Tíminn - 19.12.1979, Side 3
Miðvikudagur 19. desember 1979.
mmm
Astro-spiliö, neöst i horninu hægra megin er mynd af tólffiötungnum.
Tólfflötungur - ný
íslensk uppfinníng
— er í Astro-spilinu frá Spilaborg
FRI — Tólfflötungur er teningur
meö tólf flötum og hefur Spila-
borg hannaö hann. Þetta mun
vera nýjung á markaöinum og
hefur Spilaborg ákveöiö aö gefa
út 5 spil meö þessum tening.
Snemma á næsta ári mun Spila-
borg siðan senda þessi spil á stóra
leikfangasýnihgu sem haldin
verður i Nurnberg.
Fyrsta spilið meö teningnum er
Astro-spilið en þaö byggir á
stjörnumerkjunum og mun ef-
laust mörgum þykja gaman að
þvi.
Hönnuðir spilanna eru Jón
Jónsson, Haukur Halldórsson og
Einar Þ. Asgeirsson.
Spil Spilaborgar hafa notið
mikilla vinsælda og er útvegs-
spilið nú að veröa uppselt.
Skák:
3 íslendingar keppa
erlendis um hátíðarnar
Um hátföirnar fara allmörg
skákmót fram i nágrannalöndun-
um og taka m.a. eftirtaldir Is-
lenskir skákmenn þátt I þeim:
Evrópumeistaramót unglinga
20 ára og yngri fer fram i Grön-
ingen i Hollandi dagana 20. des.
til 4. jan. og teflir þar af Islands
hálfu Jóhann Hjartarson, skóla-
skákmeistari Islands m.m.
Jóhann er tæpra 17 ára. Búnaðar-
banki Islands og Skákklúbbur
Búnaðarbankans standa undir
kostnaði við för hans, en Jóhann
hefur starfað i bankanum og teflt
meö góðum árangri i sveita-
keppnum fyrir hans hönd. I Grön-
ingen veröa tefldar 13 umferöir
eftir Monradkerfi en þátttakend-
ur verða frá yfir 30 löndu,.
(Simanúmer á keppnisstað:
Martini Hal Centrum 050-262826
ext. 16, á Euro Hotel 050 258400).
Jóhann hélt utan i morgun ásamt
Friðrik Olafssyni, forseta FIDE
sem mun verða viðstaddur mót-
setninguna.
Unglingamótiö I Hallsberg:
Þar teflir nýbakaður unglinga-
meistari Islands Elvar Guö-
mundsson, en þátttakendur eru
frá yfir 18 Evrópulöndum en auk
þess tefla jafnmargir Sviar. Mót-
ið fer fram dagana 27. des. til 4.
jan. Tefldar veröa z) umferðir
Monrad. (Slmar á keppnisstaö:
0582-12231 Hotel Stinsen 0582-
13920)þ
Opiö unglingamót I Skien dag-
ana 27. des til 2. jan. 1 þvi móti
teflir Lárus Jóhannesson, einn af
Norðurlandameisturum Alfta-
mýrarskóla i Grunnskólakeppn-
inni. Taflfélag Reykjavikur kost-
ar för hans. Tefldar verða 9 um-
ferðir Monrad. Mótiö fer fram á
Mullerhótel i Skien og er á vegum
Arnolds J. Eikrem, fyrrverandi
forseta Norska Skáksambands-
ins, sem stendur fyrir fjölmörg-
um mótum i Noregi á þessu ári.
Einingar úr trefjaplasti
— með þeim er stefnt að lækkun
byggingarkostnaðar
eru það fljótt ásettar aö fram-
leiöslustöövun er óþörf. Til-
gangurinn með þeim er einnig að
lækka byggingarkostnaö.
Að sögn framkvæmdastjóra
Pólarhúsa hf. Haraldur Stein-
grimssonar þá eru þessar ein-
ingar einnig hentugar I sláturhús,
frystiklefa, og böð Iþróttahúsa, og
staðlaða fataskápa úr trefjaplasti
fyrir vinnustaöi, skóla og Iþrótta-
hús.
FRI — Fyrir ári siöan stofnuöu
nokkrir iönaöarmenn Pólarhús hf
i þeim tilgangi aö taka aö sér
vandasamar viögeröir, svo sem
lekaþéttingar og viögeröir vegna
frostskemmda I steinsteypu meö
•sérhönnuöum innlendum og er-
lendum viögeröarefnum.
Félagiö er nh meö I hönnun ein-
ingar úr trefjaplasti til innan-
húss-klæðningar frystihúsa, sem
Vináttufélag Islendinga
og Norðmanna stofnað
í Drammen
FRI — Þann 9. des. s.l. var
stofnaö vináttufélag tslendinga
og Norömanna i Drammen i
Noregi. A stofnfundinn mættu 75
manns. Takmark félagsins er
aö vera félagsskapur tslendinga
og Norömanna, sem miöi aö þvi
aö auka þekkingu og kynni ein-
staklinga og þjóöanna.
Það mun vera ætlun félagsins
að halda fúndi með þetta fyrir
augum bæði skemmti- og starfs-
fundi, þar sem fólk getur komiö
saman, rætt um málefni og
lesið blöð og timarit. Einnig er
stefnt aö menningartengslum,
myndlistarsýningum og kynn-
ingum listamanna. Hefur
félagið þegar farið þess á leit
viö Svein Björnsson listmálara i
Hafnarfirði að halda sýningu i
Drammen og hefur hann tekiö
vel í það.
Formaður félagsins var kjör-
inn frú Sigriður Vilhelmsen.
Egilsstaðir:
Oflug byrjun hjá
menntaskólanum
FRI — „Þetta hefur veriö mjög
öflug byrjun hjá okkur” sagöi
Vilhjálmur Einarsson skóla-
stjóri menntaskólans á Egils-
stöðum I samtali viö Timann en
fyrstu önn skólans fer nú að
Ijúka.
„Ýmsir byrjunarörðuleikar
komu I ljós i haust en okkur
hefur gengiö vonum fremur að
eiga viö þá.
Nemendur viö skólann eru nú
um 100 og kennarar 16, 8 fast-
ránir og 8 stundakennarar.
Kennt er eftir áfangakerfi og
eru 4 brautir þess nú svo til full-
mótaðarogsú fimmta er i smið-
um. Brautirnar eru uppeldis-,
viðskipta- mála, og náttúru-
fræöibraut.
Félagslif nemenda hefur
veriö gott þessa fyrstu önn. Þeir
fóru um Austurland með
skemmtidagskrá undir heitinu
Austurland 79 og var þeirri dag-
skrá alls staðar vel tekið. Að
visu komust þeir ekki með hana
á tvo staði en þangaö er ætlað að
fara eftir áramót.
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
stjóri
Einnig tókst nemendum að
koma af stað ljósmyndagerð nú
rétt fyrir jólin og þeir tóku að
sérað mála og skreyta sal sem i
framtiðinni er ætlaður sem
borðsalur svo eitthvað sé
nefnt.”
Kennarar á heimavist-
inni
„Byrjunarörðuleikarnir voru
meðal annars fólgnir i mikilli
húsnæðiseklu hjá okkur” sagði
Vilhjálmur. „Sem dæmi get ég
nefnt að 7 kennarar bjuggu á
heimavist nemenda og I byrjun
þá þurftu 4 nemendur aö deila
með sér hverju herbergi. Við
höfum sé fyrir endann á versta
vandanum en það er spurning
hvort viö getum haldið öllum
þessum ágætu kennurum áfram
vegna húsnæöiseklunnar sem
enn hrjáir okkur.
Meö menntaskólanum og öör-
um skólum á Austurlandi hefur
tekist ágætis samstarf.
Skólarnir hafa skipað sameigin-
lega stjórnunarnefnd undir for-
sæti Sigurðar G. Sigurðssonar,
kennara við menntaskólann, en
hún samræmir kennslutilhögun,
prófgerð og samstarf allra skól-
ann.
Það er vinsælt meðal nem-
Framhald á bls. 19.
Jafnan
fyrirliggjandi
í miklu úrvali
RAFMAGNS
HANDVERKFÆRI
1439 H
Heimillsborvél
Mótor: 380 wött
Patróna: 10 mm
Stiglaus hraðabreytir í rofa: 0-2600 sn/mín
Höggborun: 0-36000 högg/mín.
1417 H.
Heimilisborvél
Mótor: 420 wött
Patróna: 13 mm
Stiglaus hraðabreytir í rofa og tvær fastar
hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn/mín.
Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra
fylgihluta, svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússi-
kubbur og limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má
tengja við borvélina með einkar auðveldum hætti, svo
nefndri SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernd-
uð uppfinning SKIL verksmiðjanna, Ekkert þaft að
fikta með skrúfjárn eða skiptilykla heldur er
patrónan einfaldlega tekin af, vélinni stungið
í tengistykkið og snúið u.þ.b. fjórðung úr
hring, eða þar til vélin smellur í farið. Fátt
er auðveldara, og tækið ertilbúið til
notkunar. Auk ofangreindra
fylgihluta eru á boðstólum
hjólsagarborð, láréttir og lóð-
réttir borstandar, skrúfstykki,
borar, vírburstar, skrúfjárn og
ýmislegt fleira sem eykurstór-
lega á notagildi SKIL heimilis-
borvéla.
ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL
Einkaumboö á íslandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Eigum einnig fyrirliggjandi
margar fleiri gerðir og stærðir
af SKIL rafmagnshandverkfærum.
Komið og skoðið, hringið eða
skrifið eftir nánari upplýs-
ingum.