Tíminn - 11.01.1980, Qupperneq 20
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Auglýsingadeild
'Tímans.
18300
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
C |/S|J1/A| Vesturgötu II
wwvllVHL simi 22600
Skaftárhlaupiö:
Vatnsmagnið
stendur í stað
— Jarðhitasvæði undir jöklinum
sennilega orsök hlaupa í Skaftá
FRI — „Hlaupið hefur staðið i
stað nii i dag” sagði Böðvar
Kristjánsson bóndi iSkaftárdal er
viðræddum við hann i gær. „Það
kom aðeins kippur i það i morgun
en þá jókst vatnsmagnið um 25-30
sm en siðan dró niður i þvi aftur
og þaö er nú um 200 sm yfir
meðallagi eins og þegar hlaupið
byrjaði.
Samkvæmt þessu þá virðist
hlaupið ætla að vera skammlift
en Böðvar kvaðst hafa trú á þvi
að það mundidraga úr þvi á næst-
unni fyrst engin aukning varð á
vatnsmagninu i Skaftá i gær.
„Það er min skoðun að orsakir
Skaftárhlaupa megi rekja til
jarðhitasvæðis undir sigkatlinum
norðvestan viðGrimsvötn,” sagði
Helgi Björnsson jarðeðlis-
fræðingur á Raunvisindastofnun
Háskólans i samtali við Timann.
„tsinn undir sigkatlinum er
þynnri en isinn i kringum hann og
þar af leiðandi er minni þrýsting-
ur undir katlinum heldur en undir
jöðrum hans. Þetta gerir það að
verkum að bræðsluvatnið sem
jarðhitasvæðið myndar safnast
saman undir sigkatlinum upp að
þvi marki að það getur brotist út
undir þykkri isinn og myndaö
þannig hlaup i Skaftá.”
Hlaupin í Skaftá hafa verið
mjög óregluleg frá þvi að þau hóf-
ust 1955. En tiðni þeirra hefur far-
ið vaxandi á siðustu árum. Þann-
ig urðu 6 hlaup fyrstu 15 árin (til
1970) en 9 hlaup hafa orðið siðustu
10 árin að þessu meðtöldu.
Þetta hlaup núna er óvenjulegt
að þvi leyti að aldrei áður hefur
liðið jafnstuttur timi á milli
hlaupa og nú. Hinsvegar liðu að-
eins 4 mánuðir milli hlaupanna
1972, það er þau urðu i ágúslok og
aftur i desemberlok það ár.
Hér er verið aö landa vertiðarfiski I örfirisey f gær (Ljósmynd Kóbert)
Iceland Seafood Corporation:
Aukin markaðs-
hlutdeild í USA
AM —1 gær leituðum viö frétta af
afkomu Iceland Seafood Corp. á
árinu 1979 hjá Sigurö Markússyni,
framkvæmdastjóra Sjávar-
afurðadeildar SIS.
Sigurður sagði að hann heföi
fyrir nokkru fengið heildartölur
fyrirtækisins fyrir árið 1979 frá
Guöjóni B Ólafssyni, fram-
kvæmdastjóra þess. Þar kemur
fram m.a., að heildarsala fyrir-
tækisins varö 84.1 milljón doll-
Féllu af
þaki
FRI — Um fjögurleytið i gær féllu
tveir menn af þaki Flúöasels 93 I
Breiðholti. Þeir munu hafa veriö
við vinnu á þakinu er slysið varð.
Þeir munu ekki hafa slasast
alvarlega en falliö af þakinu var
töluvert þar sem húsið er hátt,
eitt af húsunum meö bröttu þök-
unum,
arar og hafði aukist um 16.4 af
hundraði frá fyrra ári. Megin-
þættirnir i þessari veltu eru ann-
ars vegar sala fiskrétta, sem
framleiddir eru I fiskréttaverk-
smiðju fyrirtækisins vestra, hins
vegar fryst fiskflök, sem seld eru
áfram til kaupenda, eins og þau
koma frá lslandi.
Sala fiskrétta jókst á árinu um
14.4% að magni, en 19,5% að
verðmæti. Sala flaka jókst um
12.4% aö magni en um 29% að
verömæti.
„Guðjón getur þess I skeytum
til okkar,” sagði Sigurður, ^að
heildarsala á fiskréttum muni
ekki hafa aukist I Bandarikjunum
á árinu 1979. Skýrslur um inn-
flutning og neyslu á fiskflökum i
Bandarikjunum fyrir allt árið
1979 liggja enn ekki íyrir, en tölur
fyrir fyrstu niu mánuöi ársins
sýna litilsháttar samdrátt, eða
um eitt prósent. Er ljóst af þess-
um samanburöi að fyrirtækið hef-
ur aukið markaðshlutdeild sina á
árinu og á þetta bæöi við um fisk-
réttina og fiskflökin.”
FRI — Um ll-leytiö i gærmorgun féll tankur af ollubfl er hann var staddur út á Granda. Engin slys urðu
á fólki I þessu óhappi en éldhætta skapaöist þvi olia flóði úr tanknum eftir að hann skall I götuna.
Hreinsun götunnar gekk fljótlega fyrir sig.
Landgræðsla rikisins:
Hefur fræ- og
áburðadreifingu í
Hítárdal í vor
JSS — Landgræðsla rikisins girti
sl. sumar 8 kilómetra langa girð-
ingu i Hitardal i Hraunhreppi á
Mýrum og er fyrirhugað að hefja
fræ- og áburðardreifingu i júni
næsta sumar.
Að sögn Stefáns Sigfússonar i
Gunnarsholti liggur nýja girðing-
in frá afréttargirðingu, heim und-
ir Hitardal, þaðan niður i á og
loks að hreppagirðingunni. Land-
græðslugirðingin er um 1500
hektarar að stærð. „Við hjá
Landgræðslunni töldum að Hitar-
dalur væri alvarlegasta upp-
blásturssvæðið á Vesturlandi.
Þar er einnig talsvert af lausum
fokjarðvegi, sem fýkur alltaf til.
Hugmyndin er að vinna I þessu
svæði eftir efnum og ástæðum og
næsta sumar verður sáð grasfræi
og áburði dreift úr vél, en um
magnið vitum við ekki enn”,
sagði Stefán Sigfússon.
Landgræösluvélarnar:
Dreifðu 2962
tonnum af fræi
ög áburði
JSS —Siðastliöið sumar dreiföi
Landgræösla rikisins úr flugvél-
um sinum samtals um 2962 tonn-
um af áburði og grasfræi.
Minni vélin Tf-Tún dreifði
742.66 tonnum. Þar af voru 4.8
tonn af fræi. Úr Douglasvélinni
var dreift samtals 2220 tonnum.
Þar af voru 60 tonn af fræi.
Af heildarmagninu var 55.1% i
landgræðslugirðingar, 25% var
dreift á beitilönd þ.e. heimalönd
þar sem bændur taka þátt i kostn-
aði við dreifinguna, og 9.9% var
dreift á afréttarlönd. Loks var
10% magnsins dreift á aðra staði,
svo sem Vestmannaeyjar.
Reykjavík:
Slökkviliðiö
474 sinnum
JSS — Slökkviliðið i Reykjavik
var kvatt út alls 474 sinnum á sið-
asta ári. 1 398 tilvikum reyndist
vera um eld að ræða. Langflest
urðu útköllin i maimánuði, en þá
var mikið um sinubruna. 1 heild-
ina er þetta svipaður fjöldi út-
kvatt út
á sl. ári
kalla og á árinu 1978.
Þá voru sjúkra- og slysaflutn-
ingar á árinu samtals 10755, eða
29.26 til jafnaðar á sólarhring.
Hefur fjöldi sjúkraflutninga hald-
ist svo til óbreyttur allt frá árinu
1973 og var t.d. árið 1978 10006.
Keyrði
frá
slysstað
FRI — I gær var keyrt á ungan
dreng i Torfufelli. Drengurinn
mun hafa hlaupið f veg 'fyrir bil-
inn. ökumaður keyrði af slysstað
en sennilegt er að hann hafi talið
að ekki væri um alvarleg meiðsli
að ræða hjá drengnum eins og
rétt reyndist en óvenjulegt er að
þetta komi fyrir.
Sandgerðismálið:
Fallið
frá
gæslu-
varð-
haldi
FRI — I gær lá fyrir Saka-
dómi Gullbringusýslu beiðni
rannsóknarlögreglu rikisins
um gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir ungum manni vegna
póstránsins i Sandgerði. Að
sögn Guðmundar Kristjáns-
sonar fulltrúa hjá bæjar-
fógetanum i Keflavik en
hann fjallaði um málið, var
fallið frá gæsluvarðhaldi I
málinu og maðurinn látinn
laus.
Maðurinn sem um ræðir
býr á efri hæð hússins þar
sem ránið var framið og var
tekinn til yfirheyrslu
skömmu eftir að ránið átti
sér stað en sleppt skömmu
siðar.