Tíminn - 05.01.1980, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.01.1980, Blaðsíða 16
Gagnkvæmt tryggingafé/ag Auglýsirigadeild Tímans. 118300 FIDELITY HLJÓMFLUTNINGSTÆKI Pantiö myndalista. Sendum í póstkröfu. ^MÍNUAI Vesturgötu II wWHfHL simi 22600 ■■■■■ - Lögreglan i eltingaleik við þjófa FRI— 1 fyrrinótt kom lögreglan að f jórum unglingum er voru að yfirgefa Breiðholtsskólann. Er unglingarnir, sem voru á aldrinum 15-16 ára, urðu varir við lögregluna dreifðu þeir sér i allar áttir og tóku til fótanna. Lögreglan hóf þegar að elta þá og náði þeim brátt. Meðan á elt- ingaleiknum stóö fleygðu ungl- ingarnir frá sér peningakassa til að létta sér hlaupin en það dugði ekki til. Innbrotsþjófarnir fjórir reyndust hafa hnuplað úr skól- anum 40.000 kr., peningakassa og strætómiðum fyrir um 100.000 kr. Sauðárkrókur: Rannsókn á ólátunum í fullum gangi FRI — Rannsókn lögreglunnar á Sauðárkróki og RLR á óspekt- um þeim, er urðu á Sauðárkróki um áramótin, er nú I fullum gangi og margir hafa verið yfir- heyrðir. Aö sögn lögreglunnar, þá eru þeir nú að koma saman heildarmynd af atburöinum, en eins og getið hefur verið um réð- ist hópur unglina á lögreglu- stööina á Sauöárkróki og kveiktu i henni. Aöspurð kvaðst lögreglan ekki geta nefnt ákveðna forsprakka en hægt værí aö segja aö 2-3 unglingar hefðu öðrum fremur haft sig i frammi i þessum ólátum. Öryggisráðið: ísland vill ræða Afganistanmáiið Island er meðal 43 rikja, sem I gærkvöldi afhentu forseta öryggisráös Sameinuöu þjóöanna bréf með ósk um að boðaður yrði sérstakur fundur i öryggisráðinu til að ræða ástandiö i Afghanistan og áhrif þess á heimsfriðinn. beir 43 fastafulltrúar, sem undirrituöu bréfið til forseta ráðsins, eru fulltrúar rikja i öllum hlutum heims. Sjómannasambandið skipar nefnd til að undirbúa kjarakröfur Sjáum ekki hvernig við getum tryggt kjör okkar manna — með ttUltl til þess sem fyrir hendi er hjá öðrum launþegum i landinu JSS — Framkvæmdastjórnar- fundur Sjómannasambands Islands var haldinn i gær. A fund- inum var m.a. lagöur grunnur að tilnefningu 6—8 manna i nefnd sem siðan mun vinna aö uppsetn ingu kjarakrafna. Ekki var sú nefnd skipuð endanlega, en þaö verður væntanlega gert nú um helgina. Timinn hafði samband við Oskar Vigfússon formann Sjómannasambandsins i gær og innti hanneftir þvi, á hvaða atriði yrði einkum lögð áhersla i komandi kjarasamningum. Kvaðst hann ætla að slikt færi alfariö eftir þvi hvernig mál myndu skipast hjá heildarsam- tökum launþega og þeirri stefnu sem þar yrði uppi. ,,Ég á von á þvi að i okkar hópi geri menn sér fulla grein fyrir þvi ástandi sem nú rikir i efnahagsmálum almennt séð afleiðingum þess, sem ekki er séð fyrir endann á. Ég á von á að viö tökum mið af þvi I sambandi við þaö sem við gerum i þessum efnum”. Óskar sagöi ennfremur að fyrir engum væri eins óljós framtið og fyrir sjómannastéttinni nU. Hún hefði nú aö baki verðbætur til hins almenna launþega upp á 13.2% og enn væri ekki séð fyrir endann á þvi hvernig mál skipuðust i Verðlagsráði sjávarútvegsins. „Sú krafa sem er uppi að okkar háifu, er að við fáum hinar sjálf- sögðu bætur okkur til handa, en engin ábyrg rikisstjórn er fyrir hendi til að taka afstöðu til þess máls. Inn I myndina kemur svo vitaskuld að okkar hálfu hvað verður uppi á teningnum varðandi fiskveiöibætur þeirra stjórnvalda sem ábyrg kunna að veröa á næstu dögum vikum eða mánuöum. Þetta veldur okkur mjög miklum áhyggjum, þvi við sjáum ekki hvernig við eigum að tryggja kjör okkar manna með tilliti til þess sem nú er fyrir hendi hjá öðrum launþegum I landinu” Loks sagöi Óskar að sjómenn væru nú að leysa landfestar og sigldu algjörlega út i hreina óvissu. Slikt ástand hefði sldan verið fyrir hendi um áramót, að sjómenn vissu ekki hvernig þeirra tekjumöguleikar yrðu með tilliti til þess verös sem þeir ættu að fá fyrir sitt hráefni, né hvað uppi yrði I sambandi við möguleika þeirra á að afla sér þeirra tekna með tilliti til aðgerða stjórnvalda I fiskfriðunarmálum. Miklar framkvæmdir I Borgarnesi: Unnið að byggingu rúmlega 26.000 rúmmetra mjólkursamlags Framkvæmdir að hefjast við nýtt skólahús JSS — Undanfariö hefur veriö unnið að framkvæmdum viö nýtt mjólkursamlag I Borgarnesi og eru þær langt komnar. Byggingin er 26.182 rúmmetrar að stærð og er stefnt að þvi að hún verði öll tekin i notkun næsta haust. Áð sögn Guðmundar Ingi- mundarsonar oddvita I Borgar- nesi hefur hluti hússins þegar verið tekinn i notkun og eru þar ostageymslur o.þ.h. I haust verður starfsemi gamla samlags- ins þ.e. móttaka og úrvinnsla mjólkur flutt i nýju bygginguna, en þangað veröa keyptar nýjar vélar til fjölbreyttari og full- komnari framleiðslu. Er m.a. stefnt að nýjungum I ostagerð. Þá hefjast næstu daga fram- kvæmdir við nýtt skólahús i Borgarnesi, og verður það byggt við gamla skólann. Fyrirhugað er að byggingin risi i tveim áföng- um, sem eru samtals 5200 rúm- metrar að stærð. Þarna er einkum um að ræða fjölgun á skólastofum, og verða fjórar stofur i fyrri áfanganum, sem áætlað er að byggja á næstu tveim árum. Með tilkomu hans rýmkast um i gamla skólanum, og er fyrirhugað að innrétta þar húsnæði til handavinnukennslu, sem er orðið mjög aðkallandi. Varíð ykkur á klækjum ríkisvaldsins unga fólk — leggið inn sparimerkin fyrir 1. febr. en takið ekki út fyrr en eftir sama mánaðardag HEI —Þótt ekki sé um nýtt mál aö ræöa er ekki vanþörf á aö vekja ennþá einu sinni athygli á þeirri svivirðu að hið opinbera skuli halda áfram árum saman að stela af þeim þegnum sinum sem sist skyldi, það er ungling- unum og unga fólkinu i landinu, sem tekur þátt i' atvinnulifinu. Þaö er kannski stórt upp i sig tekið aö tala um að stela, en er það nokkuö annað ai þjófnaöur að taka með löggjöf 15% af öll- um launum fólks á aldrinum 16—26 ára undir þvi yfirskini að allt sé verðtryggt og verið sé að kenna þessu fólki að spara, er fckila þvi svo aftur nær verölausum krónum, oft með nánast engum vöxtum. Það er sannarlega hörmulegt aö rikis- valdið skuli halda þessum ljóta leik áfram árum og áratugum saman. Þau þúsund ungmenna sem vinnameöskóla, sleppa þó ekki viö skyldusparnaöinn. En þau hafa hinsvegar heimild til aö taka féð út gegn vottoröi frá skóla. Mörg fara fyrir jólin og ná i' sparnað ársins, sem að mestu leyti hefur orðiö til á sumarmánuöunum og hefur þá legið um hálft ár I Veödeildinni. A þetta fé eru greiddir 4% vext- ir, sem frystir eru bótalaust inni á reikningi en engar veröbætur eru greiddar. Hinir sem stunda vinnu fá að visu veröbætur. En ekki er hægt aö segja annaö en aö reiknings- aðferðin sem viöhöfð er sé svivirðileg, a.m.k. á’veröbólgu- tímum eins og verið hafa s.l. áratug. Verðbæturnar eru aðeins reiknaðar út 1. febrúar árlega og þá aðeins af þvi fé, sem búiö er að liggja á reikn- ingnum heilt ár eða lengur. Þaö er þvi mjög brýnt fyrir ungt fólk sem nú á sparimerki, sem það fær ekki aö leysa út, að leggja þau inn fyrir 1. febr. næstkomandi. Einnig skiptir miklu fyrir þá sem ætla að taka út sparnaö frá árinu 1978 eöa eldri, aö gera þaö ekki fyrr en eftir 1. febrúar næstkomandi til aö missa ekki af verðbótum fyrir s.l. ár. En tökum nánara dæmi af reikningskúnstum hins opin- bera. Ungmenni sem greitt hef- ur 500 þús. kr. skyldusparnaö frá 1. febr. 1979 til sama tfma 1980 fær engar veröbætur greiddar á upphæðina fyrr en 1. febrúar 1981 og þá aöeins ár aftur I timann. I 50% veröbólgu yrðu verðbæturnar þá 250 þúsund, sem sýnst gæti dágott. En áfram halda klækirnir. 1 staö þess að leggja verðbæturn- ar við höfuðstólinn eins og gert er á venjulegum bankareikn- ingum, eru þær lagðar inn á sér- stakan reikning sem aldrei er verðbættur. Verðbæturnar koma þvi framvegis aöeins á upphaflega 500 þús. króna höfuðstólinn. Það er þvi ekki furöa þótt margt ungmenniö hafi oröið fyrir vonbrigðum með upphæðina, þegar farið var aö taka út kannski allt að 10 ára sparnað, sem sagður hefur verið full verðtryggöur. Reynslan sýnir að svo er vissu- lega ekki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.