Vísir - 02.02.1969, Side 4
Risaeyra
þýzkra
stjörnu-
fræðinga
Nú er í byggingu risaeyra fyrir
þýzka stjörnufræðinga og er það
svo stórt í sniðum, að það verð-
ur hærra heldur en kórbygging-
in í Cologne-dómkirkjunni, eins
og sjá má á myndinni hér.
í dal einum hjá Effelsberg í
nágrenni Bonn er verið að byggja
stálgrindina, sem halda á uppi
þessu risaeyra, og er hún engin
smásmíði heldur, enda hefur rad
Risaeyrað er stærra en Cologne-dómkirkjan (mínum turnarnir
að vísu).
arskermur þessarar stjörnuathug
unarstöðvar 100 m þvermál.
Risaeyra þessu er ætlað að
veita móttöku merkjasendingum
utan úr geimnum og veróur það
væntanlega tekið í notkun á
þessu ári. Þessi stjörnukíkir, rad-
arstöð, eða hvað maður skyldi
kalla hana, mun starfa í þágu.
Max Planck-stofnunarinnar í
Bonn.
Uppsetning tækisins er óskap-
leg nákvæmis vinna, því að
sifakki, w-næmi broti úr milli-
métra",; T unlrfátöðiinrir^g' stjðfn
tækjum radarspegilsins; gæti leitt
af sér nokkur hundruð kílómetra
misvísun á geislanum á svo löng
um fjarlægðum, sem í þessum
rannsóknum getur verið um aö
ræða, eins og t.d. 12 billjónir
ljósára (en það eru um 113 trill-
jónir kílómetra).
EIEefta
boðorðið
Ellefta boðorðið hljóðar svo (í prestsins nafni): Ekki skaltu
leggja bílnum þínum hér!
Hún Mary litla Pekar (4 ára)
er að vísu ekki læs sjálf, en
blöskrar þó, að ökumaðurinn,
sem rétt í þessu kom inn £ stæí
ið við dómkirkjuna í Pittsburg,
skuli ekki virða það, sem á skilt
inu stendur letraö:
EKKI SKALTU
LEGGJA BÍLNUM
ÞÍNUM
HÉR
1L boðorðið
Það voru sóknarpresturinn og
djákninn, sem settu fram þetta
11. boðorð, en ekki getur sagan
um það, hvort þeir hafi fundiö
það með sama hætti og Móses
fann hin tíu.
Okkur grunar, að þeim hafi
birzt það í draumi, eftir að hafa
beðið þess að kvöldi, að þeir
fengju að hafa bílastæðin sín við
kirkjuna í friði.
GL — nnn nr 7 r\
(g) y T 1 [i\ Si
dL rL Ll \U ULJ
Hljómplötuupptaka v/ð
frumstæð skilyrði
Við höfðum spurnir af því einn
daginn i síðasta mánuði, aö Júd-
as væru niöri i útvarpssal við
upptöku sinnar fyrstu hljómplötu
og þótti okkur það góð tíöindi,
því Júdas er hljómsveit, sem ætti
að geta gert mjög góða hluti
á plötu — hefðu meira að segja
mátt vera búin að senda frá
sér eina fyrir löngu.
Blm. Pop-punkta brá sér í
skyndi niður í útvarp, þeirra er
inda að fá nokkra punkta frá
Júdas um þessa plötu þeirra.
Það var áliðið dags þegar mig
bar að garði, og voru Júdasar-
menn að pakka saman hljóðfær-
um sínum og búa sig undir að
yfirgefa staðinn. Mér tókst að
stela Vigni, gítarleikara hljóm-
sveitarinnar út úr hópnum og
fékk að leggja fyrir hann nokkr-
ar spurningar.
„Hvernig hefur hljóðritunin
gengið?“ var fyrsta spurning mín.
„Hún hefur gengið sæmilega,
en ekki meira en það. Við höfum
verið tvo daga 1 upptöku, en að-
eins tekizt að koma undirspil-
inu fyrir annaö lagið á band. Það
sem aðallega hefur tafið upptök-
una og valdið mestum erfiðleik-
um, er það, að við megum ekki
hafa hljóöfæri okkar eins hátt
stillt og þörf krefur. Ef okkur
verður það á að gefa frá okk-
ur of há hljóð er farið að banka
í okkur ofan úr þularherberg-
inu og skipa okkur aö draga nið-
ur í hljóðfærunum. Þegar við
byrjuðum upptökuna hérna í gær
dag gekk allt skínandi vel til
að byrja meö, enda vorum við
þá með hljóðfærin stillt jafn hátt
og á dansleikjum okkar þannig
að „powerið“ var það sama og
þar. Með því móti gekk allt mjög
vel og við vorum komnir langt
með að ná því sem til þurfti svo
að upptaka undirleiksins gæti far
ið fram (þ.e.a.s. bassa- orgel-
og trommuleikurinn). En þá var
það sem fólkið í útsendingarsal
hljóðvarpsins byr.jaði að þagga
niður í okkur og það gaf sig ekki
fyrr en viö höfðum.dregið það mik
ið niður í hljóðfærunum, að allt
„sound“ var rokið út í veður og
vind og við sem unnum að upp
tökunni komnir í megnustu fýlu.
Eftir dágóða stund hafði okk
ur þó tekizt að hljóðrita undir-
spilið, en þegar því var lokið, var
Iíka komið fram á kvöldmatar-
leyti og ekki hægt að vinna meira
í stúdíóinu þann daginn.
I dag var unnið við að bæta
inn í upptökuna saxafónum,
trompet og sólógítarspilinu, og
gekk það öllu betur fyrir sig en
upptakan f gær, enda haföi það
ekki eins mikinn hávaða í för
með sér“.
„Hvemig finnast þér upptöku-
skilyrðin hjá sjónvarpinu?"
„Það er samskonar tæki til
hljóðritunar og hér í útvarpinu,
en aftur á móti má maður stilla
sín tæki þar, eins og maður er
vanastur þeim og það er stór
kostur fram yfir aðstöðuna hér.
Það er bara verst, að það er
bannað að taka upp hljómplötur
hjá sjónvarpinu. Það stendur v£st
til að banna slíkar upptökur hjá
útvarpinu líka og þá er endan-
leg abúið að vísa plötufyrirtækj
unum út á götuna með sitt hljðm
listarfólk. Það eru ekki nema
fáar íslenzkar hljómsveitir, sem
eiga þess kost að láta taka upp
plötumar erlendis, þannig að ég
veit ekki hvað þá tekur við ís-
lenzkri hljómplötuútgáfu. Ég
hef reyndar heyrt talað eitthvað
um það, að Pétur Steingrímsson
magnaravörður með fleiru, séað
koma sér upp sínu eigin stúdíói
fyrir plötuupptökur — en þú
mátt alls ekki bera mig fyrir
þeirri sögu“.
a/w\aaaaaaaaaaa^w
Rætt við
Vigni gítnr-
leiknra liídas
um íslenzk
stúdíó
1. HLUTI
'VWWWWAA/WVWVN^
„Að hvaða leyti standa íslenzku
stúdíóin þeim erlendu aö baki?“
„Að flestu leyti held ég að mér
sé óhætt að segja. Fyrir það
fyrsta er það íslenzka aðeins eins
„trakka“, en þau tæki sem mest
em notuð í útlandinu eru sextán
„trakka“. Ég hef meira að segja
heyrt að hljómsveitir eins og
Blood, Sweat & Tears taki sfnar
plötur upp 1 32 „trakka“ stúdíói,
þannig að þú sérö, aö það er
engin smávegis aðstöðumunur
milli islenzkra og útlenzkra hljóm
listarmanna við plötuupptökur.
Og svo eru menn að reyna að
bera íslenzkar hljómplötur saman
við framleiðslu útlenzkra — ’a,
því líkt og annað eins . . dæs-
ir Vignir að lokum og snýr sér
að því að hjálpa hinum strákun-
um við að pakka saman.
Hér látum við staöar numið, en
í Pop-punktum þeim sem birtast
hér á síðunni n.k. fimmtudag verð
ur viðtal við Magnús Kjartansson
orgelleikara með Júdas um lögin
á plötunni og kemur þar margr
athyglisvert fram, m.a. það, að
Karl Sighvr'’~'on í Trúbrot sé
,,producer“ plötunnar (þ.e.a.s.
hann stjórnar upptökunni og ræð
ur jafnvæginu milli hljóöfæranna
annars vegar, og söngs og und!r-
leiks hins vegar), en það er ó-
hætt að fullyrða það, að þetta sé
i fyrsta skipti, sem íslenzk pop-
hljómsveit ræður sérstakan
mann til þeirra starfa fyrir hljóm
plötuupptöku. þjm