Tíminn - 19.12.1979, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 19. desember 1979.
13
Ný plata
með sum-
artónleik-
um í Skál-
holtskirkju
1 þessari viku kom út ný hljóm-
plata með þeim Manuelu Wiesler
flautuleikara og Helgu Ingólfs-
dóttur semballeikara. Platan var
tekin upp i Skálholtskirkju i nóv-
ember siðastliðnum og ber nafnið
Sumartónleikar i Skálholtskirkju.
Þær Manuela og Helga hafa
undanfarin 5 ár staðiö fyrir reglu-
legu tónleikahaldi i kirkjunni. A
plötunni eru sónötur eftir Johann
Sebastian Bach og Georg Frid-
rich Handel og tvö ný Islensk verk
samin fyrir Manuelu og Helgu til
flutnings á sumartónleikunum.
Verkin eru Stúlkan og Vindurinn
eftirPál P. Pálsson og Sumarmál
eftir Leif Þórarinsson. Þær
Manuela og Helga standa sjálfar
að útgáfu plötunnar en Falkinn
hf. sér um dreifingu.
Verkamannasamband
íslands:
Aiþingi
samþykki
framvarp um
eftirlaun fyrir
aldraða fyrir
áramót
Á fundi i framkvæmdastjórn
Verkamannasambands tslands
sem haldinn var sl. laugardag,
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt:
Framkvæmdastjórn VMSI
samþykkir að skora á Alþingi að
samþykkja frumvarp um eftir-
laun aldraðra fyrir áramót.
Fundurinn bendir á, að verði
samþykkt áöurgreinds frum-
varps frestaö, munu 4-5 þúsund
aldraöra búa viö óþolandi rétt-
indaleysi, sem vissulega er Is-
lensku þjóðfélagi til vandæmdar.
Þorva/dur Ari
Arason
lögfræðingur
Fyrirgreiðslustofa
Innheimtur,
eignaumsýsla
Smiðjuvegi 9, hús Axels
Eyjólfssonar Kópavogi
simar 40170 og 17453
Box 321 Rvk.
Islenskt ævintýri
Jóhannes Helgi: A brattann.
Agnar Kofoed Hansen rekur
minningar sinar.
Almenna Bókafélagið 1979.
331 bls.
Flugið er orðinn svo snar
þáttur I islensku þjóðlifi að fáir
gerast nú til þess að renna hug-
anum til þeirra tima er það þótti
viðburður ef flugvél sást á flugi
yfir landinu, hvað þá islensk
flugvél, sem stjórnað var af Is-
lenskum mönnum. Og þó er ör-
stutt siðan flugið virtist fjar-
lægur draumur og þeir voru
álitnir óforbetranlegir draum-
óramenn, sem létu sér til hugar
koma að flugvélar yrðu mikil-
væg samgöngutæki hér á landi.
Einn þessara draumóra-
manna var Agnar
Kofoed Hansen flugmálastjóri.
Hann hreifst ungur af fluginu,
lærði að stjórna flugvélum og
braust slðan I þvi að fá landa
sina til þess aö nýta þetta nýja
samgöngutæki. Undirtektirnar
sem hann fékk hjá ráðamönnum
voru daufarað svo mörg<um
nútimamanninum kann að
þykja sem islenskir valdamenn
hafi verið með eindæmum hug-
smáir. En þeim var nokkur
vorkunn. Kreppan var I al-
gleymingi og þar að auki höfðu
fyrstu tilraunir til flugsam-
gangna hérlendis fengið þann
endi að ekki var til þess að auka
tiltrú manna á þessu samgöngu-
tæki. En Agnar lét ekki deigan
siga og svo fór að hann komst i
kynni við mann norður á Akur-
eyri, sem kreppan hafði litil ir
hrif haft á. Flugfélag var
stofnað og flugsamgöngur hóf-
ust fyrir alvöru á Islandi.
Saga Agnars Kofoed-Hansen
er saga brautryðjanda i íslensk-
um flugmálum, hún er saga
manns, sem ungur fékk trú á
nýjung, sem þá var að ryðja sér
til rúms i veröldinni, og þráði
ekkert heitar en að gera hana að
starfi sinu og jafnframt opna
leið til bættra samgangna á ts-
landi. Þetta er saga ofurhuga,
sem gafst aldrei upp og hætti
ekki fyrr en hann hafði sitt
fram. Með þessu er auðvitað
ekki sagt að tslendingar heföu
aldrei flogið ef Agnars heföi
ekki notið við. Það hefðu þeir
auðvitað gert, en verk braut-
ryðjandans er alltaf mikil-
vægast.
Agnar kemur viða við I minn-
ingum sinum. Hann segir frá
bernsku- og æskuárum slnum,
frá námi erlendis og síðast en
ekki sist frá störfum að flug-
málum á tslandi. Að lestri
bókarinnar loknum fer ekki hjá
þvi að lesandinn spyrji sjálfan
sig: Hvernig i ósköpunum hefur
maðurinn lifað allt þetta af? Svo
furðuleg voru ævintýrin, sem
sögumaður hefur ratað i. Það er
ævintýralegt að lesa um nætur-
flugin með Lufthansa til ýmissa
borga i Evrópu þegar lóðaö var
Agnar Kofoed Hansen
á borgum á borð viö Paris til
þess að athuga flughæðina! Og
ekki voru hætturnar minni
þegar heim kom. Hér voru
engin flugleiðsögutæki, engir
flugvellir, engin öryggis-
þjónusta við flug, ekkert, nema
bjartsýni og áræði, sem oft á
tiðum hlýtur að flokkast undir
fifldirfsku. Agnar segir margar
sögur og góðar af fluginu en þó
hygg að sú sé dæmigerðust um
gang mála er hann var að
þvælast rammvilltur i niðaþoku
yfir Norðurlandi og lét sér helst
til hugar koma að reyna að
finna Snæfellsjökul og lenda þar
upp i móti meö peysufata-
klædda frú og kasthjól i sildar-
verksmiðju innanborös!
Mörgum munu verða slikar
sögur af hættum og ævintýra-
legum flugferöum minnisstæð-
astar eftir lestur þessarar
bókar. Engu að siður viröist
mér sem hér sé á ferðinni verk,
sem geymi mikilsverðar
heimildir um yngsta.en kannski
mikilvægasta þáttinn, i sam-
göngumálum okkar.
Jóhannes Helgi hefur skráð
minningar Agnars og tekist
ljómandi vel upp. Með stuttum
innskotsköflum sýnir hann
manninn Agnar Kofoed-Hansen
i nokkuö öðru ljósi en fram
kemur i frásögn Agnars sjálfs.
Þeir þættir eru mikilsverðir og
hljóta að auka lesendum þekk-
ingu á sögumanni.
Þessi minningabók nær til
ársins 1939 er Agnar geröist lög-
reglustjóri i Reykjavik. Ég vildi
leyfa mér að skjóta þvi að þeim
félögum og útgefendum, að
minningar lögreglustjórans frá
striðsárunum og siðar flug-
málastjóra ættu kannski ekki
siður erindi til lesenda. Sú bók
yrði varla jafnævintýraleg en
trúlega engu ómerkari. Af þess-
um tveim störfum er mikil
saga.
Jón Þ. Þór.
LEIKFONG
í þúsundatali
Auglýsið í
Tímanum
MÓDEL:
Bilar . .kr. 3.180.-
Flugvélar kr. 780.— 1.325.-
PCSSLUSPIL:
750 stk kr. 3.615.-
1000 stk kr. 3.775.-
2000 stk kr. 8.485.-
4000 stk kr. 14.900.-
Minni pússluspil kr. 1.110.— 2.000.-
BÍLAR:
Lögreglujeppi m/stýrisstöng . . kr. 4.445,-
Honda . kr. 6.180,-
Lögreglubill m/rafhlöðu . kr. 4.900,-
Lögreglubill m/stjórnsnúru... . kr. 4.015.-
Rally m/snúru kr. 3.875.-
JOUSTRA sterkur jeppi kr. 4.320.-
JOUSTRA brunabill kr. 5.880.-
JOUSTRA traktor m/kerru... kr. 6.100.-
JOUSTRA jeppi, stór kr. 17.645,-
JOUSTRA grafa m/snúru .... kr. 22.320,-
JOUSTRA krani m/snúru kr. 9.100.-
JOUSTRA BRAYO, 4 gerðir .. kr. 4.300.-
Smærri bilar frá kr. 1.325.-
BÍLABRAUTIR:
SLOTRAGE No202 .. ..kr. 10.680.-
MATCHBOX L-4000 rafm. .... kr. 34.000.-
MATCHBOX L-3000 rafm. .. ..kr. 29.975.-
MATCHBOX S- 100 .... kr. 6.870.-
MATCHBOX S- 200 .... kr.i 4.245.-
MATCHBOX S- 400 ... .kr.' 7.850.-
MATCHBOXS- 700 .... kr. 10.135.-
DUKKUR: 20 teg. frákr.2 720.- — 12.765.-
Bollasett .... kr. 2.094.-
Bollasett kr. 3.054,-
Uppþvottavél .... kr. 7.635.-
Eldavél .... kr. 9.025.-
Strauborð og straujárn ... ....kr. 4.515.-
Þvottavél .... kr. 6.995.-
Saumavél .... kr. 6.530.-
Saumavél .. ..kr. 11.820.-
Innanhússimar, 2 tæki.... .. ..kr. 15.000.-
MATCHBOX FARM .... kr. 17.530.-
FISHER PRICE
barnaheimili .... kr. 15.225.-
FISHER PRICE
hleðslustöð .... kr. 18.865,-
Geimflaug m/rafhlöðu ... .... kr. 6.145.-
Fljúgandi diskar .... kr. 2.560.-
Þetta er lítii upptalning af þeim mikla fjölda leikfanga, sem við höfum á
boðstólum. Við höfum kannað það, að okkarverð er mjög hagstætt.
Komið og sannfærist sjálf.
STÓRMARKAÐURINN
SKEMMUVEGI 4A KÓPAVOGI