Vísir - 02.02.1969, Blaðsíða 1
Þorsteinn hélt loftbrúnni uppi
'0. árg. — Mánudagur
2..febrúar. 1970. — 27. íb'
— segir Ómar Tómasson, flugstjóri, sem kom frá
Sao Tomé um helgina ásamt flugmönnum
Flughjálpar
□ Hlutverk Þorsteins Jóns-
sonar í hjálparfluginu hef
ur verið mjög stórt og það
má blátt áfram bakka hon-
um það, að það tókst að
halda loftbrúnni opinni eftir
að Rauði krossinn hætti að
fljúga til Biafra i iúní s.L,
Deshúsiö er úr gulli og líkt og
fiskur að lögun. Stappað og
grafið og sett saman úr mörg-
um pörtum, sem Ieika á hjörum,
þannig að „fiskurinn“ liöast til,
ef hann er snertur.
Deshús úr
gulli og /
fisklíki
— gefið Þjóðminja-
safninu
„Þetta er forkunnarfagur
gripur“ segir Þór Magnússon,
er við biðjum hann að lýsa fyrir
okkur deshúsi, er börn frú Ólaf
íu Lárusdóttur (systur Ólafs Lár
ussonar, prófessors) frá Selárdal
gáfu Þjóðminjasafninu fyrir
nokkru.
„Deshús er ilmhylki, sem
hægt er aö opna og er þá baðm
ull sett í hylkið og ilmvatni hellt
í baðmullina. Konur báru þetta
síðan að vitum sér. Einnig var
þessu stillt upp á heimilum til
að gera góða lykt.
Hér í Þjóðminjasafninu eru
til nokkur deshús úr silfri, en
þetta deshús er að því leyti sér
stakt að það er úr gulli. við átt
um ekkert slíkt áður. Einnig er
það sérkennilegt að Iögun, líkt
og fiskur. Fiskurinn er stappað-
ur og grafinn, og settur sam
an úr mörgum smáum einingum
sem leika á hjörum, þannig að
fiskurinn liðast allur til ef mað
ur snertir hanp,“ segir Þór
I ennfremur.
„Er vitað um aldur deshúss-
ins?“
,,Nei ekki er það nú vitað með
vissu, þetta er erlend smfð, sem
verið hefur ættargripur i ætt frú
Óláfíu mjög lengi."
Steyptust niður í 12 metru
djúpt gil ú blæjubíl
engin veruleg meiðsl — einn af jbrem mónn-
um í bilnum varð jbó fastur undir honum
ÞRÍR ungir menn voru hætt
komnir I gærmorgun, þegar
bifreið þeirra steyptist fram
af snarbröttum gljúfurbakka
12 m niður í gljúfur hjá
Fnjóskárbrú í Fnjóskárdals-
mynni, rétt utan við Laufás.
Endastakkst bíllinn ofan í
gljúfrið og hafnaði á hvolfi, en
yfirbyggingin var úr blæjum og
lagðist bíllinn næstum saman,
svo að fólki, sem kom að staön
um á öðrum bíl rétt á eftir,
þótti aðkoman ófögur.
Einn mannanna þriggja festist
undir bílflakinu og gat sig ekki
hrey.ft af eigin rammleik, fyrr
en aðkomufóikið kom honum til
hjálpar og Iyfti hluta bílsins of-
an af honum.
Það þótti ganga kraftaverki
næst, að mennirnir skyldu vera
óbrotnir, eins og kom í ljós, þeg
ar þeir voru fluttir á sjúkrahús-
ið á Akureyri, en tveir þeira
voru mikið marðir og skomir,
nema ökumaðurinn, sem slapp
með nokrar skrámur og meiðsli
á handlegg.
Mennimir, sem allir em um tví
tugt og frá Akureyri, voru á
leið frá Akureyri, en þegar þeir
komu að beygjunni hjá brúnni
var dimmt af nóttu, enda var
þetta kl. 5 að morgni, og auk
þess var nokkur éljagangur,
sem hindraði stundum útsýni
fram á veginn.
Þar sem bíllinn fór út af veg-
inum og ofan i gilið er snar-
brattur bakki, grýttur en þó
ekki klettar, eins og annars
staðar I gilinu. Gljúfrið hálffyll
ir venjulega strax á haustin af
snjó, sem verður að hjarni og
klaka, og ofan á þessum klaka
lenti bíllinn og stöðvaðist. Að
sumri til er þarna tvöfalt meiri
hæð ofan í sjálfa ána, sem nú
sást hvergi í vegna klakans,
sem ofan á liggur.
Ungi knattspyrnu-
maðurinn lézt í gær
Rúnar Vilhjálmsson, ungi knatt-
spyrnumaðurinn, sem átti að lelka
sinn fyrsta leik með fslenzka lands
liðinu í London í kvöld, lézt af völd
um mikilla áverka, sem hann hlaut
í slysi skömmu eftir komuna til
London á föstudaginn. Svalir á
herbergi hans á Hótel Windsor
hrundu, þegar hann sté út á þær.
Munu þær vera úr málmi, senni
iega einhvers konar pottmálmi,
sem þreyta hefur veriö komin í.
Létu svalirnar undan Rúnari,
strax og hann sté út fyrir, en
einn félagi hans ætlaði út á svalirn
ar á eftir honum. Féll Rúnar nið
ur í húsagarðinn og lenti á höfðinu
en fallið er talsvert hátt. Var hann
fluttur á Central Hospital í London
og komst aldrei til meðvitundar.
Lézt Rúnar á lft tímanum í gær.
1 kvöld fer landsleikurinn fram
og sagði Albert Guðmundsson í
símtali í morgun að leikmenn
beggja liöanna mundu bera svarta
sorgarboröa á handlegg.
Ræða framtíð
Færeyjaflugs
Þrír yfirmenn Flugfélags Is- loknum fundinum á miðvikudag
lands, þeir öm O. Johnson, for inn.
stjóri, Einar Helgason, stöðvar-®^
stjóri og Birgir Þorgilsson, for
stjóri millilandaflugsins fóru ut
an til Færeyja í morgun með
Gunnfaxa, DC-3 flugvél félags-
ins.
Á morgun og miðvikudag
munu fulltrúarnir ræða við full
trúa SAS og Flogsambands Fö-
öya um framtfð Færeyjaflugs-
ins, sem FÍ hefur haft með hönd
um að undanfömu í umboði
SAS, sem hefur einkarétt á öllu
„innanlandsflugi" í Danmörku.
Flugvélin mun bíða þeirra fé-
laganna og koma þeir heim að
Ekki þverfótað fyrir
ráðherrum í Reykjavík
380 manns koma á þing Norðurlandaráðs
■ Það verður ekki þverfótaö fyr-
ir ráðherrum hér í höfuðborg-
inni undir lok þessarar viku, en
eins og kunnugt er hefst þing Norð-
urlandaráðs á laugardaginn. Alls er
reiknað með að um 40 ráðherrar
muni sitja þingið og þar á meöal
allir islenzku ráðherrarnir 7.
Frá Danmörku, Svíþjóð og Nor-
egi koma 8 ráðherrar frá hverju
landi, en óvíst er enn um hvað
margir koma frá Finnlandi. — Alls
munu um 380 manns koma á þing-
ið erlendis frá, en mikið vandamál
hefur verið að koma þeim fyrir.
Hótelin höifðu aðeins 235 herbergi
laus og hefur orðið að gripa til ým-
issa ráðstafana. M. a. hafa stúdent-
ar eftirlátið 31 herbergi á stúdenta-
görðunum og 40—50 manns hefur
verið komið fyrir í einkaherbergj-
um.
Meðal þekktra ráðherra, sem
koma frá hinum Norðurlöndunum
má nefna forsætisráðherrana alla,
þ. e. Baunsgaard, Borten, Palme og
ef til vill Koivisto. Þá koma frá
Danmörku Hartling utanríkisráö-
herra, Andersen efnahagsmálaráð-
herra og Testrup dómsmálaráö-
herra, sem hefur verið Islending-
um mjög velviljaður í handrita-
málinu. — Frá Sviþjóð koma m. a.
Nilsson utanríkisráðherra og Lange
fjármálaráðherra. Frá Noregi kem-
ur m. a. Lyng, utanríkisráðherra.
Hinir ráðherrarnir, sem koma, eru
kannski ekki eins nafnkunnir hér
á landi.
sagði Ómar Tómasson, flug-
stjóri, í viðtali við Vísi í morg
un, en hann kom ásamt um
20 íslendingum heim um helg
ina frá Sao Tomé. Þeir flugu
fyrst flugvélunum fjórum til
Prestwick, þar sem þær
verða látnar standa þar 'til
Ijóst verður, hvort um nokk-
uð áframhaldandi hjálparflug
geti orðið að ræða.
Það var Þorsteinn, sem braut
ísinn í júní sl. sagði Ómar. Það
var ekki annað fyrirsjáanlegt,
en að flugið mundi lognast út
af f júní. Það var því fyrst og
fremst hann, sem átti heiður
inn af því að það tókst að halda
loftbrúnni opinni. Það er heldur
ekki á neinn haliað þó að sagt
sé, að hann hefur allan tímann
verið aðaldriffjöðrin í öllu flug-
inu á milli Sao Tomé og Bíafra.
Hann hefur tekið þetta starf
mjög alvarlega og tekizt margt,
sem öðrum hefði verið meinað.
Islendingamir í þessu flugi
hafa sloppið mjög vel við öll á-
föll. Að því er Ómar sagði, eru
24 flugliðár jarðsettir í litlum
kirkjugarði við Uliflugvll, en
auk þess fórust fjórir þegar
Rauða kross vélin var skotin nið
ur. Mesta hættan hefur þó ekki
verið sú, að sprengjuvélar Lagos
stjórnar voru svo hættulegar.
Þær sprengdu að vísu tvær flug
vélar nýlega í loft upp, þar
sem þær stóðu á Uliflugvelli.
Aðalhættan hefur verið fólgin f
erfiðum flugskilyrðum, en aílir
f'lugliðamir sem jarðsettir em
við Uliflugvöll fórust í aðflugi.
— Þetta er hreint ekki svo lítið
mannfall. Á Sao Tomé hafa að
jafnaði verið um 70 flugliðar,
en auk þess hefur verið flogið
frá Conanou í Dahomey, Liber-
ville og Femando Po, en minna
hefur verið flogiö frá þessum
stöðum.
Ómar sagði, að þeim í hjálp
arfluginu hefði sámað hve
„gráu draugarnir" þ. e. vopna-
flugvélar fengu betri fyrir-
greiðslu en aörar fiugvélar, en
„draugarnir“ flugu í skjóli hjálp
arflugsins.
Á næstu dögum verður Þjóðleikhúsið undirbúið af krafti fyrir
þingið, en það losnar ekki fyrr en á morgun. 1 trésmiðju nálægi
Þjóðleikhúsinu hafa verið smíðuð borð, sem á að leggja á milli
sætaraðanna og verða þau notuð fyrir fundarborð. Karl Maacl
sá um smíðina og er hann hér við þau í morguiu