gat sig ekki hrey.ft af eigin rammleik, fyrr en aðkomufóikið kom honum til hjálpar og Iyfti hluta bílsins of- an af honum. Það þótti ganga kraftaverki næst, að mennirnir skyldu vera óbrotnir, eins og kom í ljós, þeg ar þeir voru fluttir á sjúkrahús- ið á Akureyri, en tveir þeira voru mikið marðir og skomir, nema ökumaðurinn, sem slapp með nokrar skrámur og meiðsli á handlegg. Mennimir, sem allir em um tví tugt og frá Akureyri, voru á leið frá Akureyri, en þegar þeir komu að beygjunni hjá brúnni var dimmt af nóttu, enda var þetta kl. 5 að morgni, og auk þess var nokkur éljagangur, sem hindraði stundum útsýni fram á veginn. Þar sem bíllinn fór út af veg- inum og ofan i gilið er snar- brattur bakki, grýttur en þó ekki klettar, eins og annars staðar I gilinu. Gljúfrið hálffyll ir venjulega strax á haustin af snjó, sem verður að hjarni og klaka, og ofan á þessum klaka lenti bíllinn og stöðvaðist. Að sumri til er þarna tvöfalt meiri hæð ofan í sjálfa ána, sem nú sást hvergi í vegna klakans, sem ofan á liggur. Ungi knattspyrnu- maðurinn lézt í gær Rúnar Vilhjálmsson, ungi knatt- spyrnumaðurinn, sem átti að lelka sinn fyrsta leik með fslenzka lands liðinu í London í kvöld, lézt af völd um mikilla áverka, sem hann hlaut í slysi skömmu eftir komuna til London á föstudaginn. Svalir á herbergi hans á Hótel Windsor hrundu, þegar hann sté út á þær. Munu þær vera úr málmi, senni iega einhvers konar pottmálmi, sem þreyta hefur veriö komin í. Létu svalirnar undan Rúnari, strax og hann sté út fyrir, en einn félagi hans ætlaði út á svalirn ar á eftir honum. Féll Rúnar nið ur í húsagarðinn og lenti á höfðinu en fallið er talsvert hátt. Var hann fluttur á Central Hospital í London og komst aldrei til meðvitundar. Lézt Rúnar á lft tímanum í gær. 1 kvöld fer landsleikurinn fram og sagði Albert Guðmundsson í símtali í morgun að leikmenn beggja liöanna mundu bera svarta sorgarboröa á handlegg. Ræða framtíð Færeyjaflugs Þrír yfirmenn Flugfélags Is- loknum fundinum á miðvikudag lands, þeir öm O. Johnson, for inn. stjóri, Einar Helgason, stöðvar-®^ stjóri og Birgir Þorgilsson, for stjóri millilandaflugsins fóru ut an til Færeyja í morgun með Gunnfaxa, DC-3 flugvél félags- ins. Á morgun og miðvikudag munu fulltrúarnir ræða við full trúa SAS og Flogsambands Fö- öya um framtfð Færeyjaflugs- ins, sem FÍ hefur haft með hönd um að undanfömu í umboði SAS, sem hefur einkarétt á öllu „innanlandsflugi" í Danmörku. Flugvélin mun bíða þeirra fé- laganna og koma þeir heim að Ekki þverfótað fyrir ráðherrum í Reykjavík 380 manns koma á þing Norðurlandaráðs ■ Það verður ekki þverfótaö fyr- ir ráðherrum hér í höfuðborg- inni undir lok þessarar viku, en eins og kunnugt er hefst þing Norð- urlandaráðs á laugardaginn. Alls er reiknað með að um 40 ráðherrar muni sitja þingið og þar á meöal allir islenzku ráðherrarnir 7. Frá Danmörku, Svíþjóð og Nor- egi koma 8 ráðherrar frá hverju landi, en óvíst er enn um hvað margir koma frá Finnlandi. — Alls munu um 380 manns koma á þing- ið erlendis frá, en mikið vandamál hefur verið að koma þeim fyrir. Hótelin höifðu aðeins 235 herbergi laus og hefur orðið að gripa til ým- issa ráðstafana. M. a. hafa stúdent- ar eftirlátið 31 herbergi á stúdenta- görðunum og 40—50 manns hefur verið komið fyrir í einkaherbergj- um. Meðal þekktra ráðherra, sem koma frá hinum Norðurlöndunum má nefna forsætisráðherrana alla, þ. e. Baunsgaard, Borten, Palme og ef til vill Koivisto. Þá koma frá Danmörku Hartling utanríkisráö- herra, Andersen efnahagsmálaráð- herra og Testrup dómsmálaráö- herra, sem hefur verið Islending- um mjög velviljaður í handrita- málinu. — Frá Sviþjóð koma m. a. Nilsson utanríkisráðherra og Lange fjármálaráðherra. Frá Noregi kem- ur m. a. Lyng, utanríkisráðherra. Hinir ráðherrarnir, sem koma, eru kannski ekki eins nafnkunnir hér á landi. sagði Ómar Tómasson, flug- stjóri, í viðtali við Vísi í morg un, en hann kom ásamt um 20 íslendingum heim um helg ina frá Sao Tomé. Þeir flugu fyrst flugvélunum fjórum til Prestwick, þar sem þær verða látnar standa þar 'til Ijóst verður, hvort um nokk- uð áframhaldandi hjálparflug geti orðið að ræða. Það var Þorsteinn, sem braut ísinn í júní sl. sagði Ómar. Það var ekki annað fyrirsjáanlegt, en að flugið mundi lognast út af f júní. Það var því fyrst og fremst hann, sem átti heiður inn af því að það tókst að halda loftbrúnni opinni. Það er heldur ekki á neinn haliað þó að sagt sé, að hann hefur allan tímann verið aðaldriffjöðrin í öllu flug- inu á milli Sao Tomé og Bíafra. Hann hefur tekið þetta starf mjög alvarlega og tekizt margt, sem öðrum hefði verið meinað. Islendingamir í þessu flugi hafa sloppið mjög vel við öll á- föll. Að því er Ómar sagði, eru 24 flugliðár jarðsettir í litlum kirkjugarði við Uliflugvll, en auk þess fórust fjórir þegar Rauða kross vélin var skotin nið ur. Mesta hættan hefur þó ekki verið sú, að sprengjuvélar Lagos stjórnar voru svo hættulegar. Þær sprengdu að vísu tvær flug vélar nýlega í loft upp, þar sem þær stóðu á Uliflugvelli. Aðalhættan hefur verið fólgin f erfiðum flugskilyrðum, en aílir f'lugliðamir sem jarðsettir em við Uliflugvöll fórust í aðflugi. — Þetta er hreint ekki svo lítið mannfall. Á Sao Tomé hafa að jafnaði verið um 70 flugliðar, en auk þess hefur verið flogið frá Conanou í Dahomey, Liber- ville og Femando Po, en minna hefur verið flogiö frá þessum stöðum. Ómar sagði, að þeim í hjálp arfluginu hefði sámað hve „gráu draugarnir" þ. e. vopna- flugvélar fengu betri fyrir- greiðslu en aörar fiugvélar, en „draugarnir“ flugu í skjóli hjálp arflugsins. Á næstu dögum verður Þjóðleikhúsið undirbúið af krafti fyrir þingið, en það losnar ekki fyrr en á morgun. 1 trésmiðju nálægi Þjóðleikhúsinu hafa verið smíðuð borð, sem á að leggja á milli sætaraðanna og verða þau notuð fyrir fundarborð. Karl Maacl sá um smíðina og er hann hér við þau í morguiu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.