Tíminn - 08.01.1980, Page 2
2
Þriöjudagurinn 8. janúar 1980
Á verðbólgan að ráða
launamunínum?
launþegasambandanna _ I
landinu.
HagfræBingur Vinnuveitenda-
sambandsins sagBi aB þessi leiB
mundi örugglega hækka heild-
arupphæB vísitölubóta í þjóð-
félaginu umfram þaö sem
visitalan hækkar hverju sinni,
þvi svo margir fengju hærri
bætur en eftir núverandi kerfi á
móti miklu færri sem fengju
skertar verBbætur. Auk þess
væri þaö að athuga, að þeir
hærra launuðu sem yrðu fyrir
skerðingu hefðu aldrei sætt sig
við sliTct. Fyrirtækin neyddust
þvi til að leiðrétta þetta i formi
launaskriðs, þannig að heildar-
útgjaldaliðurinn yrði stórum
hærri en með núverandi pró-
sentuaðferð.
HEI — Kjaramálaráðstefna
Verkamannasambandsins sem
haldin var um helgina sam-
þykkti sem stefnu sina á Kjara-
málaraðstefnu ASI, aö verðbæt-
ur á öll laun fyrir neðan 300 þús.
kr. verði þær sömu i krónutölu
og á 300 þús. kr. laun. Veröbæt-
ur á laun á bilinu 3-400 þús. verði
óbreyttar, þ.e. prósentuhækkun,
en siðan sama krónutala á laun
sem eru 400 þús. og þar yfir.
Meðlaunum er þá átt við grund-
vallarlaunataxta og sföan
reiknað með að hlutfalliö verði
það sama á bónusgreiöslur og
álagsgreiðslur t.d. hjá iðnaðar-
mönnum.
1 raun þýðir þessi samþykkt
það, að verðbætur á laun stjórni
launamuninum f landinu. Þvi
meiri sem verðbólgan er, þess
fyrr minnkar launabilið, ef
þessi tillaga kæmi til fram-
kvæmda, þvi i raun jafngildir
þettagrunnkaupshækkun þeirra
erhafagrunnlaun undir 300 þús.
ámánuði. Sennilega verður tek-
ist hart á um þessa tillögu á
Kjaramálaráöstefnu ASl, þvi
þar eru hópar sem halda vilja
áfram hlutfallslegum verðbót-
um innan ASI er þó varla
nokkur starfshópur með laun
yfir 400 þús. á mánuði, nema
kannski nokkrir á hæstu töxtum
Verslunarm annaf élagsins.
Hinsvegar kæmi þetta fyrst og
fremst niður á fólki innan BSRB
sem er algerlega andvígt þvi að
verðbólgan ráði launamuninn.
Timinn spurði Harald Stein-
þórsson hvað BSRB þætti um að
Verkamannasambandið væri aö
álykta og gera samþykktir um
launataxta sem væru utan við
þeirra hópa en fyrst og fremst
innan raða BSRB. Haraldur
sagöi að þetta væri svo sem ekki
nýtt fyrirbrigði, að menn væru
ekki endilega að semja fyrir
sjálfa sig, heldur jafnframt um
ákvæði sem eingöngu snertu
aðra. Vitanlega væri þetta
rangt. Hitt væri skynsamlegur
hlutur, ef öll launþegasamtök
landsins ykju samvinnu sin á
milliogræddu málin. Menn átt-
uöu sig þá lika betur á vanda-
málum hvers annars. En til
þessa sagði Haraldur allt of litla
samvinnu hafa verið á milli
Ottó Karli afhcntur bikarinn.
Ungur
björgunar-
maður
Skömmu fyrir jól heiöraði
Slysavarnafélag tslands ungan
dreng, er vann frækilegt
björgunarafrek á árinu^ Drengur-
inn heitir Ottó Karl Ottósson, og
er nýlega oröinn fimm ára. Var
honum færöur forkunnarfagur
áletraöur silfurbikar frá félaginu.
Björgunarafrek sitt vann Ottó
s.l. sumar, er hann dvaldi með
foreldrum slnum og fleiri Is-
lendingum á sumardvalarstaö við
Aþenu í Grikklandi. Var Ottó þá
að leik við sundlaug hótelsins,
ásamt þriggja ára félaga sinum,
en enginn fullorðinn var nær-
staddur. Féll þriggja ára
drengurinn, Magnús Dimitri
Briem i laugina, sem var þar um
þriggja metra djúp. Ottó Karl
Ottósson stökk út I laugina á eftir
félaga sinum og tókst að ná til
hans og halda honum á floti uns
hjálp barst. Þegar hann var
spurður að þvi, af hverju hann
hefði ekki kallaö á hjálp, er slysiö
vildi til, svaraði hann þvi til aö
,,ekki hefði verið timi til þess.”
alþýöu
blaðiö
Alþýðublaöiö er nú 61 árs gamalt og hefur séö tlmana tvenna l oigusjo
islenskrar blaöaútgáfu
Alþýðublaðið ber sig vel
„Förum ekki út í
nein helv... halla-
rekstur”
segir Jón Baidvin
AM — „Við erum nú að fara af
staö meö okkar fyrstu skipulegu
áskrifendasöfnun aö sinni og mun
það fara eftir niðurstööum henn-
ar hvort af þvi veröur að við
stækkum blaöiö,” sagöi Jón Bald-
vin Hannibalsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins, þegar við ræddum
við hann i gær.
Jón Baldvin sagði að hvað sem
umræöu um opna fjölmiöla á Is-
landi liöi, teldi hann þá ekki svo
opna að stjórnmálaflokkur gæti
án þess verið aö hafa eigið mál-
gagn.
Alþýðublaðið er enn ýmist fjór-
ar eða átta siður, en Jón sagði
blaöiö bera sig meö þessu móti og
stækkun yrði alls ekki fram-
kvæmd fyrr en ljóst væri aö
áskrifendafjöldi væri fyrir hendi
sem bæri hann. „Viö förum ekki
út i neinn helv... hallarekstur,”
sagði hann.
A ritstjórn Alþýöublaðsins
starfa nú auk ritstjóra tveir
blaöamenn, en ennfremur heldur
blaðið starfsfólk við auglýsingar
og dreifingu.
Tómas Árnason:
Otímabært
að ræða
niðurstöður ríkis-
fjármálanna 1979
HEI — „Þá fyrst er bráðabirgða-
uppgjör kemur frá stofnunum
fjármálaráöuneytisins er hægt aö
fara að ræöa um stöðu rikisfjár-
málanna árið 1979. Ég álit þvi
þessar yfirlýsingar fjármálaráö-
herra alls ekki timabærar eöa
byggðar á þeim grunni sem þarf,
til þess að hægt sé að ræöa þessi
mál” svaraði Tómas Arnason
fyrrverandi fjármálaráöherra er
hann var spurður álits á yfirlýs-
inguSighvats Björgvinssonar um
6 milljarða inneign á hlaupa-
reikningi rikissjóðs hjá Seðla-
bankanum nú um s.l. áramót.
Auk þess sagði Tómas þaö
blekkingu að taka bara einn
reikning við Seölabankann og
segja að hann sé I plús, en minn-
ast ekkert á þá vixla, sem rikis-
sjóður skuldar Seölabankanum.
Tómas sagði þaö alveg rétt hjá
Sighvati, aö umskipti hefðu oröið
á rikisfjármálunum siðari hluta
ársins. En það væri hinsvegar
enginn nýr sannleikur. Það yrðu
alltaf umskipti siðari hluta árs-
ins, af þeirri einföldu ástæðu, aö
rikistekjurnar kæmu inn i stór-
auknum mæli siöari hluta ársins,
en útgjöldin væru hinsvegar
nokkuð jöfn árið um kring.
Meiri tekjur rikissjóös en gert
hefði veriö ráð fyrir að sögn Sig-
hvats, þýddu þaö að þau plön sem
Tómas sagðist hafa lagt og borið
ábyrgð á hafi þá staðist og vel
það. Þessar auknu tekjur sýndu
þá, að varlega hefði verið áætlaö.
Leiðréttíng
I gær misritaðist I nafni greinar-
höfundar um UMF Dagsbrún i
Austur-Landeyjum
að sagt var að Andrés Guönason
væri frá Hólum. Hið rétta er aö
hann er frá Hólmum, og er
Andrés og lesendur beðnir vel-
virðingar á þessari prentvillu.
Kópavogur:
Maður
fyrir bíl
FRI — Síðdegis I gær v'arð maður
fyrir bil á Vallartröð. Hann mun
hafa sloppið við brot en aftur á
móti er hann nokkuö marinn.
Að sögn lögreglunnar þá mun
hafa verið flughált á götunni er
slysið varð og er það talin orsök
slyssins.
Hált var viða I Kópavogi sem
annars staðar á höfuðborgar-
svæðinu og til dæmis datt kona á
svelli fyrir utan pósthúsið I Kópa-
vogi og mun hún hafa meiðst I
baki.
Rannsóknarlögreglan:
Yfirheyrsl-
ur í Sand-
gerðismál-
inu í gær
FRI —Unnið var að ýmsum mál-
um hjá RLR um helgina eins og
óspektunum á Sauðárkróki og
Sandgerðismálinu. Yfirheyrslur
fóru fram 'i Sandgerðismálinu I
gær en þaö er enn óupplýst en við-
tæk rannsókn fer fram i þvi.
Tvö smáinnbrot voru framin
um helgina. Brotist var inn I ný-
byggingu að Þverárseli 8 og haföi
þjófurinn á brott meö sér hita-
stilla.vatnskrana og fleira smá-
dót. Auk þess þá var brotist inn I
sumarbústaö á Rjúpnahæð.
29 manna
hópur
brautskráð-
ur frá T.Í.
jSS — Við lok haustannar I
desember sl. var 29 manna hópur
sérmenntaðra manna Utskrifaður
frá Tækniskóla Islands. Þeir sem
útskrifuöust voru 3 bygginga-
tæknar, 8 raftæknar, 5 véltæknar
og 13 byggingatæknifræðingar.
Þeirra á meðal er fyrsta konan
sem ávinnur sér námsgráðuna
byggingartæknifræðingur frá T.I.
Þá voru 15 meintæknar braut-
skráðir 1. okt. sl. 24 útgerðar-
tæknar voru brautskráöir 31. mai
sl. og 42 luku raungreinadeildar-
prófi á sl. ári. ■*
12 nemendur fóru á siðasta ári
frá Tækniskólanum til þess að
ljúka námi I Danmörku. Heildar-
fjöldi nemenda i 6 deildum skól-
ans var u.þ.b. 400 á haustönn og
hefur ekki áöur verið svo mikill.
Róleg helgi
hjálög-
reglunni
FRI —Helgin mun hafa verið ein-
staklega róleg hjá lögreglunni I
Reykjavik. Fáir árekstrar urðu
og flestallir árekstrar voru af
smærri geröinni.
Hinsvegar mun hálkan i gær
hafa sett strik i reikninginn og
nokkuðvarum að fólk slasaði sig.
Flest voru þó slysin af minni
gerðinni, brákanir og marblettir.