Tíminn - 19.12.1979, Qupperneq 6
6
Miövikudagur 19. desember 1979.
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvætndastjórn og auglýsingar Siöumúla 15 simi
H8300. — Kvöidsimar biaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr.
4000ámánuöi. Blaöaprent.
í fullri vinserad
í samræmi við úrslit kosninganna hafa forystu-
menn Framsóknarflokksins lagt á það allt kapp að
ný vinstristjórn verði mynduð og taki sem allra
fyrst til starfa á grundvelli samræmdrar heildar-
stefnu.
Stjórnarmyndun má ekki dragast öllu lengur, þvi
að sannleikurinn er sá að vandamálin hrannast upp
dag frá degi og bráðabirgðastjórnin, sem baslast á
stólunum, hefur enga stöðu til þess að gripa á þeim.
Það sem einkum hefur vakið athygli undan farna
daga eru þær skærur sem standa i þinginu milli
Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins. Meðan
fulltrúar þessara flokka sitja á viðræðufundum
undir handleiðslu Framsóknarmanna verður þess
ekki vart að neinar málefnalegar hindranir séu i
vegi fyrir þvi að flokkarnir geti unnið saman að þvi
að sigrast á verðbólgunni i áföngum með markviss-
um aðgerðum á grundvelli tillagna Framsóknar-
manna.
En þegar að þvi kemur að standa saman i kosn-
ingum i trúnaðarstöður á Alþingi er eins og þeir noti
hvert tækifærið til að klekkja hvorir á öðrum. Einu
gildir hvort um er að ræða kjör forseta i þinginu eða
þingnefnda.
Svo rammt kveður að þessum undarlegu slags-
málum, að þessir flokkar geta ekki einu sinni tekið
höndum saman um að hjálpast að, i þvi skyni að
auka áhrif sin i nefndum þingsins. Framsóknar-
flokkurinn hafði boðið A-flokkunum fullkominn
stuðning i nefndakosningunum, þannig að þeir
fengju á vixl viðbótarfulltrúa i nefndunum.
En sei, sei, nei. Þeir geta ekki einu sinni hjálpast
að til að auka áhrif sin. I kjöri mikilvægustu nefnd-
ar Alþingis, fjárveitinganefndarinnar, var fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins meira að segja kjörinn með at-
kvæði þingmanns úr Alþýðuflokknum. Þó lá það
fyrir að Framsóknarflokkurinn hefði veitt A-flokk-
unum liðsinni til að tryggja öðrum hvorum þeirra
þetta nefndarsæti, og máttu þessir flokkar siðan
ráða þvi hvor fengi formannssætið i nefndinni.
Tilboð Framsóknarmanna er að sjálfsögðu liður i
þeirri viðleitni að mynda vinstristjórn, rétt eins og
var um forsetakjörið i þinginu. Afstaða Fram-
sóknarmanna hefur algerlega miðast við það, að
verið er að koma á málefnalegu samkomulagi sem
hlýtur að fela i sér samkomulag um skiptingu
trúnaðarstarfa.
A þvi leikur ekki nokkur vafi að allur almenning-
ur tekur undir varnaðarorð forseta íslands sem
hann lét falla við þingsetningu i siðustu viku.
Stjórnmálamenn verða að gera sér það ljóst að
þjóðin er óþolinmóð. Henni var kastað út i
kosningar þegar mest reið á að gripið yrði á vanda-
málunum. A laggirnar var sett máttlaus
minnihlutastjórn þegar mest reið á að styrk og
samhent meirihlutastjóm hefði forystu um úrlausn-
ir.
Þetta bentu Framsóknarmenn á þegar á sl.
hausti. Og þeir bentu á það i kosningabaráttunni að
óvist væri hvort kosningamar leystu i sjálfu sér
nokkurn vanda.
En i fullri vinsemd og i fullum vilja til samvinnu
og samkomulags verður að benda fulltrúum og for-
ystumönnum Alþýðuflokksins og Alþýðubanda-
lagsins á það að þjóðin hefur skömm á pólitiskum
skripalátum eins og þjóðmálin standa.
JS
Erlent yfirlit
Fæst Trudeau til að
hætta við að hætta?
Þingkosningar verða í Kanada í febrúar
ÞAÐ KOM eiginlega öllum
stjdrnmálaflokkum i Kanada á
óvart, aö minnihlutastjórn
Ihaldsflokksins skyldi falla eins
fljótt og raun varö á. Helzti
stjórna randstööuf lokkurinn,
Frjálslyndi flokkurinn, var sizt
viö þessu búinn, þvi aö formaö-
ur hans, Pierre Trudeau, fyrrv.
forsætisráöherra, haföi nýlega
tilkynnt, aö hann myndi afsala
sér formennskunni á þingi
flokksins, sem hefur veriö boöaö
28. marz næstkomandi. Þegar
Trudeau tilkynnti þetta, reikn-
aöi hvorki hann eöa flokkurinn
meö þvi, aö þingkosningar
myndu fara fram fyrir þann
tima, en þær hafa nú veriö boö-
aöar 18. febrúar.
Þetta hefur þaö m.a. I för meö
sér, aö annaö hvort veröur
Trudeau aö lýsa yfir þvi, aö
hann muni halda áfram forust-
unni og veröa forsætisráöherra,
ef flokkurinn ber sigur úr být-
um, eöa flokkurinn veröur aö
velja sér nýjan formann a.m.k.
tveimur mánuöum fyrr en hann
haföi ráögert, en viö þvi er hann
illa búinn, þvi aö enginn þykir
sjálfkjörinn eftirmaöur
Trudeaus.
Minnihlutastjórn Ihalds-
flokksins undir forustu Joe
Clark kom til valda i júnibyrjun
siöastl., en Frjálslyndi flokkur-
inn missti meirihluta sinn á
þingi i kosningunum, sem fóru
fram 22. mai siöastl. Þingiö kom
svo ekki saman fyrr en I október
oghafa veriö bornar fram fimm
vantrauststillögur á stjórnina
siðan. Þær hafa allar veriö
felldar, þvi aö Social-Credit
flokkurinn, sem hefur fimm
þingmenn, hefur greitt atkvæöi
meö henni, og Frjálslyndi flokk-
urinn hefur gætt þess aö láta
alltaf eitthvaö af þingmönnum
sinum vera fjarverandi. Frjáls-
lyndi flokkurinn óskaöi ekki
eftir kosningum aö sinni, enda
er þaö hefö i Kanada, aö minni-
hlutastjórnfái eitthvert ráörúm
til aö sanna sig.
ÞAÐ VAR flokkur nýdemó-
krata, sem bar fram vantraust-
iö aö þessu sinni. Tilefniö var
fjárlagafrumvarp rlkis-
stjórnarinnar. Þaö þykir mjög
ihaldssamt. Bæöi Frjálslyndi
flokkurinn og flokkur nýdemó-
krata telja, aö samdrátturinn,
sem frumvarpiö gerir ráö fyrir,
sé svo mikill, aö hann muni ó-
hjákvæmilega leiöa til atvinnu-
leysis.
Aður en greint er frá at-
kvæöagreiöslunni um van-
traustiö aö þessu sinni, sem fór
fram siöastl. fimmtudag er rétt
að rifja upp stööuna i þinginu.
Úrslit þingkosninganna I mai
siöastl. uröu þau, aö íhalds-
flokkurinn fékk 136 þingsæti,
Pierre Trudeau
Frjálslyndi flokkurinn 114,
flokkur nýdemókrata 26 og Soci-
al-Credit flokkurinn 6. Siöan
hafa nýdemókratar unniö eitt
sæti af Social-Credit flokknum i
aukakosningu. Minnihlutastjórn
íhaldsflokksins hefur byggzt á
þvi, aö Social-Credit flokkurinn
hjálpaöi henni til aö fella van-
traust.
Þrennt átti sinn þátt I þvi, aö
vantrauststillagan var
samþykkt með 139 gegn 133 at-
kvæöum. 1 fyrsta lagi vantaöi
þrjá þingmenn lhaldsflokksins,
þar á meöal utanrikisráöherr-
ann, Floru MacDonald, sem var
stödd á ráöherrafundi Nato. í
ööru lagi voru nú mættir allir
þingmenn Frjálslynda flokks-
ins, nema tveir, en vegna þess,
aö hér var um fjárlagafrum-
varpiö aö ræöa, þótti flokknum
ekki hlýöa aö láta marga þing-
menn vera fjarverandi eins og
viö fyrri atkvæöagreiöslur um
vantrauststillögur. 1 þriöja lagi
sátu þingmenn Social-Credit
flokksinshjá.Þeirvorum.a. óá-
nægöir meö tillögur rikis-
stjórnarinnarum veröhækkun á
oliu, en þeir eru flestir frá
sveitakjördæmum, þar sem
oliunotkun er mikil.
Þau uröu viöbrögö Clarks for-
sætisráöherra aö ganga strax á
Ed Broadbent.
fund landstjórans og leggja til
aö þing yrði rofið og efnt til
kosninga 18. febrúar. Land-
stjórinn varö aö sjálfsögöu viö
þeirri ósk.
ÞAÐ hefur venjulega reynzt
minnihlutastjórn i Kanada hag-
stætt, þegar hún hefur veriö
feild áöur en hún fékk ráörúm til
að sýna stefnu sina i verki. Þaö
er hins vegar taliö vafasamt, aö
Clarkgræöi á þessu.Stjórn hans
hefur fáttunnið sér tilágætis, en
gert ýmislegt, sem hefur oröiö
óvinsælt. Skoöanakannanir gefa
til kynna, aö íhaldsflokkurinn
hafi veriö aö tapa. Samkvæmt
siðustu skoöanakönnunum haföi
hann aöeins fylgi 29% kjósenda,
en hann fékk 36% greiddra at-
kvæöa I kosningunum I mai.
Frjálslyndi flokkurinn haföi
hins vegar fylgi 46% kjósenda,
en fékk 40% greiddra atkvæöa í
vorkosningunum. Nýdemókrat-
ar höföu þó aukiö fylgi sitt
meira. Þeir fengu 16% greiddra
; atkvæöa I kosningunum i mai,
en samkvæmt siöustu skoöana-
könnunum hafa þeir fylgi 23%
kjósenda. Þessi niðurstaöa mun
hafa ýtt undir, aö þeir fluttu
áöurnefnda vantrauststillögu
núna. Foringi nýdemókrata, Ed
Broadbent, virðist njóta vax-
andi álits. Nýdemókratar hafa
sennilega viljaö nota sér óviss- '
una, sem rikir um forustu
Frjálslynda flokksins, meöan
• eftirmaöur Trudeaus hefur ekki
verið valinn.
Eins og framangreindar tölur
berameö sér, fékk Ihaldsflokk-
urinn mun færri atkvæði en
Frjálslyndi flokkurinn I
kosningunum siöastl. vor, þótt
hann fengi fieiri þingmenn.
Þetta stafaði af kosningafyrir-
komulaginu, en kosiö er i ein-
menningskjördæmum i
Kanada. Llklegt þykir, aö þetta
fyrirkomulag muni enn reynast
flokknum hagkvæmt. Hann
þykirliklegur tiiaö vinna áfram
flest þingsætin i vestur-fylkjun-
um, en aö Frjálslyndi flokkur-
inn muni vinna nær öll þingsæt-
in i Quebec. Aðalbaráttan milli
flokkanna veröur I
Ontario-fylki, en þar eru kjörnir
95 þingmenn, en alls eiga 282
þingmenn sæti á þingi Kanada.
Þ.Þ.