Tíminn - 17.01.1980, Blaðsíða 9

Tíminn - 17.01.1980, Blaðsíða 9
8 Fimmtudagur 17. janúar 1980. Dionne kannar tóninn — og negl- urnar. „Margir söngvarar þurfa eitthvað örvandi. Ekki ég. Mér hefur aldrei liðið eins vel og nú. 1 meira en áratug átti Dionne Warwick hvert lagið á fætur öðru efst á vinsældalistunum. Hún þótti óvenjufjölhæf og tókst jafn vel upp, hvort sem hún söng popp, jass eða „rythm og blues”. Þegar litið er til baka, má telja þessi ár hennar upp- gangsár. En um 1975 fór að halla undan fæti fyrir henni. Þá lauk tiu ára hjónabandi hennar og leikarans og jasstrymbilsins Bill Elliott. I ofanálag slitnaði upp úr samstarfi ljóða- og laga- smiðanna Hal David og Burt Bcharach, sem samið höfðu flest topplög Dionne. Maður hennar fór fram á lifeyri, sem hann reyndar fékk ekki, og þeg- ar Bacharach og David hættu að hafa samvinnu, fór Dionne i mál við þá á þeim forsendum, að þeir hefðu áður gert samning um að standa að framleiðslu platna hennar. Allur þessi málarekstur stóð i mörg ár, og er reyndar nú fyrst nýlega lokið- með sátt. — Að standa i tveimur skiln- uðum i einu var beiskur biti, segir Dionne, sem nú er orðin 38 ára. En ekki nóg með það, fimm plötur hennar i röð hlutu enga náð fyrir eyrum hlustenda og hún m innist þess að hafa hugsað sem svo: — Ég get ekki lengur gert góðar plötur. Nú hefur reynslan leitt i ljós, að þessi hugmynd hennar var ekki timabær. Nú, fjórum og hálfu ári siðar, hefur Dionne loks komið fram með nýtt lag, sem virðist ætla að ná vinsæld- um. Það er hugljúf ballaða, I’ll Never Love This Way Again. 1 vor kom út breiðskifa, sem ein- faldlega ber nafnið Dionne, og hún er á góðri leið með að verða metsöluplata. Nýr framkvæmdastjóri f þokkabót við þessa nýju vel- gengni hennar er samstarf hennar og nýja framkvæmda- stjórans hennar, Barry Mani- low, með ágætum. Barry hefur brunnið i skinninu eftir þvi að gjalda Dionne greiða, en hann fékk sitt fyrsta stóra tækifæri 1975, þegar hann „hitaði upp” á hljómleikum Dionne i Central Park. — Dionne er ein besta söngkona allra tima, segir hann. — Hún er ekki siðri ball- öðusöngvari en Barbra Nií er aftur að lifna yfir söngferli Dionne. Nýjustu plötur hennar hafa hlotið mikið hrós. Barry Manilow, nýi fram- kvæmdastjórinn hennar Dionne, llkir henni við Barbra Streisand. En Dionne sjálf segir: Barbra er keppinautur minn. Hiin er sd eina, sem getur keppt viö mig. Stundum hefur mig langað til aö kafa ofan I hálsinn á henni og segja: Gef mér! er að ná sér á strik aftur Streisand. Hann bætir við, að öf- ugt við marga söngvara aðra, þurfi hún ekki kókaln til að komast i gang. Samstarf þeirra Dionne og Barry fellur henni lika vel i geð. — Að vinna með Barry er með þvi alauðveldasta, sem ég hef nokkurn tima gert. Merkilegt er það, að þegar Dionne var að alast upp í East Orange, N.Y., datt henni aldrei i hug að verða skémmtikraftur. Hún er elst þriggja barna slátr- ara/ járnbrautarstarfsmanns og móður, sem söng mikið „gospel” og byrjaði snemma að svngja i kirkjukórnum. Á gagn- fræðaskólaárunum fór hún stundum til New York og gerði prufuupptökur i hinni frægu Brill-byggingu, en þar hafa mörg tónskáld vinnuaðstöðu. Þar hitti hún árið 1959 Bacha- rach og David. Þeir voru þá al- veg óþekktir, en hún var farin að þiggja laun fyrir að syngja bakraddir fyrir aðra söngvara. Dionne hafði ætlað sér að verða tónmenntakennari og lauk prófi i þeim fræðum frá Hart College i Connecticut. Þáttaskil Arið 1962 urðu þáttaskil i lifi hennar og þeirra tónskáldanna. Það fór vel á með Dionne, Burt Bacharach og Hal David á velmekt- ardögunum, en samstarfinu lauk með málaferlum og látum. Nú segir Dionne: An min hefðu þeir aldrei átt lag á vinsældalistanum. Ég skulda þeim ekki neitt. Þá kom út platan Don’t Make Me Over, fyrsta plata þeirra, sem komst i efsta sæti vinsælda- listans. En þær áttu eftir að verða fleiri. Fjórum árum siðar höfðu selst 12 milljónir platna þeirra þremenninganna. Má þarnefna Do You Know the Way to San Jose, Alfie, I Say a Little Prayer, Trains and Boats and Planes. — Þar með var skemmtanaiðnaðurinn orðinn mitt lif, segir Dionne. Þegar David og Bacharach á- kváðu að slita samstarfi sinu 1975 vegna persónulegs á- greinings, var Dionne skyndi- lega skilin eftir án laga og ljóða. Hún komst i eitt hljómleika- ferðalag og gaf út eina plötu með Isaac Heyes, en hennar fyrri vinsældir fylgdu henni ekki lengur. Þaðvarð til þess,að hún hætti að syngja inn á plötur. Samkvæmt ráðleggingum stjörnuspákonu skeytti hún „e” aftan i seinna nafn sitt, „til að fá betri tón”. En jafnvel það dugði ekki til. — Alls staðar, þar sem ég kom fram og nafnið mitt af auglýst með þessu „e”, kom eitthvað fyrir, segir hún. Þá sneri hún sér að trúmálum. ( — Það vill svo til, að ég veit að ég er ein af hinum fáu útvöldu) og fór I linnulaus hljómleikaferða- lög. — Mér fannst, að ég myndi springa, ef ég sökkti mér ekki niður i vinnu. Ég rak sjálfa mig áfram. Reyndar rak hún sjálfa sig svo áfram með vinnu, að hún varð að aflýsa hljómleikum i júni sl. vegna ofþreytu. Hjónaband hennar og Elliott hafði lengi verið i ólagi. — Bill var yndislegur pabbf fyrir syni okkar tvo, en hann var ómögu- legur eiginmaður, segir Dionne. En nú, á sama tima og hún er aftur að ná sér á strik i söngn- um, er hún lika búin að finna sér annan mann. — Það kemur eng- um við hver hann er, segir hún. — Býðurðu öllum heiminum inn i svefnherbergið þitt? Einu upp- lýsingarnar, sem hún vill gefa, eru þær, að hann er: hár, dökk- ur. rikur oe dásamleeiir. Ekki Fimmtudagur 17. janúar 1980. 9 Dionne Warwick fyrir framan húsið sitt i Beverly Hills. Húsið keypti hún fyrir ágóðann af velgengni sinni á árunum 1960-70. eru þó nein hjónabandsáform uppi, þvi að Dionne segist ekki vera giftingarhæf, þar sem hún sé aldrei nógu lengi i einu á sama staðnum. Dionne er góo moðir Heimili Dionne er rikulega búið tveggja hæða hús i Beverly Hills. Þar býr hún með sonum sinum, David 10 ára og Damion 6ára. — Um þá snýst líf mitt nú, segirhún. Um helgar fara þau á hestbak I Los Angeles eða á skiði i Aspen. Dionne hvilist með þvi að sauma krosssaum og eyðir kvöldunum „I rólegheit- um. Ég er ekki gefin fyrir svall og skemmtanir. Og ég tek ekk- ert inn. Ég er dauðhrædd við lyf, þar með talið aspirin”. Þegar spennan verður of mikil á þess- um sifelldu ferðalögum, fær hún útrás með þvi að fara i verslun- arferðir. Einu sinni átti hún orð- ið svo mikið af fötum, að hún varð að taka á leigu séribúð til að geyma þau. Ekki nóg með, að aftur sé að lifna yfir söngferli Dionne. Hún hefur lika fengið hlutverk i kvikmyndaútgáfunni af söng- leiknum Purlie og sömuleiðis i sjónvarpsmynd. — Hæfileikar lifa, segir hún. — Enginn, ég endurtek enginn, getur gert það, sem Dionne Warwick gerir. A sjöunda áratugnum skildi Dionne viö og giftist aftur Bill Elliott. Skilnaður þeirra 1975 var endanlegur. „Hann var ekki fær um aö vera eiginmaöur minn”. Fyrstu tugir aldarinnar í Þistilfirði Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli. Fjallabæjafólk. Bókaútgáfan Skjaldborg. Þetta er fyrsta bindi i ritsafni Einars, en Skjaldborg hefur nú i huga að endurprenta sögur hans smám saman. Hér eru bernsku- minningar höfundar og hafa ekki sést áður. Sögunni lýkur með f jögra mánaða námi hans i unglingaskólanuní i Lundi. Þá er hann 18 ára. Það er ekki margt um þessar minningar að segja. Þær eru vel sagðar og sjálfsagt trúar heimildir um fólk og byggð á Þistilfiröi og grennd. Móöir höfundar var berkla- veik. HUn fór að heiman til dvalar á Vifilsstöðum frá börn- um sinum ungum og dvaldi þar um skeið. Heim kom hUn aftur en varð aldrei hraust og dó úr berklaveikinnimeðanEinar var innan fermingar. Kannski _er frásögnin af þeirri baráttu merkastur þáttur þessarar sögu. Þar erm.a. vitnað i bréfin sem veika konan skrifaði heim. Yfirlætislaus og róleg lýsing þeirrar baráttu er mikil örlaga- saga. Og það er dráttur úr sögu þjóðarinnar þvi aö berkla- veikin, tæringin, var ægilegur ógnvaldur á fyrstu tugum aldarinnar. Þess er að gæta að Einar frá Hermundarfelli hefur meö ýmsum hætti rifjað upp og fært I letur nokkrar minningar frá bernsku og æsku. Ef til vill geldur þessi minningabók þess, þar sem þeim þáttum er ætlað aðbirtasti ritsafninu. Það þýðir að hann er búinn aö gera Urval sem kemur hér til frádráttar. Það er auðvitað verra að segja sögu þegar búið er aö taka Ur henni þau atriöin sem stóðu hjartanu næst með einhverjum hætti. Samt sem áður er Einar svo glöggskyggn og ritfær að þessi minningabók skipar sitt rUm með fullum sóma. H.Kr. Ferðin til stj ömulandsins FERÐIN TIL STJÖRNU- LANDSINS MAGNOS FRA HAFNARNESI Bókaútgáfan Hafnarnesútgáfan 1979 Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi er sérstakur maður i heimi rithöfunda. Hann býr i Vestmannaeyjum, missti hús sitt og bjó um tima i Reykjavik, en fluttist síðan aftur út i Eyjar, þegar að jörðin hafði kólnað eftir að hafa soðið allar rætur i sundur og brotið húsin, eða brennt. Þar býr hann nú með konu sinni og dóttur, vinnur öll störf og skrifar svo Ur sér augun á nóttunni og á öðrum stundum er gefast. MagnUs er fæddur 1921 að Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, en við þetta nes hefur hann kennt sig æ siðan en búsettur hefur hann verið i Vestmanna- eyjum seinustu tvo áratugi. Hinni nýju bók fylgir rit- verkaskrá Magnúsar, þannig að maður veit að bækur hans eru orðnar átta, en þær fyrstu komu út fyrir um það bil aldar- fjórðungi, þekktasta bók hans er liklega Heimur i fingurbjörg.er kom út árið 1966. Ferðin til stjarnanna Ferðin til stjörnulandsins hefur Utlit visindaskáldsögu, en Guðni Hermannsen listmálari i Vestmannaeyjum hefur gert mynd utan úr geimnum á bók- ina með miklum dimensionum, en svo er þó ekki. Þetta er saga niðri á jörðinni af móður og syni, eða öllu heldur þroskasaga unglings, sem flyst i sveit með móður sinni, öfugt á strauminn. Þetta er býsna vel hugsuð saga og leynir á sér, en eins og oft þá hættir höfundur sér á dá- litið hálan is að f jalla um mál er hann þekkir ekki betur en aðrir. Templarar skrifa einkennilegar skýrslur af áfengisdrykkju, af þvi að þeir hugsa um áfengisböl og telja sig vita allt um brenni- vin, þótt þeir hafi aldrei smakkað dropa. Ég tek þetta aðeins sem dæmi, að spilin verða veikari hjá höf- undi sem gjörþekkir ekki bak- svið sinna manna. Að visu þurfa menn ekki að borða heilt naut til að vita hvernig nautaket bragðast og Magnús frá Hafnarnesi hefur auðvitað verið ungur, en bara öðruvisi ungur og i takt við sinn unglingsvetur. Unglingar tala ekki um kynferðismál sin á gull- aldarmáli nú á dögum, þeir rifa undan sér kæfuna og annað i þeim dúr, og þess vegna verður timasetningin dálitið óglögg. Á hinn bóginn, þótt það hljómi sem þversögn, þá eru það kannski gallar þessarar bökar, sem eru mestu kostirnir. Blandað mál Magnús er duglegur við að nota orð. Hann smfðar orð og notar orð sem sjaldaneru notuð. Hann talar um erlend kruöirí, molskinnsbuxur (þykkt ullar- efni) klunnanlega skæddur, þvegla á bil (vinnukonur) hnif- radda, mara yfir fjalli og að merja svörð i svað meö skóhæl sinum drjúga stund. Þetta eru dæmi tekin af handahófi. Og það er ef til vill þetta fjörugaorðaval sem leysir myndina of mikið, þannig að sagan fjarlægist þann raun- veruleika sem verið er að fjalla um. Sumsé drukknar i blöndu af gullaldarmáli og slangi. En það er auðvitað mál höf- undar hvaða orð hann notar þótt heillegri flikur séu úr einni sort af efni en mörgum. Þeir sem lásu bókina Heimur i fingurbjörg, einyrkjasöguna, vita að þegar Magnús frá Hafnarnesi fer á kostum, geta orðið til góöar bækur. Hann tekur nýja stefnu i þess- ari bók,seinast flutti fólk suður ef ég man rétt. En Magnús frá Hafnarnesi er ávalt læsilegur höfundur, skemmtilegur félagi og á það við um stjörnulönd og aðrar ferðir. Jónas Guðmundsson bókmenntir Ljóðför á kaffisvæðunum Bjarni Bernharður Ljóðför á hendur grásteini. Letur Éigin útgáfa höfundar. Ljóöför á hendur grásteini mun vera fjórða bók Bjarna Bernharðar. Ég veit ekki hve þykkar hinar voru, en þessi er þrjátiu siður. Kannski þykir það ekki stór bók, en lengd bóka segir ekki allt, þótt þær stuttu geti verið ómerkilegar lika. Ljóðför Það gefur auga leið við lestur á Ljóðförinni, að þarna yrkir maður sem ekki hefur góða handfestu i svipinn, logna eða sanna. Maöur sem er enn að leita að hentugum staö til að byrja mikið verk. Hann kemur viöa viö, tekur sýni eins og maö- ur sem ætlar aö virkja eöa byggja stórt. Þaö sem Bjarni Bernharöur finnur á þessari vettvangskönn- un og margt þarf aö skoöa frek- ar. ' Hann fer sér stundum hægt, eins og i kvæöinu Spor: Gengin spor og of langt Sól I hreiðri tungls á skör Ég hringi á hestvagninn. En stundum er meira um aö vera eins og I St jórnmálalegum prósa. „Nú uppá reglustrikið & á fiðlustrenginn reiknisljóð Til grundvallar höfð: Forinúla á haus Reiknast á teiknin hvort ekki reiknist & rætist hverfinu hér: Sólrlkir grasgarðar á bakvið þing en lögregluky lfur slái vindhögg Að gróði & tapgróði kunni að rjúfa þekjuna Hversu drottinhollir kratar séu þegar þeir kaupa hótelherbergi en sofa I baðkarinu Hvar djöfuls vinstri ihaldið hringsóli.” Að yrkja úr sér hroll Þaö er auövelt aö setja sig i spor flestra sem yrkja. Að skilgreina slikar þarfir er á hinn bóginn öröugra. Þetta er tilfinning fremur en theoria. Heyra álfar og huldufólk t.d. undir guöfræðina, vegna þess aö þeir eru til, a.m.k. hjá sumum, þótt enginn geti lagt þá fram, nema I oröinu eins og guöi? Bjarni Bernharöur viröist ókunnugum lesanda vera á sér- stökum staö, inni i sinu eigin ljóöi. Þar ólmast hann og leitar útgöngu, inni I sinu eigin verki. Hann yrkir þar úr sér hrollinn. Ég hefi gaman af svona ljóö- um. Þeim fylgir hressandi blær. Millistéttin, borgararnir fá aö frika ofurlitla stund meö ungu skáldi, en viö höfum I huga þaö sem sagt er á bls. 9. „Allt frá dögum postulanna hafa þessir menn sést hér á kaffisvæöunum.” Jónas Guðmundsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.