Tíminn - 17.01.1980, Page 3
Fimmtudagur 17. janúar 1980.
3
Guðmundar- og Geirfinnsmálin:
Geirfinnur myrtur vegna misskilnings
— reiknað með að ræðu ríkissaksóknara ljúki í dag
FRI — Salur Hæstaréttar var
þéttsetinn i dag er Þórður
Björnsson rikissaksóknari hélt
áfram sóknarræðu sinni i Guð-
mundar- og Geirfinnsmálunum.
Hann hóf lesturinn kl. 10 i gær-
morgun og fjallaði um seinni
hluta málsins, þ.e. morðið á
Geirfinni Einarssyni.
Flestum er kunnugt um það
mál en heilmikil blaðaskrif urðu
um málið á sinum tima. Skipta
má málinu i tvo hluta, annars
vegar morðið á Geirfinni og hins
vegar rangar sakir er hin á-
kærðu i málinu báru á 5 menn en
þær leiddu til langs gæsluvarð-
halds þeirra.
Geirfinnur hverfur
Upphaf málsins er það, að til-
kynnt er til lögreglunnar i
Njarðvikum 21. nóv. 1974, að
Geirfinnur Einarsson hafi ekki
komið heim til sin frá þvi um
kvöldið 19. nóvember. brátt
fyrir viðtæka leit og eftir-
grennslanir þá fannst hann ekki
og hefur ekki fundist enn.
Um vorið 1975 fékk rannsókn-
arlögreglan upplýsingar sem
leiddu til þess, að framhalds-
rannsókn i svokölluðu Póst- og
simamáli var hafin og voru þau
Erla Bolladóttir og Sævar
Marinó Ciesielski hneppt i
gæsluvarðhald. En lögreglan
fékk eiiinig grun um að þau
væru viðriðin hvarf Geirfinns.
Kvöldið sem Geirfinnur hvarf
fékk hann tvö simtöl, annað
snemma um kvöldið um kl. 19.40
en hitt eftir kl. 22. Vinur hans
mun hafa komið i heimsókn um
kl. 20 og ætlað að fá Geirfinn
með sér i bió en Geirfinnur
sagði þá, að hann ætlaði að hitta
einhverna menn kl. 22 við Hafn-
arbúðina og kveður vinurinn, að
Geirfinnur hafi sagt i grini, að
vissara væri að hafa barefli með
sér. Vinur hans kveðst hafa
keyrt hann áleiöis að Hafnar-
búðinni og hleypt honum út um
1-200 metra frá henni. Vinur
hans kvaðst ekki vita að Geir-
finnur ætti sér óvildarmenn og
raunar er það samdóma álit
þeirra er þekktu hann, að hann
hafi ekki staðið i neinu mis-
jöfnu.
Geirfinnur kemur siðan heim
en um kl. 22.15 fær hann annað
simtal og heyrði kona hans aö
hann sagði i þvi ,,ég kom” og
„ég kem”. Siðan yfirgaf hann
ibúð sina. Tvö vitni sáu siðan bil
hans við kaupfélag Suöurnesja
um kl. 22.34. Siðar leiddi rann-
sókn á bifreiðinni ekkert i ljós er
varpað gæti ljósi á málið.
Afgreiðslustúlka I Hafnarbúð-
inni sagði, að ókunnur maður
hefði komið i búöina nokkru
eftir kl. 22 og bað um að fá aö
nota sima en áður um kvöldið
hafði Geirfinnur komið i búðina
og keypt sér sigarettur. Ekkert
hefur spurst til hans siðan.
Rangar sakir
Við rannsókn málsins kom
fljótt i ljós, að hin ákæröu, Erla
Bolladóttir, Sævar Marinó,
Kristján Viðar Viðarsson og
Guðjón Skarphéðinsson væru
við það riðin.
1 byrjun yfirheyrslna yfir
þeim héldu þau þvi fram að
eftirfarandi 5 menn væru við-
riðnir morðið á Geirfinni,
Magnús Leopoldsson, Sigur-
björn Eiriksson, Valdimar 01-
sen, Einar Bollason og Jón
Ragnars. Leiddi það til langs
gæsluvarðhalds yfir hluta þess-
ara manna, eins og flestum er
kunnugt, en þeir voru allir sak-
lausir af sakargiftum hinna
ákærðu i málinu.
Hin ákærðu munu hafa fengið
hugmyndina að þvi að flækja
þessum mönnum inn i málið
vegna þess, að annaö mál, svo-
kallað spiramál kom upp á
þessum tima og töldu þau þá
vera viðriðna það mál. Mun
Sævar hafa sagt þeim, að ef þau
yrðu tekin þá ættu þau að flækja
Klúbbmönnunum inn i málið og
mun Erla hafa stungið upp á þvi.
að bróður hennar yrði einnig
sagður eiga hlut að morðinu.
Framburður ákærðu
1 stuttu máli þá hittu þeir
Sævar og Kristján Geirfinn I
Klúbbnum nokkrum dögum áð-
ur en morðið átti sér stað.
Sævar minnti, að einhver Geiri
stundaði sprúttsölu I Keflavik
og spurði hann Geirfinn að þvi.
Einhver misskilningur mun
hafa komið fram i samræöum
þeirra en þeir fengu nafn og
heimilisfang Geirfinns, en þeir
munu hafa ætlað að kaupa eða
stela spira af honum.
Snemma um kvöldið þann 19.
þá eru þeir Sævar, Kristján,
Erla og Guðjón búin að melda
sig saman um að fara suður til
Keflavikur. Jafnframt höfðu
þeir fengið frænda Kristjáns,
Sigurð Óttar til þess að koma á
sendiferðabil af Benz-gerð sem
hann hafði umráð yfir. Mun
hafa verið ætlunin að Siguröur
keyrði spirann. Hin fjögur
ákærðu fóru til Keflavikur i
bilaleigubil af Volkswagen-gerð
en voru áður búin að tala viö
Geirfinn um að hittast I Kefla-
vik. Þau urðu hins vegar sein
fyrir og hringdi Kristján i Geir-
finn frá Hafnarbúðinni rétt yfir
kl. 22. Bað hann Geirfinn að
koma einan og gangandi.
Er Geirfinnur kom settist
hann i bilaleigubilinn og var sið-
an haldið að dráttarbrautinni i
Keflavik. A leiöinni tók Sævar
upp 70 þús. kr. (afganginn af
Póst-ogsima-svindlinusem þau
Erla voru i) og bauð Geirfinni
fyrir spirann. Geirfinnur mun
hafa hent peningunum i gólfið á
bilnum.
Er i dráttarbrautina var kom-
ið þá vildi Geirfinnur hverfa á
braut, en Guðjón mun hafa sagt
á leiðinni til Keflavíkur að þau
skyldu pressa hann svolitiö ef
hann yrði með stæla. Atök brut-
ust út milli Geirfinns annars
vegar og hinna þriggja hins
vegar. Ekki er alveg ljóst hver
gerði hvað en svo virðist sem að
Kristján hafi slegið Geirfinn og
tekið hann hálstaki en Sævar
hafi gripið spýtu og barið Geir-
finn með henni. Guðjón mun
einnig hafa slegið Geirfinn.
Eftir átökin lést Geirfinnur.
Barsmiðarnar munúhafa verið,
að sögn ákærðu, til þess gerðar
að Geirfinnur visaði þeim á
spirabirgöir sinar en Erla mun
hafa sagt, að sér virtist sem á-
tökin hafi beinst að þvi að
myrða Geirfinn.
Meðan á átökunum stóð þá
beið Sigurður i sendiferðabiln-
um neðar við dráttarbrautina
og telja ákærðu að hann hafi
ekki orðið var við átökin. Hon-
um var sagt að hypja sig eftir
þau.
Eftir morðiö fluttu þau lik
Geirfinns i bæinn að Grettisgötu
Skákþing Suðurnesja 1980
hefst i' kvöld, 17 janúar kl. 20.
Teflt veröur að venju i Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Sú breyting verður nú á, að
auk keppni i hinum venju-
bundnu flokkum, veröur teflt i
„opnum flokki”. Hugmyndin aö
baki þeirri nýbreytni er sú, að
hvetja til þátttöku þá, sem li'tt
eru reyndir i mótum og sömu-
leiðis þá, sem vilja sýna og
sanna, aö þeir séu ekki farnir að
ryðga i listinni, þótt skákmót
82, og siðar upp i Rauðhóla þar
sem þau brenndu likið og grófu.
Likið hefur aldrei fundist.
Framburðir dregnir
til baka
Sævar, Kristján og Erla hafa
dregið framburði sina i málinu
til baka og segja nú, að þau hafi
hvergi komið þar nálægt, Sævar
og Kristján fyrir allnokkru, en
Erla sl. föstudag.
hafi ekki freistað þeirra um
nokkurt skeið.
I „opna flokknum” verður
teflt einu sinni i viku, á fimmtu-
dögum kl. 20. Umhugsunartimi
verður 1 klst.
I meistaraflokki verður teflt
tvisvar i viku, mánudaga og
fimmtudaga. Þar verður um-
hugsunartimi 2 klst. Fyrir-
komulag i unglingaflokki verður
afráðið, þegar þátttaka er ljós
en þar hefst keppni einnig i
kvöld kl. 20 i Fjölbrautaskólan-
um.
Kvikmyndasýningar
í vinnustöð Ösvalds
Skákþing Suður-
nesja hefst í kvöld
Knudsen
Hæm stoðu-
mælasektir
JSS — , .Meiningin er að hafa
þetta nokkuð opiö, þannig að fólk
geti aö hluta valið þær myndir
sem þaö langar til að sjjá”, sagði
Vilhjálmur Knudsen kvikmynda-
framleiöandi iviðtali viöTImann.
En nú eru að hefjast sýningar Is-
lenskra heimildarkvikmynda i
vinnustöö Ósvalds Knudsen að
Hellusundi 6A, og er ein þeirra
kvikmynda Vilhjálms, Alþingi að
tjaldabaki.
Fyrsta sýningin verður að
Hellusundi 6A fimmtudaginn 17
janúar kl. 9. Sýnd verður Alþingi
aðtjaldabaki og aukamyndirnar:
Voriðerkomið ogReykjavik 1955,
sem Ósvald Knudsen gerði, auk
fleiri mynda úr safni hans ef
óskaö er.
Að sögn Vilhjálms fjallar Al-
þingi aö tjaldabaki um efnahags-
og stjórnmálaástand á tslandi
áriö 1976-1977 og sýnir Alþingi og
rikisstjórn að störfum á þeim
tima. Kvikmyndin er 50 minútna
löng. Höfundur texta og þulur er
Björn Þorsteinsson, tónlist samdi
Þorkell Sigurbjörnsson, flautu-
leik annaðist Manuela Wiesler,
aðstoðarkvikmyndum Magnús
Magnússon, Lynn C. Knudsen sá
um tónupptöku og Vilhjálmur
Knudsen annaðist klippingu og
stjórn.
Kvikmyndin Vorið er komið
fjallar um vorstörf i sveit I upp-
hafi aldarinnar, og er höfundur
texta og þulur dr. Kristján Eld-
járn. Reykjavik 1955 fjallar um
upphaf Reykjavikur, þróun og
mannlif árið 1955. Myndin er 27
minútna löng og höfundur texta
er dr. Kristján Edljárn. Þá verða
einnig sýndar heimildarkvik-
myndir úr safni Ósvalds Knud-
sen,en þæreruum 40 talsins.sem
fullgerðar eru.
Verða sýningarnar á hverju
kvöldi kl. 21 og kl. 19 á laugardög-
um, en þær eru einkum ætlaðar
fyrir erlenda ferðamenn.
Þann 15. þ.m. hækkaði auka-
leigugjald vegna brota á reglum
um notkun stööumæla I Reykja-
vik úr 500 krónum I 1000.
Stöðumælaverðir hafa frá sama
tima fengið fyrirmæli um aö
skrifa miða á þá bila, sem eru viö
stöðumæla, þar sem gula skifan
er uppi.
Að undanförnu hafa stöðu-
mælaverðir snúið snerlinum,
þegar gula skifan hefur sést uppi,
en sivaxandi misnotkun eöa
„gleymska” ökumanna verður
ekki varin lengur, enda er um
augljóst brot á reglugerö að ræða.
Tilgangurinn með uppsetningu
stöðumæla er fyrst og fremst sá
að miðla eftirsóttum bifreiða-
stæðum til sem flestra borgara.