Tíminn - 19.12.1979, Síða 12
12
MiOvikudagur 19. desember 1979.
Tíu þúsund kassar af
jólaeplum
— sala Sambandsins á eplum í desem-
ber fimmföld á við aðra mánuði ársins
FRI — lslendingar eru fast-
heldnir á góða siði og einn af
þeim er að kaupa eplakassa
fyrir jólin. Birgðastöð Sam-
bandsins mun hafa fest kaup á
tiu þúsund kössum af epium
fyrir þessi jói en það er svipað
magn og selt var i fyrra.
„Viö höfum verið heppnir
meö eplakaupin I ár” sagöi Þor-
bergur Eysteinsson deildar-
stjóri Birgðastöðvar SIS i sam-
tali við Timann. Bæði hvað
varöar verð, gæði og afgreiöslu.
„baö er mikil jólasala i eplum
miöaö viö venjulega sölu, en
þetta er nærri fimmföld mán-
aöarsala miöaö viö aöra mánuöi
ársins.”
„Ugglaust er þetta ekki allt
étiö um jólin” sagöi Þorbergur
ugglaust éta menn eplin eitt-
hvaö fram i janúar eöa ég geri
ráö fyrir því aö minnsta kost.
Eplin koma frá ýmsum
heimshlutum, talsvert kemur
frá Bandarikjunum og einnig
frá Kanada auk þess sem eplin
eru keypt i Frakklandi og Ung-
verjalandi.
Appelsinur eru ekki eins
mikill jólamatur en i sölu þeirra
kemur enginn merkjanlegur
kippur fyrir jólin.
Epli eru ávallt jafnvinsæi fyrir jólin. Tfmamynd Tryggvi
Æm. mmr jmmr æ. 'wmm,
Hjartanlega |
velkomin(n) í hóp þeirra er veita endurskinsmerkjum athygli. í 1
hópnum eru jafnt ungir sem gamiir, og allir hafa skilið að endur-^
skinsmerkið er okkur mikil vörn í skammdeginu, — slysavörn, —^
getur jafnvel verið líftrygging. Þeir vita, að þeir sjást allt að fimm ^
sinnum fyrr en ella með því að bera endurskinsmerki. JíB
ER ÞETTA EKKI
UMHUGSUNARVERT?
Þeir vita líka að slys eru ekki lengi að verða og henda ekki aðeins
þá sem við ekki þekkjum eóa koma okkur alls ekki vió. Ef þú átt
ástvin, barn, gamlan föður eða móóur, lestu þetta þá öðru sinni.
En endurskinsmerki má nota á margvíslegan hátt.
VÆRI EKKI UMHUGSUNARVERT
. . . fyrir forstöðumenn fyrirtækja að veita starfsfólki sínu mikil-
væga slysatryggingu til og frá vinnustað?
.. . fyrir skjólfataframleiðendur að senda ekki aðeins flíkur á
markað sem vernda gegn kulda og regni heldur líka slysum?
. . . fyrir skóla að rétta verndarhönd út í umferðina til þeirra er
þeim hefir verið trúaö fyrir?
... fyrir eigendur vinnuvéla, reiðhjóla og barnavagna að eitt eða
tvö lítil endurskinsmerki geta bjargað dýrmætu mannslífi?
JÁ, VÆRI SLÍKT EKKI
UMHUGSUNARVERT?
Umferóarráð vekur athygli á:
... að skólar, bæjarfélög, fyrirtæki, félagasamtök o.fl., geta
fengiö endurskinsmerki áprentuð með einkennum sínum.
... að við höfum endurskinsmerki á hross.
... að við eigum líka endurskinsörvar sem líma má innan í bíl-
hurðir, og blasa við sé hurö opnuð út í umferðina.
VIÐ TELJUM að endurskinsmerki þurfi að bera svo þau komi að
notum. Því viljum viö koma þeim til þín. Þau fást í allflestum
mjólkurverslunum landsins, og auk þess í mörgum ritfanga- og
bókaverslunum. Okkur væri þökk í að þeir sem fúsir eru að annast
sölu þessara LÍFSNEISTA hefðu sem fyrst samband við okkur.
Síminn er 27666.
y
UMFERÐAR
RÁÐ
Lindargötu 46
101 Reykjavík.
Þetta vísar veginn.
Svona spjald er í þeim verslunum
sem selja endurskinsmerki.
Endurskinsmerkin auka öryggið.
Dökkklæddur vegforandi sést
í aðeins 20-30 m. fjarlægð
fró lágljósum bifreiðar.
Vegfarandi
með endurskinsmerki
sést í 120-130 m. fjarlægð.
Vegna hagstæöra innkaupa getum viö nú boöiö nokkrar
samstæöur af þessum vinsælu norsku veggskápum ó
lækkuöu veröi.
Húsgögn og^
. , . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900
Leikfangabúðin
Iðnaðarhúsinu - Hallveigarstíg 1